Morgunblaðið - 15.12.1987, Síða 91
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
91
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Liverpool
missti niður
tveggja marka
torskot
Liverpool tapaði tveimur stigum
í Southampton, lék frábærlega
framan af og komst í 2-0, en missti
svo botninn úr öllu saman, heimalið-
ið náði að jafna og á lokasekúndum
leiksins hefði það knúið fram sigur
ef heilladísimar hefðu verið liðinu
hliðhollar. Mark Lawrenson bak-
vörður Liverpool snéri á dísirnar er
hann bjargaði á línu með ótrúlegum
hætti. John Barnes var einnig hetja
Liverpool, skoraði bæði mörk liðs-
ins. Það fyrra með þrumuskoti á
11. mínútu eftir fyrigjöf frá John
Aldridge og það síðara skömmu
síðar, stöngin inn eftir sendingu frá
Ray Houghton, en alls gekk boltinn
mann frá manni með þátttöku sex
leikmanna. Colin Clarke gaf leik-
mönnum Southampton von er hann
skoraði með skalla tveimur mínút-
um fyrir leikhlé. Andy Townsend
jafnaði svo á 71. mínútu, spymti
viðstöðulaust frá vítateigslínu og
Grobbi réði ekki við þrumuskotið.
Eftir það sótti heimaliðið stíft og
hafði nærri knúið. fram sigur, en
allt kom fyrir ekki og Liverpool
hefur því leikið 18 síðustu leiki sína
án þess að bíða lægri hlut .
Arsenal tókst ekki að færa sér
stigatapa Liverpool í nyt, liðið náði
aðeins markalausu jafntefli á High-
field Road gegn Coventry og slapp
vel, því tvívegis voru allir á því að
dómaranum undanskildum að Cov-
entry ætti að fá vítaspyrnu, er Tony
Adams skellti Mick Gynn flötum
innan teigs.
Af toppliðunum unnu aðeins For-
est, Everton og Manchester Utd.
Nigel Clough skoraði þrennu er
Forest rúllaði upp heillum horfnu
liði QPR, fyrsta markið kom rétt
eftir leikhlé og tvö á þremur mínút-
um undir lokin, en Tommy Gaynor
skoraði fyrsta markið á 40. mínútu.
Everton áttti alls kostar við Derby.
Jafnræði var nokkuð uns Ian Snod-
in skoraði fyrir Everton með góðu
skoti af löngu færi. Trevor Steven
skoraði úr víti um miðjan seinni
hálfleik og Adrian Heath setti
punktinn yfir i-ið er hann bætti
þriðja markinu við eftir hrikaleg
mistök Peters Shilton í markinu.
Gordon Strachan skoraði tvívegis
er Manchester Utd. sigraði Oxford
auðveldlega. Hann gerði bæði
mörkin í fyrri hálfleik og Jesper
Olsen skoraði þriðja markið í seinni
hálfleik. Undir lokin skoraði svo
Kevin Wilson eina mark Oxford sem
hefur aðeins unnið tvívegis í tíu
síðustu leikjum sínum.
Óvænt úrslit urðu í leik Tottenham
og Charlton, þar sem botnliðið gerði
sér lítið fyrir og sigraði með eina
marki leiksins. Tottenham hefur
ekki sigrað í tíu leikjum í röð. Paul
Williams skoraði sigurmark Charl-
ton, en allir viðloðandi Tottenham
voru óðir yfir að markið hafi fengið
að telja. „Það var sparkað í andlitið
á Tony Parks markverði, það foss-
blæddi úr munni hans. Það átti að
dæma aukaspyrnu og með því að
gera það ekki bauð dómarinn upp
á að sóknarmenn bijóti á vaxandi
mæli á markvörðum," sagði Terry
Venebles stjóri Tottenham.
George Parris, bakvörður West
Ham hafði næstum tryggt liði sínu
öll stigin gegn Chelsea með marki
sínu í fyrri hálfleik. Wilson tókst
þó að jafna rétt við leikslok.
England
1. deild
CHELSEA - WESTHAM
EVERTON - DERBY
MAN.UTD. - OXFORD
NEWCASTLE - PORTSMOUTH
SHEFF.WED. - WIMBLEDON
I : 1
3 : 0
3: 1
1 : 1
1 : 0
SOUTHAMPTON - LIVERPOOL 2:2
WATFORD - LUTON 0 : 1
COVENTRY - ARSENAL 0 : 0
NOTT. FOREST - QPR 4:0
TOTTENHAM - CHARLTON 0.: 1
HEIMALEIKIR
UTILEIKIR
SAMTALS
Leikir U J T Mörk U J T Mörk Mörk Stig
LIVERPOOL 18 8 1 0 25: 3 5 4 0 18: 8 43: 11 44
ARSENAL 19 7 0 2 21: 6 5 3 2 12: 8 33: 14 39
NOTT. FOREST 17 5 2 1 19: 4 5 2 2 17: 11 36: 15 34
EVERTON 19 7 2 1 20: 5 2 4 3 8: 7 28: 12 33
MAN. UTD. 18 5 4 0 16: 8 3 4 2 15: 11 31: 19 32 .
QPR 19 5 3 1 12: 6 4 2 4 10: 16 22: 22 32
CHELSEA 19 6 3 0 17: 9 2 0 8 11: 21 28: 30 27
WIMBLEDON 19 3 5 1 14: 9 3 2 5 11: 14 25: 23 25
LUTON 18 4 3 3 15: 9 3 0 5 9: 12 24: 21 24
SOUTHAMPTON 19 3 3 3 13: 12 3 3 4 14: 16 27: 28 24
DERBY 18 3 3 3 8: 6 3 3 3 8: 13 16: 19 24
WESTHAM 19 3 4 3 11: 12 2 4 3 10: 12 21: 24 23
NEWCASTLE 18 2 3 4 8: 12 3 4 2 14: 15 22: 27 22
TOTTENHAM 19 5 1 4 13: 11 1 3 5 4: 11 17: 22 22
OXFORD 19 5 1 3 17: 14 1 3 6 5: 17 22: 31 22
COVENTRY 19 2 4 4 10: 17 3 2 4 9: 10 19: 27 21
SHEFF. WED. 19 4 1 5 12: 15 3 2 5 8: 18 20: 33 21
PORTSMOUTH 19 3 4 3 11: 12 1 3 5 5: 22 16: 34 19
WATFORD 19 3 2 4 7: 9 1 3 6 5: 15 12: 24 17
NORWICH 19 2 2 5 10: 14 2 1 7 4: 13 14: 27 15
CHARLTON 19 2 3 5 8: 13 1 2 6 9: 17 17: 30 14
KNATTSPYRNA
Reuter
RabahMadJerfagnarsigurmarkisínugegnPenarol. Fernando Gomes hampar heimsbikarnum í Tókýó.
Portó heimsmeistari
Portó sigraði Penarol frá Ur-
uguay 2-1 í úrslitaleik lið-
anna í heimsmeistarakeppni
félagsliða í knattspyrnu um helg-
ina, en leikurinn fór fram í Tokyo.
Staðan eftir venjulegan leiktíma
var jöfn, 1-1 og þurfti framleng-
ingu til að knýja fram sigur.
Ferrando Gomez skoraði fyrst
fyrir Porto á 41. mínútu og þeirri
forystu hélt liðið allt þar til að
aðeins tíu mínútur lifðu leiks, en
þá tókst Ricardo Viera að jafna
metin fyrir Penarol með glæsilegu
marki. Þá var ekkert annað að
gera en að framlengja og á 108.
mínútu skoraði Rabah Madjher
sigurmarkið.
KNATTSPYRNA / ITALIA
Rush varð laus tungan
Velski miðherjinn lan Rush
komst í klandur um helgina,
er ýmsar yfirlýsingar birtust
undir hans nafni í vikulegum
dálki slúðurblaðsins The Sun.
Voru það óvinsæmleg ummæli
í garð ítatska félagsins Juvent-
us sem Rush leikur með. Segir
Rush í grein sinni, að hann
muni hætta ef hann verði sett-
ur út úr liði Juventus, en
forráðamenn Juv brugðust
ókvæðs við og sektuðu kap-
pann um andvirði 6000 dollara.
Veslings Rush hélt því fram, að
blaðamenn The Sun hefðu
bæði rangtúlkað orð sfn og háft
rangt eftir sér , en forráðamenn Juv
sögðu á móti að ef Rush gæti ekki
stjómað því sem fram kæmi í þætti
undir eigin nafni þá gerðu þeir þá
kröfu að hann rifti samningi sínum
við blaðið, eða tæki í staðinn afleið-
ingunum.
2. deild
C.PALACE - SHEFF.UTD. 2 : 1 MILLWALL - MAN.CITY 0: 1
BIRMINGHAM - ASTON VILLA 1 : 2 OLDHAM - LEICESTER 2 : 0
BRADFORD - BOURNEMOUTH '2 0 READING - LEEDS 0 : 1
HUDDERSFIELD - PLYMOUTH 2 : 1 SHREWSBURY - HULL 2 : 2
MIDDLESBROUGH - STOKE 2:0 WBA - BLACKBURN 0 : 1
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Leikir u j T Mörk u 1 T Mörk Mörk Stig
MIDDLESBRO- UGH 23 9 2 1 23: 6 5 3 3 12: 8 35: 14 47
BRADFORD 23 9 1 2 26: 11 5 3 3 12: 14 38: 25 46
ASTON VILLA 23 3 5 3 13: 12 9 2 1 22: 9 35: 21 43
C. PALACE 22 9 1 1 27: 10 4 2 5 20: 20 47: 30 42
MAN. CITY 23 6 2 3 32: 14 5 4 3 17: 16 49: 30 39
IPSWICH 22 10 1 0 23: 4 1 5 5 9: 13 32: 17 39
MILLWALL 23 8 1 2 25: 10 4 2 6 12: 18 37: 28 39
HULL 23 7 5 0 19: 10 3 4 4 14: 14 33: 24 39
BLACKBURN 22 6 3 2 15: 9 4 4 3 13: 13 28: 22 37
BIRMINGHAM 23 5 5 2 14: 13 4 1 6 12: 21 26: 34 33
BARNSLEY 22 7 1 3 25: 15 2 4 5 7: 13 32: 28 32
LEEDS 23 7 2 2 18: 11 1 6 5 10: 20 28: 31 32
SWINDON 21 6 3 2 24: 11 3 1 6 16: 21 40: 32 31
PLYMOUTH 23 5 3 3 24: 15 2 3 7 11: 23 35: 38 27
STOKE 23 5 4 2 14: 9 2 2 8 7: 22 21: 31 27
LEICESTER 22 5 3 4 17: 11 1 2 7 12: 20 29: 31 23
SHEFF. UTD. 23 4 4 4 17: 16 2 1 8 9: 21 26: 37 23
WBA 23 5 3 4 19: 13 1 1 9 9: 26 28: 39 22
BOURNEMO- UTH 23 3 4 .5 18: 18 2 2 7 10: 22 28: 40 21
OLDHAM 22 4 3 4 12: 12 1 3 7 8: 20 20: 32 21
HUDDERSFIELD 23 3 4 4 11: 15 1 3 8 16: 39 27: 54 19
SHREWSBURY 23 2 4 5 12: 15 1 4 7 7: 20 19: 35 17
READING 22 2 2 6 10: 13 1 4 7 10: 27 20: 40 15
Þrenna Magnusson í Portúgal
Sænski lapdsliðsmiðheijinn
Mats Magnusson skoraði
þrennu er Benfica sigraði Aca-
demica 4-2 á útivelli í portugölsku
deildarkeppninni um helgina. Portó
lék ekki í deildinni, var að glíma
við Penarol í heimsbikarkeppni
austur í Tókýó á sama tíma, en lið-
ið hefur samt þriggja stiga forystu
og leik til góða. Boavista var í öðru
sæti ásamt Benfice fyrir umferðina,
en náði aðeins jafntefli gegn Rio
Ave og seig því niður í 3. sæti.
Mörk sín þij'skoraði Magnuson fyr-
ir Benfica á átta minútna leikkafla.
Hinn brasilíski Moser skoraði §órða
mark Beiifíca.
A Spáni vann Real Madrid einn
sigurinn í deildarkeppninni. Það var
Celta sem lenti í hvössum klónum
að þessu sinni, 2-0 urðu lokatölurn-
ar og var það aðeins frábærri
markvörslu markvarðar Celta að
þakka að talan var ekki hærri.
Það var Miguel Tendillo sem skor-
aði fyrra mark Real strax á 1.
mínútu og Miehel Gonzales skoraði
síðan annað markið eftir undirbúing
Butragueno um miðjan seinni hálf-
leik. Barcelona tapaði 1-4 fyrir
Real Socieded og Sevilla og Atl.
Bilbao skildu jöfn, 1-1.
Efsta liðið í Frakklandi, Mónakó,
gerði aðeins jafntefli, 1:1, við Toulo-
use. Englendingarnir Hoddle og
Hately léku hvorugur með Mónakó
vegna meiðsla. Dominique Rochete-
au kom Toulouse yfír en Marcel
Div jafnaði. Racing París vann Nice
2:1 með mörkum Uruguay-búanna
Enzo Francescoli og Diego Umpi-
errez og Bordeaux vann Le Havre
1:0. Racing og Bordeaux hafa nú
bæði 30 stig en Mónakó 33.
PSV Eindhoven gefur ekkert eftir
í Hollandi. Um helgina vann liðið
sinn 16. sigur í röð, nú lá Haarlem
2:1. Wim Kieft skoraði bæði mörk
PSV. Ajax tapaði, 1:3, fyrir VW
Venlo.
Markvörður
Roma var
nær dauða
Franco Tancredi, markvörður
Roma var næstum dáinn er
hann varð fyrir þeirri reynslu í leik
liðsins gegn AC Mílanó að áhorf-
endur vörpuðu hvellhettum að^-
honum. Komu hvellhettur í fætur
hans og handlegg og missti hann
meðvitund. Þegar að var komið,
komust menn að því að hjarta hans
var hætt að slá og þurfti að hnoða
hann og blása súrefni í hann. Alls
var Tancredi meðvitundarlaus í 45
mínútur, en fékk þá rænu og er
talinn á batavegi. Hann var þó í
hjólastól er hann yfírgaf sjúkrahú-
sið, lamaður á fótum. Mflan vann
leikinn 1-0, en næsta víst er að
þeim úrslitum verður snúið við af
aganefnd ítölsku deildarinnar. Það
samræmist reglum og fordæmi
liggja fyrir.
Diego Maradona sá um að stigin
féllu til Napólí um helgina, liðið. __
mætti Juventus í stórleik umferðar-
innar. Þegar ein mínúta lifði af
leiknum var staðan jöfn, 1-1, en
þá fékk Napólí vítaspymu sem
Maradona skoraði úr af öryggi. Það
tryggði Napólí áttunda sigurinn í
11 umferðum og forysta liðsins í
deildinni er nú þijú stig.
BELGIA
Tap hjá
Anderlecht
Anderlecht reið ekki feitum
hesti frá Charleroi um helgina,
heldur tapaði þar 0-1 og tafðist
viðreisnin á þeim bæ lítillega
við þær ófarir. Toppliðið Ant-
werp vann hins vegar góðan
útisigur á Kortrijk, 4-2.
FC Brugge er í öðru sæti eftir
2-1 sigur á heimavelli gegn
Ghent og Mechelen vann Cercle
Brugge heima 3-2. Antwerpen er
með 30 stig, FC Brugge er með
27 stig, Mechelen 26 stig og síðan
koma Waregem og Anderlecht með
22 stig hvort félag.