Morgunblaðið - 15.12.1987, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
69
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Suður Kórea:
Mer Kim Young sigur með
atkvæðum ungra kjósenda?
SÍÐUSTU dagana hefur virzt sem Kim Young Sam gæti marið
sigur i forsetakosningunum í Suður Kóreu, en menn veigra sér
þó enn við að kveða upp úr með neitt. Kosningabaráttan hefur
verið óvægin, eins og margsinnis hefur komið fram í fréttum
og málefnin hafa fyrir löngu lent í skugganum vegna persónu-
legrar baráttu, einkum milli Kim Young og Kim Dae Jung. Þá
fer ekki milli mála, að allir hafa frambjóðendurnir eytt miklum
fjármunum í kosningabaráttuna og fréttamenn sem hafa fylgzt
með, segja að hún hafi verið rekin upp á bandarískan máta.
Astæðan fyrir því að Kim
Young virðist hafa komizt
hársbreidd fram úr öðrum fram-
bjóðendum er ekki stefna hans
né persónulegar vinsældir hans
heldur að vaxandi fjöldi ungs mið-
stéttarfólks - sem áður var álitið
Kim Dae
áætlað að allt að því ein milljón
hafi komið til fundarins, þrátt
fyrir napurt veður þann dag. Þar
sem fundir Kim Dae næstu daga
á undan höfðu verið illa sóttir var
litið á þetta sem meiriháttar sig-
ur. Þessi fundur hefur ugglaust
Kim Young
um kaupsýslumönnum og svokall-
aðri yfirstétt. Eftir því sem nær
kosningunum hefur dregið hefur
fylgi hans skroppið æ meira sam-
an og er þegar þetta er skrifað
sagt varla meira en 5 prósent.
Kim Jong Pil dró til sín nokkuð
af atkvæðum, fyrst eftir að fyrsta
konan til að gefa kost á sér bauð
sig fram. Kim Jong kunngerði
samstundis áhuga sinn á ýmsum
sérmálum kvenna og raunin varð
sú, að allir frambjóðendur tóku
að gefa yfirlýsingar um hversu
nauðsynlegt væri að huga að
ýmsum „kvennamálum." Þegar
hún dró sig síðan í hlé og lýsti
yfír stuðningi við Kim Dae var
Roh Tae Woo
að kysi Roh Te Woo- virðist hafa
ákveðið að kjósa gegn stjórninni.
Og með þvf að kjósa Kim Young
er síður hætta á að þeirra mati,
að kollsteypa verði í landinu, sem
ekki verður við ráðið.
Yngra fólk gæti ráðið
úrslitum
Áberandi í þessum hópi or fólk
á aldrinum 20-40 ára, sem er 58
% af 25.8 miHjónum á kjörskrá.
Hafa ber f huga, að fólk á aldrin-
um 20-36 ára fær nú í fyrsta
skipti að kjósa forseta. Þær
síðustu voru 1971, þegar Park
Cun Hee vann nauman sigur á
Kim Dae Jung.
Stór hópur þessara kjósenda
býr í höfuðborginni Seul. Þar eru
5.8 milljónir á kjörskrá. Sumir
fréttaskýrendur spá, að það verði
höfuðborgin sem ræður úrslitum,
því að annars staðar í landinu lítur
út fyrir að skipting sé nokkuð
jöfn og fari eftir því, hvaðan fram-
bjóðendurnir eru ættaðir. Það
rennir stoðum undir þessa kenn-
ingu, að náinn stuðningsmaður
Roh Tae Woo, sagði aðspurður á
dögunum, að helzta áhyggjuefni
Roh væri yngra fólkið í höfuð-
borginni.
Kim Dae þykir of
ósveigjanlegur
Það hefur háð Kim Dae Jung,
að honum hefur ekki tekizt að
styrkja sig í sessi í norðurhluta
landsins og í Chollahéraði. Aftur
á móti kom það mörgum á óvart,
hvereu Kim Dae tókst að fá mik-
inn fjölda á útifund þann sem
hann hélt f Seul fyrir nokkru. Er
orðið til að sytrkja Kim Dae f trú
á sjálfan sig, eftir afleita útreið f
skoðanakönnunum í Kyongsang.
Það hefur fram á síðasta dag
verið sagt, að sennilega myndi
Kim Dae sjá sitt óvænna og draga
framboð sitt til baka og lýsa yfir
stuðningi við Kim Young. Seul-
fundurinn varð til að menn hættu
slíkum vangaveltum.
En það hefur líka háð Kim Dae
meira í baráttunni heldur en Kim
Young, að stjórnarandstaðan
skyldi ekki standa við orð sfn og
bjóða fram sameiginlega. Það
þarf ekki að hafa um það mörg
orð, að einn frambjóðandi hennar
hefði átt auðveldan leik. Auk þess
fínnst mörgum að Kim Dae hafi
þjófstartað í kosningabaráttunni
og persónulegur metnaður hans
hafí orðið allri skynsemi yfirsterk-
ari.
Það er Kim Dae þó mestur íjöt-
ur um fót, að margir óttast að
næði hann kjöri muni hann ekki
hafa nein alvörutök á her lands-
ins. Slíkt er nauðsynlegt, af
mörgum augljósum ástæðum.
Kim Dae þykir alltof ósveigjanleg-
ur og sumir segja að hann muni
reyna að hefna harma sinna, verði
hann kosinn, vegna þeirra ofsókna
sem hann hefur sætt mörg undan-
farin ár og hann kennir þar
hemum ekki sízt um. Vegna þessa
ósveigjanleika Kim Dae gæti einn-
ig vafízt fyrir honum að sætta og
lægja öldur eftir kosningamar.
Lítið fylgi þriðja Kim
Kim Jong Pil, fyrrum forsætis-
ráðherra hefur átt f vök að veijast
og ekki talið, að honum verði
neitt að ráði ágengt. Þó mun hann
fá nokkuð af atkvæðum frá efnuð-
greinilegt, að framboð hennar
hafði að minnsta kosti hrært dálf-
tið upp í frambjóðendunum öllum.
Nær Roh 30 prósent-
um?
Fjárausturinn í baráttunni hef-
ur verið mikill eins og áður hefur
verið minnzt á. Þó hefur Roh Tae
Woo sjálfsagt eytt þar langmestu,
enda telur hann gríðarlega mikið
í húfí. Roh ávann sér töluvert
traust og jafnvel vinsældir síðasta
sumar, er hann reis upp gegn
forsetanum og sagðist styðja
fijálsar forsetakosningar, þótt
hann hefði þá þegar verið út-
nefndur frambjóðandi stjórnar-
flokksins. Og að öllu óbreyttu
hefði svo bara verið formsatriði
að hann yrði kosinn.
Mönnum þykir það sýna hug-
rekki hjá Roh að hafa tekið þessa
áhættu. Hann hafði og forgöngu
um að hefja viðræður við Kim
Young Sam um fyrirkomulag
kosninga og hann beitti sér fyrir
því, að Kim Dae yrði leystur úr
stofufangelsi. En Roh hefúr vitan-
lega átt erfítt uppdráttar því að
margir setja samasemmerki milli
hans og Chuns foreeta landsins.
Dyggustu stuðningsmenn Roh
segja að hann muni fá um 30
prósent atkvæða, í það minnsta.
Það geti nægt honum, vegna þess
hve skipting stjómarandstöðunn-
ar er djúpstæð.
Hver sem vinnur í þessum
kosningum á ekki sjö dagana
sæla. Þau verkefni sem blasa við,
að ekki sé nú minnzt á að græða
sárin, sem kosningabaráttan hef-
ur oreakað. Það verkefni gæti
orðið erfíðara en að vinna kosn-
ingamar.
Hljómplata Selmu Kaldalóns
sem ber heitið
„Má ég ífangþér færa“
með 24 sönglögum
eftirhana,
ftutt af sjö þjóðkunn-
um listamönnum
fæst víða í hljómplötu-
verslunum.
Hljómplatan er falleg
gjöf til þeirra sem
unna ljúfum lögum.
I<L_
MONTRES
KARL LAGERFELD
F=ARIS
/////
EINKAUMBOÐ
(lofl og Dskap
LAUGAVEGI 70-S:24930