Morgunblaðið - 29.11.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
C 17
Saga af
búálfum
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur
sent frá sér bókina Jólagrautinn
eftir sænska myndlistarmanninn
og rithöfundinn Sven Nordquist.
í kynningu útgefanda segir m.a.
um efni bókarinnar:
„Á bóndabænum sinna búálfamir
öllu því sem mannfólkið kemur ekki
í verk eða gleymir að gera. En ef
fólkið gleymir að fara út með graut-
arskál handa búálfunum á aðfanga-
dagskvöld, þá boðar það óhamingju
á bænum í heilt ár. Og þessi jól,
sem sagan segir frá, höfðu menn
næstum því gleymt grautnum."
Jólagrauturinn er 28 bls., prýdd
litmyndum á hverri síðu. Þorsteinn
frá Hamri þýddi söguna.
Bókin er prentuð í Svíþjóð.
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag
Breiðfirdinga
Nú er lokið Vs af sveitakeppn-
inni, þ.e. 14 umferðum af 21 og
er staða efstu sveita bessi:
HansNielsen 276
Ingibjörg Halldórsdóttir 260
Jakob Ragnarsson 242
Hulda Steingrímsdóttir 241
Dröfn Guðmundsdóttir 241
Guðlaugur Sveinsson 240
Ólafur Týr Guðjónsson 240
Guðlaugur Karlsson 239,
Helgi Nielsen 239
Sannarlega jöfn og spennandi
keppni.
Næstu tvær umferðir verða spil-
aðar á fimmtudaginn í húsi BSI.
Keppnin hefst kl. 19.30. Spilaðir
eru 16 spila leikir.
Frá hjónaklúbbnum
Nú er tveimur umferðum af
þremur lokið í hraðsveitakeppninni
og er staðan þannig:
Sveit Gróu Eiðsdóttur 945
Sveit Huldu Hjálmarsdóttur 926
Sveit Guðrúnar Reynisdóttur 922
Sveit Sigrúnar Steinsdóttur 916
Sveit Svövu Ásgeirsdóttur 915
Sveit Erlu Sigurjónsdóttur 915
Sveit V algerðar Eiríksdóttur 883
Sveit Sigríðar Ingibergsdóttur 881
Sveit Þórunnar Guðmundsd. 875
Meðalskor 864
Bridssamband
Reykjavíkur
Ákveðið hefur verið að fella niður
undankeppni í Reyjavíkurmótinu í
tvímenning og spila eina úrslita-
keppni helgina 12.—13. desember
í Sigtúni 89. Til leiks eru skráð 44
pör og verður spilaður barometer
með tveimur spilum milli para, allir
v/alla alls 86 spil.
Ekki þótti taka því að spila und-
ankeppni með aðeins 44 pörum
miðað við að 27 af þeim „kæmust"
áfram í sjálfa úrslitakeppnina.
Skráningu er lokið (lauk sl.
mánudag, eins og ítrekað hefur
verið) en fram að keppni verður
pörum bætt við sem varapör, enda
alltaf möguleiki á að einhver pör
heltist úr lestinni á svo löngum tíma
fram að móti.
Dregið verður í undanrásum
Reykjavíkurbikarsins f sveita-
keppni, miðvikudaginn 2. desember.
Þegar hafa tvær sveitir tryggt sér
Ástarsaga eftir
Danielle Steel
BÓKAÚTGÁFAN Setberg
hefur gefið út ástarsögu
eftir Danielle Steel, Leynd-
armál.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Mel Wechsler, frábær framleiðandi
sjónvarpsþátta, maður með gull-
fingur, síifnar saman glæsilegu liði
til að hefja framleiðslu þáttaraðar-
innar Manhattan sem hann segir
muni marka tímamót. Sérhver aðal-
leikari býr yfir leyndarmálum, sem
smám saman koma í ljós.
Leyndarmál er saga fólks, sem
starfar við gerð sjónvarpsþátta og
fjallar um ástir þess og vonir."
mMHRHU
Danielle Jteel
§
r
,‘j %
éf’
\V
/
Þetta er áttunda bókin eftir Dani-
elle Steel sem út kemur á íslensku.
Síðara bindi
Fávitans
BÓKAFORLAG Máls og menn-
ingar hefur gefið út síðara bindi
Fávitans eftir Fjodor Dostojevskí
í þýðingu Ingibjargar Haralds-
dóttur.
Fávitinn kom fyrst út í Péturs-
borg árið 1868. í kynningu útgef-
anda segir m.a. að sagan opni sýn
inn í heillandi heim ástríðna, mann-
gæsku, spillingar og glæpa. Frá-
sögnin sé margslungin og leiðir
lesandann gegnum flókna atburða-
rás allt til dramatískra endalok-
anna. Fyrra bindið kom út í fyrra
og er útgáfan styrkt af Þýðingar-
sjóði.
Bókin er 338 bls. að stærð, prent-
uð í Prentsmiðjunni Odda hf.
Kápumynd gerði Robert Guille-
mette.
Jólagjafir
barnanna
Það er engin spurning að leikföngin
frá World of Wonders í
Bandaríkjunum eru með þeim
vönduðustu og skemmtilegustu,
sem þekkjast í heiminum í dag.
Við erum stolt að geta boðið:
1) Bangsa Bestaskinn, talandi
bangsa, sem hreyfir bæði munn og
augu, þegar hann syngur og segir
söguráíslensku. Aðeins4.900,-kr.
2) Lazer Taq, leik framtíðarinnar,
sem byggist fyrst og fremst á hraða
og nákvæmni. Aðeins 2.980,-kr.
3) Síðast, en ekki síst, dansandi
brúður. Svínku, Kermit frosk,
Andrés Önd, Mikka Mús, Mínu Mús
og Feitamúla, en þau dansa í takt
við hvaða lag, sem er.
Aðeins 1.980,- kr.
sæti í undanrásum, sveit Pólaris og
Braga Haukssonar.