Morgunblaðið - 15.12.1987, Síða 82
82
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
Sigurborg Karls-
dóttir — Minning
Fædd 26. október 1909
Dáin 7. desember 1987
Það er erfitt að átta sig á því
að hún amma okkar er dáin.
Sigurborg Karlsdóttir var fædd
26. október 1909 í Hlíð í Kolla-
fírði. Foreldrar hennar voru Karl
Þórðarson og Guðbjörg Þorsteins-
dóttir. Þegar amma var 5 ára gömul
fluttist hún að Búðardal á Skarðs-
strönd.
Árið 1937 giftist hún afa okkar,
Hákoni Jónassyni og eignuðust þau
9 böm. Öll eru þau flutt að heiman
nema tveir yngstu synimir. Bama-
bömin eru orðin 20 að tölu og eitt
bamabamabam.
Amma okkar og afí áttu fallegt
heimili á Skarphéðinsgötu 12 hér í
Reykjavík þar sem öllúm var vel
tekið. Alltaf var nægur tími til að
spjalla. Þau áttu einnig sumarbú-
stað við Elliðavatn og dvöldu þar
eins mikið og þau gátu. Þar var
mikið ræktað af grænmeti og blóm-
um.
Árið 1981 dó afí okkar, en amma
hélt áfram af miklum dugnaði þar
sem frá var horfíð.
Hún fór að starfa með kvenfélagi
Hallgrímskirkju og fann hún sig í
því. Allt sem hún gerði var fallega
unnið og frekar lét hún hlutina
ógerða heldur en að gera þá illa.
Amma okkar vildi aldrei bíða til
morguns með það sem hún gat
gert í dag. Hún skipulagði hlutina
og tók þá svo í réttri röð. Hún vildi
alltaf vera tímanleg og það var
hægt að treysta því sem hún sagði.
Á sumrin dvaldi hún alltaf í sum-
arbústaðnum sínum og var það
hennar líf og yndi. Strax upp úr
áramótum, þegar daginn var farið
að lengja á ný, var hún farin að
tala um sumarið.
Það verða því erfíð spor þeg'ar
við komum upp í Sumó, eins og við
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞORBJÖRG GUÐLAUG BJÖRNSDÓTTIR
til heimilis í Hvassaleiti 38,
Reykjavik,
andaðist í Borgarspítalanum föstudaginn 11. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðrún Einarsdóttir, Jóhann E. Ólafsson,
Birna Einarsdóttir, Þórir Sigursteinsson,
Auður Inga Einarsdóttir, Guðmundur Ö. Guðmundsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN Ó. GUÐMUNDSSON
húsgagnasmiðameistari,
sem andaðist í Borgarspítalanum 7. desember, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju i dag þriöjudaginn 1 5. desember kl. 1 3.30.
Margrét Jónasdóttir,
Hrönn Þórðardóttir, Jónas Karlsson,
Emilía Guðjónsdóttir, Ögmundur Guðmundsson,
Hilmar Guðjónsson, Sigrún Jensdóttir,
Rúnar Guðjónsson, Guðmunda Jóhannsdóttir,
Guðlaugur Guðjónsson, Þorbjörg Auðunsdóttir.
t
Faðir og fósturfaðir,
EMIL B. JÓNASSON
fyrrv. umdæmisstjóri Pósts og síma,
frá Seyðisfirði,
andaðist í Landakotsspítala 11. desember.
Hann verður jarðsettur föstudaginn 18. desember frá Fossvogs-
kirkju kl. 13.30.
Anna Katrín Emilsdóttir,
Halldóra Jóna Stefánsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafáðir og afi,
GUÐBERGUR S. GUÐJÓNSSON
frá Ásgarði i Grímsnesi,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju i dag, þriðjudaginn 15. des-
ember, kl. 13.30.
Ingveldur Stefánsdóttir,
Guðjón Stefán Guðbergsson, Sigriður Hjartar,
Hjörtur Stefánsson, Bergur Stefánsson,
Hlynur Stefánsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN RAGNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Lindarbraut 2,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. desember
kl. 15.00.
Guðmundur S. Másson,
Árni Steinsson,
Theódór Þór Steinsson,
Jónína M. Árnadóttir,
Zelda Steinsson
og barnabörn.
kölluðum sumarbústaðinn, þar sem
amma var vön að hita kakó fyrir
okkur. Allt er svo breytt og mikið
vantar.
Amma fylgdist alltaf vel með
öllu sem við gerðum og stundum
fannst okkur kannski nóg um, en
hún vildi okkur vel og var stolt af
okkur öllum. Húri var ánægð þegar
við stóðum okkur vel og talaði
óspart um bamabömin sín. Ekki
er nema eitt ár síðan hún eignaðist
sitt fyrsta barnabamabam og hafði
hún nú gaman af Bigga litla eins
og hún kallaði hann.
Aldrei kveinkaði amma sér eða
kvartaði þótt hún fyndi til og þegar
uppgötvaðist um þann sjúkdóm sem
tók hana frá okkur hafði hún legið
heima í þó nokkum tíma. Talaði
hún um verki í bakinu og var það
ekki fyrr en síðar að annað og
meira kom í ljós. Tvær síðustu vik-
umar lá amma okkar á Landakots-
spítalanum þar sem allt var gert
sem hægt var. Viljum við þakka
frábæm starfsfólki Landakotsspít-
ala fyrir alla þá hjálp og þann
stuðning sem það veitti.
Það er svo erfítt að setjast niður
og skrifa um einhvem sem manni
þykir svo vænt um, en með þessum
fátæklegu orðum viljum við kveðja
ömmu okkar og þakka henni fyrir
allt sem hún veitti okkur með góð-
vild sinni.
Við bemm harm okkar í hljóði
og tökum hana okkur til fyrirmynd-
ar.
Kveikt er Ijós við ljós
burt er sortans svið.
Angar rós við rós
opnast himins hlið.
Niður stjömum stráð
engill fram hjá fer.
Drottins nægð og náð
boðin alþjóð er.
(Stefán frá Hvítadal)
Bamabörn og
barnabarnabarn.
Nú er elsku amma á Skarp kom-
in til Guðs eftir stutt en mikil
veikindi, — þegar mamma sagði
mér að amma væri mikið veik bað
ég fyrir henni á hveiju kvöldi, en
það er guð einn sem ræður og ég
veit að nú líður henni vel hjá afa.
Margar góðar minningar á ég
um ömmu því hún var alltaf svo
góð við mig. Ég kom oft á Skarp
til hennar eftir skóla og hjálpaði
hún mér þá stundum að læra, sér-
staklega hafði hún gaman af því
að lesa kvæðin með mér. Hún
minnti mig oft á að vera stundvís
í skólann því hún vildi alltaf hafa
reglu á öllum hlutum.
Ég vil þakka ömmu fyrir þær
stundir sem ég átti með henni hvort
sem var í sumó eða á Skarp. Ég
mun líka alltaf muna þá Stund er
ég átti með henni er ég gisti hjá
henni einn í sumar og spjölluðum
við þá mikið saman.
Það verður tómlegt að koma upp
í sumó næsta sumar, — en það var
alltaf hennar annað heimili á sumr-
in. En nú er amma mín farin og
ég mun minnast hennar í bænum
mínum.
Ég vil votta systkinunum samúð
mína þó sérstaklega elsku Steina
mínum sem misst hefur svo mikið,
— svo og öðrum aðstandendum.
Blessuð sé minning hennar.
t
Maðurinn minn,
GUÐVARÐUR PÉTURSSON,
Hrafnagilsstræti 31,
Akureyri,
lést 11. desember. Útför hans fer fram frá Barði í Fljótum laugar-
daginn 19. desember kl. 14.00.
Maria Ásgrímsdóttir.
t
Útför eiginkonu minnar,
ÓLU ÓLADÓTTUR,
Bústaðavegi 63,
fer fram frá Fríkirkjunni miðvikudaginn 16. desember kl. 13.30.
Gunnar Ragnarsson
og vandamenn.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma,
KLARA MAGNÚSDÓTTIR,
Barmahlíð 44,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 16. desem-
ber kl. 1 5.00.
Hákon Hafliðason,
Guðrún Birta Hákonardóttir, Trausti Valsson,
Magnús Óskar Hákonarson, Jórunn Ella Þórðardóttir,
Gíslína Hákonardóttir, Ólafur Þór Erlendsson,
Guðfinna Hákonardóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
INGIBJÖRG THORARENSEN,
andaðist í hjúkrunardeild Hrafnistu laugardaginn 12. desember.
Jarðsett verður frá Fossvogskapellu föstudaginn 18. desember
kl. 15.00.
Ebba Thorarensen, Ebenezer Þ. Ásgeirsson,
Pótur Hamar Thorarensen,
Sigrún Thorarensen,
Anna Ragnheiður Thorarensen, Sigurður Hallgrimsson,
Bjarni Páll Thorarensen.
„Deyr fé,
deyja frændr
deyr sjálfr it sama.
En orðstírr
deyr aldregi
hveims sér góðan getr.“
(Hávamál)
Gummi
Tengdamóðir okkar andaðist
þann 7. des. á Landakotsspítala
eftir stutta en stranga sjúkdóms-
legu. Það hafði ekki farið fram hjá
neinum að hún var veik, en hversu
alvarleg veikindin voru uppgötvað-
ist ekki fyrr en hálfum mánuði fyrir
andlátið. Það kom því eins og reið-
arslag. Skarðið er stórt og vandfyllt
eins og alltaf þegar húsmóðir í
stórri fjölskyldu fellur frá.
Sigurborg fæddist í Hlíð í Kolla-
fírði, Strandasýslu, en fluttist
bamung með foreldrum sínum og
systkinum í Búðardal á Skarðs-
strönd og ólst þar upp. Hún giftist
árið 1937 Hákoni Jónassyni frá
Borg í Reykhólasveit en hann lézt
fyrir tæplega 7 árum. Þau komu
sér upp húsi á Skarphéðinsgötu 12
í Reykjavík af fádæma dugnaði en
það þótti stórt í ráðist á þeim árum.
Þar fæddust þeim bömin sem urðu
hvorki fleiri né færri en 9 talsins,
öll uppkomin og búsett hér í borg.
Þau hjón létu ekki þar við sitja að
byggðu á Skarphéðirisgötunni én
reistu sér myndarlegan sumarbú-
stað í Vatnsendalandi, sem var
þeirra aðalheimili á sumrin. Sigur-
borg naut þess að vera í sumarbú-
staðnum, fyrst með bömin sín ung
og síðan bamabömin. Það var
hennar hjartans mál að halda sum-
arbústaðnum við og er hann nú
hinn vistlegasti, sem er ekki síst
hennar framkvæmdasemi að þakka.
Margan góðan kakósopann höfum
við og hinir fjölmörgu gestir, sem
sótt hafa sumarbústaðinn heim,
þegið þar.
Sigurborg var mikil dugnaðar-
og myndarkona. Hennar einkunnar-
orð voru: Geymdu ekki til morguns
það sem þú getur gert í dag og
morgunstund gefur gull í mund.
Hún var gædd einstakri skipulags-
gáfu sem naut sín vel á svo stóm
heimili. Þar var allt í röð og reglu
og aldrei verið á síðustu stundu
með hlutina. Ekki má hlutur Há-
konar vera fyrir borð borinn en
hann var sérlega natinn og um-
hyggjusamur heimilisfaðir.
Þrátt fyrir annasama ævi gaf
Sigurborg sér tíma fyrir hugðarefni
sín, en hún hafði yndi af lestri góðra
bóka og var ljóðelsk mjög. Hafði
hún ávallt á takteinum tilvitnanir í
hin ýmsu spakmæli, bæði í bundnu
og óbundnu máli.
Við viljum að lokum þakka sam-
fylgdina og vottum bömum og
aðstandendum innilega samúð.
Tengdaböm
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er
birtur. Meginregla er sú, að
minningargreinar birtist undir
fullu nafni höfundar.