Morgunblaðið - 03.01.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
43
Samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu aðfaranótt gamlársdags:
Tollar og vörugjald að lögum
Söluskatti frest-
að til mánudags
FRUMVÖRPIN um tolla og vöru-
gjald urðu að lögum um tvöleytið
aðfaranótt gamlársdags. Um
hálfeittleytið náðist samkomulag
milli stjómar og sljórnarand-
stöðu um afgreiðslu mála en þá
höfðu umræður staðið með hlé-
um frá því ellefu um morguninn.
í samkomulaginu fólst að þriðju
umræðu um söluskattsfrumvarp-
ið var frestað til mánudags en
hinum frumvörpunum tveim
spyrat í gegn á methraða. Því
varð að ræsa út þingmenn efri
deUdar þar sem breytingar höfðu
verið gerðar á frumvörpunum í
neðri deild og þurfti því sú efri
að taka þau tU einnar umræðu.
Alþingi samþykkti einnig þennan
dag frumvarp til breytinga á lög-
um um sölu á búvörum og tUlögu
til þingsályktunar um loðnuveið-
ar Norðmanna.
Á miðnætti var gert stutt hlé á
umræðum, svo menn gætu ráðið
ráðum sínum. Frám að því voru það
einkum þingmenn stjómarandstöð-
unnar, sem kvöddu sér hljóðs.
Töluðu þeir flestir lengi og fóm
vítt yfir í málflutningi sínum. Allir
urðu þeir til þess að gagnrýna
vinnubrögð stjómarliða og ummæli
þeirra um að stjómarandstaðan
héldi uppi málþófí. Töldu stjómar-
andstæðingar að mál hefðu fengið
alltof litla umfjöllun í nefndum og
væru hroðvirknislega afgreidd.
Albert Guðmundsson (B/Rv)
og Kristín Halldórsdóttir (Kv/
Rn) sögðust ekki skilja orð stjómar-
liða um að stjómarandstaðan hefði
hafnað samkomulagi um afgreiðslu
mála; ekkert slíkt tilboð hefði borist.
Stefán Valgeirsson (SJF/Ne)
talaði á aðra klukkustund og las
meðal annars í tuttugu mínútur upp
úr gömlum bréfum. Stefán hótaði
að lesa upp úr þingskjölum síðar
um nóttina til þess að mótmæla
söluskatti á matvæli. Er líða tók á
ræðu hans, var orðið allfámennt í
þingsölum og hótaði Stefán þá að
tala klukkustundum saman í síðari
umferð umræðna um nóttina, ef
þingmenn létu ekki svo lítið að
hlýða á mál hans.
Fundur í sameinuðu þingi. ólafur K- Ml«nÚ830n
Alþingi kemur aftur saman é.janúar
Síðasta þingfundi ársins 1987 lauk rúmlega tvö varpið var frestað. Alþingi kemur aftur saman
aðfaranótt gamlársdags. Þá höfðu frumvörp mánudaginn 4. janúar n.k. og verður þá vænt-
rikisstjórnarinnar um vörugjald og tolla orðið anlega þriðja umræða um söluskattsfrum-
að lögum en þriðju umræðu um söluskattsfrum- varpið á dagskrá ásamt kvótafrumvarpinu.
Eyjólfur Konráð Jónsson
Eyjólfur
Konráð gegn
vörugjalds-
frumvarpinu
EYJÓLFUR Konráð Jónsson (S/
Rvk) greiddi atkvæði gegn
frumvarpi ríkisstjórnarinnar um
vörugjald þegar það kom tíl efri
deildar á ný aðfaranótt gamlárs-
dags. Við atkvæðagreiðsluna
flutti hann eftirfarandi yfirlýs-
ingu:
„Við afgreiðslu skattamálafrum-
varpa ríkisstjórnarinnar hér í
deildinni lét ég í ljós andstöðu mína
við ofsköttunar- og ofstjómarstefnu
með því að greiða atkvæði gegn
frumvarpi því um vörugjald sem
nú kemur til þessarar háttvirtu
deildar á ný.
Síðan hefur enn verið bætt við
margháttuðum sköttum og er því
enn frekari ástæða til að greiða
atkvæði gegn frumvarpinu en áður
og verslun með hækkun skatta á
varaliti, gegn nokkurri niður-
greiðslu á soðningu, breytir það
engu um. Því segi ég nei.“
Kennsla hefst fimmtudaginn 7. janúar.
Fjölbreytt og skemmtilegt kerfi fyrir alla aldurshópa.
Framhaldsnemendur mæta á sömu tímum og áður.
Innritun og upplýsingar í síma 38360 mánud. 4.
jan. og þriðjud. 5. jan. kl. 15-19.
Afhending og endurnýjun skírteina miðvikudaginn
6. janúar kl. 16-19.
BALLETTSKOU
& AL
^Ballettskóli ^
Eddu ""
Scheving
Skúlatúni 4
Meðlimur I Félagi Islenskra listdansara og Danskennarasambandi Islands
POTT-
ÞETTAR
PERUR
AGOÐU
VERÐI
Allar RING bílaperur
bera merkið ©
sem þýdir að þær
uppfylla ýtrustu
gæðakröfur E.B.E.
RING bilaperurnar
fást á bensínstöðvum
Skeljungs
i