Morgunblaðið - 03.01.1988, Page 18
18
. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
Evrópumeistaramót unglinga í skák:
Þröstur Þórhalls-
soní 13.-19. sæti
ÞRÖSTUR Þórhallsson var í
13-19. sæti á Evrópumóti skák-
manna 20 ára og yngri þegar
einni umferð var ólokið. Sovét-
mennirnir Gelfand og Ivantsjuk
börðust um sigurinn en Gelfand
dugði jafntefli í síðustu umferð-
inni til að tryggja sér Evrópu-
meistaratitilinn.
Þröstur gerði jafntefli við Þjóð-
veijann Lutz í 11. umferð og vann
Austurríkismanninn Harald Casa-
grande í þeirri 12. Hann var því
með 6 vinninga eftir 12. skákir.
Gelfand var með 11 vinninga, hafði
unnið allar sínar skákir nema gegn
Evrópumeistaranum Ivantsjuk sem
kom næstur með 10 vinninga. I 3.
sæti var Hollendingurinn Brenning-
meijer með 8 vinninga.
Sinfóníuhljómsveit æskunnar:
Námskeið ogtónleikar
NÚ STENDUR yfir námskeið
hjá Sinfóníuhljómsveit æsk-
unnar. Þetta námskeið sækja
hljóðfæranemendur af öllu
landinu og eru þátttakendur á
aldrinum 11—25 ára.
Námskeiðið stendur yfir í hálf-
an mánuð og er æft allt frá 5
tímum og upp í 8 tíma á dag.
Það hófst 28. desember og því
lýkur með tónleikum þann 8. jan-
úar sem verða haldnir í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og
hefjast þeir kl. 20.30.
I efnisskránni eru sinfónía nr.
103 eftir J. Haydn og sinfónía
nr. 3 eftir R. Schumann.
Stjómandi Sinfóníuhljómsveit-
ar æskunnar er Paul Sukofsky.
Fréttatilkynning
Ríkisútvarpið:
2Q0
I\1 D
TJ/Veðurstofa Islands
Hitastig yfirleitt yfir meðallagi í Reykjavík
Línuritið sýnir meðalhita hvers sólarhrings í Reykjavík á nýliðnu ári og frávikið frá meðallaginu
1951-1980. Það er oddalínan sem sýnir hitann 1987. Þegar hún er undir jöfnu línunni hefur hiti
verið verið undir meðallagi, en þegar hún er yfir því var hitinn yfir meðallagi. Mesta kuldakast
ársins gerði í mars og sést það glögglega á línuritinu.
Afnotagjöld hækkuðu um 85%
Rekstrarhalli á annað hundrað milljónir
AFNOTAGJÖLD Ríkisútvarps- árið 1986. Þau munu hækka um
ins hækkuðu um 85% árið 1987 13% á 1. ársfjórðungi þessa árs
eftir að hafa verið óbreytt allt en áætlað er að framfærsluvísi-
Flugeldar yfir Vestmannaeyjabæ á gamlárskvöld
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ekkí þörf á rok-
eldspýtum í Evjum
talan hækki um 24,5% milli
áranna 1986 og 1987. Þrátt fyrir
hækkun afnotagjalda er haÚi á
rekstri Útvarps og Sjónvarps
töluvert á annað hundrað millj-
ónir. Að sögn Markúsar Arnar
Antonssonar útvarpsstjóra er um
talsverðar skammtimaskuldir að
ræða sem verða jafnaðar fyrri-
hluta ársins 1988. Framkvæmdir
vegna byggingar útvarpshússins
eru greiddar úr sérstökum fram-
kvæmdasjóði sem fær 10% af
brúttótekjum stofnunarinnar.
Markús Öm sagði að stefnt væri
að hallalausum rekstri í ár en aug-
ljóslega hefði það haft veruleg áhrif
á greiðslustöðu Ríkisútvarpsins
þegar ákveðið var að undanskilja
þær tekjur sem stofnunin á að hafa
lögum samkvæmt af aðflutnings-
gjöldum af útvarpstækjum, sjón-
vörpum og öðmm búnaði.
Útvarpslögin gera ráð fyrir að
tekjustofnar Ríkisútvarpsins séu
þrír, afnotagjöld, tekjur af auglýs-
ingum og aðflutningsgjöld. „Tekjur
af aðflutningsgjöldum vom 150
miiljónir árið 1986 en Alþingi ákvað
að fella þær niður árin 1987 og
1988 þvert ofan í ákvæði útvarps-
laga. Samkvæmt könnun sem við
létum gera vom aðflutningsgjöld
orðin um 270 milljónir í lok septem-
ber og verða töluvert á fjórða
hundrað milljónir á öllu árinu 1987.
Það munar um minna. Hver þau
verða 1988 er ekki gott að segja
til um eftir að tollalækkanir koma
til framkvæmda," sagði Markús.
„Tekjur stofnunarinnar em þar af
leiðandi eingöngu af afnotagjöldum
og auglýsingum en þar hefur orðið
um 30% samdráttur miðað við fyrra
ár með aukinni samkeppni." Hann
sagðist gera ráð fyrir að auglýs-
ingatekjur ársins 1987 yrðu um 430
milljónir en hefðu sennnilega farið
vel yfír hálfan milljarð ef ekki hefðu
orðið þessar umtalsverðu breyting-
ar á markaðsstöðunni.
Markús benti á að með nýju fjöl-
miðlunum kæmi fram samanburður
við frjálsa verðlagningu á þeirri
þjónustu sem stofnunin veitti. „Eft-
ir hækkun 1. janúar kosta afnot
af Sjónvarpi 709 krónur á mánuði
og 354 krónur af útvarpinu. Ég
held að það vaxi engum í augum
að greiða um 1.000 krónur á mán-
uði í afnotagjald fyrir eina sjón-
varpsstöð og tvær útvarpsrásir
enda gengur innheimtan vel,“ sagði
Markús.
Áætlanir um dagskrá Útvarps
og Sjónvarps fyrir nýbyijað ár mið-
ast við niðurstöður fjárlaga. Sagði
Markús að útreikningar sýndu að
nauðsynlegt væri að stytta nokkuð
útsendingartíma Sjónvarpsins og
einfalda dagskrána. Málefni Út-
varpsins hafa einnig verið endur-
skoðuð með spamað í huga og þá
sérstaklega á Rás 2. „Þar eru veru-
legar spamaðarráðstafanir á ferð-
inni og ekki annað fyrirsjáanlegt
en að rekstur hennar ætti að geta
byggst á þeim auglýsingatekjum
sem Rás 2 aflar. Jafnframt hefur
rekstur Rásar 1 verið endurskoðað-
ur á vissum sviðum,“ sagði Markús.
Engar áætlanir eru enn uppi um
að segja upp fastráðnu starfsfólki
en að öllum líkindum verður ekki
ráðið í þær stöður sem losna á.
næstu mánuðum.
Bifreiðaeftirlitið:
FRÁBÆRT veður einkenndi
gamlársdag og nýársnótt í Eyj-
um. í blankalogni og hlýju veðri
kvöddu Eyjamenn gamla árið
með mikilli flugeldaskothríð. Svo
mikil var bliðan að reykurinn af
flugeldum Iá eins og dalalæða
yfir bænum. Aldrei þessu vant
lágu því rokeldspýumar
óhreyfðar. Menn muna varla eft-
ir annarri eins veðurbliðu á
gamlársdag f Eyjum.
Seinni part gamlársdags mátti
víða sjá logandi kerti við hús. Og
aldrei þessu vant, venjulegum jóla-
kertum. Slík var blíðan að klukku-
stundum saman brunnu kertin í
rólegheitum, nokkuð sem við Eyja-
menn erum óvanir í desember.
Um klukkan fímm var byijað að
kveikja á brennum og mætti mikill
mannfjöldi til þess að horfa á log-
ana teygja sig til himins í logninu.
Strax uppúr klukkan hálf tólf
byijuðu menn svo að skjóta upp
flugeldum og tendra blys. Víða
mátti sjá fólk klætt eins og í júní-
mánuði væri við að skjóta flugeld-
um. Bærinn var uppljómaður af
skoteldum vel fram yfír miðnætti
og svo mikil var blíðan að flugelda-
reykurinn lá yfír bænum og var
mjög fallegt að horfa yfír bæinn
og sjá blysin lýsa upp reykjarslæð-
una.
Að sögn Jóhanns Ólaíssonar, lög-
regluþjóns, var nýársnóttin hjá
lögreglunni { stíl við veðrið: Enginn
gisti fangageymslur lögreglunnar
og útköll voru með minnsta móti.
Einn ökumaður var tekinn fyrir
grun um ölvun við akstur, nokkrar
rúður voru brotnar og brotist var
ínní skemmtistaðinn Vinaminni og
þijátíu og einni vínflösku stolið.
„En miðað að mjög fjölmennir
dansleikir voru háldnir og drykkju-
skapur var mikill, svo sem vænta
má á gamlárskvöldi, þá var þetta
sérstaklega þægileg nýársnótt,"
sagði Jóhannes.
Undanfarið hefur golfvöllurinn
verið mikið sóttur í veðurblíðunni.
Og á nýársdag mátti sjá fjölda kylf-
inga leika golf. Og ef maður hefði
ekki litið á almanakið til að vera
viss, hefði maður alveg geta haldið
að það væri júní eða ágúst á golf-
vellinum í Eyjum en ekki fyrsti
janúar ’88.
-Bjarni.
Búið er að skipu-
leggja aðalskoðun
Bifreiðaeftirlit rfkisins auglýsir þessa dagana hvenær aðalskoðun
bifreiða á að fara fram á árinu 1988. Bifreiðaeftirlitið skipuleggur
nú skoðun bifreiða um allt land. Áður hafa sýslumenn og fógetar
gert það hver á sínu svæði.
Haukur Ingibergsson fram-
kvæmdastjóri Bifreiðaeftirlits ríkis-
ins sagði í samtali við Morgunblaðið
að aðalskoðunartímabilið hafí nú
verið lengt til þess að fá sem besta
nýtingu á aðstöðu og vinnuafli.
Aðalskoðun hefst á nokkrum
stöðum í fyrstu viku janúarmánaðar
og lýkur um mánaðamótin nóvem-
ber-desember.
Skoðunin er skipulögð þannig að
bifreiðaeigendur eiga að koma með
bifreið sína til skoðunar í ákveðinni
viku á árinu. Hann ræður hvaða
dag vikunnar hann kemur. Sagði
Haukur að með þessu ætti að reyna
að jafna álagíð yfír allt árið.
Upplýsingar um hvenær skoðun
fer fram munu liggja fyrir á öllum
bensínstöðvum og geta bifreiðaeig-
endur því séð strax hvenær þeir
eiga að færa bifreiðir sínar til skoð-
unar.