Morgunblaðið - 30.12.1987, Side 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
295. tbl. 75. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987__________________________________Prentsmiðja Morgiinblaðsins
Frelsissveitir í Afganistan verjast liðsauka Sovétmanna og stjórnarhersins:
Osamhljóða yfirlýsingar sov-
éskra og afganskra talsmanna
Islamabad, Moskvu, Reuter.
Lækkun doll-
arans veldur
verðfalli á
hlutabréfum
London, New York, Reuter.
ÓVISSA um stöðu dollarans eftir
að hann hafði lækkað í gengi á
mánudag leiddi til þess að hluta-
bréf féllu snarlega í verði i London
í gær. Verð þeirra lækkaði einnig
í kauphöllinni í WaU Street i New
York. Gengi dollarans gagnvart
helstu gjaldmiðlum var i gær örlít-
ið hærra en á mánudag.
Kauphöllin í London var opnuð að
nýju í gær en hún var lokuð yfír jóla-
hátíðina. Hlutabréfavísitalan féll um
78,4 stig eða 4,3 prósent. Sérfræð-
ingar sögðu skýringuna vera verðfall
hlutabréfa í Wall Street á mánudag
og óvissu um stöðu dollarans, sem
féll í verði á mánudag þrátt fyrir til-
raunir bandaríska seðlabankans til
að styrkja stöðu hans. „Grípi Banda-
ríkjamenn ekki til aðgerða til að
styrkja stöðu dollarans má búast við
áframhaldandi ólgu á flármálamörk-
uðum á næsta ári,“ sagði einn
sérfræðingurinn í kauphöllinni í Lon-
don.
í Wall Street í New York féll Dow
Jones-hlutabréfavísitalan um rúm 16
stig niður í 1.926 stig.
Bandaríkin:
Skuldabyrði
Mexíkó létt
Washington, Reuter.
Bandariska fjármálaráðuneytið
tilkynnti í gær að snemma á næsta
ári yrðu gefin út rikistryggð
skuldabréf, sem gætu orðið til
þess að iétta skuldabyrði Mexí-
kana gagnvart erlendum við-
skiptabönkum.
Verðmæti bréfanna, sem gefin
verða út, verður um 10 milljarðar
Bandaríkjadala. Með þessu móti mun
Mexíkó, sem skuldar um 100 millj-
arða Bandaríkjadala í erlendum
lánum, gefast tækifæri til að greiða
niður hluta skuldanna með minni
kostnaði en áður.
Stjómvöld ( Mexíkó hafa ákveðið
að leggja fram nýjar tryggingar fyr-
ir erlendum skuldum landsmanna og
er talið víst að skuldabréfin geti kom-
ið að gagni í því efni þar sem erlendir
viðskiptabankar munu fá veð fyrir
hluta skuldanna, sem verða tryggð
af ríkissjóði Bandaríkjanna.
Lögregluyfirvöld á írlandi te\ja
sig hafa heimildir fyrir þvi að
hryðjuverkamenn í röðum írska
lýðveldishersins (IRA) hafi komist
yfir sovésk flugskeyti af gerðinni
SAM-7 og hyggist beita þeim gegn
breskum hersveitum á Norður-
írlandi á næsta ári. írski lýðveldis-
herinn hét því á mánudag að
beijast af hörku á nýju ári en
hermdarverkamennimir hafa
orðið fyrir hveiju áfallinu á fætur
öðru á þessu ári.
Heimildarmenn innan lögreglunn-
ar sögðu í gær að margt benti til
TALSMENN frelsissveita Afg-
ana skýrðu frá því í gær að
stjórnarhermönnum, sem njóta
liðsinnis sovéskra innrásarsveita,
hefði ekki tekist að aflétta um-
sátri skæruliða um landa-
mærabæinn Khost. Kváðust
skæruliðar enn ráða yfir hemað-
arlega mikilvægum vegi miíli
Khost og borgarinar Gardéz í
þess að írski lýðveldisherinn réði nú
yfir nýjum vopnabúnaði og tiltóku
sovésk flugskeyti og nýjar öflugar
vélbyssur. Sögðu þeir einnig að verið
væri að þjálfa hryðjuverkamenn í
meðferð þessara vopna. írski lýðveld-
isherinn hefur lengi reynt að komast
yfir SAM-7 flugskeyti því með þeim
munu liðsmenn samtakanna getað
grandað byrlum sem breskar her-
sveitir á Norður-írlandi nota til
liðsflutninga og eftirlits.
f síðasta mánuði var gerð víðtæk
leit að vopnabúrum hermdarverka-
samtakanna. Fjórir liðsmenn írska
austurhluta Afganistan, skammt
frá landamærum Pakistans.
Talsmönnum afganskra og sov-
éskra stjórnvalda ber ekki saman
um hvort umsátur frelsissveita
um Khost hafi verið brotið á bak
aftur. Bardagarnir í nágrenni
Khost eru meðal hinna hörðustu
í Afganistan í ár.
lýðveldishersins, sem tekist hafði að
flýja úr fangelsi á Norður-írlandi,
voru handteknir, þijú vopnabúr fund-
ust en vopn fundust engin. í október-
mánuði fimdu franskir tollverðir hins
vegar 20 SAM-7 flugskeyti um borð
í skipi með írskri áhöfn og þótti full-
sannað að vopnin hefðu verið ætluð
írska lýðveldishemum.
Á mánudag birti írski lýðveldis-
herinn „áramótaávarp" samtakanna
þar sem sagði að samtökin hygðust
beita sér af „öryggi og alefii" á
næsta ári. Þess var og getið að árið
1987 hefði verið samtökunum erfitt
sovéslca utanríkisráðuneytisins,
skýrði frá því í gær að afganskir
stjómarhermenn og sovéskir hem-
aðarráðgjafar hefðu unnið. að því
undanfama daga að fjarlægja jarð-
sprengjur sem skæruliðar hefðu
komið fyrir á veginum milli Khost
og Gardez og yrði unnt að heija
flutninga á matvælum og hjálpar-
gögnum til íbúa Khost á föstudag.
og minnst sérstaklega á að fjöldi liðs-
manna hefði fallið á árinu.
írski lýðveldisherinn hefur sjaldan
eða aldrei orðið fyrir jafnalvarlegum
áföllum og nú ( ár. Átta liðsmenn
IRA féllu í maimánuði er sérsveitir
breska hersins fengu njósn af fyrir-
hugaðri árás samtakanna á lögreglu-
varðstöð og sátu fyrir hryðjuverka-
mönnunum. Þjóðir heims fordæmdu
samtökin ( síðasta mánuði er flugu-
menn IRA komu fyrir sprengjú við
minnismerki í bænum Enniskillen
með þeim afieiðingum að ellefu
manns biðu bana.
Skæruliðar hafa setið um bæinn
undanfama þijá mánuði og er mat-
arskortur tekinn að hqá íbúana.
Ummæli Gerasimovs voru hins
vegar ( ósamræmi við yfirlýsingar
afgansks ráðherra sem skýrði frá
því á sunnudag að stjómarherinn
hefði aflétt umsátri skæruliða og
náð veginum á sitt vald og færi
umferð fram eftir honum með eðli-
legum hætti. Athygli vakti að
afganska ríkisútvarpið endurtók
ekki fullyrðingar þessar í fréttum
í gær. Najibullah, forseti Afganist-
an, lýsti því yfir í síðasta mánuði
að íbúar Khost, sem em um 40.000,
liðu skort og hét því að sigrast á
umsátursmönnum.
Fréttir af bardögunum nærri
Khost em mjög ósamhljóða. Sov-
éska fréttastofan Tass greindi frá
því á mánudag að 1.500 liðsmenn
frelsissveitanna hefðu verið felldir
eða særðir. Þessu hafa skæmliðar
vísað á bug og lýst yfir að mörg
hundruð sovéskir og afganskir her-
menn hafi ýmist verið felldir eða
særðir í bardögunum, sem taldir
em hinir hörðustu frá því í janúar
á þessu ári.
Gennadíj Gerasimov, talsmaður
írski lýðveldisherinn:
Beita samtökin sovéskum flugskeytum?
__ O «7
Dublin, Reuter.