Morgunblaðið - 03.01.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.01.1988, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988 Eitt á ég samt... Aramótaávarp frú Vigdísar Finnbogadóttur, forseta Islands Góðir landsmenn allir, gleði- legt nýtt ár. Eitt eftirminnilegasta ára- mótakvæði sem ort hefur verið á íslenska tungu er eftir Jónas Hallgrímsson. Það hefst á þess- um hendingum. Svo rís um aldir árið hvert um sig eilífðar lítið blóm í skini hreinu. Mér er það svo sem ekki neitt í neinu því tíminn vill ei tengja sig við mig. Þegar þetta var ort var árið 1845 að hefjast, hið síðasta sem skáldið lifði. Lítt hefur hann órað fyrir því eða þorað að treysta því að tíminn myndi einmitt tengjast svo við hann í sögu og skáldskap okkar íslendinga sem raun ber vitni. Margt má lesa í þessu kvæði um hugarstríð og erfið- leika, sem steðrja að Jónasi sjálf- um — en eins og oft hendir þegar ljóð mikilla skálda vitja okkar gerist það um leið að við þekkjum okkur sjálf í kvæðum þeirra. Því hver er sá, að hann hafí ekki einhveiju sinni haft kynni af dá- semdum lífsins, af eilífðar litlu blómi í skini hreinu, sem fínna má í einhverri mynd á hverri stundu, hveiju ári; — og hver er sá að hónum hafí ekki fundist hann vera útlægur gerður frá öllum fögnuði og fær þá ekki skilið að hann geti nokkru sinni orðið glaður á ný? Djúp sorg vitj- ar svo ótal margra á hveiju ári sem líður, sorg sem tíminn getur aldrei læknað til fulls en þó mild- að með þeim þroska sem árin færa okkur. „Tíminn vili ei tengja sig við mig,“ segir skáldið. Og hvað verður þá næst fyrir? Að leggja árar í bát? Síst væri það í anda þeirra Fjölnismanna, sem vildu lyfta landi sínu og þjóð til vegs og vissu þó af raunsæi að þeir myndu aldrei lifa þá tíma, sem við njótum nú og hættir stundum til að gleyma hve góðir eru. Skáldið kveður áfram: Eitt á ég samt og annast vil ég þig hugur míns sjálfs í hjarta þoli vörðu, er himin sér og unir lágri jörðu Þessar fáu línur hafa furðu- Iega margt að geyma. Ekki er Jónas að leita að smugu, sem nefna mætti ódýra bjartsýni af því tagi sem eitt samtímaskáld okkar kallar „óvana og veiklun", bjartsýni sem nú á tímum sé bókstaflega „framleidd eins og hver annar iðnvamingur“. Jónas skáld Hallgrímsson ieitar að því sem einstaklingi má verða til styrktar og vegna þess að hann er maður sem getur mælt fyrir hug og sál síns fólks gat þjóðin og getur enn tekið göfug orð hans til sín. Það breytir engu um að nútímaskáldið okkar góða, Sigfús Daðason, stjakar með skáldmyndum sínum við þjóð sinni og vekur til umhugsunar, — rétt eins og Jónas forðum. „Eitt á ég samt“: Það er hug- ur míns sjálfs — sem geymir minningar okkar, sögu okkar hvers og eins og þá sögu sem við öll eigum saman. Hugur sem óttast ekki „þokuna", óreiðu augnabliksins, myrkrið eða örð- ugleika, heldur getur horfst í augu við veröldina eins og hún er — og „unir lágri jörðu“. Um leið og þessi sami hugur sér him- ininn — með öðrum orðum gleymir ekki vonum um betra líf og rismeira, eins þótt slíkt líf kunni að sýnast langt undan eins og hlaut að virðast á fyrsta degi ársins 1845. Það tók heila öld að gera draum þeirra Jónasar og félaga hans að veruleika, draum- inn um frelsi íslands og sjálf- stæði. Síðan sá draumur rættist er líf íslenskrar þjóðar orðið ris- mikið, — og eftir að hafa náð þeirri reisn sem við búum við megum við enga stund láta það henda okkur að undan sígi. Enda þótt veröldin og ísland séu önnur nú en þegar þetta kvæði Jónasar Hallgrímssonar var ort fyrir tæpum 150 árum, og lífsvandi þjóðarinnar var ör- birgð, einangrun, óblíð náttúra og skortur á sjálfstrausti við yfírráð annarrar þjóðar, eigum við auðvelt með að byggja í hug- anum brú til kvæðis Jónasar og hans tíma. Og hvað sem líður velmegun síðari áratuga getur mönnum einatt sortnað fyrir aug- um — þó nú væri. Einn sér menningarslys uggvænleg yfír- vofapdi, annar telur jafnvel sjálfa tungu þjóðarinnar í hættu, hinn þriðji sér í amstri samtíðarinnar innantóma neyslufrekju, eftir- sókn eftir vindi, hinn Qórða hryllir við viðsjám í heiminum og geigvænlegu vígbúnaðarkapp- hlaupi. Engu af þessu verður vísað frá með iéttúð. En þó við vitum vel af mörgum vanda get- um við verið bjartsýn án þess að við séum að gefa okkur á vald sjálfsblekkingu og ábyrgðarleysi, því bjartsýni er svo margt. Hún er vilji til að fínna það sem hjálp- ar manneskjunni af stað, nauð- syniegur orkugjafí. Hún er að því leyti raunsæ, að með því að rilja upp drauma og vonir for- feðra okkar sjáum við að draumar geta ræst — eins þótt fáir draumar rætist til fulls. Bjartsýni getur líka verið virðing- arvottur við þá sem á undan gengu og höfðu þrek til þess, hve grimmt sem í móti blés, að „lyfta Sögunni á veikbyggðar herðar sínar" eins og segir í þeirri nýút- komnu ljóðabók sem áður er vitnað til. „Eitt á ég samt“, kvað Jónas. Við eigum vitanlega mjög margt íslendingar — éf við kunnum með að fara, ef við ekki töpum áttum í ofsahraða og villuljósum mikilla breytingatíma. Við eigum okkur meðal annars orðstír. Ótal sinn- um hef ég orðið þess vör á ferðum mínum erlendis, að útlendir menn undrast þetta samfélag okkar. Menn skilja ekki hvemig 240 þúsund sálir fara að því að lifa sem sjálfstætt fólk í harðbýlu landi eins og þær væru a.m.k. tvær milljónir með álíka margar vinnuhendur og smærri stórborg þarf til að geta rekið sjálfa sig. En í þessu felst einmitt reisn okkar. Við eigum svo gott fólk á svo mörgum sviðum, að við get- um látið rödd okkar heyrast og það er tekið mark á henni og virðing fyrir henni borin. T.d. em íslendingar þekktir af því í er- Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands. lendum lánastofnunum að borga mjög skilvíslega skuldir sínar, enda þótt þær séu okkur ekki síður þungur baggi en öðrum sem ekki fer af sama orðspor og búa þó ekki fremur við sára fátækt en við. Virðing er borin fyrir sjálf- stæði okkar, sérstæðri tungu og menningararfleifð. Og einmitt fyrir það að við eigum þessa rödd á þingi þjóðanna er mikilvægt, að hún missi ekki hljóm sinn, verði ekki rám. Því er okkur nauðsyn að eignast áfram í hverri kynslóð sem flesta menn sem standa sig, sem vinna vel og af alúð það sem þeim er trúað fyrir og þeir starfa við. Að við höldum áfram að vera menningarþjóð í þeim skilningi að „menning er að gera hlutina vel“, eins og einn af heimspekingum okkar hefur komist að orði á svo lýsandi hátt. Að við, hver á sínu sviði, gerum svo til sóma sé það sem við höfum tekið að okkur, hvort sem er að flaka físk, skrifa bók, baka brauð eða teikna hús ... En hvað sem við störfum og hvert sem við leitum megum við aldrei gleyma því að íslensk tunga er ein besta sameign okk- ar, ef til viil það fyrsta sem okkur verður hugsað til, hvenær sem við stöndum sem þjóð í tvísýnu, á krossgötum, á tímamótum og segjum eins og okkur til styrktar eins og skáldið: „Eitt á ég samt“... Við leiðum oft hugann að því hvar íslensk tunga er nú á vegi stödd. Víst látum við mörg fara fyrir brjóstið á okkur slettur úr stórþjóðatungunni sem mest heyrist nú víða á byggðu bóli og ganga yfír í misjafnlega stórum gusum. Svo virðist sem fáir reit- ir í landi okkar, fremur en annars staðar, séu lausir við það óþurft- ar tískufyrirbæri. Sú var tíðin að danska læddist hér á landi ískyggilega mikið inn í mál manna, sem vildu sýna á sér heimsborgarasnið og töldu það tungutak fínna en mál íslend- ingasagna. En sú mengun var bundin við nýbakaðan höfuðstað landsins sem þá var og þakklát megum við vera árvekni þeirra manna sem unnu að því að leggja þann ósið niður. Dönskuslettur hurfu og eru nú eins og þær hafí aldrei verið til svo vona má með góðum vilja að svo verði mikið hlegið að enskuslettum að það þyki ekki bógur í nokkrum manni sem hefur þær uppi. En til þess að svo geti orðið má ekk- ert til spara að búa nýyrðasmið- um okkar skilyrði til að sinna þjóðarmenningarstörfum sínum. — Hins vegar bakar það mörgum, sem íslenskri tungu unna, miklar áhyggjur að fólk hirðir ekki um að nota tunguna sem þá gullkistu sem hún er, kann ekki að nota rétt aldagömul orðatiltæki og málshætti og hefur einhvem veg- inn misst sjónar á sagnorðum í íslensku, sem eru einkenni og sjálfír ljósvitar málsins, svo gagnsæ og tær að hvert bam skilur þau. Öll tungumál eiga sín sérkenni og þykir hverri þjóð sem mælir á eigin tungu vænt um þessi sérkenni. Enskan hefur hafíð nafnorðin til vegs, franskan leikur sér að lýsingarorðum, íslenska og önnur germönsk mál styðja sig við sagnorðin. Galdur- inn við að þýða af einu tungumáli yfír á annað er að fella frásögn að lögmáli þeirrar tungu sem þýtt er á. Og einatt verður það ankannalegt og nokkuð auðmýkj- andi, þegar tungumál sem þýtt er á er knésett að því marki að það fer að lúta lögmálum annarr- ar tungu og er um leið svipt sérkennum sínum og ótal góðum orðum. Líklegt er að hér segi til sín m.a. áhrif þess, að gífurlega mikill hluti af lestrarefni þjóðar- innar er þessir stuttaralegu og einföldu sjónvarpstextar, þar sem allt er saxað niður í sextíu bók- stafa skammt, eða tvisvar sinnum þijátíu í tveim línum. Þótt mörgu sé ábótavant í þessu efni sýna ágætir menn góðan vilja og hafa uppi prýðileg áform um að efla málvöndun og auðga málnotkun. En betur má ef duga skal. Ef nýja sókn á að heQa þarf markvissa stefnu — flaggskip, með styrkri stjóm. Það er ekki hægt að ætlast til þess að fræðimenn í hámenntastofn- unum sem falið er að skilgreina tunguna vísindalega frá alda öðli og varðveita á bókum svo hún geti orðið þjóðinni aðgengileg hveija stund, hafí auk þess mátt til að beijast fyrir henni meðal almennings. Fjölmiðlar hafa tek- ið á sig mikla ábyrgð. Þeir hafa til þess vald að upphefja svo tungumálið að mönnum verði það til skammar að taia ekki kjam- yrta og rétta íslensku, — þetta mál sem við höfum varðveitt frá miðöldum og þykjum fyrir það sómarík þjóð. „Eitt á ég sarnt", kvað skáld- ið. Og ein er sú eign sem okkur hlýtur að vera hjartfólgnust. Það em bömin okkar, æskan, ungl- ingamir, þeir sem taka við minningum okkar og tungu og þeirri menningu að vel skuli til allra hluta vanda. Það er í þeim sem bjartsýni okkar fínnur sér réttlætingu. Og vegna þess að okkur þykir vænt um æskuna í landinu leggjum við kapp á að skila henni þeim arfí sem skilað var til okkar og við tókum við með þökkum. Ég kvíði þeim degi, ef hann á eftir að rísa yfír okk- ur, að bömin kunni ekki einu sinni vísuna um hann afa minn, sem fór á honum Rauð, eitthvað suður á bæi — sem er í senn lif- andi mynd af hagleik tungunnar og lífinu sem fólkið lifði með landinu. Við vitum öll, að ungu fólki er boðið upp á ótal margt sem kennt er við skemmtun og upp- lyftingu, og vissulega höfum við öll þörf fyrir að bregða á leik. En það er tálsýn og eftirsókn eftir vindi að halda að lífíð geti orðið eða eigi að vera einn dans á rósum, samfelld hlátrabuna. Við skulum ekki vera feimin við að biýna það fyrir æskunni, að námið og þekkingin er það sem mestu varðar — í góðu sambandi vitanlega við þá tillitssemi og þá góðvild sem aldrei má falla úr gildi. Þekkingin er stundum köll- uð góð fjárfesting og vafalaust er hún það. En hún er líka sú kjölfesta sem meðal annars gjör- ir leikinn, frístundina, skemmti- legri. Hún gefur líka ungu fólki þann innri styrk sem vinnur gegn lífsflótta og uppgjöf. Stundum þegar unglingum okkar verður fátt um svör grípa þeir til þess að afgreiða mál með orðinu: BARA! En það er ekkert bara í mannlífínu. Við eigum nóg af skoðunum, kannski 240 þús- und skoðanir og það er dásam- legt. En það dugir ekki „bara“ að hafa skoðun, hún er aðeins upphaf. Án þess að skoðun sé fylgt eftir verða ekki til áhugi, metnaður, vilji til að stefna að æðra marki. Ekkert er sjálfgefíð. Sjálfstæði íslands verður aldrei sjálfsagður hlutur, ekki heldur íslensk menning, ekki einu sinni gróður landsins. Allt er ræktun háð: — að ala upp nýja kynslóð er eins og að rækta tré. Maður annast það og styður til að teygja sig beint og greinaprútt til sólar. í þessum skilningi bíður okkar alltaf hlutverk hins óþekkta ræktunarmanns. Ekki vitum við hvað verður árið 2050. En við viljum að þá verði hugsað til okkar með virðingu eins og við hugsum til þeirra kynslóða með virðingu og þakklæti, sem tóku við erfíðri sögu, glórulausu basli og harðbýlu landi og bjuggu í haginn fyrir okkur. Látum bjart- sýni okkar tengjast við þennan vilja: að ekki verðum við talin ættlerar síðar meir — og svo við þá ræktun lands og lýðs, sem virðing fyrir öfum okkar og ömm- um og kærleikurinn til bama okkar býður okkur að stunda sem best og heiðarlegast. Gleðilegt nýtt ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.