Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 52
52' MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR'15. DESEMBER' 1987 TILLAGA AÐ DEILISKIPULAGI: Reitur sem markast af Bankastræti og Laugarvegi, Smiðjustíg, Hverfisgötu og Ingólfsstræti Bankastræti I I Eldri byggingar sem standa skv. tillögunni Ný- eða breyttar byggingar skv. tillögunni MftM Gangstígar og torg Steinlagt torg fram- an við Þjóðleikhúsið NÝTT deiliskipulag hefur verið unnið að reit sem afmarkast af Laugavegi, Bankastræti, Ingólfsstræti, Hverfisgötu og Smiðjustíg. Tillagan gerir ráð fyrir að öll bílastæði verði neð- anjarðar, aðallega í þriggja hæða bilakjallara við Hverfis- götu nálægt Smiðjustíg og er gert ráð fyrir að Reylgavíkur- borg taki þátt í kostnaði við byggingu hans. „Við leggjum megin áherslu á að varðveita Traðarkotssundið sem gönguleið milli Laugavegs og Hverfisgötu og leggjum til að Hverfísgata verði hækkuð upp og steinlögð framan við Þjóðleikhúsið og myndi torg með trjám og gróðri," sagði Agústa Sveinbjam- ardóttir arkitekt, en hún vann ásamt Margréti Þormar arkitekt að skipulagstillögunni. Aðkoman að bílakjallara verður frá Hverfís- götu nálægt Smiðjustíg en lagt er til að á opnunartíma verslana verði Smiðjustígur göngugata. Lagt er til að götumynd haldist að mestu óbreytt þrátt fyrir þó nokkra uppbyggingu á homi Smiðjustígs og Hverfísgötu yfír bíiakjallaranum. Sagði Agústa að í tillögunni væri reynt að taka tillit til núverandi götumyndar við Laugaveg og Hverfísgötu með hærri byggð á gatnamótum og benti á Alþýðuhúsið, og hús Kristjáns Siggeirssonar við Laugaveg en þær byggingar eru hærri en aðliggjandi hús. Samkvæmt tiilögunni breytist nýting ióða vestan við Traðarkots- sund, að Laugavegi 1 og 5 og er gert ráð fyrir að elsta hús við Laugaveg, Laugavegur 1, sem byggt var árið 1884 verði látið víkja. Hefur borgarminjavörður lagst eindregið gegn niðurrifi þessara húsa og lagt til að athug- að verði hvort hugsanlegt sé að flytja húsin við Traðarkotssund 3 og 6 og Smiðjustíg 3. Lagt er til að nýting lóðanna við Hverfísgötu 14 og 18 breytist og að timbur- húsið við Hverfísgötu 18 standi áfram en lóðimar við Traðarkots- d o -ca □ ]flDO 4 | «§ X Götulínan við Hverfisgötu skv. tillögunni Æ> f&i □□□□□□ sund 6 og Laugaveg 1 B samein- aðar Hverfísgötu 18 og þar leyfð uppbygging. Af baklóð verða smáskúrar fjarlægðir og í stað þeirra verði byggð ein bygging, miðsvæðis. Gert er ráð fyrir gönguleiðum milli bygginganna, hugsanlega með glerþaki og er lögð áhersla á aðlaðandi og opnar húshliðar sem snúi að steinlögð- um, gróðrivöxnum sundum. í greinargerð með skipulagstil- lögunni segir að svæðið geti orðið aðlaðandi leið frá Skuggahverfí og upp á Laugaveg. Það tengi enn fremur Þjóðleikhúsið betur Laugavegi sem hefur verið fegr- aður. Skipulagstillagan verður lögð fyrir skipulagsstjórn ríkisins á næstunni og hún auglýst en sam- kvæmt lögum munu tillagan hanga uppi í sex vikur til kynning- ar. Að þeim loknum er veittur tveggja vikna frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri. JHL nun tj n □□□gq d [rbaaaar) D ifruTTinnn nrj □ □ DDi|~nnj 1 □ b otaQaoömj Götulínan við Bankastræti og Laugarveg skv. Hverfisgötu skv. tillögunni Loðnan stygg og dreifð LOÐNUAFLI var lítill aðfarar- nótt mánudagsins. Að sögn Ástráðs Ingvarssonar hjá Loðnu- nefnd er loðnan mjög stygg og dreifir sér mikið. Flest skip sem tilkynntu afla í gær voru komin með fullfermi fyrir nóttina. Eftirtalin skip tilkynntu afla á laugardaginn: Börkur NK var með 1200 tonn og landaði í Neskaups- stað, Hilmir SU 1000 tonn til Neskaupsstaðar og Guðmundur VE 860 til Vestmannaeyja, Á sunnudag tilkynntu eftirfar- andi skip afla: Harpa RE 620 til Njarðvíkur, Víkingur AK 1050 til Akraness, Eskfírðingur SU 620 til Eskifjarðar, Sjávarborg GK 700 til Siglufjarðar, Höfrungur AK 770 til Raufarhafnar, Víkurberg GK 550 til Bolungarvíkur, Öm KE 750 til Færeyja og Erling KE 550 tonn til Raufarhafnar. Á mánudaginn tilkynntu þessi skip afla: Súlan EA 800 til Krossa- ness, Guðrún Þorkelsdóttir SU 720 til Eskifjarðar, Gullberg VE 550 óákveðið, Guðmundur Olafur ÓF 600 til Ólafsfjarðar, Keflvíkingur KE 540 til Raufarhafnar og Rauð- sey AK130 tonn til Bolungarvíkur. Dyraverndunarfélag Hafnfirðinga: Þórður Þórðarson út- nefndur heiðursfélgi ÞÓRÐUR Þórðarson, forseti Dýravemdunarfélags Hafnfirð- inga, hefur verið útnefndur heiðursfélagi félagsins. Þórður var kjörinn forseti Dýravemdun- arfélags Hafnfirðinga í mars 1953 og hefur hann gegnt því embætti síðan. Dýraverndunarfélag Hafnfírð- inga var stofnað árið 1928, en starfsemin lagðist fljótlega niður uns félagið var endurreist í byrjun árs 1951. Þórður átti meðal ann- arra þátt í að endurreisa félagið og hefur verið í forystusveit þess síðan. Þórður Þórðarson var framfærslu- og húsnæðismálafulltrúi Hafnar- fjarðarbæjar um árabil. Sat í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, var formaður Verkamannafélagsins Hlífar, Alþýðuflokksfélags Hafnar- Qarðar, Verkstjórafélags Hafnar- fjarðar og í stjóm Verkstjórafélags Islands um margra ára skeið, með- hjálpari og kirkjuvörður Hafnar- fjarðarkirkju, og kjörinn í stjóm Sambands dýravemdunarfélaga ís- lands á stoftifundi þess 1958, svo nefnd séu nokkur þeirra starfa sem hann hefur haft með höndum á vettvangi félags- og kirkjumála. í tilkynningu frá stjóm Dýra- vemdunarfélags Hafnfírðinga segir m.a. að með útnefningu Þórðar sem heiðursfélaga vilji félagið votta hon- um virðingu og þakklæti fyrir það mikla og óeigingjama starf sem hann hefur innt af hendi í þágu þess málefnis sem fálagið stendur fyrir. Núverandi stjóm dýravernd- unarfélags Hafnfírðinga skipa Þórður Þórðarson forseti, Stefán Gunnlaugsson varaforseti, Sigurður Þórðarson ritari; Fríða G. Eyjólfs- dóttir gjaldkeri, Ema Friða Berg meðstjómandi og Elín Harðardóttir varameðstjómandi. Frá útnefningu Þórðar sem heiðursfélaga í Dýraverndunarfélagi Hafnfirðinga, frá vinstri Elín Harðardóttir, Sigurður Þórðarson, heiðursfélaginn Þórður Þórðarson, Erna Fríða Berg, Stefán Gunn- laugsson og Fríða G. Eyjólfsdóttir. Auglýsing Landssambands smábátaeigenda: Villandi og rangt farið með tölur - segir Kristján Skarphéðinsson deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu „ÞESSI auglýsing Landssam- bands smábátaeigenda er mjög villandi og þar er farið rangt með tölur, að því er virðist í þeim tilgangi að rugla fólk i ríminu,“ sagði Kristján Skarphéðinsson, deildarstjóri í sjávarútvegsráðu- neytinu er hann var spurður um auglýsingu, sem Landssamband smábátaeigenda hefur birt í dag- blöðum undir yfirskriftinni „Ráðuneyti afruglað". I auglýsingunni mótmæla smá- bátaeigendur kvótafrumvarpi sjávarútvegsráðherra og eru þar birt fjögur súlurit sem eiga að sýna fram á að hlutdeild smábáta í heild- arafla hafí minnkað verulega. „Af þessum súluritum mætti í fljótu bragði ætla að hlutdeild smábáta hefði minnkað úr 8,4% í 1,7%, en þegar betur er að gáð er þama verið að blanda saman óskyldum hlutum,“ sagði Kristján. „Fyrstu tvö súluritin sýna hlutdeildina í þorskaflanum en á tveimur síöari súluritunum hefur verið tekið inn skiptingin á botn- og flatfískafla, en flatfískurinn er ekki í kvótakerf- inu. Auk þess eru í útreikningum þeirra einnig teknir inn bátar sem eru á bilinu 10 til 11 tonn, og eru í kvótakerfínu. Þegar þeir bátar hafa hins vegar verið teknir út koma í ljós aðrar tölur. Réttar tölur hvað varðar hlutdeild smábáta í þorskafla er því þessar: Árið 1982 var heildarþorskafli 382,3 þúsund tonn, hlutdeild smábáta 13 þúsund tonn eða 3,4%. 1983 var heildarafl- inn 293,9 þúsund tonn, smábátar 12.6 þúsund tonn eða 4,3%, 1984 var heildaraflinn 281,5 þúsund tonn, smábátar með 16 þúsund eða 5,7%, 1985 var heildaraflinn 322,8 þúsund tonn, þar af smábátar með 22.7 þúsund tonn eða 7%, 1986 var heildarþorskaflinn 365,8 þúsund tonn, smábátaaflinn 29,1 þúsund eða 8% og samkvæmt áætlun fiski- félagsins fyrir 1987 er heildarþor- skafli 382 þúsund tonn, smábátaafli áætlaður um 30,5 þús. tonn eða 8%. Það sem skiptir hins vegar mestu máli er þróunin á næsta ári. Ef þetta frumvarp fer í gegn er gert ráð fyrir að veidd verði 345 þúsund tonn af þorski. Ef smábátaeigendur halda sínum hlut, auk þess sem þeim hefur fjölgað mjög mikið, er hætta á a5 markmið frumvarpsins hvað varðar samdrátt í þorskafla fari forgörðum. Markmiðið er að draga aflann saman um 10% og þá verða auðvitað allar gerðir af bátum að taka á sig þá skerðingu," sagði Kristján.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.