Morgunblaðið - 03.01.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐH), SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
Kópasker:
Maðurfórst
í eldsvoða
Raufarhöfn
MAÐUR fórst í bruna á nýársdag
þegar kviknaði í íbúðarhúsinu
Bakka á Kópaskeri.
Maðurinn sem lést hét Ámi Jóns-
son. Hann var á sjötugsaldri,
einhleypur og bamlaus. Eldsins
varð vart um kL 2 á nýársdag þeg-
ar reyk lagði frá húsinu. Slökkvi-
starfí lauk um kL 20.
Beðið var um aðstoð slökkviliðs-
ins á Kópaskeri við að ráða niður-
lögum eldsins þar sem talið var að
nálæg hús væru í hættu þegar vind-
átt breyttist. Svo illa vildi til að
slökkviliðsbifreiðin valt á leiðinni til
Kópaskers. Einn maður slasaðist
en ekki alvarlega. Helgi
Árnessýsla:
213teknir
ölvaðir við
akstur 1987
SelfoMÍ.
ÖL VUN ARAKSTUR í Árnes-
sýslu jókst á nýliðnu ári frá því
árið áður. 213 ökumenn voru
teknir fyrir meinta ölvun við
akstur á árinu 1987 á móti 161
árið áður.
Aukningin milli ára er umtals-
verð einkum með tilliti til þess að
skemmtanahald um verslunar-
mannahelgi féll niður en þá hafa
oft verið teknir 20-30 ökumenn.
Að sögn lögreglumanna er þessi
hegðan ökumanna geigvænleg.
Sig. Jóns.
K i
Morgunblaðið/Árm Helgason
Stykkishólmur:
Annar hlýjasti desember
frá upphafi mælinga
FYRSTU mælingar veðurs á
landinu hófust í Stykkishókni,
fyrir um 150 árum. Það var
Arni Thorlacius, kaupmaður og
framkvæmdamaður, sem hóf
þessa starfsemi og hélt meðan
hann lifði.
Þá tóku aðrir við og munu þess-
ar veðurmælingar hafa verið
samfelldar síðan. Þá mun það
vera staðreynd að þessar veður-
mælingar munu vera þær fyrstu
samfelldu í heiminum og hefír
ekki ánnað komið fram eða verið
sannað. Er þetta því merkur
kapítuli í sögu Stykkishólms.
Um árin hafa margir stutt að
þessu starfí, en núverandi veður-
tökumaður hér í Stykkishólmi er
frú Auður Júlíusdóttir. Desember-
mánuður var annar hlýjast
mánuður frá upphafi veðurmæl-
inga hér.
Árni
Mikið um rúðu-
brot á nýársnótt
RIJÐUR voru brotnar á að
minnsta kosti 30 stöðum í
Reykjavík og Kópavogi á nýár-
snótt. Á 13 stöðum í Breiðholti,
8 stöðum í miðborg Reykjavikur
og 9 stöðum i Kópavogi barst
lögreglu vitneskja um rúðubrot.
Að sögn lögreglumanna virtist
sem hópar unglinga hefði gengið
á milli og brotið rúður.
Eins og við mátti búast var riý-
ársnótt annasöm hjá lögreglu á
höfuðborgarsvæðinu. „Hvað ölvun
og skemmdarverk varðar var nýárs-
nótt ein sú erfíðasta," sagði Rúnar
Guðmundsson aðalvarðstjóri í lög-
reglunni í Reylq'avík. Olvun var
mikil og almenn fram yfír klukkan
8 á nýársdagsmorgun, fanga-
geymslur fullar að venju og víða
kom til áfloga og illinda, en Rúnar
kvaðst ekki vita til að nokkrum
hefði orðið alvarlega meint af.
Átta ökumenn voru teknir grun-
aðir um ölvun í Reykjavík og
Kópavogi á nýársnótt.
Tolla- og vörugjaldsbreytingar:
Lokað á mánu-
dag og þriðju-
dag hjá tollstjóra
Verðbólgan tvöfald-
aðist á árinu 1987
VERÐBÓLGAN á árinu 1987 var
tæplega 25% ef miðað er við
framfærsluvísitölu. Hefur hún
því tæplega tvöfaldast frá fyrra
ári.
Að sögn Þórðar Friðjónssonar,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar liggur
ekki fyrir endanlegt uppgjör frá
árinu 1987, en sé miðað við tíma-
bilið frá desember til desember er
verðbólgan 24,4%. Gert er ráð fyrir
því að talan verði tæplega 25% frá
upphafi til loka árs.
Verðbólgan árið M.986 var 13%
og hefur hún því tæplega tvöfald-
ast á árinu 1987. Arið 1985 var
verðbólgan 33,5%, 22% árið 1984
og 84% árið 1983.
Helstu orsakir þessarar auknu
verðbólgu eru að mati Þórðar hin
mikla þensla sem verið hefur í þjóð-
félaginu, en hún stafar fyrst og
fremst af þrennu: Hækkun útflutn-
ingstekna, halla á ríkissjóði og
mikilli útlánaaukningu og erlendum
lántökum. Hefur þenslan þrýst öllu
verðlagi upp að mati Þórðar.
Um horfumar á nýbyijuðu ári
sagði Þórður að þær væru fremur
dökkar, miðað við óbreyttar að-
stæður. í fjárlögum og þjóðhagsá-
ætlun er miðað við 10% verðbólgu,
en að mati Þórðar er sú spá of Iág
miðað við núverandi aðstæður í
efnahagslífínu. Hins vegar væri
erfítt að spá i hver verðbólgan yrði,
enda margir óvissuþættir; til dæmis
gífurleg óvissa í kjarasamningum
og slæm staða atvinnuveganna.
„Verðbólgan verður áreiðanlega
verulega hærri en 10% og gæti ég
alveg trúað því að hún tvö- eða
þrefaldaðist miðað við spá, að
óbreyttum aðstæðum," sagði Þórð-
Þórður taldi ríkisstjómina þurfa
á öllu sínu að halda til að ná verð-
bólgunni niður fyrir það sem hún
var á árinu 1987. Viidi hann lítið
segja um það hvað helst væri til
ráða, en ljóst væri þó, að verulega
þyrfti að draga úr útgjöldum þjóð-
arbúsins; ætti það bæði við um
neyslu almennings, samneysluna og
fjárfestingar.
SKRIFSTOFA tollstjóraembætt-
isins verður lokuð á mánudag og
þriðjudag fyrir allri almennri
afgreiðslu, vegna breytinga á
toUskrá og gjöldum. Sinnir emb-
ættið aðeins svokaUaðri neyðar-
afgreiðslu, að sögn Karls
Garðarssonar, deildarstjóra hjá
ToUstjóraembættinu.
Að sögn Karls er í raun verið
að breyta flestu við tollafgreiðsl-
una, og hefur tekið tíma að und-
irbúa þessar breytingar. Ný tollskrá
tók gildi um áramótin og ný gjöld
em upp tekin. Tollskýrslunum verð-
ur einnig breytt, enda er um
áramótin verið að taka upp tölvu-
vætt tollafgreiðslukerfí, svo og
gengur í gildi nýtt tollflokkunar-
kerfí. Hefur þetta allt í för með sér
miklar skipulagsbreytingar á af-
greiðslu tollstjóraembættisins, en
meginástæða þess að skrifstofan
er lokuð, er hversu seint breytingar
á tollum og vörugjaldi tóku laga-
gildi.
Breytingin átoilflokkunarkerfínu
felst f því að farið er að fordæmi
Evrópuríkja og fleiri ríkja, þar sem
fallið er frá notkun Brusselskrár-
innar, en í gagnið tekið svokallað
„harmonestkerfí“. Gamla tollskráin
var 2.800 númer en sú nýja verður
6.000 og í stað sex stafa kerfís
kemur átta stafa kerfí. Meginflokk-
ar gamla kerfísins munu halda sér
og að miklu leyti munu síðustu fjór-
ir stafír tollnúmersins koma í stað
hinna tveggja síðustu sem áður
voru.
Ekkert frelsi að vera
þrj á mánuði í landi
- segir Haraldur Jóhannsson, trillukarl úr Grímsey
Evrópumót 16 ára og
yngri í skák:
Þröstur með
fullt hús
ÞRÖSTUR Arnason vann fimm
fyrstu skákir sínar á Evrópumóti
skákmanna 16 ára og yngri, sem
nú stendur yfir í Svíþjóð, og var
einn efstur en 6. umferðin var
tefld í gær. Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir, sem teflir í stúlkna-
flokki mótsins, var með 3
vinninga eftir 5 umferðir og var
í 4. sæti.
Þröstur átti í gær að tefla við
stigahæsta keppandann á mótinu,
Borim frá ísrael. Sá var með 3 vinn-
inga eftir 5 umferðir. í öðru sæti
var Markovic frá Póllandi með 3*/2
vinning en Þröstur vann hann í 4.
umferðinni.
Guðfríður Lilja átti í gær að tefla
við stúlku frá Póllandi.
„ÞAÐ er ekki alls kostar rétt, að minni bátamir hafi rýmri heimild-
ir til veiða en stærri bátarnir. Til Grímseyjar var keyptur 8 tonna
bátur í haust. Hann ætti að fá 135 tonn af óslægðum fiski en fyrir
em þrír 11 tonna bátar í Grímsey. Þeir em þrír af 5 hæstu af 10 til
12 tonna bátum yfir landið. 8 tonna báturinn mun sækja sjó jafnt
og hinir, en fá mun minni aflaheimildir. Hinir hafa á 6 ára tímabili
að meðaltali tekið 310 tonn á ári hver um sig. Verði þetta frumvarp
að lögum verður mismunun á bátum rétt um 10 tonnum þvi allt of
mikil,“ sagði Haraldur Jóhannsson, trillukarl í Grimsey, i samtali
við Morgunblaðið.
o
INNLENT
Haraldur sagði ekki væri allt sem
sýndist hvað varðaði veiðar smá-
báta og í raun væri furðulegt hve
mikið væri rætt um veiðar báta, sem
tækju innan við 10% af þorskaflan-
um. Jafnframt virtist vera um of
af villandi upplýsingum á ferli.
Sjávarútvegsráðherra segði að veið-
ar línu- og handfærabáta skyldu
vera fíjálsar enn um sinn. „Hann
ætlar hins vegar að banna okkur
veiðar í 86 daga á ári, nærri þijá
mánuði. Það er ekkert frelsi," sagði
Haraldur. „Þetta kemur mjög
harkalega út í Grímsey. í gegn um
tíðina hefur veðráttan sett á okkur
270 til 280 banndaga á ári á hand-
færunum. Okkur hefur fundizt
óþarfí að bæta á þessa banndaga
af ráðuneytinu úr Reykjavík. Mikill
hluti þessara daga kerhur á versta
tíma fyrir okkur.
Netabátamir í Grímsey eru allir
fyrir neðan 5 tonn nema fjórir.
Þetta er hinn svokallaði stórhættu-
legi skipastóll og ég hef getið þess
að vegna hafnleysis eru Grímsey-
ingar dæmdir til að vera með
minnstu bátana. Það er misskiln-
ingur haldi menn að það sé ósk
þeirra sjálfra. í fyrra og 1986 höfðu
þessir bátar möguleika á 100 tonn-
um af óslægðum þorski frá 10.
febrúar til 15. maí, en frá 15. jan-
úar til 10. febrúar og eftir 15. maí
máttu þeir físka fíjálst í netin. Nú
er boðið upp á 50 tonn allt árið
fyrir þessa báta, að vísu á að taka
eitthvert tillit til aflareynslu en við
vitum ekki með hvaða hætti það
verður. Þetta er það, sem blasir við
okkur í Grímsey. Við skiljum ekki
að ráðherra skuli leggja allt að veði
okkar vegna. Afli hefur ekki aukizt
milli ára nú. Hann lækkar frá árinu
1986 til 1987 og hefur ekki aukizt
í samræmi við fjölgun smábátanna.
Það er nauðsynlegt að hafa veiðar
þessara báta frjálsar. Veiðar smá-
bátanna verða aldrei hættulegar
þorsksstofninum og skila beztu hrá-
efni með minnstum tilkostnaði,"
sagði Haraldur Jóhannsson.
Beið bana
í bílslysi
á Holta-
vörðuheiði
BANASLYS varð á Holtavörðu-
heiði 30. desember. Fólksbif-
reið á norðurleið og pallbifreið
á suðurleið rákust saman og
lést ung kona sem var farþegi
í fólksbifreiðinni.
Konan sem beið bana hét Ema
Guðlaug Ólafsdóttir, til heimilis
að Langholtsvegi 100 í Reykjavík.
Hún var 33 ára gömul og lætur
eftir sig eiginmann og tvö böm.
Aðrir sem í bílunum vom hlutu
ekki teljandi meiðsli.