Morgunblaðið - 25.02.1988, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 25.02.1988, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988 37 Þorkell Alþingismönnuin var í gær boðið í Þjóðminjasafnið, en í gær var 123. afmælisdagur safnsins. Til sýnis í safninu eru nú ýmsar gjafir, sem safninu hafa borizt í tilefni afmælisins. Stuttar þingfréttir Fundir vóru í báðum þing- deildum í gær. Síðdegis heim- sóttu þingmenn Þjóðminjasafnið. í neðri deild var eitt mál til meðferðar: frumvarp um heimild til að brugga og selja bjór í landinu eftir sömu reglum og annað áfengi. í efri deild var til annarrar umræðu frumvarp þingmanna Borgaraflokks til breytinga á útvarpslögum. Meirihluti við- komandi þingnefndar leggur til að frumvarpið verði afgreitt með því að vísa því til ríkisstjómar- innar. Þá kom til fyrstu umræðu frumvarp um að selja hluta ríkisjarðarinnar Þóroddsstaða í Ljósavatnshreppi. Ingi Bjöm Albertsson og fimm þingmenn aðrir úr jafn mörgum þingflokkum hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um neyðarsíma. Tillagan felur samgönguráðherra, verði hún samþykkt, „að láta kanna með hvaða hætti er unnt að koma upp neyðarsíma með jöfnu millibili á erfíðum Qallvegum og heiðum til að tryggja betur öryggi vegfarenda. Jafnframt verði athugða hvað slíkar framkvæmdir mundu kosta“. * * * Óli Þ. Guðbjartsson (B/Sl) spyr sjávarútvegsráðherra: 1) Hveijir hafa selt veiðileyfi (aflamark) og hveijir keypt frá því að slík sala hófst hér á landi? 2) Hvemig skipt- ast þessi viðskipti eftir ámm? 3) Hvemig er skiptingin eftir land- svæðum eða útgerðarstöðum? Hvaða verðmæti var um að ræða í hveiju tilviki fyrir sig? * * * Kristín Halldórsdóttir (Kvl/Rn) spyr félagsmálaráðherra: Hvernig hyggst félagsmálaráðherra bregð- ast við þeirri niðurstöðu Jafnréttis- ráðs að ráðning Náttúmvemdar- ráðs í stöðu þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli hafi verið brot á lögum nr. 65/1985 um jafna stöðu ogjafn- an rétt kvenna og karla? Frumvarp um breyttar húsnæðislánareglur; Lánað til kjördæma í samræmi við skuldabrefákaup Vilhjálmur Egilsson og Matt- hías Bjamason, þingmenn Sjálf- stæðisflokks, hafa lagt fram fmmvarp til breytinga á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins. I fyrsta lagi gerir fmmvarpið ráð fyrir því að útlán Byggingarsjóðs ríkisins í helztu lánaflokkum skiptist í sama hlutfalli milli kjör- dæma og greitt er til lífeyrissjóð- anna sem kaupa bréf af Hús- næðisstofnun. I annan stað gerir fmmvarpið ráð fyrir því að Byggingarsjóður skuli ávaxta í peningastofnunum víðs vegar um land. í þriðja lagi er lagt til að lána megi fyrirtækjum til byggingar leiguíbúða fyrir starfsfólk sitt. í greinargerð segir m.a.: Sú gagnrýni sem fram hefur komið á húsnæðislánakerfíð, að það leiði til flutnings á fjármagni frá landsbyggðinni til höfuðborgar- svæðisins, er byggð á þeirri stað- reynd að útlánaloforð Byggingar- sjóðs til Reykjavíkur er 48,2% af heildarlánsloforðum en um 37,2% launagreiðslna landsmanna eru taldar fram í höfðuðborginni. Til landsbyggðarkjördæmanna hafa Jóhanna Sigurðardóttir farið 26,5% af lánsloforðum en þar eru talin fram 38,4% af launa- greiðslum landsmanna. Heildar- lánsloforð Byggingarsjóðs frá 1. september 1986 og út árið 1987 námu 8.958 milljónum króna. ^ Reyndar var Húsnæðisstofnun „lok- uð“ eftir 12. mars 1987 en þá var útgáfu lánsloforða hætt. Tilflulningur fjármagns milli kjördæma mcS húsnæðislánakerrinu. (Upphæðir í millj. kr.) Framtaldar launa- Framlag til Tilflutningur greiðslur 1985 lánsloforða fjármagns Reykjavík 37.2°u 3331 +995 Reykjanes ■’4.5°0 2292 0 Vesturland 6.1 °o 543 -125 Vestfirðir 4.6% 412 -132 Noröurland vestra .. 4.3% 386 -177 Norðurland eystra .. 10.2% 910 -237 Austurland 5.3% 478 -180 Suöurland 7.9%' 706 -204 Óskilgreint +60 Samtals 8958 0 Heimildir: Húsnædisstofnun og Byggðastofnun. Meðfylgandi skýringartafla fylgir greinargerð fmmvarpsins. Bjórinn enn í neðri deild: Þingmaður les upp nöfn 133 lækna og laugardagspistil Flosa Flutningsmenn bjórsins kaghýddir, sagði Sverrir Hermannsson Bjórframvarp, sem meiri hluti allsherjarnefndar neðri deildar flytur, kom til framhalds-fyrstu umræðu I þingdeildinni í gær. Andstæðingar frumvarpsins stóðu i ræðustólnum lungann úr fundartíma þingdeildarinnar. Ólafur Þ. Þórðarson (F/Vf) las upp — orðréttan — laugardagspistil Flosa Ólafssonar, Lítilræði af sendibréfi, sem birtist í Alþýðublaðinu 9. janúar 1988 og fjallar að meginefni um jólahald í bjórlandinu Danmörku. Þá las hann upp nöfn og heimilisföng 133 lækna, sem sendu á dögunum frá sér ályktun um bjórmálið. Sagði þingmaðurinn að ályktunin væri þess efnis að nauðsynlegt væri að varðveita nöfn viðkom- andi í þingtíðindum. Verði þetta frumvarp samþykkt, sagði þing- maðurinn, þá vænti ég þess að sá dómur verði á lagður, að þeir hafi að þvi stuðlað. Vísindalegar niðurstöður Arni Gunnarsson (A/Ne) sagði rannsónir vísindamanna og reynslu bjórþjóða færa heim sann- inn um það að bjór, sem viðbót við annað áfengisframboð, yki heildameyzlu áfengis og þar með áfengisvandann og þann kostnað heilbrigðisþjónustu, er af leiddi. Ámi sagði að 70% áfengisneyt- enda í Belgíu væri bjórdrykkju- menn og stærstur hluti drykkju- sjúklinga þar í landi ölneytendur. Þingmaðurinn sagði að þeir þingmenn, sem lögleyfðu bjór, öxluðu þunga ábyrgð. Einsdæmi í 958 ár! Sverrir Hermannsson (S/Af) mælti hart gegn bjómum. Hann sagði bjórfrumvarpið, eins og það var lagt fram í haust, geyma málatilbúnað „sem væri sá einstæðasti sem nokkm sinni hafi verið borinn fram á Alþingi, rakaleysumar með þeim hætti að fágætt er — og áreiðanlega eins- dæmi í þessi 958 ár sem liðin em frá stofnun Alþingis". Þessvegna hafi viðkomandi þingnefnd séð þann kost vænstan að kasta fmm- varpinu. Meirihluti hennar hafi síðan samið nýtt bjórfmmvarp. Með þessu vinnulagi vóm „flutningsmennimir [Jón Magn- ússon, Geir Haarde, Guðrún Helgadóttir og Ingi Björn Alberts- son] kaghýddir — og hin þorstláta valkyija, háttvirtur 13. þingmað- ur Reykjavíkurkjördæmis, [Guð- rún Helgadóttir], kom hér upp og kyssti á vöndinn og heyrðist smellurinn út á tún“. Sverrir gagnrýndi og greinar- gerð með bjórfrumvarpinu, sem hann sagði til skammar fyrir hið háa Alþingi. Hann lét að því liggja að flutningsmenn hafí haft það í huga að styrkja sig á prófkjörs- vettvangi „af því að þeir telja sér trú um að ölberserkir séu í meiri- hluta í okkar flokki". Þingmaðurinn lét og að því liggja að gróðasjónarmið réðu ferð. Hugmyndin væri að fram- leiða öl sem selja mætti með góð- um gróða. Fram hjá hinu væri horft að með bjómum væri stefnt í stóraukinn áfengisvanda. Með samkomulagi við flutningsmenn Geir Haarde (S/Rvk) sagði fyrstu grein hins nýja bjórfrum- varps, sem geymdi meginefni þess, hina sömu og í eldra frum- varpinu. Þetta væri því sama frumvarpið að meginefni. Öðrum greinum hafí að vísu verið breytt en í fullu samráði og samkomu- lagi við flutningsmenn. Stóryrði Sverris Hermannssonar um eins- dæmi í þingsögunni væm því út í hött. Geir sagði bjórandstæðinga endurflytja sömu ræður og þeir hafí flutt við fyrstu umræðu um hið upphaflega framvarp í haust, lítt eða ekki breyttar. Að megin- stofni væri þessar ræður víða að fínna í þingtíðindum, við hliðstæð tækifæri. Fátt eða ekkert nýtt kæmi fram. Þetta mál væri í raun útrætt — og mál til komið að þing- menn tækju afstöðu til þess með eðlilegum og þinglegum hætti, samþykktu það eða felldu, eftir því sem sannfæring þeirra stæði til. Upplestur pistils og nafna Olafur Þ. Þórðarson (F/Vf) mælti gegn framvarpinu. — Hann las upp, orðréttan, laugardagsp- istil Flosa Ólafssonar, Lítilræði af sendibréfí, sem birtist í Al- þýðublaðinu 9. janúar sl. Þá las Ólafur ályktun 133 lækna, sem birzt hefur í blöðum, með og ásamt nöfnum og heimils- föngum þeirra, enda taldi þing- maðurinn eðlilegt, að nöfn þeirra væra varðveitt í þingtíðindum. Þegar þingmaðurinn var í miðj- um heimilisfangalestri viðkom- andi lækna kallaði Stéingrímur J. Sigfússon (Abl/NE) fram í: „Er hann ekki fluttur?" Samþykki Alþingi bjórfram- varpið, sagði Ólafur, er eðlilegt að muna það, að umsögn þessa sérfróða fólks hafði áhrif á af- greiðslu málsins. Umræðunni lauk ekki. Þing- menn fóra síðdegis í afmælisboð til Þjóðminjasafnsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.