Morgunblaðið - 25.02.1988, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988
raðauglýsingar — raðauglýsingar
Ármannsfell ht.
Húsnæði óskast
Óskum eftir að leigja litla íbúð fyrir erlendan
starfsmann okkar. Góðri umgengni og
skilvísum greiðslum heitið.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni í síma
83599.
kenns/a
Barnanámskeið ítáknmáli
Næstkomandi mánudag, 29. febrúar, hefst
3ja vikna námskeið í táknmáli heyrnleysingja
fyrir börn á aldrinum 7-10 ára. Kennt verður
3 síðdegi í viku, mánudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga, frá kl. 16-18 í Heyrnleysingja-
skólanum við Vesturhlíð.
Innritun fimmtudag, föstudag og mánudag í
síma 16750 frá kl. 09-14.
Félag heyrnarlausra,
Heyrnleysingjaskólinn,
Foreidra- og styrktarfélag heyrnadaufra.
tilkynningar
Kynning
á skipulagi ráðhúsreits í Reykjavík
Að tilmælum félagsmálaráðherra hefur borg-
arráð Reykjavíkur samþykkt að fram fari við-
bótarkynning á skipulagi ráðhúsreits í
Reykjavík.
Kynning þessi verður hjá Byggingaþjón-
ustunni, Hallveigarstíg 1, frá föstudeginum
26. febrúar til föstudagsins 25. mars 1988
og verða uppdrættir og önnur fylgigögn al-
menningi þar til sýnis. Opið verður mánud.
til föstud. frá kl. 10 til 18. Athugasemdum
skal skila skriflega til Borgarskipulags
Reykjavíkur, Borgartúni 3, eigi síðar en kl.
16.15 föstudaginn 25. mars nk.
Reykjavík, 23. febrúar 1988.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
tifboð — útboð
Útboð
Hagvirki hf. óskar eftir tilboði í raflagnir í fjöl-
býlishús og bílgeymslu við Álagranda 6,
Reykjavík. Utboðsgögn verða afhent á skrif-
stofu Hagvirkis á Höfðabakka 9, Reykjavík,
gegn 5000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudag-
inn 4. mars 1988 kl. 11.00.
HAGVIRKI HF
SÍMI 53999
húsnæði í boði
Ártúnshöfði
Til leigu á Ártúnshöfða 1400 fm húsnæði á
jarðhæð. Hentugt sem vörugeymsla eða iðn-
aðarhúsnæði. Góð aðkeyrsla. Tilboð skilist
til auglýsingad. Morgunblaðsins fyrir 1. mars
merkt: „Húsnæði — 12506“.
Til leigu
Virðulegt einbýlishús með húsgögnum.
Vel staðsett miðvæðis í borginni. 3ja her-
bergja séríbúð á jarðhæð. Leigutími allt að
5 ár eða eftir samkomulagi.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„T - 3565“.
Skrifstofuhúsnæði
Höfum til leigu 275 fm skrifstofuhúsnæði
með sérinngangi. Góð bílastæði. Laust strax.
Upplýsingar gefur Guðni Jónsson í síma
46600 á daginn og 689221 á kvöldin.
Skemmtistaður til leigu
Til leigu er góður skemmtistaður með vínveit-
ingaleyfi. Hagstæð leiga.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 4.
mars merkt:„S - 4483“.
Hótel til sölu
Til sölu er eignarhluti Ólafsvíkurkaupstaðai
í Hótel Nes (Sjóbúðum hf.) Ólafsvík. Um er
að ræða aðgang að 5 tveggja manna her-
bergjum af 38 á hótelinu og telst eignarhluti
Ólafsvíkurkaupstaðar vera 13,16% af eign-
inni allri. Hlutur bæjarins'getur selst í heilu
lagi, þ.e. öll 5 herbergin eða færri eftir sam-
komulagi. Brunabótamat eignarhluta bæjar-
ins er kr. 6,5 millj.
Tilboð í eignarhlutann sendist fyrir 20. mars
nk. til Ólafsvíkurkaupstaðar, Ólafsbraut 34,
355 Ólafsvík.
Bæjarstjórinn í Ólafsvík.
Kristján Pálsson.
Trésmíðavélar
Seljum Sígar S900 fræsara með sleða og 8
hraða framdrifi ásamt fylgihlutum.
40 cm þyktarhefil. Síta bandslípivél, raf-
magnsdrifinn stilling og útblástur.
Vélarnar eru í mjög góðu ásigkomulagi.
Upplýsingar í síma 53360 á daginn og símum
52547 og 52025 á kvöldin.
Fiskiskip
Höfum til sölu ma. 29 rúmlesta frambyggðan
stálbát 1970 með 220 hestafla Volvo-Penta
vél 1984. 22 rúmlesta eikarbát 1975 með
235 hestafla Volvo-Penta vél 1985. 14 rúm-
lesta eikarbát 1971 með 180 hestafla Scan-
ia-Vabis vél 1981.
SKIPASALA-SKIPALEIGA,
JÓNAS HARALDSSON/LÖGFR. SÍML 29500
Til bygginga
og á verkstæðið
Hunnebeck-steypumót, loftastoðir og lofta-
bitar. Spónsugukerfi, 10 hestafla mótor og
Kamro-plötusög með hallandi blaði o.fl. o.fl.
Upplýsingar í símum 94-7731 og 94-7637.
Til leigu
í Templarasundi 3, gegnt Alþingi, 80 fm
skrifstofuhúsnæði á 2. hæð.
Upplýsingar veittar í síma 20160 milli kl.
13.00-18.00.
Grindavík
Til sölu glæsilegt raðhús í Grindavík. Húsið
er að heita fullbúið. Verð 2,8 millj.
Upplýsingar í síma 92-68294.
Fiskverkun
Til sölu iðnaðarhúsnæði, 216 fm, í Grindavík.
Mesta lofthæð 5,5 m. Verð 3350 þús.
Upplýsingar í síma 92-68294.
| fundir — mannfagnaðir \
Árshátíð öldungadeildar
Menntaskólans við
Hamrahlíð
Nú ætlum við að halda árshátíð í fyrsta sinn
og gerist það þann 5. mars nk. í Fóstbræðra-
heimilinu, Langholtsvegi 109, og hefst kl.
19.00 stundvíslega. Miðaverð kr. 1.800,-
Allir nemendur öldungadeildar MH, fyrr og
síðar, eru velkomnir og sérstaklega hvetjum
við fyrrverandi nemendur til að koma og
endurnýja gömul kynni.
Allar upplýsingar veittar í símum 21597 (Anna),
43774 (Sigurbjörg) og 20602 (Margrét).
FLUGMÁLASTJ ÓRN
Flugmenn
-flugáhugamenn
Fundur um flugöryggismál verður haldinn í
ráðstefnusal Hótels Loftleiða í kvöld og hefst
kl. 20.00. Þessi fundur verður í umsjá Vélflug
deildar Flugmálafélags íslands.
Allir velkomnir.
Fundarboðendur.
Álftnesingar
Aðalfundur Sjálfstæðisfólags Bessastaðahrepps verður haldinn á
Bjarnastöðum fimmtudaginn 25. febrúar kl. 20.00.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður kynnt nýtt deiliskipulag fyrir
miðbæjarsvæðið. Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sór nýja félaga.
Stjórnin.
IIFÍMDAI I.UR
Opið hús
Heimdallur gengst fyrir opnu húsi i neðri deild Valhallar föstudaginn
26. febrúar kl. 21.00. Léttar veitingar á boðstólum að vanda. Dans-
að fram á nótt. Allir ungir sjálfstæðismenn eru hvattir til að mæta.
Stjórnarmenn úr SUS verða á staðnum fjallhressir.
Nefndin.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboði, Hafnarfirði
efnir til leikhúsferðar sunnudaginn 6. mars nk. að sjá „Síldin kem-
ur". Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Arnbjargar, simi 52895 og
Stefaníu, sími 54524 fyrir 1. mars. Stjórnin.
pK|! Litið á varnarliðið
Týr FUS í Kópavogi
Nk. laugardag 27. febrúar fer skólanefnd Týs i skoðunarferð til
Keflavíkurflugvallar og litur á aðstöðu vamarliösins þar. Friðþór Eydal,
blaðafulltrúi varnarliðsins, tekur á móti Týsfélögum og gestum þeirra
og heldur stuttan fyrirlestur um sögu og starfsemi varnarliðsins.
Siðan verður farið i skoðunarferö um svæðið og staldrað við hjá
kafbáta- og björgunarsveit varnarliðsins. Lagt verður af stað frá
Hamraborg 1 kl. 12.00, en komið til baka milli kl. 16.00 og 17.00.
Skólanefnd Týs.