Morgunblaðið - 15.12.1987, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
Frá Viðarklínikunni. Til vinstri sést „hételið" sem byggt hefur verið fyrir sjúklinga sem ekki þurfa
að leggjast inn. Hitt eru bústaðir lækna og annars starfsfólks.
Af „mannvitr-
ingnm“ í Jama
Viðarklínikin er byggð utan um fallegan garð. Úr honum er stutt
að fara á „kaffiteríuna" sem opin er öllum almenningi daglega.
Frá Skillebyholm. Þar er bíó-dýnamíska brautin í sínu hagnýta námi.
Það eru þó ekki nemendur á henni sem þarna eru á myndinni. í
óvæntu frostunum og snjókomunni í byijun nóvember var kallað á
hjálp til að bjarga uppskeru sem ennþá var í jörðu.
Síðari hluti
Hér birtist síðari hluti greinar
um starfsemi antrópósófa í
Járna.
Að Ötjan-skólanum liggur Við-
arklínikin. Áður en komið er að
aðalbyggingunni er komið að minni
læknabústöðum og „hóteli" fyrir 10
sjúklinga sem ekki þurfa að leggjast-
inn á sjáifa klínikuna.
Viðarklínikin er mikið hús upp á
tvær hæðir, en það er byggt á þann
hátt að það er nánast sama hvar
komið er að þvi, þá „leynir" stærð
byggingarinnar á sér. „Nú, ein álma
til/ verður manni að orði þegar kom-
ið er fyrir hom. Viðarklínikin er
máluð (laseruð) í mildum, fallegum
bleikum tónum, klædd koparþaki
þannig að húsið bókstaflega geislar
frá sér. Og innan dyra er sama lit-
afegurðin og einkennir aðrar bygg-
ingar antrópósófanna. Anddyri og
stigar eru lögð marglitum marmara
sem gefa allri byggingunni enn meiri
kraft og hlýju. Og öll byggingin
umlykur svo lítinn garð.
Viðarklínikin var vígð fyrir rúmu
ári og mun þegar hún er fullgerð á
næsta ári taka 74 sjúklinga í rúm.
í rauninni er aðeins eitt orð til að
lýsa þessari byggingu: listaverk.
Ekkert sjúkraherbergi er eins, hvert
hefur sinn sérstaka blæ: í lit, lögun,
stærð og staðsetningu glugga o.s.
frv. Borðin og ljósalampamir eru líka
sérhönnuð. Hér er allt „sérhannað".
Og eldhúsið. Þar er allt kynt með
gasi, þar sem gæði varmans sem
gasið gefur er allt annar og meiri
en sá sem rafmagnshellan veitir. Það
þekkja allir sem sannreynt hafa
muninn. Og útsýnið: Mikiíl himinn,
haf, skógar, akrar og beitiland fyrir
kýmar frá Nibble-gárd. Allt virðist
stuðla að því að gera Viðarklínikina
að frábærum stað þar sem allt miðar
að því að maður endurheimti glataða
heilsu.
Fæðan skal hjálpa til í baráttunni
við sjúkdóminn og nudd, böð og list-
ræn tjáning ásamt auðvitað þeirri
meðhöndlun og náttúrulyfjum sem
antrópósófísku læknamir veita.
Læknamir hafa allir gengið í gegn-
um hefðbundna læknismenntun en
sérmenntað sig í antrópósófískum
náttúrulækningum. í þeirra höndum
fjallar meðhöndlunin ekki um einstök
líffæri líkamans. Hún nær til allrar
manneskjunnar. Það er öll manneskj-
an sem er sjúk en ekki bara lifrin
eða maginn. Og manneskjan er ekki
bara Ifkami, hún er auk þess gædd
huga og anda. Ekkert þrífst án hins
og sé meðhöndlunin ekki á öllum
þessum þrem sviðum þá verður ekki
um raunverulega bót meina.
Þessi læknismeðferð gerir nátt-
úrulega þá kröfu til sjúklingsins að
hann upplifí sjálfan sig sem meira
en líkama og huga. Hann verður
einnig að skynja sig sem andlega
veru eða að minnsta kosti að trúa
því að hann sé andleg vera; að það
sé hið andlega eðli sem vaki yfir
líkama og hug og stuðli að stöðugu
samræmi milli allra þeirra þátta sem
manneskjan saman stendur af. Ras-
kist einn þátturinn, raskast í rauninni
allt. Því að það afl sem heldur mann-
eskjunni við heila heilsu er veikt.
Jafhvægið hefur raskast og það er
læknisfræðinnar að koma á jafnvægi
á nýjan leik. Sjúkdómseinkennin eru
vegvísir læknisins hvað það er sem
er að, en heildarsýnin á manninn
má aldrei úr minni líða. Heildarsýn
á manninn sem veru af andlegum
uppruna sem verður að lifa í sam-
ræmi við uppruna sinn og allt annað
sem skapað hefur verið. Menn, dýr,
jurtir og málmar er allt skapað og
mótað eftir sömu grunn-„hugmynd“
og sömu kröftum í sameiginlegu þró-
unarferli.
Nibble-gárd
Norðan og austan megin við Við-
arklínikuna er Nibble-gárd; stærsta
bíó-dýnamíska býlið hér um slóðir
og sjálfsagt það stærsta í allri
Svíþjóð: 100 hektarar af bíó-dýn-
amísku ræktarlandi.
Kjarninn í bíó-dýnamískri ræktun
er virðing fyrir manninum og jörð-
inni; að rækta eins góða og holla
matvöru og kostur er án þess að það
komi í nokkru niður á sjálfri jörð-
inni. Því er eðlilega engum kemískum
efnum beitt, hvorki tilbúnum áburði
né eitri. Þess í stað er vandlega reynt
að meðhöndla jörðina eftir hennar
eigin þörfum; hvers kyns lífrænan
áburð hún þarf og hvers konar rækt-
un þrífst best á hverjum stað. Þá er
eitt markmiðið í bíó-dýnamískri
raektun að hver bær sé sjálfum sér
nógur um allan þann áburð sem þarf
til ræktunarinnar og framleiði allt
það fóður sem dýrin þurfa. Þetta
hefur leitt til þess að þar sem bíódýn-
amískur landbúnaður er stundaður
er fjölbreytileikinn ráðandi. Enda
vilja þeir meina að eitt besta ráðið
til að halda sjúkdómum og meindýr-
um í skefjum sé einmitt §ölbreytileg
og víxlverkandi ræktun. Einhliða
ræktun ár eftir ár alltaf með sama
áburðinum býður hættunni heim;
jörðin glatar krafti sínum og plönt-
urnar mótstöðuaflinu.
Á Nibble-gárd eru um fjörutíu
mjólkurkýr og álíka margir kálfar
og ungdýr. Einnig er eitthvað um fé
og hænsn. Á ræktunarlandinu er það
fyrst og fremst fóður fyrir dýrin sem
er ræktað, en einnig kom — hveiti
og rúgur — og nokkuð er ræktað
af baunum og kartöflum. Þá hafa
verið stúkaðir af 3 hektarar þar. sem
ræktaðir eru garðávextir bæði utan
dyra og innan. í garðlandinu og gróð-
urhúsunum eru ræktaðar ekki færri
en 35 tegundir grænmetis og krydd-
jurta.
í tengslum við garðræktina hefur
verið sett upp verslun, raunveruleg
heilsubúð; þar eru engar pillur eða
„Grunnur starfsins með
þroskaheftu einstakl-
ingana á Saltáer það
sem kallast á sænsku
„Lákepedagogik“, eða
læknandi uppeldis-
fræði. Læt ég að sinni
nægja að segja að
kjarninn í þeirri upp-
eldisfræði er sá að hver
einasti einstaklingur,
hversu mikið sem hann
annars virðist sjúkur
eða bæklaður, hefur
heilbrigða eigind innst
• • íí
mm.
TEXTI:
GUÐNIRÚNAR AGNARSSON
LJÓSMYNDIR:
VALA HARALDSDÓTTIR
ný „undrameðul" á boðstólum, aðeins
lifandi næring í formi matvöru sem
meðhöndluð hefur verið af um-
hyggju, með neytandann og jörðina
jafn ofarlega í huga. Auk bíó-dýnamí-
skrar matvöru úr eigin garðlandi er
að fínna í Nibble Handelstradgárd,
en svo heitir verslunin, baunir, mjöl,
grjón, ávexti og annað sem þarf til
að næra sig á hollan hátt, frá mörg-
um heimsins homum. Enda koma
viðskiptavinir til Nibble langt að,
sumir alla leið frá Stokkhólmi, 50
kílómetra í burtu. Ver gengur að fá
að selja mjólkina og sláturafurðir.
Þar vill miðstýring landbúnaðarins
að allt kjöt og mjólk skuli í mjólkur-
búin og í sláturhúsin og dreifast
þaðan til neytenda. Þessum reglum
hefur í nokkru verið hægt að hliðra
til og undanþágur veittar hvað mjólk-
ina varðar. Flestum er orðið það
skiljanlegt að þetta er mjólk af allt
öðmm gæðum en sú mjólk sem kem-
ur frá kúm sem kannski hafa verið
bundnar við bás næstum allt sitt líf
og með hjálp fúkalyfja og próteinríks
kjamfóðurs verið breytt í „mjólkur-
vélar“ sem framleiða 8—10 tonn af
mjólk árlega; það er öðmvísi farið
með dýrin á Nibble og mjólkin bragð-
ast þar ólíkt betur en sú sem hér er.
að hafa úti í búð. Sannkölluð forrétt-
indi að fá að njóta hennar.
Nibble-gárd er hluti af mun stærri
heild bíó-dýnamískra bæja hér í
Jáma. Samtals em hér um 300 hekt-
arar af samfelldu bíó-dýnamísku
ræktarlandi — stærsta samfellda
svæðið í allri Evrópu. Því má segja
að hér hafí menn komist lengst í
langtíma markmiðum bíó-dýnamí-
skrar ræktunar — að margir sam-
liggjandi bæir rækti á þennan hátt.
Saltá
Annar helsti kjami í starfsemi
antrópósófa í Jama er Saltá — ligg-
ur 2—3 kílómetmm nær miðbæ Jáma
en Rudolf Steiner Seminariet. Þar
er kvömin, bakaríið, „Litla-Húsið",
bíó-dýnamíska félagið, kapellan og
síðast en ekki síst heimili og vinnu-
stofur fyrir um 40 þroskahefta
einstaklinga á aldrinum 15—60 ára.
Starfsemin á Saltá hófst, líkt og
framar getur, þegar nokkrir starfs-
menn ásamt elstu nemendunum á
Mikael-gárden (fyrsta antrópó-
sófíska heimilinu í Jáma) fluttu að
þessum gamla búgarði árið 1942.
Nokkuð stórt garðland fylgdi einnig
Saltá og var fljótlega farið að yrkja
það, auðvitað á bíó-dýnamískan hátt.
Útihúsin vom smám saman innréttuð
sem verkstæði og vinnustofur. Vef-
stofa, trésmíðaverkstæði, smiðja,
keramikverkstæði og mörg önnur
verkstæði hafa verið byggð eftir því
sem árin hafa liðið til að mæta áhuga
og getu nemendanna á Saltá. í dag
búa nemendumir í níu húsum og er
reynt að skapa hvert hús þannig að
um raunvemleg heimili sé að ræða.
Það gerir einnig miklar kröfur til
starfsmanna; langir vinnudagar,
auka- og næturvaktir umfram þessa
venjulegu 40 tíma er ekki óalgengt
á Salta — ekki frekar en á öðmm
heimilum sem antrópósófar reka fyr-
ir þroskahefta. Vinnuálagið er þó
ekkert í líkingu við það sem fólk
axlaði á uppbyggingarámnum í
Jáma; frídagar heyrðu til undantekn-
inga og laun vom eftir þörfum hvers
og eins. Þetta fyrirkomulag um
þurftarlaun er enn víða við líði með-
al antrópósófanna, en annars staðar
hafa opinber stéttarfélög beitt þrýst-
ingi til að starfsmönnum sé greitt
samkvæmt töxtum og vinnuálagi.
Þykir mörgum þetta vera skref aftur
á bak. Hugmynd antrópósófanna
með launagreiðslum er í eðli sínu
ekki að greiða mönnum pening fyrir
vinnu sína — vinnu er ekki hægt
að meta til fjár — heldur er greiðslan
innt af hendi svo að starfsmaðurinn
geti lifað sínu nægjusama lífí á eðli-
legan og áhyggjulausan hátt.
En svo vikið sé aftur að Saltá, þá
hófst brauðbakstur þar í einhveijum'
mæli fyrir 30 ámm. Einn starfsmað-
ur hóf baksturinn ásamt nokkmm
nemendum. Fyrst til að mæta eigin
þörfum, en síðar þegar árangurinn
barst út til að sinna vaxandi eftir-
spum. Komið var bíó-dýnamískt og
lítil kvöm var fengin sem stein-
malaði komið, sem síðan var bakað
í viðar-kyntum ofnum. í dag hefur
verið byggt sérstakt hús yfír baka-
ríið og þar em nú bökuð um 6 þúsund
brauð vikulega og eitt tonn af tvíbök-
um. Enn em það viðar-kyntir ofnar
sem sjá um baksturinn og sjálfgefíð
er að engum framandi efnum er
blandað saman við náttúmleg há-
gæða hráefnin. Enginn er að flýta
sér; brauðið fær sinn tíma við gerjun-
ina og ,öll önnur meðhöndlun þess
er vandvirk og ígmnduð. Og enn
hjálpa þeir til nemendumir frá
Vinnuskólanum, fyrst og fremst við
pökkun og lagerstörf. Árið 1980 var
svo tekin í notkun Saltá-kvöm; „risa-
bygging" sem gpnæfir yfír langt að.
Þar em tæp 2 þúsund tonn af bfó-
dýnamísku komi — mest frá Svíþjóð
en einnig innflutt — möluð með stór-
um náttúmsteinum sem höggnir vom
til og fluttir frá Austurríki. Afkasta-
geta kvamarinnar er þrisvar Sinnum
meiri, en framboðið er enn sem kom-
ið er einfaldlega ekki meira af
bíó-dýnamísku komi. Áður en þessi
nýja kvöm var byggð var komið
malað í byggingu sem liggur þétt
upp að bakaríinu. Þar er nú til húsa
„Fárgbygge", Litla-húsið. í „Fárg-
bygge" er búin til málning, eða öllu
heldur „lasyr" (lasúr mun það kall-
ast á íslensku). Það er innan- og
utanhús málning sem er að öllu leyti
unnin úr náttúmefnum; steinefnum,
bývaxi, jurtum og málmum. Áferðin
sem lasúrinn gefur er einkar falleg;