Morgunblaðið - 25.02.1988, Blaðsíða 60
-.60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988
STJÓRNUN ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKJA 2.3.
innmtun m 29.FEB. HAGKVÆMUR REKSTUR NÆST Á ANNAN HÁTT í ÞJÓNUSTU EN í FRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKJUM. EFNI: Þjónustuhugtakið • Greining á markaðnum • Kostnaðaruppbygging þjónustufyrirtækja • Þáttur starfsfólks í þjónustufyrirtækjum • Stjórnun - hlutverk stjórnenda. LEiÐBEiNENDUR: Gísli S. Arason rekstrarhagfræðingur og lektor við Háskóla Islands og Jóhann Magnússon viðskiptafræðingur, en þeir eru eigendur rekstrar- ráðgjafafyrirtækisins Stuðuls hf. TÍMI OG STAÐUR: 2. og 3. mars kl. 8.30-17.30 að Ánanaustum 15. rmnkí «1 _ t /f 7
SÍMI: 621066 /
a _ • _ Reuter
Heimsmet
Hollenska stúlkan Yvonne van Gennip setti heimsmet í 3.000 metra skauta-
hlaupi, fékk tímann 4:11,94 mínútur og hlaut gullverðlaunin á vetrarólympíu-
leikunum. Stúlkur frá Austur-Þýskalandi höfnuðu í næstu þremur sætum;
Andrea Ehrig hlaut silfrið (4:12,09), Gabi Zange bronsið (4:16,92) og Karin
Kania varð að láta sér nægja fjórða sætið, fékk tímann 4.18,80 mínútur.
- sagði Bestemianova eftir sigurinn í ísdansi
„VIÐ höfum öll þrjú lagt mikið
á okkur til að ná þessu tak-
marki. Okkur tókst það sem við
œtluðum okkur,“ sagði Natalia
Bestemianova eftir sigurinn í
ísdansi. Hún og Andrei Bukin
hafa verið dansfélagar í 11 ár,
þrisvar hampað heimsmeistar-
atitli, fimm sinnum heims-
meistaratitli og nú ólympíutitli,
en þjálfari þeirra er Tatiana
Tarasova.
Reuter
Gulldans
Andrei Boukine og Natalia Bestemianova frá Sovétríkjunum sigruðu í ísdansi. Þau hafa verið dansfélagar í 11 ár og
eru einnig Evrópu- og heimsmeistarar.
Sovéska parið var sigurstrang-
legast fyrir keppnina og voru
margir á því að þeim hefði verið
dæmdur sigurinn fyrirfram, en
20.000 áhorfendur kunnu engu að
síður vel að meta snilli þeirra. Þrisv-
ar fengu þau hæstu mögulegu ein-
kunn (6,0), flestar voru mjög háar,
en ein var áberandi lægst — hjá
vestur-þýska dómaranum. „Hvaða
máli skiptir ein einkunn fyrst við
sigruðum," sagði Bestemianova
aðspurð um stigin.
Marina Klimova og Sergei Ponom-
arenko, einnig frá Sovétríkjunum,
hlutu silfurverðlaunin og Tracy
Wilson og Robert McCall frá
Kanada höfnuðu í þriðja sæti.
STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKIR FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í ÞESSU NÁMSKEIÐI.
Stjórnunarfélag Islands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
„Okkur tókst
þaðsem við
ætluðum
okkur"