Morgunblaðið - 25.02.1988, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 25.02.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988 59, Ráðhúsið mun fegra Tj örnina Kæri Velvakandi í ráðhúsmálinu, sem svo má nefna, hefur greinilega komið I ljós hversu mikil hræðsla er í fólki við alla nýbreytni í skipulagsmálum. Slík íhaldssemi hefur vissulega ávalt nokkuð til síns máls en hún má ekki ganga of langt. Þegar hugmyndin um ráðhúsbyggingu var fyrst kynnt fyrir fólki fór þegar af stað mótmælaalda sem tiltölulega fáir einstaklingar stóðu fyrir. Eir. aðal röksemdin var að bárujárns- húsið og bílastæðin við norð-austur enda Tjamarinnar mættu ekki missa sig þó augljóslega væru til óprýði. Ef til vill hefur ráðhúsið ekki verið kynnt nógu vel í upphafi og sýnt hversu vel það fellur inn í heild- armynd Tjarnarinnar. Hefði það verið gert myndi mótmælaaldan aldrei hafa farið af stað. Nú hafa allir gert sér ljóst að ráðhúsið mun fegra Tjömina og jafnframt tryggja hreinsun hennar og frekari fegmn um alla framtíð. Vesturbæingur Styðjum Halldór! Ágæti Velvakandi. Fyrir skömmu síðan vann Jóhann Hjartarson skáksnillingur frábæran og eftirminnilegan sigur og vann sig inn í hjörtu okkar íslendinga. Þessa kvöldstund vomm við stolt og hreykin af okkar manni og stondum vörð um hann og veit ég dæmi þess að bæði fyrirtæki og einstaklingar styrktu hann fjár- hagslega og á fjölmörgum árshátí- ðum í borginni þetta föstudags- kvöld safnaðist stórfé honum til handa, til að styðja hann og styrkja til frekari átaka á skákborðinu. Þetta var og er frábært framtak, að fólk skuli bregðast svo skjótt við, vitandi það að bæði hann og Skáksambandið væri illa á vegi statt fjárhagslega, til að standa undir svo fjárfrekum skákþátttök- um. Halldór hefur staðið sig eins og hetja, og getum við verið stolt af honum, aðgerð sú er hann gekkst undir heppnaðist vel, en nú er hann í endurhæfíngu og vonandi að að honum vegni vel. Þetta er gífurleg hvatning fyrir þá sem þurfa að gangast undir slíka uppskurði í framtíðinni. En ekki get ég ímyndað mér að hann og ættingjar hans hafi gengið í gegnum þetta átaka- laust. Hvorki andlega né fjárhags- lega. Stöndum vörð um Halldór. Styðj- um hann. Margt smátt gerir eitt stórt. Þeir sem geta séð af lítilræði til hans geta lagt það inn á hlaupa- reikning 1800 í Sparisjóði Kópa- vogs. Ágústa Gunnarsdóttir Þörungamjöl og hárvöxtur Til Velvakanda Táningur spyr í Velvakanda hinn 6. febrúar: Hvað gétur maður gert til að fá hárið til að vaxa betur? Ráð til þess er einfalt! Fáðu þér þörungamjöl eða þaramjöl frá Þör- ungaverksmiðjunni á Reykhólum og borðaðu eina matskeið kúfaða á hverjum degi næstu árin. Gott í súrmjólk eða jógúrt og hræra skal vel samanvið. Og undir engum kringumstæðum gefast upp þótt bragðið falli ekki vel. Hafragraut má einnig hafa í grunnmáltíð og blanda mjölinu í en forðast skal mikinn sykur. Reyk- hólaverksmiðjan getur tryggt hár- vöxt allra íslendinga sem á annað borð geta orðið hærðir. Þörunga- mjöl tryggir einnig góðar neglur. Gangi þér vel, táningur. Jónas Pétursson Greenpeace-Sea Shephard: Hleypum öfga- mönnum ekki inn í landið Til Velvakanda Nú þegar öfgamenn innan Greenpeace eru byijaðir á áróðurs- herferð gegn íslenskum hagsmun- um vil ég skora á Dómsmálaráðu- neytið að sjá svo um að fólk sem er vegum þessara öfgasamtaka fái aldrei að stíga á íslenska grund. Enda ástæðulaust að hleypa fólki inn í landið sem vinnur gegn hags- munum okkar. Ég veit að þessi samtök svífast einskis og dæmi um það er þegar þau eyðilögðu tekju- lind sem Grænlendingar höfðu af selskinnum. Síðan viðurkenndu samtökin að það Hefðu verið mistök. Ef það er til fólk sem styður þessi samtök þá hlýtur maður að álíta að það sé á móti íslenskum hagsmunum. Forkastanlegt er að samkomuhús skuli leggjast svo lágt að leigja sali sína öfgasamtökum sem þessum. Vonandi verður það ekki endurtekið. Ég veit að ef þessi samtök fá stuðning hér á landi þá vilja þau næst banna þorskveiðar. Kristinn Sigurðsson En í sambandi við þetta langar mig að vekja athygli á drengnum sem nýlega gekkst undir erfíðan hjarta- og lungnaskurð, fyrstur ís- lendinga. Það er nú bara staðreynd að rikissjóður bregst í mörgum til- fellum, en það er svo ríkt í okkur íslendingum að vilja aðstoða þá sem eiga í erfiðleikum, og líka þá sem skara fram úr á einhveiju sviði. Ódrengi- legt verk Til Velvakanda Þegar ég var búinn að lesa um þann fljótfæmislega og ódrengilega atburð þegar Sigurbjöm Þorleifsson bóndi í Langhúsum við Haganesvík skaut til bana saklausan hvítabjam- arhún kom það fram í hug minn að mannskepnan er, þótt svo að undantekningar séu til sem betur fer, versta skepna jarðarinnar. Á þessu máli var til einföld lausn. Það var að skjóta svæfingarefni í dýrið og flytja það síðan til sinna réttu heimkynna en það er hvorki löng eða erfið ferðaleið á þessari tækni- öld. HEILRÆÐI Skipstj ór narmenn Verið ávallt minnugir ábyrgðar ykkar á öryggi skipveija. Sjáið um að öll öryggistæki séu í lagi og að hver einasti skipveiji kunni með- ferð þeirra og viti hvemig og hvað hann eigi að gera á neyðarstundu. BÆTIÐ HEILSUNA MEÐ INNHVERFRIÍHUGUN Rannsókn, sem nýlega birtist f hinu virta lækna- tímariti „Psychosomatic Mcdicine", sýndi að þeir, sem iðkuðu íhugunartækni Maharishi, Innhverfa íhugun (Transcendental Meditation), leituðu 44% sjaldnar til læknis en aðrir og voru 53% sjaldnar lagð- ir inn á sjúkrahús. Munurinn var enn meiri hjá þeim sem voru eldri en 40 ára. Þeir leituðu 74% sjaldnar til læknis og lögðust 69% sjaldnar inn á sjúkrahús. Nýtt namskeið hefst með kynningu í kvöld, fimmtudag í Garðastræti 17 (3. hæð) kl. 20.30. íslenska íhugunarfélagið, sími 16662. Herraleikfími HEILSURÆKTIN SÓLSKIN, SÍM146055 Uaufa, TC BJORNINN HF Borgartún 28 — sími 621566 Reykjavík VARA: U VER síma 621566 Og nú erum við í Borgartúni 28 l Þorgeir Kr. Magnússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.