Morgunblaðið - 03.01.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
Áramót víða um land:
Keflavík og Njarðvík:
Talsverð ölvun en
engin meiriháttar slys
Keflavík.
ARAMÓTIN fóru friðsamlega fram að mestu í Keflavík og Njarðvík.
Miklu af flugeldum var skotið upp um miðnættið og áramótabrenn-
ur voru á báðum stöðunum. Ölvun var talsverð og var mikill erill
hjá lögreglunni framundir morgunn þar sem drukkið fólk kom við
sögu. Engin meiriháttar slys urðu á fólki, en tveir voru fluttir i
Sjúkrahúsið i Keflavík eftir harðan árekstur í Keflavík á nýársnótt.
Þeir reyndust ekki alvarlega slasaðir og fengu að fara heim að
rannnsókn lokinni. Þá voru 3 ökumenn teknir grunaðir um meinta
ölvun við akstur.
Kveikt var í brennunum klukkan
átta og hafði brennan í Innri-
Njarðvík meira aðdráttarafl að
þessu sinni, enda átti fólk greiðari
leið að henni en brennunni í
Keflavík, sem var á Berginu. Veður
var gott og naut flugeldasýning
heimamanna um miðnætti sín ákaf-
lega vel. Oft hefur fleira fólk verið
við brennurnar en að þessu sinni
þrátt fyrir góða veðrið og trúlega
hafa menn tekið sjónvarpið fram-
yfir að þessu sinni.
Síðustu dagar ársins voru anna-
samir hjá lögreglunni, á gamlárs-
dag urðu 7 árekstrar í umferðinni
í Keflavík fyrir hádegi og var um-
ferðaþunginn með allra mesta móti.
Á milli jóla og nýárs ók ökumaður
sem var grunaður um ölvun við
akstur á tvo kyrrstæða bíla við
Hringbraut og síðan í gegnum
grindverk og inn í húsagarð. Ekki
urðu alvarleg meiðsli á ökumannin-
um í þessum darraðardansi, en hann
mun samt hafa hruflast nokkuð.
Skemmdarverk voru unnin á húsi
Þá var brotist inn hjá Björgunar-
sveitinni Stakki við Iðavelli aðfara-
nótt gamlársdags og þaðan stolið
einhveiju magni af flugeldum.
BB
Brennan í Innri-Njarðvík áður en kveikt var í henni, sama brennu-
stæðið hefur verið notað i mörg ár.
Akureyri:
Talsverð
ölvun en
óhappaiaust
ÁRAMÓTIN voru óhappalaus á
Akureyri, þrátt fyrir að talsverð
ölvun hafi verið bæði í heimahús-
um og á almannafæri, að sögn
lögreglu.
Átta manns fögnuðu nýju ári í
fangageymslum lögreglunnar á
Akureyri og víða kom til stympinga
og áfloga. Enginn ökumaður var
grunaður um ölvun á Akureyri um
áramótin.
Hestamenn notuðu
góða veðrið til útreiða
Morgunblaðið/Bjðm Blöndal
Margir hestamenn sem hafa tekið hesta sína á hús notuðu góða
veðrið á nýársdag til að liðka gæðinganna og það er orðið algeng-
ara að allir í fjölskyldunni taki þátt í hestamennskunni.
Keflavik.
HESTAMENNSKA hefur átt
auknum vinsældum að fagna í
Keflavík líkt og svo víða annars
staðar á landinu. Hestamenn
hafa komið sér upp hesthúsa-
hverfi þar sem aðstaða er ágæt,
bæði til beitar og útreiða. Ekki
voru mörg hús í hverfinu fyrir
nokkrum árum, en að undan-
förnu hefur þeim fjölgað mikið
og algengt er hjá yngra fóiki að
öii fjölskyldan njóti návistarinn-
ar við hrossin.
Síðustu dagana fyrir jól voru
hross tekin á hús af Mánagrund
sem er beitarland hestamannafé-
lagsins og er það nokkuð seinna
en á undanfömum áram og stafar
af hinni óvenjugóðu veðráttu sem
verið hefur í vetur.
Nokkur hundrað hross verða í
húsum hestamanna í Keflavík í vet-
ur og era margir þeirra þegar famir
að liðka gæðingana og þjálfa þá
fyrir komandi átök á hestamótum
í vor. BB
Sparisjóðsins í Garði, þar sem neon-
ljós vora brotin og var talið að þau
hefðu verið sprengd með púðri. Áuk
þess vora plöntur og gijót sem era
á lóð Sparisjóðsins rifíð upp og
dreift um ióðina.
*
Aramóta-
brennaá
Hveravöllum
„Það voru engin ólæti og eng-
inn lögguhasar hér um áramót-
in“ sagði Kristfn Þorfinnsdóttir
þegar Morgunblaðið innti hana
um áramótahald á Hveravöllum.
Kristín dvelst þar ein ásamt eig-
inmanni sfnum, Krisíni Pálssyni, en
15 manns dvöldu í húsi Ferðafélags-
ins á Hveravöllum um áramótin,
og héldu Ferðafélagsfólk og Hvera-
vallahjónin sameiginlegan áramóta-
fagnað úti á mel með lítilli brennu
og flugeidum. „Við áttum yndisleg
áramót hér saman, og allt fór mjög
vel fram þó að það væri 8 stiga
frost, 7 vindstig og skafrenningur"
sagði Kristín Þorfinnsdóttir, veður-
athuganamaður.
ísafjörður:
Róleg áramót hjá
púkum og fullorðmim
ísafirði.
ÁRAMÓTIN á ísafirði voru róleg
og að mestu áfallalaus fyrir íbú-
ana eftir því sem næst verður
komist. Tvær stórar brennur Iog-
uðu síðustu tíma ársins, og var
sú stærri í Oddahverfi, en hin,
lítið minni, við íþróttavöllinn.
Mikil keppni var síðustu daga árs-
ins milli bæjarpúkanna og fjarðarpú-
kanna um efni í bálkestina, og margir
bflfarmar af timbri og öðru brennan-
legu efni voru fluttir á kestina. í
fírðinum sungu púkamir við undirleik
harmonikku meðan feður þeirra
skvettu olíu á eldinn. Af og til gaus
upp mikill reykmökkur, og sam-
kvæmt gamaili hefð tala bæjarpúk-
amir um þjófamökkinn, en það á að
þýða að þeir sem stærstu brennuna
hafa hafí stolið meira efni en aðrir.
Allar heiðar í nágrenni bæjarins
vora opnar yfír áramótin og gat fólk
ferðast allt frá Þingeyri að Isafjarðar-
djúpi án vandræða. Grænlensku
rækjutogaramir sem hér voru jrfír
jólin fóru út á gamlársdag, svo eina
erlenda skipið sem hér var yfír ára-
mótin var þýskt strandflutningaskip
á vegum Eimskips, sem tafðist hér
vegna veðurs fyrir Homströndum.
Ekkert ísfírskt fískiskip var á sjó um
áramótin samkvæmt venju, en gert
var ráð fyrir að skuttogaramir færu
til veiða 2. janúar.
Dansleikur var í þremur húsum á
nýársnótt. Var fullt í einu þeirra, en
sáralítið var á hinum stöðunum. Ró-
leg áramót voru hjá þeim {flugtumin-
um á ísafírði. Ekkert sjúkraflug, en
tvær flugvélar frá Flugleiðum komu
á gamlársdag, og tókst þá að leysa
þau vandamál sem sköpuðust þegar
flug féll niður eftir jólin. Mjög rólegt
var á sjúkrahúsinu, og að sögn lækn-
is var minna að gera en um venjulega
helgi, og ekki komið með neinn vegna
brunasára eða annarra óhappa
tengdra áramótafögnuðinum.
Úlfar.
Selfoss:
Morgunblaðið/Ingvar
Slökkviliðsmenn ráðast til inngöngu í bústaðinn við Elliðavatnsblett.
Bnini á nýársnótt
SUMARBÚSTAÐUR við Elliða-
vatnsblett varð eldi að bráð
skönunu eftir miðnætti á nýár-
snótt. Auk hússins sjálfs stóð
útigeymsla á lóðinni í björtu báli
er slökkvilið kom á vettvang.
Talið er líklegt að um íkveikju
hafí verið að ræða. Slökkviliðið var
nær tvo tlma að ráða niðurlögum
eldsins en síðar kom upp eldur í
rústunum og var höfð vakt á brana-
stað. Húsið er talið ónýtt.
Slökkviliðið í Reykjavík fékk um
það bil 20 útköll á gamlárskvöld
og nýársnótt. Mest var um að ræða
sinubrana af völdum flugelda víðs
vegar um höfuðborgarsvæðið og
mun eignatjón hvergi hafa orðið
nema í þessu eina tilfelli.
Grímsey:
Slæmtveður, en
góð skemmtun
um áramótin
Grimsey.
ÁRAMÓTIN fóru vel fram f
Grímsey, þó að veðrið væri ekki
upp á sitt besta; kuldi og hrfðar-
hraglandi.
Áramótadansleikur var haldinn
samkvæmt venju, og skemmtu menn
sér þar hið besta fram á morgun.
Þar mættu allir Grímseyingar sem
ekki höfðu haldið til meginlandsins
yfír hátíðamar. Þeir eru líka til sem
halda til Grímseyjar í skammdeginu,
og hér dvaldist einn útlendingur,
Bandaríkjamaður, um áramótin. Stór
og mikfl áramótabrenna var haldin,
þar sem flugeldum sem Kiwanisklúb-
burinn selur var skotið á loft, og létu
bömin veðrið ekkert á sig fá, og
skemmtu sér hið besta.
í fyrrinótt snjóaði í Grímsey, en
um áramótin var fólksbflafært um
eyjuna endanna á milli. Bátamir era
tilbúnir til veiða, og ætla að róa um
leið og gefur. Alfreð.
Tvö óvenjuleg íþrótta
mót á gamlársdapf
ÁRAMÓTIN á Selfossi voru tíð-
indalftil og f litlu frábrugðin
venjulegri helgi hjá lögreglu-
mönnum á vakt. Veður var gott,
vfða voru áramótabrennur og
mikið um flugelda og Ijósadýrð
á miðnætti. Fijálsíþróttamenn og
golfmenn héldu óvenjuleg
fþróttamót á gamlársdag, í tilefni
dagsins og veðurblfðunnar.
Kylfingamir sem léku golf á
Svarfhólsvelli vora um 30 og hinir
hressustu. Þeir sögðu völlinn góðan
enda ekkert frost í jörð og brautim-
ar víðast með grænni slikju. Mótið
hófst á hádegi og stóð fram til
klukkan þrjú.
Fijálsíþróttafólk brá sér í
Tryggvaskála og hélt þar stökkmót
innanhúss. Keppt var í þrístökki og
langstökki án atrennu. Þrístökkvur-
um hefur lengi þótt gólfið í Skálan-
um freistandi að stökkva á og því
var slegið til. Mótið er markvert
að því leyti að í veitingasal Skálans
hafa ekki verið stundaðar íþróttir í
Qóra tugi ára en þar vora stundað-
ir fímleikar á áram áður. Vigdís
Guðjónsdóttir af Skeiðum setti ís-
landsmet í meyjaflokki, stökk 6,95
metra í þrístökki og Ölafur Guð-
mundsson setti héraðsmet í
drengjaflokki, stökk 9,54 metra í
sömu grein.
Nýtt ár heilsaði svo með norð-
austan kælu og rennifæri um allar
sveitir.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónason.
Nýkjörinn golfmaður ársins, Ingólfur Bárðarson, slær upphafshögg
af Svarfhóli á gamlársdag. Fyrir aftan hann eru kylfingamir Samú-
el Smári Hreggviðsson, Jón Bjarni Stefánsson og Guðmundur
Eiriksson.