Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
25
Gestur Þorsteinsson
Við bindum vonir við
stofnun nýja Alafoss
- segir Baldur VaJgeirsson framkvæmdastjóri Pólarprjón
„ÉG reyni þrátt fyrir allt að
vera bjartsýnn. Við bindum
vonir við að stofnun nýja Ala-
foss leiði til góðs,“ sagði Baldur
Valgeirsson framkvæmdastjóri
Pólarpijón á Blönduósi.
Sagði Baldur að vonir væru
bundnar við að Alafoss gæti
hækkað verð framleiðslunnar og
nái að framleiða bandið fyrir
gijónastofumar á ódýrari hátt.
Álafoss hf átti fyrir sameininguna
53% hlutabréfa í Pólarpijóni á
móti 30% hluta Byggðastofnunar,
10% hluta Blönduóss og öðmm
minni hluthöfum. Við sameiningu
ullariðnaðar SÍS og Álafoss hélt
Framkvæmdasjóður, sem var aða-
leigandi Álafoss, eftir hlutabréfum
sínum í Pólarpijóni. Baldur sagði
að þama hefðu slitnað viss tengsl
við Álafoss, en sagði að áfram
yrði reynt að eiga sem best sam-
starf við fyrirtækið.
EDGAR
Gódar bækur til ad
Gullregnið eftir Anders Bodelsen er
spennandi saga sem segir frá fjórum
börnum sem fínna fjársjóð grafínn í
jörðu. Þau ákveða að geyma hann í von
um fundarlaun. En biðinni fylgja ýms
erfið og óvænt vandamál. Framhalds-
þátturinn um Gullregnið hefur notið
gífurlegra vinsælda í
danska sjónvarpinu. A
Edgar Cayce, undralæknirinn og
sjaandinn er margföld metsölubók
um dulargáfur Edgar Cayce, spádóma
hans og lækningar, sem enn eru
vísindunum óræð gáta.
Bókin hefur verið ófáanleg um árabil
en er nú prentuð í þriðja sinn vegna
mikillar eftirspurnar. Á
GEFA OG EIGA
Spaugsami spörfuglinn, Þröstur Sigtryggsson
skipherra hjá Landhelgisgæslunni lýsir lífshlaupi
sínu í léttum dúr og skopast bæði að sjálfum sér
og samferða mönnum.
Hann hefur frá mörgu að segja, allt frá
grátbroslegum atvikum í landlegum til
grafalvarlegra atburða í landhelgisdeil-
um. Þröstur er ekki bara skipherra,
hann er húmoristi og sögumaður af guðs
náð. Sigurdór Sigurdórsson skráði.
Þetta er umfram allt fyndin og upplífg-
andi bók.
(slandsmyndir Mayers 1836
hefur að geyma listaverk sem franski
málarinn Auguste Mayer vann þegar
hann var liðsmaður franska vísindamannsins
Paul Gaimards í íslandsleiðangri hans árið 1836.
Myndirnar sem hér eru litprentaðar í
ákaflega fallegri og vandaðri útgáfu eru
stórmerkar heimildir um íslenskt þjóðlíf
á fyrri tíð. Þær eru hátt í 200 að tölu og
þeim fylgir ítarlegur texti á íslensku,
frönsku og ensku.
Bókinni fylgir ennfremur litprentað
kver með fágætri frumgerð kvæðanna,
sem flutt voru Gaimard til heiðurs í
veislunni góðu í Höfn 1839. ^
MXjSAMISPORFUGUNN
**** «Wa«siiaiiE* Si
<4ig.a»s Sí’r JagsatRifK.ák'HBipujæi.
Goð og hetjur i heiðnum sið eftir Anders
Bæksted bætir úr brýnni þörf fyrir
vandað rit á íslensku um goðsögur og
hetjusagnir norrænna manna. Helstu
sögurnar eru raktar og sýnt hvernig hin
heiðnu lífsviðhorf birtast ljóslifandi í
hetjum fornsagnanna, lífí þeirra,
framgöngu og örlögum. Bókin er
ríkulega myndskreytt. Þýðandi er
Eysteinn Þorvaldssón.
Upp er boðið ísaland er saga einokunar-
verslunar á íslandi. Dönum hafa löngum
verið kenndar hörmungar þær sem
þjóðin mátti þola á öldum áður. í
bókinni er gerð grein fyrir fjölmörgum
öðrum ástæðum sem skiptu sköpum
fyrir bágborinn hag þjóðarinnar, t.d.
íhaldssemi og stéttaskipting íslendinga
sjálfra. Ritið er doktorsritgerð
Gísla Gunnarssonar.
f v\ 4 WS
■lllll
f»|1 mlaj IJi