Morgunblaðið - 03.01.1988, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.01.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988 13 Laxness o g bók- menntafræðin Békmenntir Guðmundur Heiðar Frímannsson Arni Signrjónsson: Laxness og þjóðlifið II, Frá Ylfingabúð til Urðarsels, Vaka-Helgafell, 1987, 211 bls. Það eru ein örlög skálda, sérstak- lega stórskálda, að verða viðfangs- efni bókmenntafræðinga. Þegar bókmenntafræði tekst bezt, verður hún ekki síðri afurð mannlegrar hugsunar en skáldverk. Sambandið á milli skáldverka og fræðanna um þau er ekki einfalt, en þó hlýtur bókmenntafræði ævinlega að vera túlkun á skáidskapnum, skilningur og skýring á honum. Halldór Lax- ness hefur af skiljanlegum ástæðum orðið viðfangsefni bókmenntafræð- inga. Þar ber mest á verki Peter Hallbergs. Einnig ber að nefna verk Eiríks Jónssonar um íslandsklukk- una. Nú á síðustu árum hafa íslenzkir bókmenntafræðingar tekið til við að skoða og skýra ýmsa þætti í höfundarverki Laxness, sem minni athygli hafði verið veitt, svo sem ntgerðum og stjómmálaskrif- um. Ámi Siguijónsson hefur nú gefið út annað bindi af rannsóknum sínum á hugmyndafræðilegum þáttum skáldverka Halldórs Lax- ness. í þessu bindi skoðar hann Vefar- ann mikla frá Kasmir, Sölku Völku og Sjálfstætt fólk. Lang- viðamesti kaflinn er um Sjálfstætt fólk. Fyrir aftan meginmálið er ritaskrá verka Halldórs Laxness frá 1916—1939. Þó ekki væri fyrir neitt annað en þessa ritaskrá, væri fengur að þessari bók, því hún ger- ir áhugamönnum um Nóbelsskáidið auðveldara að skoða ítarlega ýmsa þætti í ritstörfum þess án þess að það kosti tímafreka leit. auk þess er örstutt lýsing á efni hverrar greinar, sem bætir þessa skrá veru- lega. Þetta bindi tengist ýmsu þvi, sem kom fram í fyrsta bindinu, en er þó óháð því. Aðferðin, sem Ámi beitir, er að leita að ýmsum megin- hugmyndum skáldverkanna og formlegum eigindum þeirra og tengja þau þjóðfélagshræringum á ritunarárum verkanna í nánustu fortíð og þorskasögu Halldórs. Einnig beitir hann formlegum tækj- um bókmenntafræðinnar til að greina ýmis sameiginleg einkenni skáldverka Halldórs. Þetta verður sérstaklega áberandi undir lok bók- arinnar. Eg skal alveg játa, að þessi formgerðargreining fínnst mér lang sízti hlutinn í þessu verki, því ég get ekki séð, að hún leiði til neinn- ar sérstaklega marktækrar niður- stöðu um eðli skáldverkanna. En hún gæti hugsanlega stundum verið gagnlegt hjálpartæki við. að skrá- setja ýmis megineinkenni. Mér virðist vera tvenns konar vandi, sem þarf að átta sig á við rannsóknir á borð við þessa. I fyrsta lagi þá greinir Árni oft og iðulega ekki á milli sinna eigin sjónarmiða og þeirra, sem Halldór hefur haft. Þetta getur stundum verið baga- legt. Ég skal' nefna lítið dæmi. Á bls. 73 segir: „Lenin glöggvaði sig manna mest á vanda landbúnaðar- ins, enda reyndu byltingarmenn ákaft að höfða til bænda. Lenin taldi smábændum lítinn akk í sam- vinnufélögum." Nú virðist það alveg ljóst að kynni Halldórs af kenning- um Lenins um landbúnað voru mikilvægur þáttur í að móta þær samfélágshugmyndir, sem finna má í Sjálfstæðu fólki, og einnig til að byggja skáldverkið, sem hann hafði glímt við lengi. Það er því sjálfsagður hluti af greinargerð fyr- ir hugmyndafræði verksins. En ofangreindar setningar má líka skilja þannig, að Lenin hafi verið manna bezt að sér um landbúnað (í hvaða landi?) og um leið gefið í skyn að taka beri mark á greiningu hans á vanda landbúnaðarins. En til að gera það þarf önnur rök en þau, að hugmyndir hans hafi nýzt Halldóri Laxness við skáldskapar- iðkanir sínar, þótt það sé í sjálfu sér markverð staðreynd. Þessi greinarmunur skiptir því máli, að hugmyndir Lenins um landbúnað gætu verið hreinn heilaspuni en gætu um leið verið mikllvægur lyk- ill að ákveðnum þáttum í verkum Laxness. Það getur verið mjög upp- lýsandi að átta sig á því, hvort þessar hugmyndir eigi við rök að styðjast. Mikilvægara dæmi en þetta af Lenin er af greiningu Áma á dyggðahugtakinu og hetjuhug- myndinni (bls. 97 og áfram). Eg Arni Sigurjónsson held, að það hefði skýrt ýmislegt, ef Ámi hefði gert skipulega grein fyrir dyggðum og löstum og hvem- ig hetjuskapur getur tengzt þeim, í stað þess að greina einungis þijár tegundir af hetjum. Það hefði kannski skýrt, hvemig má líta á Halldór Laxness Bjart í Sumarhúsum sem hetju þrátt fyrir allt. Önnur takmörkun þessarar að- ferðar er, að hún varpar ekki neinu ljósi á skáldskapargildi. Það er fróð- legt að átta sig á aðföngum mikils skáldskapar og hvemig höfundur vinnur úr þeim, en slík aðferð lætur óhreyft það, sem er þó mikilvæg- ast: gildi verksins. En það verður að segja unTkaflann um Sjálfstætt fólk, að hann hefur sig upp yfir takmarkanir aðferðarinnar og varp- ar ljósi á margræðni þess verks, hve ótrúlega margslungið það er. Það er til dæmis mjög lofsvert, að hann lætur þá staðreynd, að verkið er öðmm þræði framlag í þjóðfé- lagsumræðu fjórða áratugarins ekki byrgja sér sýn á aðra þætti verksins, sem hafa tryggt því langlífi. Það mætti tína til ýmislegt fleira í þessari bók, sem fróðlegt er að ræða frekar, en engin ástæða er að gera það hér. Stundum er tekið ankannalega til orða: „Bogesen heyrir áfram til hástéttinni þótt hann hverfi utan og Sigurlína er lágstéttarkona þótt hún bíði bana,“ (bls. 50). Á bls. 91 er vitnað í Bjama Benediktsson og á bls. 112 í Benedikt Gröndal en hvomgur er í heimildaskrá. Prentvillur vom fá- ar. Greiðslur almennings fyrír læknishjálp og Ivf (skv. reglugerð útg. 9. desember 1987) 1. Greiðslur hjá heimilislækni og heilsugæslulækni 150 kr. — Fyrir viðtal á stofu læknis. Innifalin er ritun lyfseðils. 280 kr. — Fyrir vitjun læknis til sjúklings. Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling um viðbótargjald, nema vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér. 2- Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp, rannsóknir og röntgengreiningu 500 kr. — Fyrir hverja komu til sérfræðings. 170 kr. — Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrstu 12 skiptin hjá sérfræðingi á hverju almanaksári, síðan ekkert. (Sjá nánar hér að neðan). Aldrei má krefja sjúkling um nema eina greiðslu fyrir hverja komu ásamt rannsókn/röntgengreiningu í framhaldi af henni. Til nánari skýringar er eftirfarandi tafía: Greiðslur almennings fyrir sérfræðilæknishjálp, nokkur dæmi. skýnngar Tafianlesistfravinstri til hægri og sýnir samskipti við a.m.k. tvo lækna. Dæmi 4: Sjukl- ingur leitar til heimilislæknis og greiðir þar 150 kr. Heimilislæknir vísar síðan sjúklingi til sérfræð- ings, og þar greiðir sjúklingur500 kr. Þessi sérfræðingur sendir sjúkling í röntgengreiningu, og þarf sjúklingur ekki að greiða sér- staklega fyrir hana, þar sem hún er í beinu framhaldi af komu til sérfræðings. Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling um viðbóta’rgjald, nema vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér. Allir eiga að fá kvittanir fyrir greiðslum sínum hjá sérfræðingum. TAFLA Heimilis- læknir Sérfræð- ingur RannsJ Röntg.gr. Sérfræð- ingur Aðgerð hjá _j_ Svæfingideyfing sérfræðingi hjá sérfræðingi Dæmi 1 150 500 Dæmi 2 150 350 Dæmi 3 150 500 500 Ðæmi 4 150 500 0 Dæmi 5 150 500 0 500 Dæmi 6 150 500 0 500 0 500 Elli- og örorkulífeyrisþegar, sem leggja fram hjá sjúkrasamlagi sínu kvittun fyrir 12 greiðslum á sérfræði- læknishjálp á sama ári, fá skírteini, sem veitir jjeim rétt á þessari þjónustu ókeypis það sem eftir er ársins. 3. Greiðslur fyrir lyf 400 kr. — Fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi. 130 kr. — Elli- og örorkuhfeynsþegar, fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi. Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfjaskammt, eða brot úr honum. Gegn framvfsun sérstaks lyfjaskfrteinis f lyfjabúð fást ákveðin lyf, við tilteknum langvarandi sjúkdómum,ókeypis. Læknar gefa vottorð til sjúkrasamlags í þeim tilvikum, sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi. Greiðslur þessar gilda frá og með 1. jan. 1988. TRY GGINGASTOFNUN RÍKISINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.