Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 89
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
89
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Bjórfrumvarpið:
Hlustum á álit læknanna
Til Velvakanda.
Það má ekki minna vera en koma
á framfæri þakklæti til þeirra 16
prófessora læknavísindanna hér á
landi fyrir innlegg sitt til batnandi
og blessunarríkis þjóðfélags, sem
ég veit að allir þeir sem vinna að
hollari lífsháttum hljóta að taka
undir. Það var virkilega gott og
gagnlegt að fá þeirra álit á bjórnum
og hvað hann myndi valda miklum
vandræðum hér og þá ekki síst
greinargerðin sem fylgdi undir-
skrift þessara þrautreyndu manna,
sem að æfistarfi hafa kjörið sér að
lækna og líkna. Hvað gera þing-
menn nú, þeir sem á æðsta tróni
landsins hafa verið kjörnir til og
heitið að vinna þeim málum gagn
sem þjóðinni væri fyrir bestu. Þessi
dómur læknanna er okkur sem vilja
Til Velvakanda.
Alltaf er gaman að hlusta á
umræðuþætti Bylgjunnar um há-
degi á sunnudögum en þar kemur
fram margt sem gaman væri að
gera frekari skil, t.d. að hafa ráð-
hús niður við höfn. Það finnst mér
aldrei geta komið til greina vegna
þess að athafnasvæði hafnarinnar
má ekki skerða. Hvar ættu bíla-
stæði að vera fyrir starfsfólkið?
Mjög vel var að orði komist hjá
„Andavini" sem skrifaði í Velvak-
anda þann 20. nóvember um
andófsáhrif og tilgang smáhópa
meðal okkar og allt sem hann hafði
að segja er sannleikanum sam-
kvæmt.
Nú kemur tillaga mín. Ekki
vegna þess að ráðhúsið megi ekki
vera við Tjörnina, heldur vegna
þess að mér fínnst Miðbærinn vera
eyðilagður með kumböldum í brekk-
unni fyrir ofan Lækjargötuna.
Flytjið þá alla burt uppá Árbæjar-
tún og byggið ráðhús í staðinn. Það
er auðvelt að grafa fyrir bíla-
geymslu inní brekkuna og mikið
ódýrara en bygging við Tjörnina.
batnandi þjóð og betra þjóðfélag,
ekki framandi. Við höfum séð þróun
þjóðfélagsins fara niður á við og
erum alltaf að uppskera meira af
því sem miður fer og ég verð að
segja það að ég er oft undrandi
yfir því hversu blindir menn eru í
áfengis og vímumálum, viðurkenn-
andi blóðspor Bakkusar á hverju
leiti, tala um áfengisböl og þess
háttar unglingavandamál um leið
og þeir gleyma að unglingavanda-
málið sprettur á akri þess fullorðna.
Eða eins og skáldið segir:
Þú horfir á böl þinna bræðra
og bætir við.
Nú er tækifæri fyrir alþingis-
menn að afnema allar þessar
undanþágur á innflutningi bjórs, og
eins og einn bjórmaðurinn sagði,
hætta hálfvelgju og hræsni. Þar
Hugmynd kom fram um það að
láta ganga fyrir ráðhúsbyggingunni
stórt og mikið íbúðahúsnæði fyrir
aldrað fólk sem á í mestum erfið-
leikum með að fá hentugt húsnæði.
Þá myndi um leið losna samsvar-
andi húsnæði fyrir fólk sem vill
stofna heimili. ískyggileg frétt
barst okkur nýlega um að það kæmi
æ oftar fyrir að aldraðir einbúar
fyndust látnir í íbúðum sínum vegna
þess að þeir eiga enga að sem líta
til þeirra. Þetta verður að útiloka.
Einn viðmælandi minn sagði, að ef
byggt væri skýli fyrir þá sem vilja
færa öndunum eitthvað að borða,
annað hvort undir hlið ráðhússins
sem veit að Tjörninni eða framan
við það, þá myndi hann vera sam-
þykkur byggingu ráðhúss við
Tjörnina.
Ef ekki verður byggt ráðhús þar
sem nú er fyrirhugað, mun það
kosta okkur borgarbúa nýja hönnun
á ráðhúsi, því hvergi getur nýgerð
hönnun verið nothæf annars staðar
í borginni.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
með væri hætt að mismuna fólki,
og það er lélegur íslendingur sem
ekki getur látið á móti sér slíka
óminniselfu þegar bróðir hans er í
hættu.
Um bjórinn segir Einar Bene-
diktsson: I gleði og sút hef ég gildi
tvenn.
Til gagns menn mig elta. Til
skaða mín njóta . . .
Þetta eru sannindi og aldrei er
góð vísa of oft kveðin.
Og þökk sé þessum ágætu lækn-
um. Þeir eiga lof þjóðarinnar.
Árni Helgason
Spilið
jólalögin
Til Velvakanda
Ég er ekki sammála Birni sem
hafði samband við Velvakanda fyrir
nokkru og vildi ekki láta spila jóla-
lögin nema yfír jóladagana. Þá er
lítill tími til að h|usta á útvarp, fólk
er í boðum og upptekið við veislu-
höld. Ég hef heyrt fullorðið fólk
segjast hlakka til að heyra jólalögin
á rásunum. Það léttir og gleður við
jólaundirbúninginn. Og hvað krökk-
unum fínnst mikil hátíð að heyra
lögin. J.H.
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspumir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisfong verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér [
dálkunum.
Um ráðhúsið og
málefni aldraðra
!
Bréf til íslenskra karlmanna
— sérstaklega á aldrinum 20 til 30 ára
Til Velvakanda.
Halló! Hér sit ég, 23ja ára stúlka,
myndarleg er mér tjáð og á lausu.
Af hveiju? spyija margir. Ymsar
ástæður eru fyrir því, svara ég, en
engin stór. Kannski er líkt á komið
með mér og mörgum öðrum í þessu
þjóðfélagi. Því skrifa ég þetta bréf
til íslenskra karlmanna.
Ég hef þó nokkurn áhuga á að
kynnast karlmanni og búa með
honum í framtíðinni. Karlmenn lað-
ast að mér og sýna mér áhuga
en... því miður, á svo óaðlaðandi
hátt að mig langar mest að fara
eitthvað langt burt.
Ég fer kannski með vinkonu eða
nokkrum vinum á ball og hvað ger-
ist? Einungis drukknir, jafnvel
blindfullir karlmenn koma að tala
við mig, sérstaklega rétt fyrir
klukkan þijú. — Ólíkt mörgum öðr-
um kynsystrum mínum hér á landi
tek ég aldrei „sjensinn" og dríf mig
heim með einum sem ég hitti sama
kvöldið. Nei, takk!
Hvað er til ráða? Passa ég ekki
inn í þetta þjóðfélag eða hvað? Mig
langar samt til að koma með tillögu
til ykkar elsku íslensku karlmenn.
Mig langar að byija með að segja
að þið gætið verið ánægðir (flestir)
með útlit ykkar, þið eruð yfírleitt
mjög myndarlegir.
Næst þegar þið farið á skemmti-
stað og sjáið stelpu sem ykkur líst
vel á, verið óhræddir að fara til
hennar. Tala smávegis, enga rosa-
stæla. Þið getið ekki ímyndað ykkur
hvað við kvenfólkið erum oft hrifn-
ar af karlmönnum sem geta verið
EÐLILEGIR.
Ef þið eruð á dansstað, bjóðið
henni upp. Ef hún segir ákveðið
nei, takið því og farið. Ef þið eruð
ofsahrifnir reynið að tala smávegis
en í guðanna bænum ekki spyija
aftur og aftur: Af hveiju viltu ekki
dansa? Gerðu það komdu að dansa.
Láttu ekki svona, komdu! Það er
líka alveg út í hött að verða fúll,
þetta þarf ekki endilega að vera
persónuleg móðgun. Gangið heldur
í burt og reynið kurteisislega aftur
seinna, ef áhugi er fyrir hendi.
Ég er kannski voða gamaldags
eða ægilega varkár. Ég veit það
ekki. En ég verð ægilega móðguð
og sár þegar gæinn sem er búinn
að vera með mér allt ballið muldrar
í eyrað á mér klukkan þijú: „Eigum
við að fara heim til þín eða mín?“
Síðan verður hann fúll og jafnvel
reiður af því að ég vil fara heim
ein. Ætli ég Hti út fyrir að vera
„þannig"? Þó er stundum skipst á
símanúmerum en oft heyrist ekkert
frá vininum. Hann er nefnilega svo
feiminn þegar hann er edrú.
Elsku strákar mínir, herðið ykkur
nú upp! Það er mjög líklegt að stelp-
an sem gaf ykkur símanúmerið sitt
hreinlega bíði eftir símhringingu.
Af hveiju lét hún þig fá símanúmer-
ið? Ef þið reynið ekki að rifja upp
smá kurteisi (þið hljótið að kunna
eitthvað) og sýna ósvikinn áhuga á
íslensku kvenfólki, án þess að
hanga dauðadrukknir á öxlunum á
okkur, þá endar með því að við
kvenfólkið förum að flytja inn karl-
menn frá einhveiju fátæktar-
landinu. Hvemig litist ykkur á það?
Mér litist sjálfri illa á það. í von
um batnandi líf.
P.s. Það væri gaman að heyra
frá öðmm, konum sem körlum,
vegna þessa.
Trína
rGEGN STAÐGREIÐSLUn
VÍRZLUNflRBflNKI ISIANDS HF
Kaupum og seljum hlutabréf Verslunarbanka íslands
gegn staðgreiðslu. Kaupverð nú er kr. 1.270,- fyrir
hverjar 1.000,-kr. nafnverðs.
sími lHulabréfamarkaóurinn hf.
21677 Skólavörðustíg 12, 3.h., 101 Reykjavík.
JÁTVARÐUR JÖKULL
JÚLÍUSSON
áritar bók sína
HEFUR LIÐUGT
TUNGUTAK
í verslun okkar í dag kl. 16-18.
Sendum áritaóar bækur í póstkrufu.
FRÁBÆRT ÚRVAL
rAF DÚKKUM
EYMUNDSSON
Austurstræti 18