Morgunblaðið - 15.12.1987, Síða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
\
I
Sighvatur Björgvinsson formaður fjárveitinganefndar:
Tveggja mílljarða króna nettó-
tekjuaukning' ríkissjóðs 1988
Hallarekstur ríkissjóðs ekki verjandi við ríkjandi aðstæður
Áætlaðar skatttekjur ríkis-
sjóðs 1988 sem hlutfall af
landsframleiðslu verða 24,2%,
eða hinar sömu og árin 1979 og
1981 en nokkru lægri en 1985
(24,5%), sagði Sighvatur Björg-
vinsson, formaður fjárveitinga-
nefndar Alþingis, við aðra
umræðu fjárlagafrumvarps í
gær. Lægst var þetta hlutfall
árið 1985, 21,7%. Sighvatur
sagði að umfangsmiklar breyt-
ingar, sem stefnt væri að með
stjómarfrumvörpum um sölu-
gjald, tolla og vörugjald, leiddu
til rúmlega tveggja milljarða
króna nettótekjuaukningar
rikissjóðs á komandi ári.
Lækkun og hækkun
tekjustofna
Sighvatur Björgvinsson
(A/Vf) , formaður fjárveitinga-
nefndar, sagði tekjur ríkisins af
innflutningi lækka um 1.430 m.kr.
og í vörugjöldum um 1.400 m.kr.
Á móti hækki tekjur ríkissjóðs af
sölugjaldi um 4.880 m.kr. Þá væri
talið að áhrif veltu- og verðbreyt-
inga leiddu til hækkunar ríkissjóðs-
tekna um nálægt 300 m.kr.
„Samanlögð áhrif á heildartekjur
ríkissjóðs af þessum breytingum’
og endurmatsspá á tekjustofnum
er sú, að heildartekjur ríkissjóðs
muni hækka um röska þijá millj-
arða króna og niðurstöðutölur
fjárlagafrumvarps tekjumegin því
hækka úr 50.564 m.kr., eins og
áformað var í Qárlagafrumvarpi, í
62.614 m.kr.
Hagvaxtarskeið á enda
Formaður ijárveitinganefndar
sagði suma þætti, sem miklu ráði
um framvindu mála í ríkisútgjöld-
um, óljósa, og þá fyrst og fremst
almenna launaþróun í landinu.
Aðrir þættir væru skýrari. Líkur
væru á að hagvaxtarskeiðið væri
á enda runnið. Boðaður sé sam-
dráttur í þorskveiðum. Lækkun
Bandaríkjadals þýði lægri útflutn-
ingstekjur, m.a. af sjávarvöru.
Þannig myndi 40-50 þúsund tonna
samdráttur í þorskafla þýða 4-5%
samdrátt í vöruútflutningi og 1-2%
samdrátt þjóðartekna. Fyrri spár
um 4.500 m.kr. viðskiptahalla
1988 séu óraunhæfar. Sýnt sé að
það stefni í miklu meiri viðskipta-
halla.
„Stefna ríkisstjóminnar um
jafnvægi í þjóðarbúskap, viðnám
gegn verðbólgu og fastgengi á
vissulega í vök að veijast, vegna
þess að horfur um ytrí skilyrði og
aðstæður í rekstri þjóðarbúsins á
næsta ári hafa fremur versnað en
batnað,“ sagði Sighvatur Björg-
vinsson. „Hallarekstur ríkissjóðs
við þessar aðstæður væri mikið
ábyrgðarleysi.“
Eins milljarðs
króna útgjaldahækkun
Formaður fjárveitinganefndar
gerði loks grein fyrir breytingartil-
lögum fjárveitinganefndar. Tillög-
urnar fela í sér rúmlega eins
milljarðs króna útgjaldaauka. Mest
hækka útgjaldaliðir sem heyra
undir landbúnaðarráðuneyti, eða
um 303 m.kr, en sámgönguráðu-
neyti og heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneyti hækka einnig nokkuð.
Röskur helmingur ráðgerðs út-
gjaldaauka er vegna stofn- og
viðhaldskostnaðarverkefna.
Nokkrir útgjaldapóstar bíða
frekari umflöllunar við þriðju um-
ræðu fjárlagafrumvarpsins.
Efnahagsstefnan
öll í uppnámi
Margrét Frímannsdóttir
(Abl/Sl) taldi það hafa háð starfi
fjárveitinganefndar, hve litlar upp-
lýsingar hafí fengist frá ríkisstjórn
um fjárlagaforsendur. Hún gagn-
rýndi að góðæri, með tilheyrandi
hagvexti og hærri þjóðartekjum,
hafi ekki skilað sér til almennings.
Og þrátt fyrir það að ríkisútgjöld
til félagslegrar starfsemi hvers-
konar hafi verið skorin við nögl,
hafi ríkissjóður verið rekinn með
verulegum halla í góðærínu.
AIÞIACI
Þingmaðurinn gagnrýndi og fyr-
irhugaða skattheimtu, einkum
hækkun neyzluskatta, sem bitnuðu
þyngst á þeim er sízt skyldi. Matar-
skattar nemi 5.700 m.kr. og
skattbyrði tekjuskatts aukisl um
25%. Fasteignagjöld hækki og og
raungildi útsvara um 7-9%. At-
vinnurekstur og hátekjufólk stæði
hinsvegar til hlés í skattheim-
tunni. Alþýðuflokkurinn breytti
þvert á gagnrýni sína í stjómar-
andstöðu, en stefnt væri að, þegar
allt væri talið, um áttá þúsund
milljóna tekjuaukningu ríkissjóðs
1988.
Þingmaðurinn sagði undirstöðu-
atvinnuveg þjóðarbúsins, sjávarút-
veg, rekinn með halla. Samt
áformaði ríkisstjórnin að leggja
launaskatt á þessa atvinnugrein.
Vextir væru hér hærri en víðast
annars staðar. Kaupmáttur rýmaði
með hækkandi verðlagi. Fastgeng-
isstefnan væri í hættu. „Efnahags-
stefnan er öll í uppnámi," sagði
þingmaðurinn. Og samstarf stjórn-
arliða, bæði innan og á milli
þingflokka, ekki gæfulegt.
Ef tryggja á óbreyttan kaup-
mátt launa 1988 þarf að dómi
forseta ASI að hækka kaup um
8%, nú um áramótin, og síðan á
þriggja mánaða fresti um 7%.
Fyrirvarar ekki
til eftirbreytni
Pálmi Jónsson (S/Ne) sagði
meginmarkmið fjárlagafrumvarps-
ins að reka ríkissjóð án halla á
komandi ári, sem væri mikilvægt,
með hliðsjón af þróun mála í þjóð-
arbúskapnum og þjóðhagshorfum.
Það fæst hins vegar ekki úr því
skorið, hvort þetta markmið næst,
fyrr en fjárlög hafa verið afgreidd.
Pálmi sagði rangt hjá Margréti
Frímannsdóttur að fjárveitinga-
nefnd hafi fengið minni upplýsing-
ar um ríkisbúskapardæmið en
áður. Þvert á móti hafi legið fyrir
meiri og betri upplýsingar en oft
áður, auk þess sem samstarf fjár-
veitinganefndar, bæði við Hag-
sýslu og og Ríkisendurskoðun;
hafi verið náið og gott. Þannig
hafi upplýsingar varðandi tekjuhlið
fjárlaga, svo sem varðandi áhrif
fyrirhugaðrar skattkerfisbreyting-
ar, verið nákvæmari og gefið meiri
vísbendingar en oft hefði áður ver-
ið við þessa umræðu.
Pálmi sagði og að staðhæfingar
um skattamál og tekjuauka ríkis-
sjóðs, sem fram kæmu í minni-
hlutaáliti fjárveitinganefndar,
fengju ekki staðizt. Niðurstöður
tekjuáætlunar, sem tæki mið af
fyrirhugaðri skattheimtu 1988,
sýni, að verulega sé ofsagt í stað-
hæfingum stjórnarandstöðu um
hækkun skatta, jafnvel svo nemi
nokkrum milljörðum króna. Svo
virðist sem skattalækkanir, vegna
ívilnana í tekjuöflunarkerfinu, séu
ekki dregnar frá skattahækkunum,
vegna skattþyngjandi ákvæða.
Pálmi sagði að þessi mál öll muni
liggja mun betur fyrir þegar frum-
varpið kemur til þriðju umræðu.
Pálmi sagði fremur þrengt að
framlögum til atvinnuvega og að
fjárfestingarliðir frumvarpsins
væru naumt skammtaðir. Hann
sagði og að vegna aðhalds í ríkisút-
gjöldum liðin ár hafi safnast saman
nokkur framkvæmdavandi. Þetta
ætti ekki sízt við um hafnimar.
Þess vegna hafi verið talið nauð-
synlegt að hækka framlag til
Geir H. Haarde í fyrirspurn til utanríkisráðherra:
Er afstaða fslands til skilyrð-
islausrar afvopnunar breytt?
GEIR H. Haarde (S/Rvík) hef-
ur beint fyrirspurn til utanrík-
isráðherra um afstöðu íslands
til skilyrðislausrar fram-
kvæmdar afvopnunartillagna.
Fyrirspumin er svohljóðandi:
Fól utanríkisráðherra sendinefnd
íslands hjá Sameinuðu þjóðunum
að greiða atkvæði með tillögu
Tékka og Úkraínumanna um skil-
yrðislausa framkvæmd allra
afvopnunartillagna sem Allsheij-
arþing Sameinuðu þjóðanna
hefur samþykkt?
Ef svo er, hver er skýringin á
breyttri afstöðu íslands til þessa
máls frá því á tíma ríkisstjómar
Steingríms Hermannssonar og
hvaða rök vom fyrir því að taka
aðra afstöðu, en t.d. önnur ríki
Atlantshafsbandalagsins og nor-
rænu ríkin fjögur?
Hefur þetta mál verið kynnt
utanríkisnefnd?
Frumvarp
til fjárlaga
1988
hafnarframkvæmda nú, sem og til
vegamála.
Þingmaðurinn gagnrýndi og
sagði „óvenjulegt og ekki til eftir-
breytni", að útgjaldaliðum á vegum
einstaks ráðuneytis (landbúnaðar-
ráðuneytis) hafi verið vísað til
Alþingis með þeim hætti, að við-
komandi ráðherra hefði fyrirvara
á afgreiðslu mála. Ef þetta vinnu-
lag ætti að ráða um önnur ráðu-
neyti myndi það án efa torvelda
og þyngja fjárlagavinnuna hjá
þinginu.
Frestun á tilfærslu
tónlistarf ræðslu
Alexander Stefánsson (F/Vl),
lét svo um mælt í ræðu sinni, að
ljóst væri að veruleg óvissa ríkti
um tekjuáætlun fjárlaga nú. Kæmi
þar margt til: Kjarasamningar
væm ekki í sjónmáli og viðskipta-
kjör hefðu versnað síðustu mánuði,
með lækkun dollars, lækkun ál-
verðs, óvissu á erlendum fiskmörk-
uðum og samdrætti í þorskafla.
Alexander benti og á vaxandi við-
skiptahalla og versnandi afkomu
útflutningsatvinnuveganna.
Um fyrirvara landbúnaðarráð-
herra og þingflokks Framsóknar-
flokksins í landbúnaðarmálum
sagði Alexander að nauðsynlegt
væri að staðið væri við samninga
við bændur, sem væm undirstaða
búháttabreytinga og að hann teldi
að með breytingartillögu meiri-
hluta fjárveitinganefndar hafi
þetta nú tekist.
Tilfærsla verkefna frá ríki til
sveitarfélaga er að mati Alexand-
ers stórmál og verður sá tilflutn-
ingur að mati hans og fjárhagsleg-
ur frágangur í því sambandi að
vera sannfærandi. Um efasemdir
varðandi íþróttasjóð og tilflutning
tónlistarfræðslu, sagði Alexander,
að sjálfsagt væri að skoða þau
atriði. „Iþróttasjóður starfi áfram
til styrktar mannvirkjagerð í
landinu. Sjálfsagt má fresta gildi-
stöku breytinga um tónlistar-
fræðslu og mun ég leggja það til
við félagsmálanefnd neðri deildar."
Mikilvægasta verkefnið varðandi
verkefnatilfærsluna taldi Alexand-
er að lögin um Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga tryggi öryggi um
raunverulegan jöfnuð aðstöðumun-
ar í landinu.
Alexander taldi vel hafa til tek-
ist í veigámiklum framkvæmdalið-
um í meðferð fjárveitinganefndar.
Nefndi hann 150 milljóna kr.
hækkun til hafnarframkvæmda og
135 milljóna kr. hækkun til skóla-
mála. Hann taldi þörf á því að
bæta stöðu ríkisins gagnvart
stærstu sveitarfélögunum, veita
auknu fjármagni til íþróttamann-
virkja og í uppbyggingu heilbrigði-
skerfisins. En til þess vantaði aukið
fjármagn. Taldi hann það sérstakt
áhyggjuefni hversu hægt gengi að
byggja upp fullnægjandi aðstöðu
við Ríkisspítalana í Reykjavík.
Skattaholskeflan
ríður yf ir
Óli Þ. Guðbjartsson (B/Sl) bar
saman þau markmið sem kynnt
hefðu verið í stefnuáætlun ríkis-
stjómarinnar um jöfnuð í ríkis-
fjármálum á þremur árum og þeirri
stefnu, sem uppi væri í þessum
fjárlögum um hallalausan ríkissjóð.
Taldi hann slíkt ósamræmi ekki
vera til þess að fallið að auka
traust almennings á Alþingi. Óli
gagnrýndi og harðlega fyrirhugað-
an verkefnaflutning ríkisins til
sveitarfélaga; margt væri óvissu
undirorpið og annað hreinlega van-
hugsað. Benti hann á í því
samhengi að framlag í Jöfnunar-
sjóð sveitarfélaga væri tæplega
200 milljónum kr. lægra en lqg
um sjóðinn gerðu gerðu ráð fyrir.
ÓIi tók til sérlegrar umfjöllunar
svokallaða „bandorma“ og benti á
að samkvæmt fjárlagafrumvarpinu
væri gert ráð fyrir 744,4 milljarða
kr. lægri fjárveitingu en lög um
hina ýmsu sjóði gerðu ráð fyrir;
sjóði eins Framkvæmdasjóð fatl-
aðra, Iðnlánasjóð, Bjargráðasjóð
og fleiri. Taldi Óli varla eðlilegt
að fjárlögum væri beitt til skerð-
ingar annarra laga.
Óli kynnti síðan ýmsar breyting-
artillögur Borgaraflokksins við
gjaldahlið fjárlagafrumvarpsins,
sem hann taldi hóflegar og vel
rúmast miðað við þá miklu sköttun
sem ríkisstjórnin hefði leitt yfir
landsmenn. „Þegar skattahol-
skefla Sjálfstæðisflokksins ríður
yfir ættu kjósendur Sjálfstæðis-
flokksins ekki lengur að þurfa að
velkjast í vafa um það hver skatta-
stefna þess flokks er,“ sagði Óli
Þ. Guðbjartsson, fulltrúi Borgara-
flokksins í fjárveitinganefnd.
Vilji er allt sem þarf
Málmfríður Sigurðardóttir
(K/Ne) minnti á þá spá Kvennalist-
ans, þegar fjárlagafrumvarpið var
lagt fram, að forsendur þess stæð-
ust ekki. Það hefði sannast með
breytingum ríkisstjórnarinnar á
tekjuhliðinni og enn mætti búast
við því að forsendurnar breyttust,
enda væru núverandi forsendur
byggðar á óbreyttum viðskipta-
kjörum.
Málmfríður taldi flestar aðgerðir
stjómarinnar myndu leiða til nýrr-
ar verðbólguholskeflu og sagði hún
Kvennalistakonur vilja fara aðra
leið, þ.e.a.s. að ná inn tekjum fyr-
ir ríkið þar sem tekjur væru fyrir;
vaxtatekjur, háar launatekjur og
tekjur af eignum stóreignastétta.
Um einstaka liði gjaldahliðar-
innar sagði Málmfríður að stórátak
þyrfti að gera við hafnarfram-
kvæmdir, þar sem mið væri tekið
af áætlun Hafnamálastjómar.
Einnig taldi hún að stórauka þyrfti
framlög til Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins, þar sem þar væri
á ferðinni lífsnauðsyn og forgangs-
verkefni. Aukin framlög, sem
meirihluti fjárveitinganefndar
hefði lagt til í skólamálum, kvað
Málmfríður vera mjög til betri veg-
ar.
Málmfríður mótmælti sérlega
kynningu ríkisstjórnarinnar á til-
lögum sínum varðandi gjaldahlið-
ina í fjölmiðlum, sem komið hefðu
nefndarmönnum algerlega í opna
skjöldu. Taldi hún þetta.fádæma
virðingarleysi við Alþingi.
Hún boðaði síðan breytingartil-
lögur Kvennalistans við ýmsa liði
fjárlaganna. Þær væru fáar; aðeins
væru lagðar til breytingar, þar sem
þeim þætti mestu varða. „Pólitík
snýst um það að vilja, eins og
hæstvirtur fjármálaráðherra segir
sjálfur, og ef menn vilja, þá er
hægt að ná inn tekjum fyrir
þessu,“ sagði Málmfríður Sigurð-
ardóttir, fulltrúi Kvennalistans í
fjárveitinganefnd.