Morgunblaðið - 15.12.1987, Page 84

Morgunblaðið - 15.12.1987, Page 84
84 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987 fclk í fréttum Meg náði í Dennis sinn að lokum. Feríllinn er rétt að hefjast hjá hinni 26 ára gömlu Meg. Allskyns bjánalegar uppákomur eru í „Undraferð- inni“, hér veit Martin Short hreint ekki í hvorn fótinn hann á að stiga. MEG RYAN A ÞROSKULDI FRÆGÐARINNAR Meg Ryan er ekki svo ýkja þekkt nafn og andlitið er ef til vill ekki nema miðlungi kunnu- legt. En Meg stendur á þröskuldi frægðarinnar, hún vakti fyrst at- hygli í myndinni „Top Gun“ og hefur styrkt stöðu sína með því að leika aðalhlutverk í Spielbergmynd- inni „Undraferðinni" (Innerspace) sem verður sýnd nú um jólin. Þar segir frá fómarlambi vísindamanna sem er gerður agnarsmár og sprautað inn í taugaveiklaðan af- greiðslumann. í „Undraferðinni" leikur Meg kynþokkafullan blaða- mann sem beitir töfrum sínum á þann sem er smækkaður, Dennis Quaid (hvemig sem hún fer nú að því). Og til að kóróna það, nældi hún í Dennis þegar tökum á mynd- inni lauk og hefur leikið á móti honum í mynd sem ber nafnið D.O. A. Auk hennar hefur hún leikið í tveimur myndum síðan Undraferð- inni lauk, í annari á móti Sean Connery. „Síðastliðið ár hefur verið alger bilun,“ segir Meg, „en ég hef notið þess. Ég verð að vinna mikið svo mér líði vel.“ Hún er þekkt án þess að fólk þekki hana á götu og reynir að láta sem minnst á sér bera og forðast veislur þar sem ljós- myndarar verða til staðar eins og heitan eldinn. Meg á nokkrum einingum ólokið til að ljúka blaðamannaprófí frá háskólanum í New York en hefur lagt það nám á hilluna í bili. En hvað hefur næstum-blaðamaðurinn um eigin frægð að segja? „Ég hef ekki þurft að hafa áhyggjur af áhorfendum, þar sem ég er ekki sviðsvön. Peningar eða frægð hafa aldrei haft áhrif á mig, ég hugsa um að leika í einhverri tiltekinni kvikmynd, allt annað fínnst mér óraunverulegt. Ég veit ekki hvernig fer, ég hef ekki enn öðlast þekkingu á takmörkunum frægðarinnár. En nú heillar hún mig.ég hef oft hugs- að um það hvemig það sé að vera prímadonna. Ég vona bara að ég breytist sem minnst." Martin Short, Dennis Quaid og Meg sjá fram á farsæl endalok furðuferðarinnar. RONNIE BIGGS Vertu velkominn heim Lestarræninginn og pönk- söngvarinn Ronnie Biggs sem tók þátt í „lestar ráninu mikla" og komst undan með fjár- munina, lifir ennþá sældarlífi í Brasilíu. Nýlega sótti hann um innflytjendaleyfi til heimalands síns, Bretlands og fékk það snar- lega ásamt skilaboðum um að ef hann stigi fæti á enska foldu, yrði hann tekinn höndum og sett- ur í fangelsi. Þar myndi hann dúsa það sem eftir væri ævinnar. Ronnie lifir sældarlifi i Brasilíu en vill nú heim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.