Morgunblaðið - 03.01.1988, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
Leiklist
REIKULT RUGL
er til að ganga í augun á ein-
hveijum eða vinna sér hylli.
Sú árátta Bandaríkjamanna
að fá sér sálfræðing er mjög
fyrirferðarmikil í verkinu og
getur átt sinn þátt í að það er
ekki alls kostar sjálfgefíð að
áhorfandi nái gráa gamninu,
hvað þá heldur að það nísti hann.
Ég leyfi mér að halda að þýð-
andi hefði átt að velja þá leið
að staðfæra leikinn, fyrst talið
var nauðsynlegt að flytja hann
hingað. Ekki aðeins sálfræð-
ingagengið er eitt af aðalmálun-
um, almennt er leikurinn það
bandarískur og sýknt og heilagt
verið að vitna til staðbundinna
stjama/atburða, að verður bara
hvimleitt. Staðfærsla hefði
hjálpað að mínum dómi heldur
mögrum texta.
Onnur aðalpersónan er stúlk-
an Prudence sem hefur svarað
einkamálaauglýsingu og kemur
nú á stefnumótið við Bruce.
Hann er bíseksúal og býr með
Bob sem er mikið á móti kvenn-
astússi sambýlismannsins.
Pmdence telur sig eiga í erfið-
leikum í samskiptum við annað
fólk, hún er orðin örvæntinar-
full yfir því, hvað henni helst
illa á karlmönnum og það hefur
komið fyrir lítið að ræða þetta
við sálfræðinginn hennar dr.
Stuart. En Bruce hefur svo sál-
fræðinginn Charlotte Wallace og
hún hefur greinilega hvatt hann
til að opna sig og láta tilfínning-
ar sínar í ljósi með allkröftugum
árangri.
Gengur nú á ýmsu en ein-
hver tengsl takast með þeim
Bruce og Prudence og farið er
með Bob í afbrýðiskasti til
Charlotte sálfræðings og síðan
endar hópurinn á að fá sér að
borða og svo húkkar Bob þjóninn
Andrew- sem er líka í meðferð
hjá Charlotte og þeir fara með
sálfræðingunum á diskótek, en
Bruce og Prudence ætla að gifta
sig.
Guðrún Gísladóttir __ leikur
Prudence af stakri list. í með-
förum hennar öðlast Prudence-
ófullkomin um margt frá hendi
höfundar- býsna mikið líf og það
er einna helzt í henni, sem fá
má tilfínningu fyrir hinum
hversdagslega fáránleika. Val-
gerður Dan fer með hlutverk
sálfræðingsins Charlotte. Hún á
sjálf við vandamál að etja, sem
felst meðal annars í því að hún
ruglar saman/gleymir orðum og
segir því stundum eintóma dellu.
En veit að vísu af því sjálf og
ekki er það betra. Valgerður
hefur í nokkrum hlutverkum
sýnt, að hún hefur gamanleik á
valdi sínu. Það gerði hún og
hér. Að vísu var hún dálítið óör-
ugg í sinni fyrstu senu. En náði
sér á strik og var alveg ágæt,
yfírlék aldrei meira en við hæfí
var.
Harald G. Haraldsson var sál-
fræðingurinn Stuart, sem á við
kynlífsvanda að etja - sem hann
viðurkennir ekki. Harald á auð-
vitað að vera gróf og heldur
leiðinleg manngerð, eftir texta
að dæma, en þá er leikarans að
láta áhorfendur skynja fleiri og
viðfelldnari fleti í karaktemum.
Og það fannst mér ekki takast.
Kjartan Bjargmundsson fór með
hlutverk Bruce og gerði margt
gott, en það vantaði töluvert á
herzlumuninn. Jakob Einarsson
var homminn Bob og fékk ekki
ýkja mikil tækifæri né heldur
tókst honum að gera mikið úr
hlutverkinu og Þröstur Leo
Gunnarsson er Andrew þjónn,
líka hommi. Örlítið hlutverk.
Leikstjóri á að mörgu leyti
heiður skilinn. Það er enginn
hægðarleikur að gera stórsýn-
ingu úr svo rýrum efnivið. Það
er ekkert að því að sýna svartar
kómedíur, fjarri því. En þær
þurfa að hafa innihald, sem
kemur okkur við. Sjálfsagt er
að taka fram að undirtektir á
frumsýningu vom ágætar.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýndi í Iðnó:
Algjört rugl eftir Christopher
Durang
Þýðing: Birgir Sigurðsson
Leikmynd og búningar: Karl
Aspelund
Lýsing: Lárus Björnsson
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir
Vandamál nútímamanneskj-
unnar, hvort sem okkur finnst
þau ímynduð,tilbúin, óbærileg,
fyndin eða fáránleg; víst er þetta
alltaf heillandi viðfangsefni höf-
undum. Að kafa ofan í það,
þegar fólk er til dæmis að reyna
að nálgast hvort annað með því
að tala saman og segir einatt
fráleita vitleysu á hversdagsleg-
an hátt. Eða eitthvað sem á að
flokkast undir speki, þannig að
úr verður óttalegt þunnildi.
Heyra má af kynningu Leik-
félags Reykjavíkur á „Algjöru
rugli“ að leikurinn er flokkaður
sem svokallaður svört kómedía.
Það útleggst grátt gaman og er
þar af leiðandi ekki farsi eða
grínleikur, húmorinn er nístandi
og stutt í alvöruna, sem að baki
býr. Þá alvöru sém sýnir vænt-
anlega, að manneskjan er alltaf
að reyna að vera öðruvísi en hún
Guðrún Gísladóttir og Kjartan Bjargmundssson í hlutverkum Prudence og Bruce
Tveir nýir kennslustaðir: Dansstúdíó Sóleyjar, Engjateigi 1 og „Hallarsel“
Þarabakka 3 í Mjóddinni. Ennfremur sem fyrr í Auðbrekku 17, Kópavogi.
Kennum alla samkvæmisdansa: suðurameríska, standard og gömlu dansana.
Einnig bamadansa fyrir yngstu kynslóðina - laugardagskennsla á öllum stöðum.
Nemendur skólans unnu 12 af 18 íslandsmeistaratitlum í samkvæmisdönsum
1987.
Innritun og upplýsingar dagana 4. - 9. janúar kl. 13-23 í síma 641111.
Kennsluönnin er 20 vikur og lýkur með lokaballi.
/
FID Betri kennsla - betri árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
I_|l4120* 20424
‘©622030
SÍMATÍMI KL. 13-15
Sýnishorn úrsöluskrá !
2ja herb.
Krummahólar
2ja herb. ca 50 fm íb. á 1. hæð.
Bílskýli.
Hverfisgata
Ca 80 fm íb. á 2. hæð í þríbýli
ásamt háalofti. Svalir. Ákv. sala.
Verð 2,7 ipillj.
Logafold
Óvenju glæsil. og rúmgóð 2ja
herb. íb. við Logafold. Sérþvhús
innaf eldhúsi. Glæsil. Alno-innr.
ásamt uppþvottavél og ískáp.
Glæsil. eign. Einkasala.
Laugavegur
Ca 40 fm samþ. kjíb. i góðu
standi í ágætu steinhúsi. Verð
1400 þús.
Skúlagata
Góð ca 50 fm íb. á jarðhæð.
Mikið endurn.
3ja herb.
Garðabær
- Hafnarf jöröur
Bráðvantar góðar 3ja herb. íb. í
Garðabæ eða Hafnarfirði fyrir
trausta kaupendur.
Laugavegur - nýtt
Tvær 3ja herb. ca 90 fm (nettó)
íb. Suðursv. Fokh. að innan,
fullfrág. að utan. Afh. febr. 1988.
Verð 2,8 og 3,1 millj. Teikn. á
skrifst.
4ra-5 herb.
Ægisíða - 5 herb.
Mjög góð 5 herb. ca 110 fm hæð
á þessum eftirsóttá stað. Parket
á gólfum - nýtt gler. Suðurgarð-
ur. Mögul. skipti á góðir, helst
nýlegri, 4ra herb. íb. á svipuðum
slóðum.
V/Skólavörðuholt
Glæsileg ca 100 fm endaíb. Allt
ný endurn. á smekkl. hátt. Park-
et og marmari á gólfum.
Grandav. - nýtt
Glæsileg ca 125 fm 4ra herb.
endaíb. í lyftubl. Suðursv. Afh.
tilb. u. trév.
Sérhæð
Þinghólsbraut
Mjög góð sérhæð ca 150 fm á
1. hæð. Suðursv. Mjög gott út-
sýni. Sólstofa.
Parhús
Ásbúð - Gb.
Glæsil. ca 250 parhús á tveimur
^ hæðum. Mjög vel staðsett. Mikið
"4 útsýni. Tvöf. innb. bílsk. Mögul.
J3 á séríb. á neðri hæð.
Einbýlishús
'bcÞverás
U Vorum að fá í sölu ca 110 fm
gj einbýli á cinni hæð auk tæpl. 40
fm bílsk. Afh. fokh. að innan,
^ fullfrág. að utan í apríl-maí
1988. Teikn. og nánari uppl. á
skrifst. okkar. Verð 4,4 millj.
Grundarstígur
~ Lítið einbýli á tveimur hæðum.
Verð 3,5 millj.
Mosfellsbær
Bráðvantar fyrir traustan kaup-
anda ca 200-300 fm einbýlí.
Góðar grciðslur fyrir rétta eign.
Vesturgata
Ca 110 fm atvinnuhúsnæði
á götuhæð. Hentugt fyrir
ýmiskonar rekstur.
Erurn með söluumboð
fyrir Aspar-einingah.
HEIMASIMAR:
622825 - 667030
mióstöóin
HATUNI2B STOFNSETT1958
Sveinn Skúlason hdl. BD