Morgunblaðið - 15.12.1987, Page 57

Morgunblaðið - 15.12.1987, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987 57 Eurovision og niorfín-inúsíkin eftir Hallgrím Helgason Söngvakeppnin í Briiselles, Evrovision, var góð tíðaranda- upplýsing: svo margar þjóðir, svo lítil tilbreyting, sama hugsun (eða hugsanaskortur), sama eða nauð- alík tilfinningatiltekt hjá öllum. Reyndar hefði ég í dómnefnd gef- ið íslenzku, frönsku og þýzku lögunum miklu fleiri stig en raun varð á. Mælisnúra niðurstöðu virð- ist hafa verið flatbotna formúla popp-iðnaðar, sem hvorki tekur tillit til góðrar lagmyndunar, hljómsetningar né hljóðfallstil- breytni. Arangur af allri fyrirhöfninni með hundruð milljóna tilkostnaði verður svo sá, að ekkert laganna á eftir að lifa (verða evergreen), nema máske það íslenzka; en það fór ekki troðnar slóðir hins al- heimsspannandi popps (var í rauninni sönglega lýrískt). Einnig texti íslenzka lagsins skar sig úr. Þar var skírskotað til hljóðleika, hófstillingar, kyrrðar, ekki rokið upp með brauki og bramli, harki og háreysti, eins og yfirleitt rokk-músík gefur tilefni til. Að þessu leyti var íslenzka lag- ið í sérflokki. Okkar samtíð hneigist of mikið af hávaða-framleiðslu, einnig á músík-sviði. Með rafmögnun eru engin takmörk fyrir því, hve sterk getur orðið glymjandi í rokk- músík-hópi. Við skynjun yfir- „Fjölmiðlar hafa gert sig seka um að ota þess- ari deyfilyfja-músík of ákaft að hlustendum og lesendum og kenna hana jafnvel við LIST, en það er líkast því að nefna guðsorð í helvíti.“ spennts styrkleika verður hún sársauka-valdur, en þá er skyn- færi háski búinn. Dæmi hérlendis sýnir, að hljóðhimna getur sprung- ið, svo að blóð seitlar niður vanga. Þetta er þó aðeins ytra hættu- merki gagnvart líffærakerfi. Iskyggilegri er hinsvegar sú hlið, sem að taugabyggingu snýr. Hljóðrænt offlæði áreitis veldur sljóvgun. Það leiðir ekki aðeins til minnkunar á virkni skynfæris, heldur einnig til skaðsemdar gjör- völlu taugakerfi og þarmeð allri verund mannsins. Afleiðingin er eitt af furðulegustu hrörnunarein- kennum mannsins: sívaxandi rénum á heymarskynjun hans. Þessvegna er nú farið að tala um líflát skilningarvitanna og vitna í rokk-músík-forsprakkann Jimi Hendrix: „Gott fólk, veröldin er að niðurlotum komin. Ef við bara getum spilað nógu hátt, máske getum við alveg eytt henni.“ Eitt sterkasta eyðingarafl mannsins er árásargirndin. Sál- fræðin þekkir tengsl milli háreysti ^ Danskt ^ eðalpostulín! Handmálað. lagt ekta gullí. Verð frá: Lampar með skermi 3.580,- Skálar 1.475,- og 2.165,- Borðveikjari 2.060,- og 2.290 Blómavasar 1.175,- 1.466,- Blómavasar stórir 2.640,- Takmarkað upplag! Póstsendum um allt land. RAMMAGERÐIN KRISTALL& POSTULÍN HAFNARSTRÆTI19 Sími 11081 Hallgrímur Helgason og árásargimi: háreysti egnir fram árásargirni; árásargirni elur á há- reysti. Ótal dæmi úr rokk-heimin- um sanna þetta (löngunin til að bijóta og bramla hvað sem fyrir er og jafnvel valda likamsmeiðing- um: eyðileggingarhvötin). Svo ótrúlegt sem það kann að virðast hafa nýjustu' vísindarann- sóknir leitt í ljós, að rokk-músík verður til þess að í mannslíkaman- um myndast efni sem likist morfíni. Morfín verkar sársauka- deyfandi og örvar stemmningu. Alkunna er, að við mikið líkams- álag, og þá líka við sterkan hávaða, vérða til í líffærakerfinu verkjastillandi eggjahvítuefni, sem verka líkt og morfín. Félagar og liðsmenn í „Heavy- Metal-Rock“-grúppu hafa í eina viku í einangrun verið sviptir eftir- lætis-músík sinni, og að þeim tíma loknum komu eftirfarandi ein- kenni í ljós: titrandi hendur, aukin áreiting og óreglulegur hjartslátt- ur. Samhliða-athugun í vélaverk- smiðju sýndi ennfremur, að afköst höfðu minnkað um fimmtíu pró- sent hjá því unga starfsfólki, sem reglulega sótti samkomur hjá „He- avy-Metal-Rock“. Allar þessar vísindalegu stað- reyndir færa okkur heim sanninn um það hvílík hætta manninum og um leið öllu samfélaginu getur stafað af músík-ástundun þessarar tegundar, hve neyzla hennar getur orðið skaðsamleg. Fjölmiðlar hafa gert sig seka um að ota þessari deyfilyfja-músík of ákaft að hlust- endum og lesendum og kenna hana jafnvel við LIST, en það er líkast því að nefna guðsorð í helvíti; en list í upprunalegum skilningi felst í því að leiða fram eitthvað það, sem með frábærri fegurð grípur hjarta mannsins, upplyftir því, göfgar það og mild- ar, beinir því til hins góða, til helgi og guðdómsdýrkunar. Svolítið spor í þessa átt var íslenzka lagið „Hægt og hljótt“ í Eurovision- söngvakeppninni í Brussel. Þeirri stefnubreytingu ber að fagna og bera fram réttmætar þakkir. Höfundur er tónskáld. ASEA Cylinda uppþvottavélar ★ sænskar og sérstakar Taka 14 manna borðbúnað og fá hæstu neytendaeinkunnir fyrir þvott, þurrkun, hljóð- leika og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi einkenna ASEA. Þú færð ekki betri vélar! 3 /FOniX HÁTUNI 6A SlMI (91)24420 Vegna mikillar eftirspurnar höfum við fengið aðra sendingu af 1985 og 1986 árgerðum af Opel Ascona, 4ra dyra, LS. Bílarnir eru allir í mjög góðu ásigkomulagi með 1,61. vél, sjálfskiptingu og útvarpi m/segulbandi. Verð frá kr. 465.000 með ryðvörn. BíLVANGURsf? HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 VELDU ®TDK EGAR ÞÚVILT HAFA ALLT Á HREINU VATNSVIRKJANS 15—25% AFSLÁTTUR Á BLÖNDUNAR- OG HREINLÆTISTÆKJUM FRAM TIL JÓLA S> VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966 LYNGHÁLSt 3 SÍMAR 673415 - 673416

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.