Morgunblaðið - 03.01.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
19
Short, Ryan og Quaid í Undraferðinni.
Innantökur og utanfár
Bíóhöllin:
Undraferðin — Innerspace
★ ★
Leikstjóri: Joe Dante
Framleiðandi: Steven Spielberg
Handrit: Jeffrey Boam og Chip
Proser
Kvikmyndatökustjóri: Andrew
Lazlo
Tónlist: Jerry Goldsmith
Aðalleikendur: Dennis Quaid,
Martin Short, Meg Ryan, Kevin
McCarthy, Fiona Lewis, Vern-
on Wells, Robert Picardo
Bandarísk. Warner Bros 1987.
120 mín.
Nýjasta afkvæmi þeirra ágæt-
ismanna sem stóðu að baki
Gremlins er hressileg blanda af
v-s-kvikmynd og gamanmynd.
Quaid leikur foringja í hernum
sem á að minnka niður í frumeind-
arstærð og senda í rannsóknar-
leiðangur inní líkama kanínu.
Ekkert fyndið við það, svo hand-
ritshöfundar senda kappann inní
rasskinnina á manni, sem þyrfti
heldur ekki að vera tiltakanlega
sniðugt ef hann væri ekki sívæl-
andi móðursjúk búðarloka — og
leikinn af ótrúlegri innlifun af
Martin Short! Ekki nóg með það
að ræfilstuskan er ekki lengur
maður einsamall, þá sækir nú að
honum spæjaralýður sem svífst
einskis við að kanna á honum
innyflin. Svo blókin verður að
gerast ofurhugi í ofanálag!
Hér er grínið í hávegum haft
og flest gengur upp, enda fram-
leitt í farsælustu afþreyingar-
myndasmiðju okkar tíma — undir
handleiðslu Spielbergs og Industr-
ial Light and Magic meistara
- Lucasar. Short stelur myndinni
með óviðjafnanlegum ærslaleik,
maður hefur ekki heyrt annan
eins hlátur lengi og undir atriðinu
þegar hann er að hrista af sér
kúrekasmettið, svo eitt dæmi sé
nefnt. Quaid stendur fyrir sínu,
enda orðinn með síðustu myndUm
sínum ein stærsta stjaman vestra,
en það er Short sem fær fyndnu
línumar og kann að gera úr þeim
veislu fyrir hláturtaugamar.
Þó svo að vísindaskáldsagan sé
hér fyrst og fremst rammi utanum
galsaganginn, má ekki ganga
framhjá því að tæknivinna, bún-
ingar og 'leiktjöld era einkar
glæsileg og trúverðug, enda hönn-
uð í galdrasmiðjunni. Tónlist
Goldsmiths er vönduð og áheyri-
leg að venju og yfir höfuð er
Undraferðin ánægjuleg og eld-
hress skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna. Og ekki hvað sist til
athugunar fyrir þá sem þessa
dagana ná ekki uppí nefíð á sér
sökum ótæpilegs fjárausturs!
Vettlingatök
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn:
Að tjaldabaki — The Fourth
Protocol ★ ★
Leikstjóri: John MacKenzie
Handrit: Frederic Forsyth,
byggt á eigin skáldsögu
Kvikmyndataka: Phil Meheux
Aðalleikendur: Michael Caine,
Pierce Brosnan, Ned Beatty,
Julian Glover, Michael Gough,
Ray McAnnaly, Ian Richard-
son, Joanna Cassidy
Bresk. Rank Fil Distributors
1987. 120 mín.
Engu er líkara en Bretum sé
það ofraun að gera viðamikla,
stórbrotna þrillera, þvilíkir snill-
ingar sem þeir geta verið þegar
um smærri myndir einsog t.d.
Mona Lisu, eða þá eina af fyrri
myndum leikstjórans The Long,
Good Friday, er að ræða. Hér
er úrvalsefni til staðar. Valin-
kunnur reyfari sem seldist einsog
heitar lummur um heim allan til
grandvallar; leikstjóri sem gert
hefur athyglisverðar spennu-
myndir; sjálfur Michael Caine í
aðalhlutverki og hópur góð-
kunnra í öllum þeim smærri, (að
auki var Caine einn af framleið-
endum myndarinnar og hefði því
ekki síður átt að bera veg henn-
ar og vanda fyrir brjósti);
stemmningstónskáldið góð-
kunna, Schifrin, fengið síðan til
að blása í myndina lífí með tón-
um. En, frómt frá sagt er myndin
Að tjaldabaki meðalmennskan
Caine og félagar eru fjarri sínu
besta í myndinni Að tjaldabaki.
uppmáluð frá upphafi til enda.
Allt rennur hjá gjörsamlega
átakalaust. Þrátt fyrir alla þá
hæfíleika sem eru að baki mynd-
arinnar koma þeir hvergi fram á
tjaldinu, einna skástur er þó
Brosnan. Ef maður fer á gaman-
mynd vill maður fá að hlæja og
skemmta sér, sömuleiðis reiknar
maður með spennu og átökum í
njósnamynd, en þeim er ekki
fyrir að fara í Að tjaldabaki.
Allt er dálaglega gert, en á gam-
alkunnu, sannbresku drolli.
Kr.
1.450.000
000.00 -
j rrii
• cíjtnW11
tímabli
-' göoaN
METBÓK
18 MÁNAÐA
SPARIBÓK
o
§
<
E
E
o
o