Morgunblaðið - 25.02.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR <25. FEBRÚAR 1988
45
Bifreiðaeftirlitið og séra Jónar
eftirKarlG.
*
Asgrímsson
Til er gamalt orðatiltæki, þar sem
segir, að ekki sé sama Jón eða séra
Jón. Þetta orðatiltæki mun vera frá
þeim tíma þegar almenningur var
óupplýstur og fyrirmenn og prestar
eða með öðrum orðum Séra Jónar
voru álitnir nánast guðlegar verur,
sem ekki þurftu að fara að lögum
og reglum og þeirra orð og gerðir
voru lög, enda breyttu þeirra tíma
séra Jónar samkvæmt því og fóru
sínu fram og komust upp með það.
Það mætti halda að tímar séra
Jóna væru liðnir, en því miður er
svo ekki að því er varðar Bifreiða-
eftirlit ríkisins, en þar virðast séra
Jónar ríkja sem á miðöldum og oft
lítt hugsað um lög og reglur þegar
tilskipanir og fyrirmæli eru gefin
um störf, sem starfsmenn Bifreiða-
eftirlitsins eiga að framkvæma, eða
hvemig má það vera að mörg und-
anfarin ár hafa 11., 12., 13. og 14.
greinar núgildandi umferðarlaga
verið marbrotnar af forystu Bif-
reiðaeftirlitsins og þeir alltaf komist
upp með það, en í þessum greinum
umferðarlaga er sagt að lögreglu-
stjórar skuli annast skráningar,
umskráningar, útgáfu skráning-
arskírteina og afhenda skráningar-
númer ökutækja, en þessi störf
hafa bifreiðaeftirlitsmenn orðið að
annast á undanfömum árum.
Er þetta ekki eitthvað í líkingu
við_ séra Jón?
í 15. grein núgildandi umferðar-
Karl G. Ásgrímsson
„Og er það von mín að
dómsmálaráðherra,
sem yfirmaður umferð-
armála noti tæklfærið
með nýjum umferða-
lögum og haf i heimil á
„séra Jónum“ meðal
þeirra, sem eiga að sjá
um framkvæmd nýju
laganna.“
laga segir: Sérstök stofnun, Bif-
reiðaeftirlit ríkisins, er lýtur yfír-
stjóm dómsmálaráðherra, annast
skoðun og eftirlit ökutækja. Sam-
kváemt þessari grein á Bifreiðaeftir-
litið að annast eftirlit með ökutækj-
um ásamt venjulegri skoðun, og
hlýtur þama að vera átt við eftirlit
með ökutækjum í umferðinni, en
ekki bara skoðun á skoðunarplani,
enda var það svo á fyrstu áratugum
Bifreiðaeftirlitsins að mestur tími
og vinna bifreiðaeftirlitsmanna var
við ökutækjaeftirlit í umferðinni þar
sem þeir voru ýmist með lögreglu
eða ekki.
Árið 1987 markar tímamót í sögu
Bifreiðaeftirlitsins, en í febrúar það
ár var settur eða ráðinn fram-
kvæmdastjóri að Bifreiðaeftirlitinu
og mun hann hafa verið settur eða
ráðinn samkvæmt umferðarlögum,
sem eiga að taka gildi 1. mars 1988.
Framkvæmdastjóri þessi gaf út til-
skipun vorið 1987 undir nafninu:
„Rekstrarátak 1987“, um að hætta
öllu ökutækjaeftirliti í umferðinni,
nema það félli inní dagvinnutíma-
bil. Nú var það vitað fyrir að um-
ferðin er ekki bara á dagvinnutíma-
bilinu og bifreiðaeftirlitsmenn voru
bundnir við almenna skoðun og
ökupróf á þessu tímabili, og þýddi
þessi tilskipun því það sama og
hætta öllu eftirliti bifreiðaeftirlits-
manna með ökutækjum í umferð-
inni og var þama verið að banna
bifreiðaeftirlitsmönnum að fram-
fylgja ákvæðum 15. greinar um-
ferðarlaga.
Er þetta ekki eitthvað í líkingu
við séra Jón?
Eins og alþjóð veit urðu deilur
milli starfsmanna og forystu í Bif-
reiðaeftirlitinu vorið 1987 eftir
vafasamar tilskipanir stjórnar
„Rekstrarátaks 1987". Deilu þess-
ari lauk með samningum og fólst í
þeim m.a. að starfsmenn Bifreiða-
eftirlitsins fengu fulltrúa í stjóm
„Rekstrarátaks 1987“ og var for-
maður félags íslenskra bifreiðaeft-
irlitsmanna kjörinn í stjóm þessa.
Ekki hafa stjómendur Bifreiðaeftir-
litsins staðið við það sem samið var
um og fulltrúi starfsmanna í stjórn
„Rekstrarátaks 1987“ hefur aldrei
verið boðaður á fund þar.
Er þetta ekki eitthvað í líkingu
við séra Jón?
Þegar líða tók á árið 1987 og
bifreiðaeftirlitsmenn fórp að gerast
órólegir vegna vanefnda á sam-
komulaginu, sem gert var í áður-
nefndri deilu, fóru að gerast undar-
legir atburðir.
Allt í einu fáum við bifreiðaeftir-
litsmenn þær fregnir að formaður
okkar félags og fulltrúi í stjóm
„Rekstrarátaks 1987“ hjá Bifreiða-
eftirlitinu, er hættur störfum fyrir-
varalaust og er settur lögreglumað-
ur hjá lögreglu Kópavogskaupstað-
ar, en þar mun engin staða lög-
reglumanns hafa verið laus fyrir
og virðist þetta gert til að lama
samtakamátt starfsfólksins, eða
hvað?
Er þetta ekki eitthvað í líkingu
við séra Jón?
Þessi atriði, sem ég hef nefnt
hér eru kannski ekki hvert um sig
stórmál, en margt smátt gerir eitt
stórt.
Þessa dagana er verið að birta
tillögur nefndar um framtíð Bif-
reiðaeftirlitsins og kemur þar fram
sú tillaga að leggja Bifreiðaeftirlit
ríkisins niður og láta hlutafélag,
sem yrði myndað af ríkinu, bifreiða-
innflytjendum, bifreiðaeigendum,
bifreiðaviðgerðarmönnum og
tryggingarfélögum annast skoðun
ökutækja. Er það ekki óraunhæft
að fela þessum aðilum, sem eiga
þama fjárhagslegra hagsmuna að
gæta, að annast eftirlit með eigin
tækjum og vinnu? Um síðustu ára-
mót voru öll skoðunargjöld hjá Bif-
reiðaeftirlitinu stórhækkuð og tekin
upp ýmis ný auka- og endurskoðun-
argjöld, og nú þegar heyrast raddir
um að stofna hlutafélag um skoð-
un. Vaknar sú spuming hvort sam-
band sé þama á milli, en verið að
tryggja stórgróða hjá nýju félagi?
Er þetta eitthvað í líkingu við
séra Jón?
Nú þegar þessi grein birtist eiga
ný umferðarlög að taka gildi eftir
nokkra daga eða hafa þegar tekið
gildi og em þau að ýmsu leyti frá-
bmgðin þeim gömlu, og er það von
mín að dómsmálaráðherra, sem
yfírmaður umferðarmála noti tæki-
færið með nýjum umferðarlögum
og hafí hemil á „séra Jónum“ með-
al þeirra, sem eiga að sjá um fram-
kvæmd nýju laganna, því hvemig
er hægt að láta þá sem ekki fara
að lögum sjá um framkvæmd og
eftirlit með þeim.
Höfundur er bifreiðaeftirlitsmað-
ur.
Eróbik - leikfimi
Heilsuræktin Sólskin, sími 46055.
Námskeið hefjast 1. mars
15% afsláttur fyrir skólafólk.
GE\SV-^^7. ox/ÉUA^
EM TIL ÞA
MILLTEXinnimálning með7eða20%gljáa-BETT vatnsþynnt plastlakk
meö 20 eða35% gljáa - VITRETEX plast- og mynsturmálning -
HEMPELS lakkmálning og þynnir- CUPRINOLfúavarnareíni,gólf-og
húsgagnalökk, málningaruppleysir ofl. - ALCRO servalakk og spartl -
MARMOFLOR gólfmálning - BREPLASTA spartl og fylliefni - Allar
stærðir og gerðir afpenslum, rúllum, bökkum, límböndum ofl.ofl.
Kynnið ykkur verðið og fáið góð ráð í kaupbæti.
venHctoy viA&alcí eUptfi
Litaval
SÍÐUMÚLA 32 SÍMI 68 96 56