Morgunblaðið - 29.11.1987, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
C 27
Höskuldur Jónsson forseti Ferðafélags íslands
Hjaríans þakkir og kveðjur sendi ég öllum
þeim er sýndu mér vináttu og hlýhug á áttatiu
og fimm ára afmœli mínu, 25. nóvember sL
GuÖ blessi ykkur öll.
Finnbogi Hallsson.
TIL SÖLU
Mercedes Benz 280 SE árg. 1980. Sjálfskiptur
m/öllu. Ekinn 110 þús. km. Litur blár.
Upplýslngar í síma 985-25188.
Starfsmenn & skrifstofu: Þórunn Lirusdóttir, Þórunn Þórðardóttir og Helga Garðarsdóttir.
ILandmannalaugum hefa verið ræktaðir upp skikar sem nota á sem
tjaldstædijafnvel næsta sumar efþeir koma vel undan vetri. (Ljósm.
Tryggvi Halldórsson).
staðir eftir. Þar má til dæmis nefna I
hinar eiginlegu Homstrandir og allt
svæðið fyrir norðan Vatnajökul.
Það svæði hyggjumst við hjónin
skoða á næsta sumri en við reynum
að fara eina meiriháttar gönguferð
á hveiju sumri.
Géngurðu líka hér í borginni?
-Ekki vegna daglegra starfa en
ég fer hins vegar oft í eitthvert
sunnudagsrölt og get vel notið
göngunnar þótt veður sé ekki upp
á það allra besta. Annars fínnst
mér merkilegt hversu fólk virðist
hreyfa sig lítið eftir að hinum eigin-
lega sumarleyfistíma er lokið. Það
eru helst þeir sem elta tjúpur eða
golfkúlur og síðan þeir sem stunda
skíðagöngur þegar færi gefst og fer
sá hópur trúlega ört stækkandi.
Enn er ótalinn einn þáttur í
starfi félagsins en það eru kvöld-
vökurnar og Höskuldur segir
nánar frá þeim:
-Mánaðarlega yfir veturinn höld-
um við kvöldvökur óg njyndakvöld
til skiptis. Á myndakvöldum eru
gjaman rifjaðar upp ferðir sumars-
ins og á kvöldvökum veljum við
efni er tengist náttúru, menningu
eða sögu Islands. Þessir fundir
gegna miklu hlutverki við að tengja
félagsmenn saman, hér hittast þeir
sem hafa verið á röltinu og aldnir
félagar koma og skoða löngu
gengnar leiðir í nýju ljósi.
Að slást í hópinn
Verður þörf fyrir Ferðafélag
íslands í önnur 60 ár?
-Ég sé ekki annað. Allar ábend-
ingar lækna og annarra heilbrigðis-
stétta hníga líka í þá átt að hvetja
menn til að hreyfa sig og þótt það
beinist fyrst og fremst að einstakl-
ingnum fínnst mér að stjómvöld
þurfí að láta þessi mál til sín taka
líka og tengja gönguferðir um Is-
land heilbrigðis- og menntastefnu.
Besta leiðin til að kynnast landinu
eru gönguferðir og má í því sam-
bandi minna á göngudaginn sem
við höfum haldið 9 sinnum. Þá vekj-
um við athygli á félaginu og
nauðsyn þess að hreyfa sig og við
fengum um 350 göngumenn með
okkur í ár. Og þótt jeppaeign sé
orðin almenn og menn ferðist meira
á eigin spýtur en var þá eru alltaf
margir sem kjósa að slást í hópferð
og kynnast landinu undir leiðsögn
kunnugra og reyndra manna. Við
reynum líka að bjóða bæði ferðir
um hálendi og óbyggðir og ferðir
um byggð ból - reynum að koma
til móts við óskir sem flestra.
Gönguferðir stuðla hiklaust að
betri andlegri og líkamlegri vellíðan
og íslendingar eiga að kynnast sem
mest eigin landi með því að ferðast
um það sjálfír. Ferðafélag íslands
vill leggja sitt að mörkum til þess
að svo megi verða og vonandi verð-
ur það alltaf þannig í stakk búið.
Stofnendumir völdu því metnaðar-
full einkunnarorð: Ferðafélag
íslands - félag allra landsmanna og
þau gerum við ennþá að okkar orð-
um á þessum tímamótum.
Kr. 1.590,-
Stærðir: 26-41
Litir: Svart, hvítt
Ath.: Ryðfrítt stál
Póstsendum samdægurs
5% staðgreiðsluafsláttur
21212
KRINGWN
Sími 689212. KI5IM0NH