Morgunblaðið - 25.02.1988, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 25.02.1988, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988 58 -- // pau hIjómci öLL eins í rn'mum eyrum., eftir 30 ára starf-" ) % ... að færa henni hlóm. TM Rea. U.S. Pat. Otf.—all rights reserved °1984 Los Angeles Times Syndicate En bróðir, skrifaðir þú bréf tíl makalausa-félags- ins? Aðeins þetta að lokum: Ég minni á fjársöfnunina til viðgerðarinnar á þak- inu... Þessir hringdu . . Silfurhringur Útskorinn silfurhringur með litlum svörtum steini tapaðist á leiðinni frá veitingahúsinu Evrópu upp Nóatúnið að Miðtúni aðfaranótt sl. sunnudags. Vinsamlegast hringið í síma 14428. Kamelullarkápa Ljósbrún kamelullarkápa, stærð 42, var tekin í misgripum í Leikfélagsskemmunni fimmtudaginn 18. febrúar. Önnur eins en minni og með leðurbryddingum var skilin eftir. Upplýsingar í síma 99-1555. í fjarlægð Síðastliðinn laugardag birtist í Velvakanda ljóðið í fjarlægð og mun ^ekki hafa verið alls kostar rétt. Asta Sigurðardóttir hringdi og sagði orð röng á þremur stöð- um. Samkvæmt hennar upplýs- ingum er ljóðið rétt svona: Þig sem í Qarlægð fjöllin bakvið dvelur og fagrar vonir tengdir hug minn við. Minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar, er horfnum stundum ljúfum dvel ég hjá. Heyrir þú ei hvem hjartað kallar á? Heyrirðu storminn kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina sem aldrei deyr á meðan lífs ég er. Seðlaveski Brúnt seðlaveski tapaðist fimmtudaginn 18. febrúar, annað hvort við Suðurver eða á Guðrúnargötu. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í Steinunni í síma 36746. Fundarlaun. Af hveiju fá sumir frítt í Háskólabíó? Kristján Ólafsson hringdi: „Á öskudag lagði ég leið mína í Háskólabíó til að sjá kvikmyndina Hættuleg kynni. Þegar ég stóð í biðröðinni við miðasöluna rétt fyrir klukkan 17 varð ég vitni að því að stúlkan í miðasölunni hljóp til dyravarðarins og fylgdi henni ungt par, sem var næst á undan mér í röðinni. Var parinu hieypt inn og ástæðan fyrir úthiaupi miðasölustúlkunnar sögð sú að parið átti að fá frítt inn. Þegar ég spurði dyravörðinn hvers vegna parið fengi frítt inn yppti hann öxlum en sagði það vera tengt forstjóranum. Þetta vil ég kalla sukk af hálfu ríkisins því Háskólabíó er jú ríkisbíó. Sætti ég mig ekki við þessa mismunun þeganna þegar ríkið á í hlut og krefst skýringa af hálfu forráðamanna bíósins. Hefði ég haldið að eitt ætti yfir alla að ganga." Kvóta á bílainnflutning Kristín Sigurðardóttir hringdi: „Víkveiji talar um það í pisli sínum að ljósin við Lækjargötu te§i umferðina og það gera auð- vitað öll umferðarljós hvar sem þau eru. En það ætti að vera hægt að setja kvóta á blikkbelj- umar eins og annað og draga þannig úr bílafarganinu." Veski Grátt seðlaveski tapaðist á mánudagskvöld annað hvort fyrir utan Bíóhöllina í Reykjavík eða fyrir utan Hraunbrún 24 í Hafnarfirði. í veskinu voru litlir peningar en ökuskírteini og persónulegir munir, sem eiganda er sárt um. Finnandi vinsamlegast hringi í Fríðu Sjöfn í síma 616342. Góður upplestur A. J. hringdi: „Á sunnudagskvöld horfði ég á Amar Jónsson lesa ljóðið Ský í buxum eftir sovézka skáldið Vladímír Majakofskí. Upplesturinn var áhrifamikill og sjaldan hef ég heyrt ljóð eins vel lesið. Vildi ég að sjónvarpið gerði meir af þessu." Göngubraut meðfram flugbraut Göngumaður hringdi: „Eg legg til að borgin eða flugmálayfírvöld leggi gönguleið meðfram flugbrautinni, sem skagar út í Skerjafjörð, þannig að ganga megi óhindrað úr Nauthólsvík og vestur með ströndinni. Eins og stendur er leiðin girt og finnst mér það ástæðulaust. Gera mætti gönguleið á uppfyllingu brautarinnar þannig að göngumenn þurfi ekki að fara upp á flugbrautina." Bakkastæði Kona hringdi: „Fólk sem þarf að nota Bakka- stæði veltir því fyrir sér fyrir hvað það borgar þijúþúsund krónur á rhánuði. Það er ekki mokað þegar snjóar og hefur verið eitt svell en þar sem myndast hafa för eftir bíla myndast vötn þegar hlýnar. Það er almenn óánægja yfir þessu hjá fólki sem er tilneytt að nota þetta stæði vegna þess að það vinnur í Miðbænum. Mér er spum, fyrir hvað er verið að borga? Von- ast eftir svari.“ HÖGNI HREKKVÍSI Víkveiji skrifar au em mörg íslandsmetin og það nýjasta las Víkveiji um í einu Eyjablaðanna á dögunum. Þar í bæ hafa nú um 900 manns keypt sér afmglara eða lykil að Stöð 2. Þessi fjöldi mun nema tæplega 60% af íbúum í Vestmannaeyjum. Þjón- ustustjóri Stöðvar 2 segir að þama sé um íslandsmet að ræða og að þeir Stöðvarmenn séu í skýjunum yfír viðbragðsflýti Eyjamanna. Tæpt ár er liðið síðan Vestmanney- ingar gátu fyrst náð sendingum Stöðvar 2. í Eystrahorni, blaði Homfirðinga og Skaftfellinga, kveður hins vegar við annan tón. Þar em menn óhress- ir með að ná ekki sendingum Stöðv- ar 2. Bent er á að stærri staðir á norðanverðum ' Austfjörðum séu komnir í samband, en fátt bendi til að Homfirðingar nái Stöð 2 á næst- unni. Þeir em óhressir með þetta og segja. auk þess að þeir „sitji uppi með, miklu verra ríkissjónvarp en áður og engan valkost". XXX Víkveiji flettir dönsku blöðunum endmm og sinnum og á dögun- um rakst hann á frétt um stofnun sjóðs í Danmörku sem á að beijast gegn fjölmiðlahremmingu eða of- sóknum („mediaterror" kalla þeir það á dönskunni). Formaður sam- takanna, sem standa að sjóðsstofn- uninni, segir frá því, að persónulega hafi stofnendurnir enga reynslu af þeirri tegund fréttamennsku sem nærist á hneykslum. Hins vegar viti þeir um marga sem telji sig hafa verið misnotaða og formaður- inn nefnir sérstaklega B. T. og Ekstra Bladet. I frétt blaðsins segir formaðurinn hið alvarlegasta við þetta að „hneysklisfréttamennskan“ virki sem hindmn á tjáningarfrelsið. Það endi með því að fólk neiti að tjá sig í rjölmiðlum af ótta við að verða fyrir aðkasti. XXX 0 Ivikubyijun þegar Víkjveiji var að setja þessar línur á blað, og var með dönsku úrklippuna á skrif- borðinu, kom reyndur blaðamaður til skrifara. Um leið og hann settist dæsti hann og lýsti því að fyrra bragði, hvað sér virtist margt vera að breytast í blaðamennskunni. Stór hópur fólks virtist orðinn ragur við að tjá sig í fjölmiðlum og sagðist þá ekki eiga við spjallþætti á út- varpsrásunum. Sagðist hann ekki vilja dæma fjölmiðlana og segja til um hvort þeir hefðu breyst til hins verra með fjölguninni, en sér virtist sem fólk treysti þeim verr en áður. Er Víkveiji sýndi honum dönsku úrklippuna varð maðurinn hugsi og sagði síðan að löngu væri orðið tímabært að i'slenzkir blaða- og fréttamenn athuguðu sinn gang.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.