Morgunblaðið - 29.11.1987, Page 29
28 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
C 29
jiS
jllif
KYNNTUÞÉR
STÖEXJÞÍNA
í STAÐGREÐSLU
það margborgar sig
1. janúar nálgast með staðgreiðslu
opinberra gjalda. Það er afar mikilvægt að
allir launamenn og iaunagreiðendur þekki
rétt sinn og skyldur í hinu nýja kerfi. Menn
eru því hvattir til að kynna sér málið vel og
leita upplýsinga séu þeir í óvissu.
HVAÐ FELSTÍ STAÐGREIÐSLU?
í staðgreiðslu eru skattar dregnir af öllum
launum við hverja útborgun. Þar með talið
eru hvers konar greiðslur, hlunnindi og oriof.
Staðgreiðslan tekur yfir alla skatta og gjöld,
sem áður voru álögð á launamenn, nema eign-
arskatt sem áfram verður innheimtur eftir á.
ÚTREIKNINGUROGINNHEIMTA
STAÐGREÐSLU
Launagreiðandi annast útreikning stað-
greiðslu starfsmannasinna, innheimtirhanaog
skilar til innheimtumanns mánaðarlega, einnig
af eigin launum. Sama skatthlutfall er notað við
afdrátt af öllum launum óháð upphæð þeirra.
FRÁDRÁTTUR íSTAÐGREÐSLU
Allir launamenn fá árlegan persónu-
afslátt sem dreginn er af staðgreiðslunni. Að
öllu jöfnu er persónuafslátturinn sá sami hjá öll-
um launamönnum. Persónuafslættinum er
skipt jafnt á alla mánuði ársins.
Sjómenn og hlutráðnir landsmenn fá sér-
stakan sjómannaafslátt. Námsmenn fá hærri
persónuafslátt yfir sumarmánuðina.
Vaxtafrádráttur verður afnuminn en til
bráðabirgða verður þó veittur afsláttur til þeirra
er festu kaup á íbúðarhúsnæði eða hófu bygg-
ingu þess til eigin nota 1987 eða fyrr og hefðu
að óbreyttu notið vaxtafrádráttar. Þessi afsláttur
verður veittur í allt að 6 ár, frá og með 1988.
BÆlUR
Bamabætur með hverju barni innan 16
ára aldurs verða greiddar á 3ja mánaða fresti
og skiptast jafnt á milli hjóna (sambýlisfólks).
Húsnæðisbætur eru greiddar þeim sem
kaupir eða hefur byggingu íbúðarhúsnæðis
1988 eða síðar í fyrsta sinn eða til eigin nota
einnig þeim sem keyptu eða byggðu í fyrsta
sinn 1985-1987 ef þeir nutu ekki vaxtafrádrátt-
ar á þeim tíma. Rétturtil bótanna varir í 6 ár, frá
og með upphafsári.
SKATTKORT
Allir, sem verða 16 ára og eldri á stað-
greiðsluári, fá sent skattkort fyrir upphaf stað-
greiðsluárs. Þar er mánaðarlegur persónuaf-
sláttur tiltekinn og einnig það skatthlutfall, sem
draga á af launum, auk helstu persónuupplýs-
inga, svo sem nafns, heimilis og kennitölu
launamanns.
Launamanni ber að afhenda launagreið-
anda sínum skattkortið fyrir upphaf stað-
greiðsluárs. Ef iaunagreiðandinn hefur ekki
skattkortið við útborgun launa, má hann
ekki draga persónuafsláttinn frá stað-
greiðslunni og launamaðurinn greiðir þar
með mun hærri fjárhæð. Þess vegna er mikil-
vægt fyrir launamann, að sjá til þess að launa-
greiðandinn fái skattkortið í tækatíð.
Þegar maki launamanns ertekjulaus get-
ur launamaðurinn einnig afhent launagreið-
anda sínum skattkort makans og þar með nýtt
80% af persónuafslætti hans til viðbótar
sínum. Bam innan 16 ára fær ekki skattkort.
Skatthlutfall þess er 6% og það fær ekki per-
sónuafslátt.
AUKASKATTKORT
Launamaður getur fengið aukaskattkort ef
hann vinnur á fleiri en einum stað og vill skipta
persónuafslætti sínum til þess að nýta hann
betur. Einniggeturhannfengiðaukaskattkortef
hann vill afhenda maka sínum þann persónu-
afslátt, sem hann nýtir ekki sjálfur. Umsóknir
um aukaskattkort fást hjá skattstjórum.
ÁLAGNING OG FRAMTAL
Skattframtali ber að skila í staðgreiðslu
með hefðbundnum hætti. Að loknu stað-
greiðsluári fer fram álagning og síðan uppgjör
staðgreiðslu. Þegar sú fjárhæð, sem stað-
greidd hefur verið er borin saman við endan-
lega álagningu tekjuskatts og útsvars, kemur í
Ijós, hvort þessi gjöld hafi verið of eða van-
greidd. Verði um mismun að ræða er hann
endurgreiddur í einu lagi í ágúst eða innheimt-
ur með jöfnum greiðslum í ágúst-desember að
viðbættri lánskjaravísitölu.
SJÁLFST/EÐIR REKSTRARAÐILAR
Sjálfstæðum rekstraraðilum er skylt að
reikna sér endurgjaid af starfseminni og miða
staðgreiðslu sína við það og skila henni mán-
aðariega. Ríkisskattstjóri ákveður lágmark
endurgjalds.
SKATTLAGNING TEKNA
ÁRSINS 1987
Öllum ber að skila framtali á árinu 1988
vegna ársins 1987 eins og endranær. Inn-
heimta fellur hins vegar niður af öllum
almennum launatekjum. Undantekningar
eru þó gerðar
• ef laun hafa verið yfirfærð á árið 1987.
• ef hækkun launa verður hvorki rakin til auk-
innar vinnu, ábyrgðar né stöðuhækkunar.
• ef menn í eigin atvinnurekstri reikna sér
meira en 25% hærri laun fyrir 1987 en 1986
(með verðbótum).
• ef menn fá meira en 25% hærri laun fyrir
eignarhlutdeild en var árið 1987 (með verð-
bótum).
í þessum tilvikum verður aukningin skattskyld.
STAÐGREÐSLAN ER EINFÖLD
OGAUÐSKILIN
Bæklingur með ítariegum upplýsingum
um staðgreiðsluna hefur verið sendur inn á
hvert heimili landsins. Það er mikilvægt að lesa
þennan bækling vel og varðveita, þar sem
hann geymir nauðsynlegar upplýsingar um
staðgreiðslu. Launamenn fá skattkort sitt sent
næstu daga. Með því fýlgja skýringar sem þeir
eru beðnir um að lesavel, gera viðeigandi ráð-
stafanir og afhenda skattkortið síðan launa-
greiðandasínum.
Staðgreiðsla opinberra gjalda er breyt-
ing, sem beðið hefur verið eftir. Aðdragandi
hefur verið langur en nú er undirbúningur-
inn á lokastigi. Þetta er róttæk breyting til
einföldunar og hagræðis og snertir alla
skattgreiðendur. Þessi breyting verður
mun auðveldari ef allir skattgreiðendur
þekkja stöðu sína.
Staðgreiðslan ereinföld
- efþú þekkir hana
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
1-
i
t
>&*JSTAN / SlA