Morgunblaðið - 30.12.1987, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987
„ sáétu f?etbo>- ? jpriggja. herloergja
íbú& fyrir oÁéuys i.,0 miLlfón?.' "
Ást er . ..
\
TM Rag. US. Pat Off.-U ffghts reurvgd
C f966 Los Angsfes Tfm*s SyiKflcats
... að horfa til framtíðar
saman.
Nú kemur röðin að öðrum
uppboðsvamingi nauðungar-
uppboðsins?
HÖGNIHREKKVÍSI
Spurningar til bjórvina
Til Velvakanda.
Laugardaginn 19. desember sl.
var sýnd í sjónvarpinu mjög áhrifa-
mikil mynd um 15 ára dóttur
læknishjóna, sem varð fómarlamb
eiturlyfjaneyslu. Þar kom bjórinn
við sögu. Engum þarf að koma það
á óvart, því að staðreyndin er, að
sú áfengistegund er oft undanfari
annarra sterkari eiturlyfja og ryður
þeim brautina. Ennfremur er bjór-
drykkjan samkvæmt könnunum
erlendis það drykkjumunstur, sem
ofdrykkjumenn sækjast mest eftir.
Bjórinn er lúmskari og á sinn hátt
skaðlegri en sumir læknar vilja nú
halda fram.
Þótt áfenga ölið sé tvímælalaust
kveikja margvíslegra sjúkdóma og
annarrar mannlegrar ógæfu hafa
133 læknar hér á landi nýlega sam-
einast um að gerast meðmælendur
bjórfmmvarpsins. Fljótræði hlýtur
hér að hafa ráðið ferðinni. Ekki
verður því trúað, að nokkur læknir
geti talið það vera sitt hagsmuna-
mál að stuðla að auknum áfengis-
vanda, en allt bendir til aukinnar
heildameyslu áfengis í landinu, ef
bjórfmmvarpið nær fram að ganga.
Reynsla annarra þjóða ætti að ve?a
okkur nægilegt víti til varnaðar.
í ályktun um bjórmálið deila
nefndir læknar á röngum forsend-
um á prófessora við læknadeild
Háskóla íslands fyrir það m.a. að
hafa skorað á alþingismenn „að
skoða vel hug sinn til fmmvarps
um breytingar á áfengislögum, sem
heimilar framleiðslu og sölu á
áfengu öli og ætla má, að leiði til
aukningar á áfengisneyslu í
landinu", eins og segir orðrétt í
áskomn prófessoranna.
Þrír kálfar
ekki einsdæmi
Til Velvakanda
Þetta með beljuna og kálfana
hans Þorleifs í Hólum er ekki eins-
dæmi. Ég átti einu sinni skjöldótta
kú, sem bar þremur kálfum gráum,
öllum eins. Þegar hún var að bera
var dóttir mín hjá mér og þegar sá
þriðji kom sagði bamið: „Ætlar hún
aldrei að hætta?“. Kálfarnir lifðu
eitt ár, þá var þeim fargað.
Pála Pálsdóttir
Sauðárkróki
Ef ályktun læknanna hefur verið
undirrituð af vandlega hugsuðu
máli leyfi ég mér að leggja fyrir
þessa 133 bjórvitni úr læknastétt
eftirfarandi spumingar:
Þekkið þið ekki nógu vel skaðleg-
ar afleiðingar áfengisneyslu fýrir
heilsuna og þær sérstöku hættur,
sem fylgja bjórdrykkju? Er ykkur
ókunnugt um þau tilmæli Heilbrigð-
isstofnunar Sameinuðu þjóðanna til
aðildarþjóða, að þær dragi úr heild-
Til Velvakanda
Að undanförnu hefur verið skrif-
að í blöðin um ijúpnaveiðar og
rjúpnaskyttur víttar fyrir að fanga
þennan fugl. Rjúpan virðist af ein-
hveijum ástæðum vekja meiri
samúð manna en aðrir fuglar him-
insins, en svonar er það þegar
tilfinningarnar komast í spilið. Það
er nú einu sinni lögmál náttúrunnar
að ein tegund lifir á annarri og
vart verður komist hjá að svo verði
um alla framtíð. Þeir sem em á
móti rjúpnaveiðum hljóta að vera á
móti öllum veiðum, einnig fiskiveið-
ameyslu áfengis um fjórðung fyrir
næstu aldamót? Hvers vegna virðist
bjórinn vera ykkur sérstakt áhuga-
mál? Hvers vegpa beitið þið ekki
frekar samtakamættinum til fram-
dráttar knýjandi mannúðarmálum,
sem tengjast göfugu starfi ykkar,
t.d. að vinna að aukningu hjúkmn-
ar- og vistrýmis fyrir aldraða og
geðsjúka?
Þessar spurningar læt ég nægja
í bili með ósk gott og farsælt nýár.
Árni Gunnlaugsson, hrl.
um, og varla hafa þeir efni á að
smjatta á kjúkling eða öðm góð-
gæti úr dýraríkinu um jólin eða í
annan tíma. Varla er líf ijúpunnar
friðhelgara en líf kjúklingsins. Þeir
sem halda fram skoðunum sem
þeim að einhver dýrategund sé frið-
helgari en önnur verða að skoða
hug sinn betur og eins hitt, hvort
þeir syndgi ekki sjálfir uppá náðina
og neyti hinna forboðnu ávaxta.
Þeir einir sem lifa eingöngu á jurta-
fæði hafa efni á að hneykslast á
veiðum og slátrunum.
Veiðimaður
Um rjúpnaveiðar
Víkverji skrifar
Aaðfangadag í hádeginu var
Víkveiji að hlusta á fréttir í
Bylgjunni og þótti einkennilegt að
heyra fréttamanninn segja hvað
eftir annað frá því, að hann hefði
hitt fólk rétt fyrir hádegi á Lauga-
veginum, sem hafi verið á harða-
hlaupum að „verslajólagjafir", áður
en verslunum var lokað. Þessi notk-
un á sögninni að versla er að færast
í vöxt og virðist hún vera að útrýma
sögninni að kaupa hjá sumum. Er
ástæða til að spoma gegn þeirri
þróun. í Orðabók Menningarsjóðs
er sögnin að versla skýrð með þess-
um hætti: skipta við, kaupa og
selja: versla með eitthvaá, versla
við einhvern selja einhverjum eða
kaupa af honum; gera innkaup.
Síendurtekning fréttmanns Bylgj-
unnar á því, að margir hafi verið
„að versla jólagjafír" á síðustu
stundu stangast á við rétta notkun
sagnarinnar að versla."
XXX ~
A
Ur því að Víkveiji er kominn á
þessi gamalkunnu mið sín,
getur hann ekki látið hjá líða að
minnast þess, að rétt fyrir kvöldmat
á Þorláksmessu heyrði hann stjórn-
anda síðdegisþáttar Bylgjunnar
taka þannig til orða „okkur hlakkar
til“. Er sjaldgæft að heyra jafn
áberandi þágufallssýki og þessa hjá
þeim, sem hafa atvinnu sína af því
að láta móðan mása á öldum ljós-
vakans.
Eftir hádegi á aðfangadag, þegar
Víkveiji heyrði svo einn þulanna á
Rás 2 kynna lag eftir Mozart með
þeirri afsökun, að hann væri nú
bara orðinn eins og þulirnir á Rás
1, datt Víkverja í hug, að kannski
þætti það við hæfi að halda þágu-
fallssýkinni á loft af þeim, sem vildu
ekki vera eins og þeir á Rás 1.
Annars var þessi kynning piltsins
á verkunum eftir Mozart svo böksu-
leg, að athugasemd hans um efni
Rásar 1 og kynningu á því var al-
veg út í hött.
XXX
Víkveiji hefur undanfama daga
ogyfír jólahelgina lesið nokkr-
ar af skáldsögunum, sem komið
hafa út síðustu vikur eftir íslenska
höfunda. Sumir þeirra eru raunar
að senda frá sér fyrstu stórverk sín
á þessu sviði ritlistarinnar. Þegar
litið er á málfar og meðferð á
íslenskri tungu í þessum bókum og
borið saman við hið talaða orð í
fjölmiðlum og daglegt mál í blöðun-
um, vaknar sú spurning, hvort bilið
á milli vandaðs texta og hins hvers-
dagslega málfars sé ekki að verða
of stórt. Við sem notum móðurmál-
ið, sem okkar helsta atvinnutæki,
getum mikið af rithöfundum lært.
Sú regla er gullvæg, að hver sá,
sem vill tileinka sér gott vald á
móðurmálinu, lesi góðan texta,
helst upphátt fyrir sjálfan sig.
Utgáfa bókmenntaverka á
snældum á eftir að auðvelda okkur
að rækta góða málkennd. Þannig
geta nú allir, sem áhuga hafa eign-
ast Njálu í snilldarlegum upplestri
Einars Ólafs Sveinssonar. Víkveiji
þekkir af eigin raun, hve mikla gleði
það hefur vakið hjá ungum bömum
að hlusta á ævintýri af snældum.
Er til dæmis ekki að efa, að fyrir
ung börn, sem dveljast með foreld-
rum sínum fjarri ættjörðinni, getur
það verið ómetanleg kennslustund
í íslensku að fá tækifæri til að
hlusta á snældur með íslensku efni.