Morgunblaðið - 15.12.1987, Síða 80

Morgunblaðið - 15.12.1987, Síða 80
VlS/'ts|6ne 'iuiv 80 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987 unglin9a fímmtgnara | * ri* a. - - 11 n li m fr T POTTÞÉTTUR VINUR — pottþétt unglingabók eftir metsöluhöfundinn Eðvarð Ingólfsson. _________________________ Vel sögð saga um innri baráttu, átök og uppgjör. Saga um ungling sem llður fyrir fötlun sína. Sagasem vekurtil umhugsunar... Skemmtileg saga sem sker þó óvægilega á kýlin.. POTTÞÉTTUR VINUR - POTTÞÉTT UNGLINGABÓK ÆSKAN \ Simí 17336 - Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÍÐUR TÓMASDÓTTIR, Torfufelli 1, Reykjavik, áðurtil heimilis í Skipholti 55, lést í Landspítalanum sunnudaginn 13. desember. ValgeirÁ. Einarsson, Jóhanna Valgeirsdóttir, Benedikt Axelsson, Guðrún Jóna Valgeirsdóttir, Hjörtur Guðnason og barnabörn. ÆSH/QPPhús whf avegi 764 simi 27901 Minning: Guðbergur S. Guðjónsson Fæddur 15. september 1902 Dáinn 7. desember 1987 Mánudaginn 7. þ.m. andaðist í Hrafnistu í Reykjavík Guðbergur Sigurður Guðjónsson eftir langt og erfitt sjúkdómsstríð. Guðbergur fæddist í Ásgarði í Grímsnesi og þar ólst hann upp. Snemma hóf harin að vinna búi foreldra sinna allt hvað hann mátti og hlífði sér í engu, frekar en hann gerði við hver þau störf er hann vann á lífsferli sínum. Faðir Guðbergs hafði lengi stundað sjóróðra ásamt búskap sínum en er hann varð að láta af sjómennskunni, hóf Guðbergur sjó- sókn sína, þá 18 ára að aldri. Eftir það stundaði hann sjóinn ásamt bústörfum í mörg ár. Fyrst á opnum árabátum frá Hrauni í Grindavík en síðar á togurum. Þótt Guðbergur væri stór maður vexti, aflrenndur og ósérhlífinn var hann engan veginn heilsuhraustur og hlaut ekki ósjaldan þung högg þeirra veikinda er á hann hetjuðu. Guðbergur kvæntist eftirlifandi konu sinni, Ingveldi Stefánsdóttur frá Kleifum í Gilsfirði, 14. október 1939, mikilhæfri og stórgreindri konu. Þau reistu heimili sitt í Reykjavík og áttu þar heima æ síðan. Þau eignuðust tvö böm, fyrst stúlku er fæddist andvana og síðar son, Guðjón Stefán, verkfræðing. Kona Stefáns er Sigríður Hjartar lyfjafræðingur og eiga þau þrjá syni: Hjört, Berg og Hlyn. Fyrstu búskaparárin stundaði Guðbergur alla almenna verka- mannavinnu en er starfsmöguleikar jukust á árum síðari heimsstyijald- arinnar gáfust tækifæri til fjöl- breyttari starfa. Guðbergur var ágætlega handlaginn og þótti góður smiður þótt hann hefði ekki notið kennslu á því sviði. Hann mat ávallt mikils að hafa fengið tæki- færi á þessum árum til að vinna við smíðar hjá þeim Jens Eyjólfs- syni og Sveinbimi Kristjánssyni húsasmíðameistumm. Þegar mænuveikifaraldurinn gekk um miðjan fimmta áratuginn varð Guðbergur meðal fómarlamba þessa sjúkdóms og í þann mund sem hann eygði nokkurn bata og hugði til bjartari framtíðar hvað heilsuna varðaði, lagði hin svonefnda Akur- eyrarveiki hann í rúmið á ný. Af þessum sökum varð hann óvinnufær í fimm ár. Það þarf ekki mikið hugarflug til að gera sér grein fyrir hvílíkir erfíðleikar hafa verið hér á ferðinni og hversu mikið andlegt álag þetta hefur verið fyrir bæði hjónin með ungbarn á framfæri. En Ingveldi virtist vaxa afl og útsjónarsemi við hveija raun. Á þessum erfiðleikaár- um vann hún fyrir heimilinu af miklum dugnaði og ósérhlífni. Árin þokuðust áfram með áhyggjum, kvíða og öryggisleysi gegn komandi degi. Ung að ámm hafði Ingveldur farið til Danmerkur og lært þar fjöl- breyttan saumaskap. Þessi kunn- átta skapaði henni nú atvinnutæki- færi sem hún nýtti til þess ítrasta við að afla heimilinu framfærslueyr- is. Hún átti þó við heilsuleysi að stríða á þessum ámm og um tíma lá hún þungt haldin af liðagigt og vom því bæði hjónin samtímis rúm- liggjandi hluta sjúkdómsára Guðbergs. „Öll él birtir upp um síðir," segir gamall málsháttur og svo fór að loks tók að birta til fyrir Guðbergi varðandi heilsu hans, þótt aldrei næði hann sér til fulls, en þurfti að bera menjar veikinda sinna til æviloka. t Ástkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON forstjóri, Vfðivöllum, Reykjavík, andaðist sunnudaginn 13. desember. Ólaffa Ólafsdóttir, Ólafur Kr. Guðmundsson, Sigrún Konréðsdóttir, Gfsli I. Guðmundsson, Björn I. Guðmundsson, Sigurður V. Guðmundsson, Guðmundur V. Guðmundsson, og barnabörn. Eiginkona mín, ÞURÍÐUR GUÐNADÓTTIR fyrrum Ijósmóðir á Akranesi, lést i Borgarspítalanum 12. desember sl. Bjarni Th. Guðmundsson. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA ODDNÝ HALLDÓRSDÓTTIR, andaðist á Elliheimilinu Grund sunnúdaginn 13. desember. ER FRÁBÆR GJÖF Leikfélagi, sem á eftir aö endast lengi. Þýsku dúkkurnar frá Zapf eru vönduð leikföng, sem ekki láta á sjá viö misjafna meðhöndlun ungra eigenda. Póstsendum — Góð aðkeyrsla, næg bílastæöi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.