Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
Breyttar forsendur frá þjóðhagsspá í október:
Viðskiptakjör mun verri og
innflutningur hefur aukist
Spáð mun meiri viðskiptahalla á þessu o g á næsta ári en áður
BREYTTAR efnahagshorfur til hins verra frá í október, þegar
síðasta þjóðhagsspá var birt, benda til þess að þjóðartekjur á næsta
ári dragist saman og viðskiptahalli verði mun meiri en sem svarar
2% af landsframleiðslu, eða 4,5 milljörðum króna, sem ríkisstjórnin
setti markið á. Þá er fyrirsjáanlegt að viðskiptahalli á þessu ári
verði meiri allt að 3,8 milljarðar, bæði vegna þess að innflutningur
hefur aukist umfram spár og gengislækkun bandaríkjadolllars þýð-
ir að tekjur af útflutningi verða minni. Samkvæmt útreikningum
Seðlabankans þarf að fella gengið um 11%, miðað við útflutnings-
framleiðsluna i heild, til að fá út sömu stöðu útflutningsatvinnuvega
og árið 1979.
Þjóðhagsstofnun vinnur nú að
endurskoðun á þjóðhagsspá sem
byggir á þessum breyttu efnahags-
forsendum og er stefnt að því verki
ljúki fljótlega eftir áramót. Enn ríkir
veruleg óvissa um ýmsar mikilvæg-
ar forsendur þjóðhagsspár fyrir
Símabilun
í Kópavogi
og Garðabæ
SÍMALAUST varð í stórum
hluta Kópavogs og Garðabæjar,
og víðar, þegar jarðsimastreng-
ur slitnaði við Hamraborg í
Kópavogi um klukkan níu í
gærmorgun. Símasamband
komst aftur á um sjöleytið í
gærkvöldi.
Strengurinn slitnaði þegar verið
var að grafa fyrir holræsum við
Hamraborg, en við það fóru núm-
er sem byijuðu á tölunum 64 og
656 úr sambandi. Auk þess áttu
númer sem byija á tölunni 4 í
erfíðleikum með að ná í númer sem
byija á tölunum 3, 6, og 8, og
öfugt. Það var svokallaður milli-
stöðvarstrengur sem var slitinn,
en í honum eru 300 línur fyrir
símtöl á milli útstöðva í Kópavogi
og Garðabæ.
Að sögn Thors Eggertssonar,
yfirdeildarstjóra hjá Símstöðinni í
Reykjavík, er svona víðtæk og al-
varleg bilun í símkerfinu mjög
óvanaleg.
Skákmótið í Sand-
nesi í Noregi:
Svíar unnu
fjögurra landa
keppni ung-
lingalandsliða
SVÍAR urðu sigurvegarar í
skákkeppni íslendinga, Svía,
Dana og Norðmanna, 20 ára
og yngri, sem haldið var í
Sandnesi í Noregi dagana 11.
til 13. desember sl. Svár
hlutu sextán vinninga, ís-
lendingar fimmtán og hálf-
an, Danir fjórtán og hálfan
og Norðmenn fjórtán.
íslendingar unnu Dani og
Norðmenn með fimm og hálf-
um vinningi gegn fjórum og
hálfum en töpuðu hins vegar
fyrir Svíum, fengu fjóra og
hálfan vinning gegn fimm og
hálfum vinningi Svía. Norð-
menn unnu Svía með sex
vi.nningum gegn fjórum en töp-
uðu hins vegar fyrir Dönum
með þremur og hálfum vinningi
gegn sex og hálfum. Svíar
unnu Dani með sex og hálfum
vinningi gegn þremur og hálf-
um vinningi Dana og unnu
mótið, eins og áður sagði.
1988 og hefur hámarksafli ein-
stakra fisktegunda ekki verið
ákveðinn enn. Auk þess ríkir óvissa
með kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði.
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
hagsstofnunar eru fjögur atriði
mikilvægust varðandi efnahags-
horfurnar. í fyrsta lagi hafa við-
skiptakjör versnað síðustu tvo
mánuði og veldur þar mestu gengis-
lækkun bandaríkjadollars en einnig
hefur álverð lækkað og óvissa ríkir
um verð á sjávarafurðum. Horfur
um hagvöxt og þar með aukningu
almennrar eftirspumar í iðnríkjun-
inu til
ÓTTAR Yngvason lögmaður og
Páll Jónsson í Pólaris hafa gert
tilboð í eignir bama Richards
Thors, Haffjarðará, Oddastaða-
vatn og 10 jarðir í Kolbeinsstaða-
hreppi og Eyjahreppi i
Hnappadalssýslu, eins og fram
hefur komið í Morgunblaðinu. í
gær leið frestur sá sem hreppam-
ir tveir höfðu fengið til að nýta
forkaupsrétt sinn. Guðmundur
Albertsson, oddviti Kolbeinsstaða-
hrepps, sagði að tilboð þeirra
Óttars og Páls hefði hljóðað upp
á 118 milljónir króna. Hreppamir,
ásamt leigjendum þriggja af jörð-
unum tíu, hefðu vísað málinu til
matsnefndar til að athuga hvort
um eðlilegt verð og greiðsluskil-
mála væri að ræða á eignunum.
„Þeir Óttar og Páll keyptu þessar
eignir á 118 milljónir .og greiddu 61
milljón króna við undirskrift tilboðs-
ins 9. nóvember sl. og samkvæmt
samningnum áttu þeir að greiða 20
um eru lakari en reiknað var með
og er gert ráð fyrir að þetta hafi
neikvæð áhrif á eftirspurn eftir
íslenskum útflutningsvörum. I þjóð-
hagsáætlun fyrir 1988 var gert ráð
fyrir að viðskiptakjörin í heild væru
óbreytt milli árannna 1987 og 1988
en haldist þau óbreytt á næsta ári
frá því sem þau eru nú í byijun
desember verða þau að meðaltali
nokkru lægri á næsta ári en á þessu.
í öðru lagi bendir flest til að
þorskafli verði minni á næsta ári
en gert var ráð fyrir í október-
spánni, jafnvel allt að 40-50 þúsund
lestum, og gæti það þýtt samdrátt
um 4-5%, eða 2-3 milljarða í vöruút-
flutningi og 1-2% í þjóðartekjum á
föstu verði. Þessar tölur eru þó
settar fram með fyrirvara.
í þriðja lagi er fyrirsjánlegt að
halli á viðskiptum við útlönd á þessu
ári verði meiri en þær 2,4 milljarð-
ar sem gert var ráð fyrir í október-
spánni. Sú spá byggðist á að
vöruskiptajöfnuður yrði hagstæður
um 1,4 milljarð en nú stefnir í að
milljónir króna í dag, 14. desember,
aðrar 20 milljónir króna 10. febrúar
nk. og loks 15,5 milljónir króna 10.
apríl nk.,“ sagði Guðmundur. „Auk
þess taka þeir, samkvæmt samningn-
um, við 700 þúsund krónum sem
hvíla á Höfða og 500 þúsund krónum
sem hvíla á Stóra-Hrauni. Við erum
ekki búnir að taka neina ákvörðun
um það hvort við leggjum þetta mál
fyrir dómstóla. Hreppamir tveir og
leigjendur jarðanna Kolviðamess,
Gerðubergs og Stóra-Hrauns vísuðu
þessu máli til matsnefndar, sem er
skipuð af sýslumanni, til að athuga
hvort þetta er eðlilegt verð og skil-
málar.
Það er m.a. verk matsmanna að
athuga hvort þama hafa verið sett
inn atriði til að halda frá forkaups-
rétti. Það er reiknað með niðurstöð-
um nefndarinnar seint í þessari viku.
Samkvæmt jarðalögum getur hún
breytt verði og skilmálum. Ef nefnd-
in breytir verðinu skoðast það sem
forkaupsréttarverð en það er nátt-
afgangurinn verði enginn. Það þýð-
ur að viðskiptahallinn eykst úr
rúmlega 1% af landsframleiðslu í
allt að 2%.
í fjórða lagi hefur afkoma út-
flutningsfyrirtækja almennt versn-
að að undanfömu, sérstaklega
frystingarinnar. Er áætlað að botn-
fiskvinnslan í heild sé rekin með
tapi sem nemur 3-5% af tekjum og
þar af er áætlað tap í frystingu
talið nema 7-9% af tekjum. Þá eru
miklir rekstrarerfiðleikar í ullariðn-
aði. Erfitt er talið að fullyrða um
stöðu innlendra framleiðslugreina
sem keppa við innflutning. Þar hef-
ur orðið hækkun innflutningsverðs
í íslenskum krónum vegna hækkun-
ar á gengi Evrópumynta og vegur
hún að nokkru upp hækkun inn-
lends kostnaðar. Samt hefur
raungengið sífellt verið að hækka
og samkvæmt útreikningum Seðla-
bankans á svokölluðu „gengisfell-
ingartilefni" þarf núna að fella
gengið um 11% miðað við útflutn-
ingsframleiðsluna í heild til að fá
út sömu stöðu útflutningsatvinnu-
vega og 1979.
úrulega ekki viðurkennt af eigendun-
um. Eftir að mat nefndarinnar liggur
fyrir höfum við viku til að ákveða
hvað við gerum.
Þessar 10 jarðir, sem um er að
ræða, eru Akurholt, Höfði, Ytri-
Rauðamelur, Gerðuberg og Kolviðar-
nes í Eyjahreppi og Landbrot, Skjálg,
Olviskross, Stóra-Hraun og Syðri-
Rauðamelur í Kolbeinsstaðahreppi.
Kolviðames, Gerðuberg, Stóra-
Hraun og Syðri-Rauðamelur eru í
ábúð og hafa ábúendumir forkaups-
rétt að þeim. Við gerðum sérstaklega
athugasemd við það að þessar eign-
ir, Haffjarðaráin, Oddastaðavatn og
jarðimar, voru boðnar hreppunum til
kaups í einu lagi, þannig að ef ein-
ungis annar hreppanna hefði keypt
allar jarðimar 10, þá eignaðist hann
þar með 5 jarðir í hinum hreppnum
og það er spuming hvort það er lög-
legt,“ sagði Guðmundur.
Lögmaður bama Richards Thors,
Jón Steinar Gunnlaugsson, vildi ekk-
ert um málið segja.
A ' " .
Hans Jörgensen fyrrverandi skólastjóri og form- son framkvæmdastjóri Ármannsfells hf., afhenti
aður Samtaka aldraðra tók við lyklum að síðustu lyldana og er þar með er lokið afhendingu á 48
íbúðum fyrir aldraða sem Armannsfell hf. íbúðum við Dalbraut 18 til 20 en byggingafram-
byggði við Dalbraut 18. Ármann Örn Armanns- kvæmdir hófust fyrir 18 mánuðum.
Haffjarðará:
Hrepparnir vísa mál-
matsnefndar
Hákon Bjarnason
Ræktaðu garð-
inn þinn
eftir Hákon
Bjarnason
KOMIN er út hjá Iðunni ný og
endurskoðuð útgáfa bókarinnar
Ræktaðu garðinn þinn eftir Há-
kon Bjarnason. Er þetta þriðja
útgáfa bókarinnar og hefur hér
m.a. verið bætt við sérstökum
kafla um trjárækt við sumarbú-
staði.
í kynningu útgefanda segir:
„Bók þessi fjallar um tijárækt í
görðum í skýru og stuttu máli.
Sagt er frá gerð og lífi tijánna,
næringarþörf þeirra, uppeldi tijá-
plantna, gróðursetningu, hirðingu
og grisjun. Lýst er um 70 tegundum
lauftrjáa, runna og barrviða.
Höfundur bókarinnar, Hákon
Bjarnason, hefur um tugi ára verið
forystumaður í þessum efnum hér
á landi. Sakir langrar reynslu og
þekkingar er hann öðrum færari til
að veita leiðbeiningar um ræktun
tijáa, sem að gagni koma.“
Allar plöntuteikningar í bókinni
eru nýjar, gerðir af Eggerti Péturs-
syni.
Samninga-
fundur vestra
í ársbyrjun
Á RÁÐSTEFNU Alþýðusam-
bands Vestfjarða um kjaramál
sjómanna laugardaginn 12. des-
ember var ákveðið að beina þeim
tilmælum til aðildarfélaga sam-
bandsins að segja upp gildandi
samningum sjómanna fyrir ára-
mót. Ráðstefnan taldi nauðsyn-
legt vegna yfirvofandi breytinga
á kvótakerfinu og skattalögum
að hafa samninga þessa lausa.
Eftir að ráðstefnunni lauk var
fundur með stjóm ASV og for-
mönnum nokkur félaga með stjórn
Vinnuveitendafélags Vestfjarða.
Farið var yfír stöðu samningamála
og framvindu bónussamninga. Þar
var samþykkt að reyna hópbónus í
sem flestum frystihúsum á svæðinu
og stefna að samningafundi laugar-
daginn 2. janúar næstkomandi.
Menningar sj óður
Fjórtán sækja
um stöðu fram-
kvæmdastjóra
FJÓRTÁN sækja um stöðu fram-
kvæmdastjóra Menningarssjóðs
en umsóknarfrestur rann út 11.
desesmber.
Sjö umsækjendur óska nafn-
leyndar en aðrir umsækjendur em,
Einar Laxnes menntaskólakennari,
Birgir Þorvaldsson, Jón Ormar
Ormsson framkvæmdastjóri, Valdi-
mar J. Magnússon deildarstjóri,
Stefán Ólafsson útlitsteiknari, Pálí
Skúlason lögfr. og Knútur Bruun
hrl.