Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
41
Morgunblaðið/Sverrir
Lúðvík Geirsson formaður BÍ afhendir Sverri Þórðarsyni og Margréti Indriðadóttur siifurmerki félagsins.
Annað háborðið á Afmælisfagnaði Blaðamannafélags íslands. Fremst sitja hjónin Sigrún Gjssurardóttir og
Sigurdór Sigurdórsson sem var veislustjóri. Næst þeim sitja Lúðvík Geirsson formaður BÍ og kona hans,
Hanna Björk Lárusdóttir. Við hlið þeirra sitja hjónin Ingibjörg Rafnar og Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra og loks Sigmundur Ernir Rúnarsson stjómarmaðurí BÍ.
90 ára afmæli Blaðamannafélags íslands:
Vel heppnaður afmælis-
fagnaður á Hótel Islandi
AFMÆLISHÁTÍÐ Blaðamannafé-
lags íslands var haldin sl. laugar-
dag og var það jafnframt fyrsta
samkoma á Hótel íslandi, sem Ól-
afur Laufdal veitingamaður er að
byggja við Ármúla í Reykjavík.
Þeir sem litu við á Hótel íslandi
fyrr um daginn efuðust flestir um
að þar yrði haldin samkoma um
kvöldið. Unnið var í húsinu fram á
síðustu stundu og stóðst það nokkurn
veginn á endum að síðasti iðnaðar-
maðurinn hvarf á brott um leið og
fyrstu veislugestirnir komu. Hátíðin
heppnaðist þó framar öllum vonum
og ekki var að sjá og heyra að hljóð-
og ljósabúnaður hefði verið tengdur
fyrst þennan sama dag.
Um 400 manns sótti 90 ára af-
mælisfagnað Blaðamannafélagsins.
Heiðursgestir voru ráðherrarnir úr
blaðamannastétt, þeir Þorsteinn Páls-
son forsætisráðherra og Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra. Ráð-
heiramir hgfðu raunar fleiri hnöpp-
um að hneppa þetta kvöld því þeir
urðu að gera hlé á kvöldverðinum til
að gegna skyldum sínum á Alþingi,
en þar var í fyrsta skipti í sögunni
kvöldfundur á laugardagskvöldi.
Meðan atriða á dagskrá hátíðar-
innar var einsöngur Ólafar Kolbrúnar
Harðardóttir við undirleik Jóns Stef-
ánssonar. Gísli J. Ástþórsson flutti
aðalræðu kvöldsins, og Ómar Ragn-
arsson flutti „fréttaskýringu" um
blaðamannastéttina. Tveimur blaða-
mönnum var síðan afhent silfurmerki
BÍ, þeim Margréti Indriðadóttur fyrr-
verandi fréttastjóra útvarps, og
Sverri Þórðarsyni blaðamanni á
Morgunblaðinu.
Stofnfundur Blaðamannafélags ís-
lands var haldinn á gamla Hótel
íslandi fyrir 90 árum og í veislulok
var Ólafur Laufdal og starfsfólk hans
hyllt fyrir að gera blaðamannafélag-
inu kleyft að halda 90 ára afmælís-
hátíð sína á nýja Hótel íslandi. Svo
skemmtilega vildi til að meðal gesta
á hátíðinni voru hjónin Guðmundur
Kjæmested skipherra og kona hans,
Margrét Símonardóttir, sem vom á
síðasta dansleiknum sem haldinn var
nú tekurðu
tvær upp
a eina!
E-195 HR er tveggja bíómynda spólan frá JVC.
VtDEO CASSETTE
JVC
E-195hb
VHS
hHGH RESOLUTION
JVC býður 8 myndbandslengdir: 240-210-195-180-120-90-60-30 MÍN.
JVC
Dreifing:
Faco, Laugavegi 89. S 27840.
Séð yfir saCnn í Hótel íslandi.
á gamla Hótel íslandi áður en það
brann árið 1944, og Sveinn Sæ-
mundsson framkvæmdastjóri
spilaði þá fyrir dansi.
sem
Svefnjjokar
ajuiHjilak.
Skátabúðin selur hina heims-
þekktu Ajungilak svefnpoka, en
Ajungilak er einn stærsti svefn-
pokaframleiðandi í heimi. Við
hjá Skátabúðinni aðstoðum við
val á þeim poka er hentar
þínum þörfum. Okkar ráðlegg-
ingar eru byggðar á reynslu.
Skátabúðin — skarar framúr.
SKÁTABÚÐIN
Snorrabraut 60 sími 12045