Morgunblaðið - 25.02.1988, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988
Leikfélag
Hafnarfjarðar:
Sýnir Emil
í Kattholti
SAGAN ura Emil í Kattholti, hrek-
kjalóminn úr Smálöndum, verður
frumsýnd í Bæjarbíói um miðjan
marsmánuð. Nú standa yfir æf-
ingar á leikgerð Leikfélags Hafn-
arfjarðar, gerðri eftir sögu
Astridar Lindgren á þessari sívin-
sælu sögu en þýðinguna gerði
Vilborg Dagbjartsdóttir.
Leikstjóri er Viðar Eggertsson en
með aðalhlutverkin; Emil og Idu,
fara Haraldur Freyr Gíslason og
Katrín Sigurgeirsdóttir. I frétt frá
leikfélaginu segir að ekki saki að
heimilisfólkið í Kattholti sé söng-
glatt svo oft sé lj'örugt á bænum.
Fimm manna hljómsveit tekur þátt
í sýningunni og er Jón Björgvinsson
stjómandi hennar. Sýningar verða í
Bæjarbíói um helgar.
Morgunblaðið/BAR
Anna María Valdimarsdóttir og Jóhanna Walderhaug hafa haft hendur í hári nokkurra fastavið-
skiptavina Aðalrakarastofunnar.
Með hendur í hári viðskiptavina
Eigendaskipti urðu um síðustu mánaðarmót á
Aðal-Rakarstofunni, Veltusundi 1 og heitir hún
nú Hendur í hári. Nyr eigandi hennar er Anna
María Valdimarsdóttir, hárskurðarmeistari.
Veitt er alhliða hársnyrtiþjónust á stofunni.
Rakarastofan var áður í eigu Guðjóns Jónssonar,
rakarameistara. Aðspurð sagði Anna að þó nokkuð
væri um að viðskiptavinir Guðjóns hefðu komið í
klippingu þó óneitanlega hrykkju sumir þeirra í kút
þegar þeir sæju breytingamar sem gerðar hefðu
verið á stofunni.
Anna lauk meistaraprófi frá rakarastofunni í Eim-
skipafélagshúsinu á síðasta ári og starfaði nú síðast
á Hár-gallerí. Einnig starfar á stofunni Jóhanna
Walderhaug en hún lýkur sveinsprófi í haust.
Selfoss:
Yerkaskipting ríkis
og sveitarfélaga hag-
stæð til lengri tíma
Selfossi.
BÆJARSJÓÐUR Selfoss mun
að öllum líkindum hagnast til
lengri tíma litið verði fyrirliggj-
andi frumvarp um verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga að
lögum. Þetta kemur fram í nið-
urstöðum athugunar Karls
Björnssonar bæjarsljóra á
áhrifum frumvarpsins gagnvart
Selfossi. Þessi athugun var lögð
fram á síðasta bæjarsljórnar-
fundi og kynnt þar.
A þessu ári verður bæjarsjóður
fyrir um 10 milljóna útgjaldaauka
verði frumvarpið að lögum, vegna
þess að ríkið hættir stuðningi við
byggingu félagsheimila, íþrótta-
mannvirkja og dagvistarheimila. A
hinn bóginn getur bæjarsjóður átt
von á 24,5 milljóna greiðslum frá
uppgjörsdeild jöfnunarsjóðs sveit-
arfélaga á árunum 1988 til 1991.
í athugun bæjarstjóra varðandi
rekstur kemur fram að ef allar
tillögur varðandi verkaskiptinguna
kæmu til framkvæmda í ársbyrjun
1988 hagnast bæjarsjóður um
rúmar 19 milljónir. En vegna
lækkunar á framlögum í jöfnunar-
sjóð sveitarfélaga yrði nettóhagn-
aður Selfoss nokkni lægri eða um
15 milljónir á ári. I þessari athug-
un er miðað við upphæðir úr fjár-
hagsáætlun fyrir þetta ár.
Við mat á áhrifum breytinga á
stofnkostnaðarþátttöku ríkis og
sveitarfélaga vegur þyngst að
þátttaka Selfoss í byggingu fjöl-
brautaskóla fellur niður, einnig í
byggingu Sjúkrahúss Suðurlands
og byggingu dagvistarheimilis.
Þátttaka félagsheimilasjóðs vegna
byggingar Ársala, sem að hluta
eru fokheldir, mun tapast svo og
50% þátttaka ríkisins í byggingu
grunnskóla.
Niðurstöður bæjarstjóra eru
þær, að á þessu ári muni bæjar-
sjóður verða af 10 milljónum króna
vegna kostnaðarþáttöku frá ríkinu
miðað við fyrirliggjandi fjárlög og
frumvarp frá ríkisstjóminni. Allar
líkur bendi hins vegar til þess að
þegar til lengri tíma er litið muni
Selfoss hagnast á verkaskipting-
unni.
Karl Bjömsson bæjarstjóri
bendir á að það skipti vemlegu
máli í þessu sambandi að jöfnunar-
sjóður verði óskertur og að lögum
um hann verði ef til vill breytt
þannig að hann verði fast hlutfall
af tekjum ríkissjóðs sem þýðir að
skattkerfisbreytingar hefðu ekki
áhhrif á tekjur jöfnunarsjóðsins.
Einnig bendir bæjarstjóri á að
mikilvægt sé að allar tillögur
nefnda varðandi verkaskiptinguna
komi til framkvæmda samtímis og
eigi síðar en 1. janúar 1989 en
verði ekki skipt í fleiri áfanga,
hugsanlega með neikvæðum af-
leiðingum fyrir Selfoss. Hann
minnir á að í fyrirliggjandi fmm-
varpi sé talað um fyrsta áfanga í
þessari heildarendurskoðun
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga og að sá áfangi leiði til tekj-
utaps fyrir Selfoss. Lokaorð bæj-
arstjóra em:
„Krafa Selfossbúa hlýtur að
vera sú að næsti áfangi, eða seinni
áfangi að breyttri verkaskiptingu,
leiði til tekjuauka fyrir Selfoss.
— Sig. Jóns.
Kumbaravogur opnar dval-
arheímilíð Fell í Reykjavík
Rými fyrir 30 einstaklinga við Skipholt
DVALARHEIMILIÐ Fell heitir
ný þjónustustofnun í Reykjavík
sem dvalar- og hjúkrunarheim-
ilið að Kumbaravogi á Stokks-
eyri er að opna um næstu helgi
að Skipholti 21 þar sem áður
var gistiaðstaða og hjúkrunar-
hótel. Þar er gert ráð fyrir vist-
mönnum sem geta að mestu
leyti bjargað sér sjálfir, en boð-
ið verður upp á sömu þjónustu
og dvalarheimili aldraðra veita.
Gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir
30 einstaklinga í Felli til að byija
með, en hlutafélagið sem rekur
Kumbaravog og Fell er að stærst-
um hluta í eigu Kristjáns Frið-
bergssonar og konu hans Hönnu
Halldórsdóttur.
Kristján Friðbergsson sagði í
samtaii við Morgunbiaðið að Dval-
arheimilið Fell væri hugsað þann-
ig að þar geti dvalið fólk sem
getur bjargað sér sjálft að mestu
leyti, en vantar kannski aðstæður
við hæfi þar sem boðið er upp á
sömu þjónustu og.dvalarheimili
aldraðra veita. Kristján sagði að
Fell væri í raun hugsað þannig
að þar væri aðeins fijálslegra og
sjálfstæðara en á elliheimilum.
„Við ætlum að leggja mikla
áherslu á að hafa þetta heimilis-
legt þama og í fyrstu lotu er gert
ráð fyrir bæði einbýli og tvíbýli,
en reiknað er með 9 starfsmönn-
um á Felli," sagði Kristján.
Að undanfömu hafa staðið yfír
breytingar á húsnæðinu, en það
verður tilbúið um næstu helgi.
Kumbaravogur hefur starfað í
13 ár og þar eru nú 65 vistmenn
hvaðanæva að af landinu, þar af
40 á hjúkrunardeild. Starfsmenn
Kumbaravogs eru 32. Fell verður
eins konar útibú frá Kumbara-
vogi, en með nýju sniði og miðað
Morgunblaðið/ÓIafur K. Magnússon
Morgunblaðið/Ami Johnsen
Kristján Friðbergsson
ír fólks sem orotur lifað
Þingeyri:
Nýja hlutaskipta-
kerfið eykur afköst
Þinirevri. ^
Þingeyri.
BÚIÐ var að vinna í eina viku
eftir nýja hlutaskiptakerfinu i
hraðfrystihúsi Kaupfélags Dýr-
firðinga á Þingeyri þann 21. fe-
brúar sl., samkvæmt upplýsingum
útgerðarstjórans, Bjarna Einars-
sonar, og virðist við fyrstu sýn
að afköst hafi heldur aukist í
húsinu.
Stór hluti starfsfólks hefur fengið
mjög lítinn .bónus, meðan unnið var
eftir gamla bónuskerfinu, og því
gætti orðið almennrar óánægju með-
al þess fólks, sem síst var til þess
fallin að bæta vinnuandann í húsinu.
Enn er ekki séð hvaða áhrif þessi
breyting mun hafa á kaup þeirra,
sem hæstir voru í bónus áður.
Reynslan ein sker úr um ágæti þessa
vinnufyrirkomulags.
Vinna hefur aukist í febrúar og
afli hefur glæðst á sama tíma hjá
togaranum, frá því sem var í jan-
úar. Frá áramótum til 21. febrúar
var Sléttanesið komið með 545.393
kíló að verðmæti 20.749.111. Fram-
nesið var með á sama tíma 470.127
kíló, að verðmæti 16.687.102. Enn
fremur hafa eftirtaldir bátar lagt
upp hjá Hraðfrystihúsinu: Björgvin
Már, 3.520 kíló, Guðmundur B. Þor-
láksson, 17.860 kíló, Gísli Páll,
10.920 kíló, Máni, 19.920 kíló og
Dýrfirðingur 2.140 kíló. Bátar þess-
ir hafa þó aflað meira, því þeir hafa
einnig lagt upp afla sinn í Gemlu-
felli í Mýrahreppi og Björgvin var
kominn með tæp 10 tonn frá áramót-
úm þann 21. febrúar.
Hulda.
úr matsal Fells við Skipholt. Mo^unblaíií/ólafiir K. Magnússon
Úr einu herbergja Fells