Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
61
Því verðum við að láta það ráðast
hvenær ný verk eru fjármögnuð.
Annað sem við höfum hugsað
okkur áð gera er að fá til landsins,
tónlistarfólk og verk sem hafa eitt-
hvað að segja fyrir tónlistarlífið í.
landinu, fá til dæmis tónskáld, ein-
leikara og fyrirlesara. Sú hugmynd
er ofarlega hjá okkur að leggja alla
kraftana í eitt þannig verkefni yfir
veturinn."
Hvaða fyrirlestrar eru á döf-
inni hjá ykkur?
„Fyrsti fyrirlesturinn verður 16.
desember," segir Haukur. „Það er
reyndar fæðingardagur Beethovens
en það er nú óskylt mál, því fyrirles-
ari hjá okkur verður Þorsteinn
Hauksson, sem fjallar um raftónlist
9g vinnu hans á því sviði. Af okkur
íslendingum, hefur hann langmesta
reynslu á sviði tölvu- og raftónlist-
ar. Hann mun spila tónlist af bandi
og sýna myndir, en aðallega byggir
hann fyrirle'sturinn á eigin verkum
og því sem nú er að gerast á þessu
tónlistarsviði.
Næsti fyrirlestur verður í byrjun
'janúar. Þá mun Snorri Sigfús Birg-
isson kynna nýútkomið kennsluefni
fyrir byrjendur í píanóleik. Þessi
fyrirlestur verður til að kynna útg-
áfuna, aðallega fyrir píanókennur-
um. í bókinni skýrir Snorri hvemig
lög em byggð upp og hvernig á að
sfemja fyrir börn.“
„Þessi bók er alveg' einstök,“
bætir Eyþór við, „og Snorri er sjálf-
sagt sá eini sem hefði getað skrifað
hana, því hann hefur þá sjáldgæfu
eiginleika að vera mjög næmur fyr-
ir bömum, auk þess sem hann er
bæði píanóleikari og tónskáld. Þess-
ir tveir fyrirlesarar hafa mikla
sérstöðu meðal tónskálda."
Hvað með tónleikahald i vetur?
„Fyrstu tónleikamir verða 3. jan-
úar,“ segir Haukur, „í Norræna
húsinu. Þá leikur Nýi músíkhópur-
inn, en í honum eru Kolbeinn
Bjarnason, Guðni Franzson, Sigurð-
ur Flosason, Emil Friðfinnsson,
Ásdís Valdimarsdóttir, Snorri Sigf-
ús Birgisson, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir og Pétur Grétarsson,
kvintett eftir Atla Heimi Sveinsson,
sem heitir „Together with you.“
Einnig flytja þau verk eftir Berio
og Stockhausen og frumflytja verk
eftir Hauk Tómasson.
Þann 10. janúar verða aðrir tón-
leikar í Norræna húsinu. Þar leika
Þóra Johansen á sembal og hljóð-
gervil og Martin van der Valk á
slagverk, verk eftir Þorkel Sigur-
bjömsson, Lárus Grímsson og ýmsa
erlenda höfunda. Síðustu tónleik-
arnir í vetur verða svo seinni hluta
febrúar. Á þeim frumflytur Blás-
arasveit Reykjavíkur verk eftir Atla
Heimi sem kallast „Fimmhjóladrif."
Þetta verk var pantað hjá Musica
Nova í fýrra. Það stóð til að flytja
það á Skerpluhátíð síðastliðið vor,
en tókst ekki að ljúka við það í
tæka tíð.“
„Það verða ekki fleiri tónleikar
í vetur, en ef fyrirlestrarnir takast
vel, verða þeir fleiri. En núna erum
við í óðaönn að huga að tónleika-
haldi og öðru fyrir næsta og
þamæsta vetur. Það þarf alltaf
mjög langan fyrirvara þegar tón-
leikar eru annars vegar,“ segir Mist
að lokum.
Súsanna Svavarsdóttir
Fjölmenni var í reisugilli Þórara.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
V estmannaeyj ar:
Reisugilli hjá
Þórurum
Hafa á tíu mán-
uðum reist
glæsilegt
félagsheimili
Vestmannaeyjum.
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Þór hélt
nýlega veglegt reisugilli í tilefni
þess að nýtt og glæsilegt félags-
heimili þeirra er orðið fokhelt
og vel það. Þórarar hafa einnig
nýlega lokið við að tyrfa nýjan
grasvöll í fullri stærð við félags-
heimilið.
Þegar reisugillið var haldið vom
aðeins liðnir um ellefu mánuðir frá
því að heiðursfélagi Þórs, Valtýr
Snæbjömsson, tók fyrstu skóflu-
stunguna. Smíði hússins hefur því
tekið undrastuttan tíma.
í ræðu, sem Siguijón Pálsson,
hönnuður hússins og formaður
bygginganefndar hélt, kom fram
að húsið er byggt í þremur sam-
byggðum einingum.samtengdum.
Húsið er U-laga, á tveimur hæðum
að hluta, alls 540 fermetrar að flat-
armáli.
Í húsinu verður aðstaða fyrir
búnings og sturtuklefa, sauna, sól-
arlampa, heita potta, tvo veggja-
boltavelli, fundarherbergi,
geymslur, eldhús og kaffiteríu.
I spjalli við Georg Þór Kristjáns-
son, byggingamefndarmann, sagði
hann að forsenda þess að svona
stórt og glæsilegt hús væri reist á
svona skömmum tima væri mikil
fómfýsi og mikil sjálfboðavinna og
þetta skorti hvorugt hjá Þórumm.
Sagði Georg að húsið myndi án efa
efla starfíð í félaginu, en því væri
ekki að leyna að húsið væri fyrst
og fremst hugsað fyrir yngri kyn-
slóðina.
Aðspurður um hvemig menn
fæm að því að fjármagna svona
glæsilega byggingu sagði hann að
þar hefði margt komið til. Sjálf-
boðavinna, gjafir og styrkir, gjafa-
skuldabréf og byggingamefnd hefði
farið út í happdrætti og hefði
Vinnslustöðin hf. sem fékk aðal-
vinninginn, bifreið, gefíð bygging-
arsjóðnum hana.
I byggingamefnd sem borið hef-
ur hita og þunga af starfínu em
auk Sigurjóns og Georgs þeir Arn-
grímur Magnússon, Friðbjöm
Yaltýsson og Stefán Runólfsson.
Áætlað er að vígsla hússins verði á
næsta ári og verði það þá full-
byggt. Þá hafa Þórarar nýlega lokið
við að tyrfa nýjan grasvöll 70x120
metra að flatarmáli en bæjaryfir-
völd lögðu sitthvom félaginu, Þór
og Tý, til tilbúna velli undir gras,
nú í sumar.
Núna em því til fjórir grasvellir
í Eyjum auk eins malarvallar. Ætti
því hagur okkar á knattspymusvið-
inu skjótlega að fara að vænkast.
-Bjami.
Gestum var boðið upp á veitingar, kökur og fínheit.
TÓNUS14RSKÓLI
KÓPKJOGS
Fyrstu jólatónleikar skólans verða haldnir
f salnum, Hamraborg 11, miðvikudaginn
16. desemberkl. 20.30.
Skólastjóri.
Stórkostleg verðlækkun á
gosi og öli fyrir hátíðarnar
Dæmi um verð:
1V2 lítri af Coca Cola, Sprite,
Tab, Fanta, diet Coca Cola kr. 89,->«3,-
Stór Coca Cola kr. 32,- 35-,-
Lítil Coca Cola kr. 23,-2«;-
Coca Cola dós kr. 29,
1V2 lítri af Sólgosi kr. 75,- UOT-
Sólgos dósin kr. 25.-30T-
IV2 lítri af Egils kr. 99.-ÍT&;-
1 lítri af Maltöli kr. 95,-jLGr,-
Pripps bjór kr. 35,->er-
Carlsberg bjór kr. 49,-^5r-
Tuborg bjór kr. 39,-^67-
Hvítöl 5 lítrar kr. 290,-?
GOSMARKAÐUR,
Bústaðavegi 130, sími 38960.
DEMANTAR
Hringir, hálsmen,
eyrnalokkar.
Stórkostlegt
úrval.
Jón Sigmundsson,
Skartgripaverslun hf,
Laugavegi 5,
sími 13383.
BETRA VÖFFLUJÁRN
FRÁ
y JÖ r ■ í=^=l 1
allt sem þarf til að gleðja heila fjölskyldu.
V-þýsk gæðavara sem endist og endist....
JOHAN
RÖNNING HF.
Kringlunni, simi 685868.
JT