Morgunblaðið - 03.01.1988, Síða 45
+-
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
45
Endurfundir við Strengja-
sveit Tónlistarskólans
Þrír af einleikurum Strengjasveitarinnar í dag, þau Sigrún Eðvaldsdóttir (frá vinstri), Bernharður
Wilkinson og Áshildur Haraldsdóttir.
Frá því einu
sinni var ...
Ætli einhveijir tónleikagestir
muni ekki eftir að hafa átt góðar
stundir fyrir nokkrum árum á tón-
leikum hjá Strengjasveit Tónlistar-
skólans í Reykjavík, sem spilaði
undir stjóm Marks Reedmans? I dag
kl. 17 er tækifæri til að rifja aftur
upp kynnin af sveitinni því nú kem-
ur hún fram í fyrsta skiptið eftir
nokkurra ára hlé og Mark stjómar
enn. Tónleikamir verða f Bústaða-
kirkju.
Á sínum tíma var í sveitinni úrval-
ið af strengja nemendum skólans,
sem héldu saman í nokkur ár, æfðu
stíft og spiluðu af kappi. Kannski
að einhver hafi kvartað þá, en stjóm-
andinn vissi sem var, að öðruvísi
hefðist þetta ekki. Sveitin tók þátt
í alþjóðlegri strengjasveitakeppni í
Júgóslavíu 1984 og lenti þar í fjórða
sæti. í kjölfar þátttökunnar var þeim
boðið til Aberdeen árið eftir og þang-
að var haldið. En upp úr þessu
leystist sveitin upp, því meðlimimir
hurfu í framhaldsnám einn af öðmm,
komust í góða skóla og til góðra
kennara, þjuggu vísast ekki sízt að
þátttökunni í strengjasveitinni. Nú
er þráðurinn tekinn upp aftur í jól-
Það var einmitt með Strengja-
sveitinni, sem Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari vakti fyrst athygli, þá
og lýkur námi þaðan í vor. Hún er
með annað augað á tónlistarskólan-
um í Banff í Klettafjöllum, hefur í
skáld. Hinn fæst við tónlist Bachs.
Meðlimimir em ungir krakkar, ný-
komnir úr námi. Einhveijir í
hópunum taka að sér að finna verk-
efni fyrir hópinn. Slíkt gengur helst
fyrir sig í gegnum sambönd, það
gildir að þekkja einhvem, sem þekk-
ir einhvem og svo framvegis. Einn
útvegurinn er að fá að spila í skól-
um, fá kannski styrki til þess. Auk
þess hefur Áshildur hug á að spreyta
sig á pmfuspili af kappi, þegar skól-
anum lýkur, halda sig þó við New
York. En í október spilar hún á norr-
ænni tónlistarhátíð ungs fólks, sem
er haldin hér að þessu sinni. Það
var keppt um þátttöku í hveiju landi
og Áshildur valin úr íslenska hópn-
um í haust.
Það gafst lítill tími á æfíngum í
vikunni til að rifja upp gömul kynni,
Mark sá til þess. Þó heyrðust tvær
fíðlur bera saman bækur um aldur
sinn, önnur var að verða 82 ára, en
eigandinn öllu yngri...
Eftir æfinguna lét Mark þess get-
ið að vissulega hefðu margir íslensk-
ir tónlistarmenn farið utan í góða
skóla, en þetta væri fyrsti hópurinn
héðan, sem hefði farið í framhalds-
nám. „Það er ótrúlega ánægjulegt
að fá hópinn saman aftur, gaman
að sjá hvemig þau hafa þroskast.
Það eykur líka á atvinnumennskuna
í tónlistarlífínu hér að fá svona hóp
til að spila hér öðm hveiju."
Mark segist vera að æfa upp nýj-
an hóp, þó það sé erfítt, því rétt
þegar árangurinn farið að koma í
ljós, fari krakkamir í allar áttir. En
þessi fyrsti hópur hafí nú verið svo-
lítið sérstakur ... ætli við heyrum*
það ekki í dag ...
Texti: Sigrún Davíðsdóttir
Myndir: Einar Falur
Mark Reedman með gamlan og góðan hóp á æfingu ... gamlan hóp, en meðlimirair þó á æskuskeiði.
afríinu og dagskráin í takt við
tímann. Þama getur að heyra Con-
certo grosso op. 6, nr. 1 eftir Hándel,
Serenöðu eftir enska tónskáldið Elg-
ar, Adagio fyrir strengi eftir
bandaríska tónskáldið Samuel Bar-
ber, 4. Brandenburgarkonsertinn
eftir Bach og eftir hlé Concerto
grosso Hándels op. 6., nr. 3, Adagio
eftir Albinoni og að lokum Simple
Symphony eftir Bretann Britten. í
Brandenburgarkonsertinum koma til
liðs við sveitina þau Bemharður
Wiljcinson og Áshildur Haraldsdóttir
flautuleikarar, Bemharður góðkunn-
ur úr sinfóníunni, Blásarakvintett
Reykjavíkur og víðar, Áshildur að
ljúka námi í Bandaríkjunum. í öðmm
verkum skiptast strengjaleikaramir
á í einleikshlutverkum.
bamung og hún er með í dag. Hún
lýkur námi frá Curtis tónlistarskól-
anum í Fíladelfíu 'í vor, ætlar þá að
vera í einkatímum hjá hjónum, sem
hún var áður hjá og sem búa í Illino-
is, svo hún verður þar á næstu
grösum. í haust vann Sigrún til verð-
launa í fiðlukeppni í Þýskalandi, sem
er kennd við föður Mozarts, Leopold
Mozart, hlaut 8 þús. v-þýsk mörk í
verðlaun, sem koma í góðar þarfír
við áframhaldandi nám. Auk þess
býðst henni að koma til Munchen í
sept. í boði banka í Bæjaralandi og
halda einleikstónleika áisamt píanó-
leikara. Og svo er að heyra á Sigrúnu
að fleiri keppnir séu í sigtinu ...
Annar fiðluleikari úr gamla geng-
inu er Gerður Gunnarsdóttir. Hún
er núna á fímmta ári úti, er í Köln
huga að freista þess að komast
þangað næsta vetur. Nokkrir nem-
endur frá Köln verða styrktir til
dvalar þar, að hálfu leyti frá þýska-
landi og að hálfu frá Kanada. í
Amsterdam er líka spennandi fíðlu-
leikari og kennari, Krebbs, sem
Gerður hefur augastað á.
Eins og áður er nefnt leikur Ás-
hildur Haraldsdóttir flautuleikari
með Strengjasveitinni í dag. Hún er
á fímmta ári í Bandaríkjunum, er
að ljúka námi frá Juilliard skólanum.
Þá tekur óvissan við, en það er á
Áshildi að heyra að hún ætli að
halda sig við New York. Þar er hún
í tengslum við tvo tónlistarhópa.
Annar starfar í kringum tónskáld,
sem er í hópnum, flytur mest tónlist
eftir hann, eða önnur samtímatón-
Bretland:
Kvaddi jarðlífið 114 ára að aldri
London. Reuter.
BRESK kona, elsti maður í
heimi samkvæmt Guinness-
metabókinni, lést á elliheimili í
Wales sl. sunnudag 114 ára að
aldri.
„Anna Williams fékk hægt andl-
át á sunnudagskvöld," sagði Hugh
Gardner, félagsmálafulltrúi í
Swansea, og talsmaður Tuxedo-
elliheimilisins í borginni skýrði
einnig frá láti gömlu konunnar.
í Guinness-bókinni segir, að
Anna hafí komið í þennan heim
2. júní árið 1873 og sé þriðja mann-
eskjan, sem náð hafí að lifa í 114
ár. í febrúar í fyrra lést í Japan
karlmaður að nafni Shigechiyo Iz-
umi og hafði hann þá lifað í stórt
hundrað ára eða 120 ár. Er ekki
vitað til þess með vissu, að nokkur
annar hafí náð hærra aldri en Guin-
ness segir einnig frá Shirali „Baba“
Mulinov, Azerbajdzhanbúa, sem
var sagður 168 ára þegar hann
lést árið 1973. Sovésk yfírvöld
leyfðu hins vegar aldrei, að vest-
rænir blaðamenn og vísindamenn
fengju að kanna það nánar.
Anna Williams á dóttur á lífi og
fleiri afkomendur en félagsmála-
fulltrúinn í Swansea hafði tölu á.
lífskraftur
KYOLIC er kraftaverk náttúrunnar sjálfrar
sem hjálpar til að hressa upp á hversdagstil-
veruna svo aö þú og fjölskyla þin verðið vel
fyrir kölluð, hress og full af lifskrafti.
KYOLIC er hvítlaukur, ræktaöur á Uf-
rænan hátt - alveg án lyktar og bragðs.
Það er þessi 20 mánaða langa kælitækni
sem gerir KYLOIC að algerlega jafn-
gildi hráhvítlauksins.
Engin sambærileg hvíUauks-
ræktun eða -framleiðsla fyrir-
finnst í veröldinni.
Nokkrir dropar af fjótandi
KYLOIC út í uppáhalds ávaxta-
safann og blandan verður fljót-
andi lifskraftur.
KYLOIC fæst í
heUsuvöru- og
í -i: lyfjaverslunum og
jjk viðar.
+ | fSS- r P.S.KYOLICÍ
' .. fljótandi formi er
tjftV ; bestur, en það er
líka hægt að fá
* KYOLIC i hylkj-
jf - i »8 um, hylkjum
L ' á && m/lesitíni eða töfl-
- L-
. ..
Heildsölubirgðir:
Logaland
heUdsöluverslun
Simar 12804 og 29015
-J-