Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987 43 Ítalía: Þrír hermdarverka- menn fyrir rétti Róm, Reuter. PALESTÍNSKUR skæruliðaforingi, Abu Nidal, og tveir arabar úr skæruliðahópi hans koma fyrir rétt í dag ásakaðir um árás sem gerð var í flugstöðinni i Róm fyrir tveimur árum, en hún kostaði 16 manns lífið. Þeir eru allir ákærðir fyrir fjöldamorð og eiga iífstiðarfangelsi yfir höfði. Auk Abu Nidal koma Rashid A1 Hamieda og Ibrahim Mahmood Khaled fyrir réttinn, en Khaled var sá eini af fjórum skæruliðum sem komst af eftir að hafa gert árás með sjálfvirkum rifflum og hand- sprengjum á Rómarflugvelli 27. desember árið 1985. í skýrslu sakn- sóknarans, Domenico Sica, sem réttarhöldin byggjast á, segir að skæruliðahópur Abu Nidals sé Náðanir í Austur- Þýzkalandi: Tíundi hver fangi aftur í steininum Austur-Berlín. Reuter. AUSTUR-Þjóðverjar nær tæmdu öll fangelsi landsins í almennri sakaruppgjöf á tímabilinu 12. október til 12. desember, en vest- rænir stjórnarerindrekar töldu í gær að um 10% sakamannanna væru aftur komnir á bak við lás og slá. Samkvæmt upplýsingum skrif- stofu ríkissaksóknara Austur- Þýzkalands voru látnir lausir 24.621 fangi. Stjórnarerindrekar og lögmenn telja að hluti fanganna, eða um 10% þeirra, séu nú aftur komnir inn vegna nýrra afbrota. Náðunin var ekki algjör heldur skilorðsbundin, að sögn vestrænna stjórnarerindreka, því „hrasi“ við- komandi á næstu þremur árum verða þeir að afplána það sem þeir áttu eftir af fyrri refsingu að við- bættri hinni nýju refsingu. Sendifulltrúar erlendra ríkja sögðu að náðunin hefði verið til- kynnt í júlí vegna heimsóknar Erichs Honecker, leiðtoga Austur- Þýzkalands, til Vestur-Þýzkalands í september. I hópi hinna náðuðu voru 88 Vestur-Þjóðvetjar. ábyrgur fyrir hermdarverkunum á Rómarflugvelli og Vínarflugvelli, sem framin voru um svipað leyti. Höfuðstöðvar hópsins séu í Sýrlandi og hópurinn sé í tengslum við sýr- lensku leyniþjónustuna. Mikill hluti skýrslunnar er byggð- ur á játningum Khalads, og þær hafa að miklu leyti verið staðfestar með öðrum leiðum að sögn Sicas. Khaled sagði Sica að hópurinn hefði ætlað að sprengja flugvél frá E1 Al-flugfélaginu yfir Tel Aviv. Hann sagði ennfremur að Abu Nidal og Hamieda hefðu skipulagt árásina í Róm og Hamieda hefði líklega ver- ið á flugvellinum fyrir árásina og gefið merki um að hún skyldi hefj- ast. Að loknum þessum réttarhöldum er líklegt að aröbunum þremur verði stefnt aftur og þá verði þeir ákærð- ir ásamt um níu öðrum fyrir að vera í vopnaðri skæruliðasveit. Reuter Setningar herlaga minnst í Póllandi Þrátt fyrir mikinn kulda mættu rúmlega þús- í Póllandi. í göngunni mátti sjá slagorð eins und manns í kröfugöngu í Gdansk í gær í tilefni og „fari kommúnisminn í glatkistu sögunnar" þess að 6 ár eru liðin síðan herlög tóku gildi og „við sigrum með samstöðunni'*. Fyrrum háttsettur hernaðarráðgjafi Sandinista í viðtali við bandarískt dagblað: Gífurleg efling hers Sandinista fyririiuguð Varnarmálaráðherrann tekur í sama streng Wasliington, Managua, Reuter. ROGER Miranda, fyrrum aðstoð- armaður varnarmálaráðherra Nicaragua, sem flúði til Banda- ríkjanna í október segir að sovésk stjórnvöld hafi samþykkt að senda MiG 21 orrustuþotur til Nicaragua og sjá Sandinistum fyrir nægilegum hergögnum fyr- ir 500.000 manna her árið 1995. í viðtali við dagblaðið Washing- ton Post í lok síðustu viku segir Miranda að Sandinistar hyggist snúa friðaráætlun fyrir Mið- Ameríku upp í vopn til festa sig í sessi og ráða niðurlögum kontra-skæruliða. Einnig hefðu Nicaragua, Kúba og Sovétríkin gert tvær fimm ára hernaðará- ætlanir síðan Sandinistar komust til valda. . Samkvæmt frétt Washington Post hafa bandarískir embættis- menn undir höndum leynileg herskjöl sem Miranda tók með sér til Bandaríkjanna. I þeim er meðal annars gert ráð fyrir að her Nic- aragua vaxi úr 250.000 hermönn- um nú, í 370.000 árið 1990 og í 500.000 árið 1995. Samkvæmt öðru skjali ætla Sandinistar að fá eina Aukaþing rúmenska kommúnistaflokksins: Ceausescu boðar „róttækar ráðstafanir“ í efnahagsmálum - segir ástandið m.a. stafa af minni hugsjónaeldi meðal flokksmanna Búkarest. Reuter. NICOLAE Ceausescu, forseti Rúmeníu, setti í gær aukaþing rúm- enska kommúnistaflokksins með langri ræðu þar sem í hendur héldust loforð um launahækkanir og heitstrengingar um, að staðið yrði við framleiðsluáætlanir ríkisins. Rúmenar eiga við alvarlega efnahajgserfiðleika að etja um þessar mundir og hefur sums staðar komið til mótmæla og átaka vegna ástandsins. I maraþonræðu, sem rúmenska urkenning á því, að ekki sé allt fréttastofan Agerpress greindi frá, viðurkenndi Ceausescu, að fram- leiðsluáætlanir hefðu ekki staðist fyrstu tvö ár fimm ára áætlunarinn- ar, frá 1986-90, og lagði áherslu á, að grípa yrði til „róttækra ráð- stafana". Sagði hann, að dregið hefði úr sjálfsaga og hugsjónaeldi meðal flokks- og embættismanna og hefði það m.a. haft sín áhrif í efnahagslífinu og á öðrum sviðum. „Nú er kominn tími til að upp- ræta í eitt skipti fyrir öll alla sjálfsánægju, linkind og kæruleysi. Það verður að draga þá til ábyrgð- ar, sem bijóta landslög og sam- þykktir flokksins,“ sagði Ceausescu og eru ummælin talin sjaldgæf við- með felldu. Að öðru leyti þótti ræð- an ekki einkennast af „nýrri hugsun“ eins og nú þykir hlýða meðal ráðamanna í Austur-Evrópu. Aukaþing rúmenska kommún- istaflokksins fer fram á sama tíma og vaxandi ókyrrðar gætir meðal rúmensks almennings og er skemmst að minnast uppþota í borginni Brasov þar sem fólk hróp- aði „niður með einræðisherrann“. Fyrir íjórum dögum tilkynnti Ceau- sescu, að verkamönnum yrði greidd 10% launauppbót og laun hækkuð að auki um 10%, þó ekki fyrr en á síðara misseri næsta árs. Rúmenskur stjórnarerindreki, sem fréttamaður Reuters ræddi við, Reuter Ceausescu Rúmenfuforseti í ræðustól á aukaþingi konunúnistaflokksins. vildi ekki staðfesta, að óeirðirnar í Brasov hefðu neytt Ceausescu til að hækka launin og sagði, að „líklega hefur fólk minnstar áhyggjur af laununum því að það er ekkert til að kaupa fyrir þau. Það hefði hins vegar ekkert á móti aðeins meiri yl í íbúðunum“. í þessum mánuði kom til mót- mæla í borginni Timisoara í Vestur-Rúmeníu og skömmu síðar var eldsprengjum kastað á styttu af Lenin fyrir utan aðalstöðvar rúm- ensku fréttastofunnar í Búkarest. Reuter Daniel Ortega forseti Nicaragua. sveit MiG 21 orrustuþotna frá Sov- étmönnum, loftvarnareldflaugar, Mi25 fallbyssuþyrlur og 122 mm sprengjuvörpur. Humberto Ortega, varnarmála- ráðherra Nicaragua, sagði á laugardag að stjórnin hefði í hyggju að tvöfalda herlið sitt fram til árs- ins 1995 og flytja inn mikið af sovéskum hergögnum. Bróðir hans, Daniel Ortega forseti, reyndi að draga úr þessum ummælum í við- tali við dagblaðið Washington Post um helgina. Ortega sagði að um- mæli bróður síns vísuðu til tillögu hersins sem stjómin hefði ekki enn tekið afstöðu til. Hann sagði enn- fremur að Nicaragua myndi ekki hafa 600 þúsund manns undir vopn- um ,eins og vamarmálaráðherrann gaf til kynna, nema ef til innrásar kæmi. Ortega gaf einnig í skyn að ummæli Rogers Miranda væm liður í áróðursstríði Bandaríkjamanna gegn Sandinistastjórninni. Stjórn Nicaragua frestaði annarri umferð friðarviðræðna við kontra- skæruliða á sunnudagskvöld, nokkmm stundum áður en þær áttu að hefjast samkvæmt heimildum innan kirkjunnar og meðal erlendra stjómarerindreka. Að sögn vill stjómin meiri tíma til að undirbúa frekari friðarviðræður. Búist er við að viðræðurnar geti hafist á mið- vikudag eða fimmtudag í þessari viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.