Morgunblaðið - 03.01.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.01.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988 27 Morgunblaðið/Bjami Hluti af starfsfólki OLÍS á Laugamesstöðinni i Reykjavík. Morgunblaðið/Bjami. Starfsfólk OLÍS á skrifstofum fyrirtækisins i HafnarstrætL Jón Atli Kristjánsson forstjóri er lengst til vinstri. verslun íslands lét byggja á Seyðis- firði og er í eigu félagsins þótt öll stóru olíufélögin þrjú hafi síðan notað hann til mikils spamaðar í strandflutningum. Það var síðan 1974 sem Olíu- verslun íslands hf. keypti eignar- hluta BP í hlutafélaginu BP á íslandi og eftir það á BP engar eign- ir á íslandi og Olíuverslun íslands hf. verður alíslenskt fyrirtæki sem á sjálft allar eignir sem rekstur þess byggist á. Þá hverfur BP- merkið kunna af öllum bensínstöðv- um og öðmm eignum tengdum starfseminni og íslenska vörumerk- ið OLÍS tekur við. Síðan eru liðin 14 ár. Blikandi bensíntunna Það er ugglaust sjaldgæft að ok'ufélag komist inn í ljóðagerð höf- uðskálda á eins eftirminnilegan hátt og BP í ljóði Steins Steinars um Kommúnistaflokk íslands, In memoriam. En það var að sjálf- sögðu áður en Olíuverslun íslands varð alíslenskt fyrirtæki. Steinn Stemarr segir: Sic transit gioria mundi, mætti segja, svo mjög er breytt frá því sem áður var. Og einu sinni var hér frægur flokkur, sem fólksins merki hreint og tigið bar. Svo hættulegt var ekkert auð né valdi og yfirdrottnan sérhvers glæframanns. Svo dó hann hljóðalaust og allt í einu, og enginn vissi banameinið hans. En minning hans mun lifa ár og aldir, þótt allt hans starf sé lðngu fyrir bí. A gröf hins látna blikar bensíntunna frá British Petroleum Company. Rúmlega öld síðan olían kom til Rúmlega öld er nú liðin síðan vinnsla á jarðolíu hófst, en venju- lega er. talið að vinnsla og sala á jarðolíu hafi byijað í Bandaríkjun- um árið 1859 í kjölfar þess að tókst að þróa tækni til borunar eftir olíu í jörðu. Hérlendis var olía fyrst notuð nær eingöngu til ljósa, en upp úr aldamótunum með tilkomu fyrstu dieselvélanna í litla báta jókst innflutningur í samræmi við þá þró- un. Gömlu togaramir sem voru hins vegar keyptir til landsins fyrir fyrri heimsstyijöldina voru kolakyntir með gufuvélar. Eftir fyrri heims- styijöldina hófst síðan notkun bfla og innflutningur bensíns. Arið 1915 skipaði Alþingi nefnd til þess að annast innflutning til landsins og upp úr því þróaðist Landsverslunin sem var gerð að sjálfstæðu fyrir- tæki í árslok 1917. Landstjómin skipaði þijá kaupsýslumenn sem forstjóra fyrir Landsverslunina, þá Agúst Flygenring í Hafnarfirði, Hallgrím Kristinsson framkvæmda- stjóra Sambands íslenskra sam- vinnufélaga og Magnús Kristjáns- son kaupmann á Akureyri, en skrifstofustjóri Landsverslunarinn- ar var ráðinn Héðinn Valdimarsson cand. polit. Landsverslunin varð brátt eitt öflugasta verslunarfyrir- tæki landsins, en aðalviðfangsefnið var að tryggja nægilega aðdrætti á nauðsynjavörum til landsins á hóf- legu verði fyrir landsmenn. Þegar Alþingi ákvað síðan að leggja niður Landsverslunina í árslok 1927 kom stoóiun OHuverslunar íslands hf. til í beinu framhaldi af Landsversl- uninni. Héðinn Valdimarsson skrif- stofustjóri Landsverslunarinnar hafði stofnað til viðskiptasambanda við BP í London og þegar ákveðið var að leggja Landsverslunina niður varð það að samkomulagi milli BP og Héðins að stofna íslenskt dreif- ingarfélag sem skyldi sjá um dreifingu á vörum BP á IslandL Síðan hafa forstjórar Oh'uverslunar Islands hf. verið þeir Héðinn Valdi- marsson, Hreinn Pálsson, Önundur Ásgeirsson, Þórður Ásgeirsson, Óli Kristján Sigurðsson og nýlega tók Jón Átli Kristjánsson við starfi for- stjóra OLÍS. Ævistarf hjá olíufélagi í gegn um tíðina hefur Olíuversl- un Islands hf. ávallt haldist vel á starfsmönnum og nýlega eru hættir vegna aldurs menn sem unnu hjá Olíuversluninni frá stofnun og fram á síðustu ár. í samtali við einn hinna gömlu grónu starfsmanna, Aðal- stein Guðmundsson, kom fram að það má muna tímana tvenna í sögu aðstöðu og þróunar í olíuviðskiptum á landinu. Áðalsteinn vann á sínum tíma hjá Landsversluninni ásamt félaga sínum Þorkeli Gislasyni, Kela, sem siðar vann alla sína starf- sævi hjá Olíuverslun Ísland6 ásamt Aðalsteini, en þeir Aðalsteinn og Þorkell voru einu fastráðnu verka- mennimir hjá Landsversluninni þar til hún var lögð af. „Landsverslunin," sagði Aðal- steinn, „fékk til umráða stóra lóð suður á Meium eins og það var þá kallað og lét byggja þar stórt og mikið port, sem gekk undir nafninu „olíuportið" og stóð austanvert við Suðurgötuna, beint á móti gömlu SJÁ BLS. 81.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.