Morgunblaðið - 03.01.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
33
Kennedy á sitt band eftir aft hann
sýndi honum myndina sína, „Koss
kóngulóarkonunnar“.
„Þegar þú gerir kvikmynd þráir
þú éitthvaft, en veist ekki hvers
vegna. Það er svolítið bilað. Núna
er ég aft reyna aft skilja hvers
vegna ég gerfti þessa mynd, hvers
vegna hún tók þrjú ár af lífi mínu.
Ég veit þaft ekki enn. Það er eitt-
hvaft sem snertir sekt Phelans,
eitthvað um aft sætta sig við fortí-
ðina, eitthvað um aft snúa aftur
heim og standa andspænis fortí-
ftinni." Samband Phelans við
söngkonuna Helen, sem nú er í
ræsinu, heillaði leikstjórann að
sama skapi. „Þaft var eitthvaft fal-
legt — og þegar ég segi fallegt á
ég ekki vift glamúr — við það að
elska konu án þess að vera fær
um þaft vegna þess aft þú hefur
ekki enn getaft gert upp fortíft
þína.“
Og áfram heldur hann: „Það er
eitthvaft Ijóftrænt og sorgmætt vift
fólkið sem lifir í þessum heimi. Þú
veltir því yfirleitt ekki einu sinni
fyrir þér hvert það sé að fara. Hin
raunverulega merking meft lífi
þess er að þaft heldur áfram; að
það skuli halda áfram er mikilvæg-
ara en hvert það stefnir."
Babenco fókk orð á sig fyrir aft
vera leikstjóri leikaranna eftir
„Koss kóngulóarkonunnar". Will-
iam Hurt hreppti Óskarinn sem
besti karlleikarinn fyrir þá mynd.
En stjörnurnar tvær í „Ironweed"
þurfti aft höndla á ólíkan hátt. „Vift
æfuftum „Kossinn" eins og svifts-
verk í þrjár vikur, sex, sjö stundir
á dag. Ég reyndi aft gera þaft sama
hér, en þaft gekk ekki vegna þess
að Jack er öðruvísi dýr; hann er
kraftmikill og gæddur miklu inn-
sæi. Hann finnur sig kannski ekki
í fyrstu tveimur tökunum, en í
þeirri þriðju gefur hann sitt besta
og getur haldift áfram til eilífðar
en þú færð aldrei meira en hann
gaf þér í þriftju tökunni. Hann er
mjög, mjög sterkur kvikmyndaleik-
ari. Meryl býr yfir reynslu sviðsleik-
konunnar og hún getuf gefift ólík
blæbrigfti innan sömu túlkunar.
Stundum getur það ruglað leik-
stjórann vegna þess aft þau eru
öll svo góð að maftur veit ekki
hvaft á að velja.“
aft sér stjórn útvarpsþáttarins og
gerir allt vitlaust á sinn sérstaka
hátt.
Walter Matthau er einn af
þeim sem hefur ekki mikift álit á
sálfræftingum og því héntar honum
vel aft leika Donald Becker í mynd-
inni því Becker hefur fullkomna
andúð á starfsstéttinni. „Allir sál-
fræðingar eru að leika. Næstum
allt fólk er yfirleitt að leika. Þess
vegna hef ég svo gaman af leikur-
um. Þeir vita a.m.k. af því,“ segir
Matthau.
Myndin er gerð eftir samnefndri
skáldsögu eftir Ken Kolb. Framleift-
andinn Larry Gordon („48 HRS“,
„The Predator") las hana fyrst fyrir
19 árum og hún var ofarlega í huga
hans þegar hann sneri sór aft kvik-
myndaframleiftslu en „Kæri sáli"
er ein af fyrstu myndunum sem
hann gerir sem óháður framleiö-
andi.
Og aðeins eitt að lokum. Man
einhver eftir Charles Grodin í Pol-
anski-myndinni „Rosemary’s Baby"
fyrir 24 árum? Ekki þaft. Michael
Ritchie gleymdi honum ekki. Grodin
lók lækni í myndinni og Ritchie hélt
þá aft hann væri alvörulæknir. Hann
kom þvi aft sjálfsögftu fyrst upp í
huga leikstjórans þegar velja átti
leikara í hlutverk dr. George Maitlin.
Með mörgn fólki
________Bækur______________
Magnús Sveinsson frá
Hvítsstöðum
Með mörgu fólki
Höfundur: Auðunn Bragi
Sveinsson
Útgefandi: Skuggsjá 1987.
Auðunn Bragi Sveinsson er af
skáldakyni, sonur alþýðuskáldsins
Sveins Hannessonar frá Elivogum.
Eftir Auðun Braga hefur áður
borist fjöldi kvæða og vísna í
ýmsum ritum, sem hér verða ekki
upptalin. Auk þess er Auðunn
Bragi ágætur stílisti í óbundnu
máli og má þar nefna fjölda ann-
arra greina um ýmis efni.
í bókinni Með mörgu fólki nær
Auðunn Bragi sér verulega á strik
sem sagnamaður. Fyrsti hluti bók-
arinnar eru bemskuminningar
Ríkarður ekki
Ríkharður
Þau leiðu mistök urðu í gamlárs-
dagsblaðinu í frétt frá 50 ára
afmæli Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Gerðahrepps að nafn fýrsta
formanns félagsins misritaðist.
Hann heitir Ríkarður Sumarliðason.
Ríkarður er hér með beðinn velvirð-
ingar á þessum mistökum.
hans, en þar lýsir hann lífinu í
sveitinni eins og það var á fjalla-
bæjum á fjórða tug þessarar aldar,
þegar næstum engin nútíma þæg-
indi voru til staðar. Þótt hér væri
um fátækt sveitaheimili að ræða,
var ljóðagerð í hávegum höfð og
margar góðar vísur og kvæði er
þarna að finna.
í síðari hluta fýrsta þáttar þessa
rits, en bókin skiptist í fimm meg-
inþætti eða kafla, er getið um
nokkra merka Húnvetninga er
uppi voru um miðbik þessarar ald-
ar. Má þar nefna síra Gunnar
Arnason á Æsustöðum og Jónat-
an Líndal á Holtastöðum. Þá eru
tveir kaflar, sem nefnast Úr ævi-
sögu Sveins frá Elivogum. Hér er
um brot af ævisögu skáldsins að
ræða, sem kenndi sig við Elivoga.
I þessum ævisögubrotum kemur
frásagnargáfa Auðuns Braga vel'
í ljós og nákvæmni í sagnagerð.
Annar hluti bókarinnár nefnist
Méð mörgu fólki. Þar er sagt frá
spumingakeppni hjá Sveini Ás-
geirssyni og fleirum. Þetta var góð
upprifjun hjá mér sem hafði fylgst
með þessum þáttum bæði í útvarpi
og sjónvarpi, eftir að það kom til
sögunnar.
í þriðja hluta bókarinnar sem
ber heitið Þeirra minnist ég, eru
nokkur eftirmæli. Þar skrifar Auð-
unn Bragi um móður sína, Elínu
Guðmundsdóttur, Ólaf S. Magnús-
son, Rósberg G. Snædal, Hjálmar
Þorsteinsson frá Hofi og nokkra
fleiri, sem hér verða ekki taldir. _
Fjórði þátturinn ber heitið I
björtum landsins höfuðstað. Þar
er langur þáttur um Guðrúnu
Karlsdóttur, sem_ seldi fæði á
Bókhlöðustíg 10. í þessum þætti
telur Auðunn Bragi upp þá, sem
hann minnist að voru þama kost-
gangarar á sama tíma og hann.
Þessi þáttur hefur sérstakt gildi,
vegna þess að þama er ágæt lýs-
ing á hveijum einstaklingi og
jafnvel stutt ævisaga sumra. Vil
ég benda þeim á, sem lesa þessa
bók, að lesa þennan þátt með at-
hygli, því að þar er mikinn fróðleik
að finna.
í síðari hluta þessa þáttar telur
höfundurinn upp nokkra skemmti-
staði í höfuðborginni. Þama er um
bráðskemmtilega lýsingu að ræða
með skáldlegu ívafi. Líklega nýtur
stílshæfileiki höfundar sér hvergi
betur en í þessum þætti. í lokin
yrkir hann um Reykjavíkurstúlk-
una, og á það vel við eftir alla
rómantíkina á dansgólfum
Reykjavíkur. Kvæði þetta er sex
erindi með átta ljóðlínum hvert.
Eg ætla að taka hér tvö fyrstu
erindin:
Hún er úrval íslenskra meyja,
aðsetun lieykjavík.
Ein af þeim ótalmörgu
af yndisþoka rík.
Astljúf í öllu fasi
Auðunn Bragi Svelnsson
og elur margar þrár
og hefur held ég lifað
hartnær sautján ár.
Þá líður að laugardagskvöldi
hún lifir í sælli von.
Drauma þá bjarta dreymir
um dans og heillandi son.
Margs er á milli að velja,
já, margvísleg kostaröð:
Iðnó, Oddfellov, Röðull
eða Mjólkurstöð.
Fimmti þátturinn ber heitið
Ruslakista. Líklega hefur höfundi
fundist hér um nokkurn samtíning
að ræða, en svo er alls ekki. Þama.
em mörg ágæt ljóð eftir sjálfan
höfund bókarinnar, og em þau
þess virði að vera lesin með eftir-
tekt.
Þessi bók er skemmtileg aflestr-
ar og í henni er mikill fróðleikur
um menn og málefni.
ÁHEITASÖFNUN
KRÝSUVIKURSAMTAKANNA
^ ÁTAK TIL HJÁLPAR
RÆKTUM UPP O G GRÆÐUM SÁRIN
(§ittitíeg jól ng farsæít knmattbt ár
KÝSUVÍKURSAMTÖKIN - Þverholti 20-105 Reykjavík - sími 623550