Morgunblaðið - 15.12.1987, Qupperneq 19
vsfit ?.r 3noAaui.cnfl<í mcrA,rawuoflOM Bí
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987 7.9
valsstaða, sem stendur til 13.
desember.
Hann sýnir þar 111 myndverk í
olíu, akryl, vatnslit og pastel — að
langmestu leyti landslagsminni, sem
hann hefur fest á ljósmyndafilmu á
ferðum sínum.
Hér virðist það skipta öllu máli
fyrir gerandanum að gera hlutinn
vel, koma honum í fagran búning
og beita í einu og öllu sem vand-
virknislegustum vinnubrögðum.
Hér skiptir það einnegin sköpum
að finna og túlka viðfangsefnin á
sem sannverðugastan hátt.
Þetta tekst Hauki Clausen með
sóma, þótt engan veginn jafnist hann
á við meistara sinn, Asgrím Jónsson,
sem hann dáir allra íslenzkra málara
mest.
Eðlismunurinn á Hauki og Ás-
grími er sá, að Ásgrímur var at-
vinnumálari með mjög þroskaða
skynjun fyrir viðfangsefnum sínum
og innri lífæðum þeirra — fyrir hon-
um var hver einstök mynd innri lifun
og samkennd með náttúrunni. En
Haukur er leikmaður, em öðru frem-
ur lætur heillast af ytri byrði
landslagsins í björtu og fögru veðri
og nær hér snotrum og virðingar-
verðum árangri þegar best lætur.
Einkum er hann vinnur hreint og
einfalt eins og í myndunum „Kvöld-
sól á Lómagnúp" (11), „f Gilinu"
(32), „í Gjánni" (61), „í Laugardal"
(71) og „Kvöldsól á Lómagnúp"
(101).
PV-O^ÖSP
ÖÖ PIOIMEER
HUÓMTÆKI
Lítið skýjafar
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Jóhannes R.Snorrason: Skrifað í
skýin. Minningar III.
Útg. Snæljós sf.1987
Það er kunnara en frá þurfí að
segja, að við íslendingar erum mik-
ið gefnir fyrir að rifya upp endur-
minningar okkar og gefa þær út.
Eins og ég hef margsinnis Vikið að
áður, slíkar ævisögur á ekki að taka
alltof bókstaflega. Því að minnið
er brigðult og'við sjáum atburði í
öðru ljósi, að þeim löngu liðnum,
en meðan þeir eru að gerast.
Margar af þeim ævisögum, sem
eru gefnar út eru góð bókmennta-
verk og fullar af fróðleik og
skemmtilegum lýsingum, sem er
gagn og gaman að lesa. Sá sem
ákveður að skrifa ævisögu sína
verður án efa að glíma við ýmsar
hugsanir, bæði áður en verkið er
hafið, eftir á og kannski ekki sízt
eftir að það_hefur komið fyrir al-
menningssjónir á bók og hlotið
umfjöllun, sem getur verið svona
upp og ofan.
En ákveði menn að skrifa um
sjálfan sig, verður lesandinn líka
að fá að gera ákveðnar kröfur til
ritara um einlægni og hreinskilni.
Ég á ekki við, að það sé nauðsyn-
legt að segja allt. En það verður
að gefa af sjálfum sér. Ella verður
þetta þurr frásögn. Skýrsla, sagði
ég víst um annað bindi Jóhannesar
Snorrasonar, flugstjóra. Og skýrsla
er hér á ferð, þó að hún sé snöggt-
um læsilegri en næsta bindi á
undan.
Jóhannes Snorrason er samt of
varfærinn og frásögn hans er hrein-
lega of ópersónuleg og stirð til að
vekja verulegan áhuga. Það er frá
ýmsu sagt, ótal flugferðum, þar
sem gengið hefur á ýmsu. En vekur
einhvern veginn ekki áhuga.
Jóhannes Snorrason
Kannski gætu einhvetjir .fært þetta
í snjallari og litríkari búning, þetta
verður meira eins og upptalning.
Ágætar landslagslýsingar eru eins
og í bindi tvö, nokkuð fyrirferðar-
miklar og töluvert um laxveiðifrá-
sagnir.
Jóhannes Snorrason verður án
efa í hópi þeirra sem verða taldir
miklir afreksmenn,framsýnir og
snjallir, þegar úttekt verður gerð á
flugmálum hjá okkur á faglegan
máta. Hann var óvenjulega farsæll
og dáður í starfí og áreiðanlega að
verðleikum.
Æviminningar slíks manns ættu
að vera forvitnilegar að mörgu
leyti, en hér hefur Jóhannes ekki
gert sömu kröfur og í flugstjóm-
inni. Hann hefur ekki gefíð nóg af
sjálfum sér. Og hann teygir lopann
um of.
Mér fínnst ástæða til að nefna
að kaflinn um það er Jóhannes og
félagar hans flugu gamla Gullfaxa
til Suður Afríku var þekkilegur af-
lestrar, að mínu viti.
KENWOOD
ÞAÐ VERÐUR ENGiNN FYRIR VONBRIGÐUM MEÐ KENWOOD HEIMILISTÆKIN
Rafmagns- og steikarpannan
frá KENWOOD
er naudsynleg í hverju eldhúsi
Heimihs- og raftækjadeild
Fullkomin viðgeröa-
og varahlutaþjónusta
E
TIL JÓLAGJAFA
Pennasett • Pennastatíf • Töfl • Servíettur • Leikspil •
Allar jólabœkurnar • Hnattlíkön • Jólakort •
Vönduö tréleikföng • Tölvuspil • Kerti •
Skrifborösmottur • Jólapappír • Spil •
Jólaskraut • Slaufur og boröar •
Merkimiöar • Kertagíös •
Skjalatöskur • Óróar •
O.m.m. fl.
Meö nyjungarnar og nœg bilastœöi
Síöumúla 35 — Sími 36811
GJOFIN
SEM KEMUR
EIGINMANNINUM
ÁÓVART
NILFISK
DÖNSK GÆÐI
Framtíðarryksugan sem þoiir allan samanburð.
Síung og spræk, löngu eftir að aðrar hafa gefist
upp. Góó kjör-GreióslukDrtaþjónusta
NILFISK GS 90 >FQniX
engin venjuleg ryksugH hatuni6a simm9U2442o