Morgunblaðið - 15.12.1987, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
47
Franskur leyniþj ónustumaður
sendur heim vegna magakveisu
Nýsjálendingar ævareiðir
Parfs, Reuter.
FRANSKUR leyniþjónustumaður
sem dæmdur var til þriggja ára
vistar á kóraleyju í Suður-Kyrra-
hafi fyrir þátt sinn í að sökkva
Rainbow Warrior, skipi Greenpe-
ace-samtakanna, í höfn í Welling-
ton árið 1985 kom til Parisar í
gær til að fá læknisaðstoð. Stjórn
Nýja-Sjálands hefur mótmælt
þessu harðlega og segir þetta
vera brot á samkomulagi sem
franska og nýsjálenska stjórnin
gerðu fyrir milligöngu Peresar
de Quellars framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna.
Að sögn franska utanríkisráðu-
neytisins var flogið með Alain
Mafart á hersjúkrahús í París vegna
þess að hann kvartaði undan verkj-
um í maga. Að sögn var heilsa
hans svo bág að strax þurfti að
fara með hann á spítala. David
Lange, forsætisráðherra Nýja-Sjá-
lands, segir að „þetta uppátæki
Frakka" sé „ósvífíð og svívirðilegt
brot á samkomulaginu frá árinu
1986“ sem kvað á um að Mafart
og annar leyniþjónustumaður hefð-
ust í þrjú ár við á herstöð Frakka
á eyjunni Hao. Nýsjálendingar buð-
ust til að senda lækni með herflug-
vél til Hao til að veita Mafart
aðhljmningu. Því höfnuðu Frakkar
eftir 16 klukkustunda umhugsun
vegna þess að herflugvélum ann-
arra ríkja væri óheimilt að lenda á
frönskum herstöðvum.
Lange segist draga í efa að Ma-
fart sé alvarlega veikur og ætlar
nýsjálenskur læknir að fljúga frá
London til Parísar að líta á hann.
Frakkar hafa fallist á þessa ráðstöf-
un. Lange sem áður starfaði sem
málflutningsmaður segir að fangar
kvarti oft undan magakveisu sem
læknist ótrúlega fljótt þegar frelsið
er fengið.
Mafart var á sínum tíma dæmdur
í tíu ára fangelsi á Nýja-Sjálandi.
Samkomulag milli landanna kvað á
hinn bóginn á um þriggja ára vist
á Hao-eyju auk þess sem Frakkar
greiddu Nýsjálendingum sjö millj-
ónir Bandaríkjadala í skaðabætur.
Reuter
Þessi mynd var tekin árið 1985
af franska leyniþjónustumannin-
um Alain Mafart. Hann hefur
undanfarið afplánað þriggja ára
fangavist á kóralrifi í Suður-
höfum. I gær var hann sendur á
sjúkrahús i París án samþykkis
nýsjálenskra yfirvalda.
OPEC, Samtök olíuúf lutningsríkja:
Beðið eftir samþykki Irana
við óbreyttu olíuverði
Ýmsir spá því þó, að olíuverðið lækki vegna offramleiðslu
Deman tshringar
Draumaskart
Gull og demantar
Kjartan Ásmundsson, gullsmiður,
Aðalstræti 7. Sími 11290.
Vín. Reuter.
Olíumálaráðherrar OPEC,
samtaka olíuútflutningsríkja,
eru reiðubúnir til að undirrita
nýjan samning um olíuverð og
framleiðslu fyrir næsta misseri
en bíða þó enn eftir formlegu
samþykki írana. Olíumálaráð-
herra þeirra er nú í Teheran til
skrafs og ráðagerða við stjórn
sína.
Dyrfhmast
á Berlínar
múrnum
Austur-þýskur landamæra-
vörður stendur bak við
opnar dyr á Berlínarmúm-
um. Dymar, sem ekki var
vitað um þar til í gær, gerir
austur-þýskum landamæra-
vörðum kleift að fara
gegnum Berlinarmúrinn
fyrir framan Brandenburg-
arhliðið.
Gholamreza Agazadeh, íranski
olíumálaráðherrann, sagði við
fréttamenn áður en hann fór til
Teherans, að samkomulagið gerði
ráð fyrir núverandi framleiðslutak-
mörkunum næstu sex mánuði og
verðið yrði áfram 18 dollarar fyrir
olíufatið. íranir vilja hækka verðið
um tvo dollara en Saudi-Arabar
leggja áherslu á, að OPEC-ríkin
haldi því óbreyttu til að missa ekki
viðskiptavinina til annarra olíu-
framleiðsluríkja. íranir halda því
aftur fram, að 18 dollarar á fatið
nú séu ekki nema á við 15,70 doll-
ara þegar verðið var ákveðið fyrst,
svo sé fyrir að þakka gengisfalli
dollarans.
Ekki er vitað hvenær Agazadeh
kemur aftur til Vínar eða hvort
íranska stjórnin muni fallast opin-
berlega á það samkomulag, sem
Reuter
Gholamreza Agazadeh, olíumálaráðherra írans, á Vínarflugvelli
áður en hann fór til Teherans.
nú liggur fyrir.
Næsta misserið verður fram-
leiðsla OPEC-ríkjanna samkvæmt
samkomulaginu 15,06 milljónir
olíufata á dag en offramleiðsla og
undirboð hafa hins vegar dregið
mjög úr styrk samtakanna. Olíu-
málasérfræðingum finnst líklegast,
að offramleiðslan haldi áfram hvað
sem samkomulaginu líður og spá
því, að verðið eigi eftir að falla á
næstunni.
Reuter
First
Aiert
REYK- 0G ELDSKYNJARI
1.295kr
First Alert reyk-
og eldskynjarinn eröryggi
sem ekkert heimili geturverið án.
Hann kostar aðeins 1.295,- krónur
og rafhlaðan fylgir. Öruggt heimili — þitt ervalið.
B.B. BYGGINGAVÖKUR HE
Suðurlandsbraut 4 - Nethyl 2, Ártúnsholti