Morgunblaðið - 25.02.1988, Side 2

Morgunblaðið - 25.02.1988, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988 Skákmótið í Linares: Jóhann með væn- lega biðskák Morgunblaðið/Ámi Sœberg 6-7þúsund titiará bókamarkaði HINN árlegi bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda verður opnaður í dag á 3. haeð Kringlunnar. Að þessu sinni verða milli 6 og 7 þúsund titlar á markaðnum. teflir við Júgóslavann Nicolic í 3. umferð í dag og hefur svart. Skák Jóhanns og Illescas var flókin og að sögn Leifs Jósteinsson- ar fréttaritara Morgunblaðsins virt- ist halla á Jóhann um tíma. í tíma- hraki lék Spánverjinn síðan óná- kvæmt og Jóhann náði undirtökun- um. Biðstaðan birtist hér til hliðar. Það er Jóhann sem hefur hvítt og leikur biðleik. Önnur úrslit umferðarinnar urðu , þau að Chandler vann Nicolic og Georgiev vann Tsjiburdanidze. Jafntefli gerðu Júsupov og Beljavskíj, Timman og Portisch og Ljubojevic og Nunn og voru allar þessar skákir tefldar í botn, að sögn Leifs. Eftir tvær umferðir eru Beljavskíj, Júsupov, Timman og Nunn allir með IV2 vinning. SKÁK Jóhanns Hjartarsonar og Spánverjans Miguel Illascas í 2. umferð skákmótsins í Linares fór í bið og á Jóhann góða vinn- ingsmöguleika. Líklegt er að bið- skákin verði tefld áfram á laug- ardag en þá er frídagur. Jóhann Byggðastofnun: Tveimur frystihúsum veitt lán STJÓRN Byggðastofnunar af- greiddi á fundi sinum í gær, mið- vikudag, lán til tveggja frystihúsa vegna fjárhagslegrar endur- skipulagningar. Hraðfrystihúsið á Hofsósi fékk 18 milljóna króna lán og Hjálmur hf. á Flateyri 10 milljóna króna lán í þessu skyni. Eins og skýrt hefur verið frá í Morgunblaðinu ligggja nú fyrir um 20 lánsbeiðnir frá fyrirtækjum í út- gerð og fiskvinnslu vegna Qárhags- legrar endurskipulagningar. I frétt frá Byggðastofiiun segir að engin leið sé að leysa vanda þessara fyrir- tækja með Iánveitingum eingöngu. Nú sé unnið að því að safna ársreikn- ingum fyrirtækjanna, en lán hafi verið veitt til hinna tveggja fyrr- nefndu fyrirtækja vegna þess að þau hafi skilað inn öllum gögnum. Þá afgreiddi stjómin á fundi sínum í gær lánveitingar vegna fjár- festinga að upphæð kr. 107,6 millj- ónir, þar af voru 69,7 milljónir vegna fjárfestinga í fískvinnslu. í dag fyrirliclit >nn ■>«■■< Aukning á. Ja jwii k'Jt VDDSKffTIAIVINHUUF >UiM L*MÍ*i»**«»SITOlU V»XT» 1«, 1**« —„ > i MxkJiuuLuui ali.vktr stÍhpQm fnumúi \ ; \ i"' fi r Aftitorttírnf wuhotb*- L’iusuni iúili’gvadum blaðB Kvóti á ferskfiskútflutn- ing kemur vel til greina - segja útflytjendur gámafisks „GÓÐ STJÓRN á fiskútflutningi er ágæt, um það eru allir sam- mála, en það er erfitt að segja til um nákvæmlega hvernig sú stjóm á að vera,“ sagði Jón Ásbjömsson, fiskútflytjandi í Reykjavík, þegar bornar vora undir hann hugmyndir um stjómun og takmörkun á útflutningi á fiski i gámum, sem nýstofnaður starfshópur á vegum utanríkisráðuneytisins hefur nú til umfjöllunar. Þeir þrír útflytjend- ur sem Morgunblaðið spjallaði við töldu allir að einhvers konar út- flutningskvóti á gámafisk kæmi til greina Jón Ásbjömsson sagði að ekki hefðu komið upp nein vandamál á Bretlandsmarkaði, sem væri alveg frjáls, og því væri engin ástæða til Morgunblaðið/Sverrir Ómar Smári Armannsson aðalvarðstjóri leiðbeinir lögreglumönnum á C-vakt í almennri deild og B-vakt i umferðardeild um nýju um- ferðarlögin. Nýju umferðarlögin: Lögreglumenn á námskeiði ÞESSA Hagana eru haldin nám- skeið á lögregiustöðinni við Hverfisgötu þar sem lögreglu- mönnum i Reykjavík em kynntar þær breytingar sem verða á umferðarlögum um næstu mán- aðamót. Að sögn Ómars Smára Armanns- sonar aðalvarðstjóra umferðardeild- ar er lögð áhersla á að fara yfir breyttar starfsreglur lögreglu um meðferð umferðaróhappa þar sem aðeins verður eignatjón. f liðinni viku voru nýju umferðar- að setja hömlur á útflutning þang- að, en svo virtist sem einhverrar stjómunar væri þörf varðandi fiskútflutning til Þýskalands, þar sem verðsveiflur væru miklar. Ölafur B. Halldórsson, fram- kvæmdastjóri ísfangs á ísafirði, sagði að honum fyndist vanta full- trúa frá útflytjendum og fiskvinnsl- unni í nefnd þá sem utanríkisráð- herra hefði skipað til að ijalla um útfiutning á gámafiski. Ólafur sagði að upplýsingar um framboð af gámafiski kæmu á mismunandi tíma frá hinum ýmsu landshlutum og þetta gæti haft það vandamál í för með sér að þeir sem tilkynntu síðast, svo'sem Vestmanneyingar, yrðu helst hindraðir í að flytja út. Hann sagði að hugsanlegt væri að setja útflutningskvóta á skip, en taldi erfítt að binda slíkan kvóta við landsvæði. Jóhannes Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Gámavina sf. í Vest- mannaeyjum, taldi að stjóm á gámaútflutningi gæti komið til greina, en hún ætti þá ekki að vera á hendi LÍÚ. Hugsanlegt væri að fela hana Fiskifélaginu og við- skiptaráðuneytinu, en best væri að hún yrði á vegum útflytjenda sjálfra, það myndi margur vandinn leysast ef útflytjendur hefðu meira samráð. Aðspurður sagði Jóhannes að kvóti á útflutning gámafísks kæmi til greina og þá helst ef hann yrði bundinn við svæði. lögin kynnt yfirmönnum í lögreglu utan höfuðborgarsvæðisins á nám- skeiði í Reykjavík og mun vera aetlast til að þeir annist kynningu til undirmanna sinna heima í hér- aði. Þó sagði Ómar Smári að í ráði væri að sinna eftir föngum öllum óskum sem bæmst frá lögreglulið- um á landsbyggðinni um leiðbein- ingar vegna breytinganna enda ætti varla að þurfa að taka fram að þekking á gildandi lögum er nauðsynleg starfandi lögreglu- mönnum. Hæstiréttur í máli Steingríms Njálssonar: Dæmdur bæði í fangelsi og viðeigandi hælisvist DÓMUR S máli Steingríms Njálssonar, sem ákærður var fyrir kynferðisafbrot gegn þremur ungum drengjum, féll i Hæstarétti i gær. Hæstiréttur dæmdi Steingrím til 9 mánaða fangelsisvistar, en að henni lok- inni skal hann sæta viðeigandi hælisvist i 15 mánuði. Þá var honum gert að greiða 100 þús- und krónur í bætur til drengs og að greiða málskostnað. Ekki er ljóst hvað telst viðeigandi hælisvist, enda em hérlendis ekki sérstök hæli fyrir afbrota- menn. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er þetta í fyrsta sinn sem maður er bæði dæmdur til refsivistar og hælis- vistar. íslenskir dómstólar hafa áður úrskurðað menn, sem tal- ist hafa ósakhæfir, til hælisvist- ar, en i þeim tilvikum hafa menn ýmist dvalist f fangelsi um tima eða verið sendir til útlanda, til dæmis Noregs. Þegar Hæstiréttur tók mál Steingríms fyrir í október var þvf vísað aftur heim í hérað, þar sem dómurinn taldi að héraðsdómar- inn hefði verið vanhæfur. Ástæð- an var sú að hann hafði starfað hjá embætti ríkissaksóknara og mælt fyrir um rannsókn málsins. Mánuði síðar var á ný kveðinn upp dómur, sem hljóðaði upp á 2V2 árs fangelsisvist, en fyrri dómur var 3 ár. Þeim dómi var áfrýjað og í gær kvað Hæstiréttur upp dóm sinn. Steingrímur var sýknaður af einu ákæruatriði, en sakfelldur fyrir tvö. Hann hefur samtals hlotið 23 refsidóma fyrir ýmisleg afbrot og samanlögð refeivist hans er rúm 9 ár. í niðurstöðum réttarins segir, að Steingrímur sé haldinn alvar- legum persónuleikatruflunum, sem komi fram í hömluleysi og lélegri hvatastjóm, þannig að undir áhrifum áfengis virðist hann eiga erfitt með sjálfestjóm. Brot þau, sem ákært sé fyrir, hafi ver- ið framin undir áhrifum áfengis. Ljóst sé að innilokun f fangelsi ein sér hafi ekki haft þau áhrif á ákærða sem skyldi, og sé því mik- ilvægt að hann njóti nauðsynlegr- ar læknismeðferðar til þiess að reyna að vinna bug á áfengissýki sinni og þeim kynferðislega mis- þroska, sem hann sé haldinn. Þvf sé rétt að dæma hann til 15 mán- aða hælisvistar til lækningar, að aflokinni níu mánaða refsivist. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómaramir Magnús Thoroddsen, Guðmundur Jónsson, Guðmundur Skaftason, Guðrún Erlendsdóttir og Hrafn Bragason. Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis- stjóri í dómsmálaráðuneytinu, var inntur eftir því hvað teldist „við- eigandi hælisvist". Hann sagði, að það iægi ekki í augum uppi, en ráðuneytið yrði að reyna að framfylgja dómi Hæstaréttar. „Það hefur verið rætt um nauðsyn þess að koma upp hæli fyrir af- brotamenn hér á landi, en af þvf hefur ekki orðið enn og ég get ekki svarað þvf hvenær það verð- ur,“ sagði Þorsteinn. Dómstólar hér á landi hafa áður úrskurðað afbrotamenn til hælisvistar, en þá hafa þeir verið taldir ósakhæfir og úrskurðurinn verið ótímabundinn, þ.e. hann hefur verið endurskoðaður að ósk tilsjónarmanns afbrotamannsins. Sú hælisvist, sem staðið hefur til boða, hefur yfirleitt reynst vist á Litla-Hrauni, en áður fyrr voru menn sendir á hæli erlendis, til dæmis í Noregi. Þessi dómur Hæstaréttar mun vera einsdæmi, því Steingrímur er talinn sak- hæfur, þar sem hann er dæmdur í fangelsi, en jafnframt dæmir Hæstiréttur hann til 15 mánaða • x •_j: Umlimnolnii

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.