Morgunblaðið - 03.01.1988, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
Umsvif OLÍS á Laugarnesinu
eru rnikil eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd, en
tankarnir og byggingarnar
norðvestan við þá tilheyra
Olíuverslun íslands. hf.
„Prófsteinn á það að vera frjáls
einstaklingnr í þjóðfélaginu“
-segir Oli Kristján Sigurðsson í OLIS á 60 ára afmæli Olíuverslunar Islands
Það sem vakir fyrir
mér er að gera OLÍS
að sterku fyrirtæki
sem hægt sé að reka
sem einkafyrirtæki á
íslandi og að því leyti
er ég að halda uppi merki þeirra
manna sem fóru fyrir í þessu gróna
fyrirtæki," sagði Óli Kristján Sig-
urðsson forstjóri sem á 97% í OLIS
frá 1. desember 1986. Olíuverslun
íslands hf. var stofnuð 3. október
1927, en tók formlega til starfa 2.
janúar 1928 og varð því 60 ára í
gær. Allan þennan tíma hefur OLÍS
haft mikil umsvif í allri olíuverslun
landsmanna og riðið á vaðið í ýms-
um framfaraþáttum varðandi
dreifíngu olíu, vöruvali og þjónustu.
Um 270 starfsmenn vinna nú hjá
OLÍS um allt land.
Eiga menn möguleika á
eigin verðleikum?
„Við erum fyrst og fremst þjón-
ustufyrirtæki og við aukum ekki
viðskipti okkar í krafti peninga
heldur þjónustu, hvemig starfsfólk
okkar fýrirtækis kemur fram við
kúnnann," sagði Óli, „og við getum
aldrei sagt að kúnninn hafi rangt
fyrir sér, því það sem hann segir
eru hans kröfur og þjónustufyrir-
tæki sem starfar af fullri alvöru
tekur tillit til þess. Mín þátttaka í
þessu fyrirtæki er einnig prófsteinn
á það hvort einstaklingur sem hefur
ekkert á bak við sig nema árangur
eigin vinnu eigi möguleika á að lifa
af í þessum rekstri eða hvort sá
tími sé að þetta þurfí allt að vera
í höndunum á auðhringum eða stór-
um valdahópum. Þetta er spuming
um það hvort menn eigi möguleika
á því að komast til metorða á eigin
verðleikum sem sjálfstæðir atvinnu-
rekendur, prófsteinn á það að vera
ftjáls einstaklingur í þjóðfélaginu
og taka þátt í uppbyggingu þess.“
Valinkunnir
brautryðjendur
Olíuverslun íslands var stofnuð
af 7 valinkunnum Reykvíkingum,
Magnúsi J. Kristjánssyni fjármála-
ráðherra, Héðni Valdimarssyni
alþingismanni, Aðalsteini Kristjáns-
syni framkvæmdastjóra, Richard
Torfasyni bankabókara, Hjalta
Jónssyni framkvæmdastjóra, Guð-
mundi Kr. Guðmundssyni bókhald-
ara og Sigurði Jónssyni lögfræð-
ingi. Héðinn Valdimarsson varð
fyrsti stjómarformaður félagsins og
forstjóri, en því starfí gegndi hann
þar til hann féll frá árið 1948. Fé-
lagið varð umboðsaðili BP á íslandi,
en BP tók að sér að byggja olíustöð-
ina Klöpp við Skúlagötu, jafnframt
því sem félagið yfírtók allar birgðir
Héðinn Valdimarsson frumkvöð-
ull að stofnun Oliuverslunar
íslands hf. og fyrsti forstjóri
hlutafélagsins.
Óli Kristján Sigurðsson forstjóri og núverandi eigandi Oliuverslunar
íslands hf.
Gamlir starfsmenn, Þórður Guðbrandsson og Aðalsteinn Guðmunds-
son, ræða málin.
Landsverslunarinnar, sem lögð var
niður í árslok 1927. Á árinu 1933
var stofnað hlutafélagið BP á ís-
landi, dótturfélag Anglo-Persian
Oil Company, en BP var þá dreif-
ingaraðili þess fyrirtækis. Þetta
nýja félag keypti nokkuð af eignum
Olíuverslunar íslands hf. og var
fyrst og fremst eignafélag en ekki
rekstrar. í lok síðari heimsstyijald-
arinnar hætti Olíuverslunin að selja
í umboðssölu en varð beinn söluað-
ili fyrir eigin reikning. Þá var
ákveðið að byggja stóra innflutn-
ingsstöð í Reylqavík á vegum BP
á Islandi og átti Olfuverslunin 40%
í því fyrirtæki en BP 60%. Bygging
stöðvarinnar í Laugamesi hófst
vorið 1949 og átti Héðinn Valdi-
marsson allan veg og vanda af
undirbúningi, en hann féll frá í sept-
ember 1948 aðeins 56 ára að aldri.
Hreinn Pálsson tók þá við forstjóra-
starfínu og var Olíustöðin tekin í
notkun að hluta til ári síðar og
verkinu lauk 1952. Á þessum ámm
varð geysileg aukning í olíunotkun
landsmanna, bæði til lands og sjáv-
ar, sérstaklega þó í sambandi við
útgerð. Þessi auknu umsvif kölluðu
á aðstöðu fyrir móttöku stórra tank-
skipa og hafíst var handa við að
byggja birgðastöðvar í kring um
landið. Upp frá þessu viku tunnu-
flutningar óðfluga fyrir flutningum
með tankskipum. í fyrstu var um
að ræða flutninga með litlum skip-
um, en 1954 gerðu Olíuverslun
íslands hf. og Shell hf. á íslandi
samning um byggingu nýs 1.000
tonna tankskips í Hollandi og hlaut
það nafnið Kyndill. Síðan hafa þessi
fyrirtæki gert sameiginlega út
tankskip með þessu nafni.
Enn reið Olíuverslunin á vaðið
árið 1966 þegar tekin var í notkun
eina innflutningsolíustöðin sem enn
er til utan höfuðborgarsvæðisins,
15.000 m3 gasolíugeymir sem Olíu-