Morgunblaðið - 25.02.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.02.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988 41 Afmæliskveðja: Sólveig Eyjólfs- dóttir - Hafnarfirði Frú Sólveig Eyjólfsdóttir, Brekku- götu 5, Hafnarfírði, er áttræð í dag. Hún fæddist 25. febrúar 1908 í Nesi í Selvogi, þar sem efi hennar, Þor- björn Guðmundsson, var útvegs- bóndi. Komung, á öðru aldursári, flyzt hún með foreldrum sínum, Ey- jólfí Þorbjömssyni og Vilborgu Eiríksdóttur, til Hafnarfjarðar og hefur átt þar heima æ síðan. Þau Eyjólfur og Vilborg eignuðust 5 böm, þijár dætur og tvo syni. Elzt þeirra er Sólveig, sem hér verður getið, og svo Þorbiöm henni næstur, kunnur borgari hér í Hafnarfírði, en þijú þeirra eru látin, Guðmunda, Kristín og Jón Setberg. Allan sinn aldur, eftir að hún flutt- ist með foreldrunum úr Selvogi, hef- ur hún átt heima í námunda og við rætur Hamarsins í Hafnarfirði, en þetta fagra náttúmfyrirbæri, Ham- arinn í hjarta bæjarins, lítur hún á, sem aðrir Hafnarfirðingar, eins og helgidóm, heilagt vé, þar sem holl- vættir hafast við. Hið vinalega og snotra timburhús hennar að Brekku- götu 5 stendur einmitt á fallegum stað undir Hamrinum. Úr því húsi hyggst hún ekki flytja á meðan henni endist heilsa og aldur. Við heimili sitt á þeim stað, í því húsi, em henn- ar fegurstu minningar bundnar. Eins og algengt var með fólk á Sólveigar reki, átti það sjaldnast kost á lengra námi, eftir að bama- skólanámi lauk. Að nokkm stóðu þó Hafnfirðingar betur að vígi í þessum efnum en ýmiss önnur byggðarlög þar sem Flensborgarskólinn var, þar sem tækifæri gáfust til að stunda góða almenna framhaldsmenntun að bamaskólanámi loknu. En þó fór svo að ekki tókst Sólveigu að setjast þar á skólabekk að skyldunáminu loknu, þar sem efnahagurinn leyfði það ekki. Einmitt í þann mund, sem hún hugðist fara í Flensborgarskóla, að ráði Ögmundar Sigurðssonar skóla- stjóra þar, frænda síns, sem hafði hvatt hana til lengra náms, var skellt á 90 króna skólagjaldi, sem hún sá engin tök á að geta greitt. Þar með var sá draumur úr sögunni. En þrátt fyrir þetta telur Sólveig að bamaskólanámið hafi dugað sér furðuvel. í gamla bamaskólanum við Suðurgötu í Hafnarfirði voru úrvals- kennarar og skólastjórinn, Bjami Bjamason, traustur og ömggur í starfí, vinsæll og vel virtur af öllum. Á unglingsámnum vann Sólveig alla algenga vinnu eins og þá var títt með unglinga. En tiltölulega snemma fór hún að vinna í verzlun og á skrifstofum. Vann lengst hjá Bmnabótafélagi íslands. Mesta gæfusporið telur Sólveig sig hafa stigið, þegar hún giftist 1938, Haraldi Þórðarsyni, skipstjóra, mikl- um mannkosta manni, en eftir 13 ára sæluríka sambúð lézt Haraldur, stóð hún þá ein uppi með son og dóttur á bamsaldri. Þetta var henni mikið áfall og reiðarslag og því meir sem hjónabandið hafði verið mjög farsælt, enda Haraldur frammúr- skarandi góður faðir og eiginmaður. En Sólveigu var ekki og er ekki fisjað saman. Hún lét ekki bugast, enda sjálfsbjargarviðleitnin sterk. Fljótt eftir lát manns síns, hóf hún að reka matsölu, tók kostgangara, bæði heima hjá sér og í Sjálfstæðis- húsinu í Hafnarfirði og sá um mat- seld um skeið fyrir ýmsa klúbba og félög, m.a. Lionsmenn og Rotary um tíma. Hún þótti afbragðs matreiðslu- kona og var eftirsótt af félögum til þess að standa fyrir og sjá um mat- seld, þegar um veizlur og mannfagn- að var að ræða. Um 13 ára skeið, frá 1973 til 1986 var hún matráðs- kona í Lækjarskóla og-Sá um mötu- neytið þar. Gat hún sér mikilar vin- sældir í því starfi og rækti það af mikilli kunnáttu og prýði. Strax frá upphafi tóku kennarar skólans henni opnum örmum og var hún aufúsu- gestur þeirra, er þeir héldu fagnað eða skemmtikvöld í skólanum eða í heimahúsum og þurfti hún þá að sjálfsögðu ekki að sjá um matseld. Naut hún þessa félagsskapar í ríkum mæli. Vinsæl var hún líka meðal nemenda skólans, bæði eldri og yngri, enda bamgóð að eðlisfari. Þeir, sem haldnir eru mikilli at- hafnaþrá og eiga sér margvísleg áhugamál, sem þeim tekst að rækja, ná oft háum aldri og eldast seint. Þetta, m.a., á við um Sólveigu. — Fáum er það ljóst, nema þeim sem til þekkja, að enn í dag, orðin átt- ræð, — sinnir hún ýmiss konar fé- lagsstarfsemi og gefur hvergi eftir. — Félagsmálavertíð hennar er orðin ærið löng. Um eða innan við tvítugt hófst þessi vertíð með því að hún gekk í kvenfélagið Hringinn í Hafn- arfirði. Hún var ein af stofnendum slysavamadeildarinnar Hraunprýði í Hafnarfírði (17. des. 1930), sem unnið hefur mikið og gott starf í þágu slysavama. Sólveig hefír verið í stjóm þess frá upphafi. Stendur þar enn vakt í brúnni sem meðstjóm- andi og er á „útkikk". Var þar fyrsti ritari, en Sigríður Snæland var þá formaður, varð síðan varaformaður í formannstíð Rannveigar Vigfús- dóttur, alls 23 ár, og tók við for- mennsku af henni, — í 9 ár, og er nú meðstjómandi, eins og fyrr segir. Fjölmargt annað á félagsmálasviði hefir Sólveig látið til sín taka. Hún hefir setið í ótal opinberum nefndum og ráðum. Var m.a. 16 ár í bama- vemdamefnd Hafnarfjarðar, sat í byggðanefnd og gatnanefnd. Sat í safnaðarstjóm Hafnarfjarðarkirkju í 12 ár. Hefur unnið mikið fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Vann m.a. að stofnun Vorboðans á sínum tíma og sat þar lengi í stjóm. Á langa setu í fulltrúa- ráði flokksins í Hafnarfirði og verið nokkmm sinnum þar í stjórn. í dag lætur hún sér mjög annt um Hjarta- og æðavemdarfélag íslands og hefur lagt þar hönd á plóginn. Lengra mætti rekja félagsmálasögu Sólveig- ar, en hér skal látið staðar numið, því ekki átti þessi grein, helguð henn- ar merka afmæli, að vera í neinu grafskriftardúr. Þrátt fyrir hinn mikla missi og þá raun, sem Sólveig varð fyrir, þegar hún missti mann sinn, eftir aðeins 13 ára sambúð, hefur hún verið gæfumanneskja. Hún hefur að jafn- aði verið heilsuhraust allt fram á sfðustu misseri að heilsa hennar tók nokkuð að bila, en er nú á batavegi. Hún eignaðist tvö mannvænleg böm, sem hafa verið henni afar kær og þau látið sér mjög annt um hana. Traust, náið og gott samband hefur ávallt verið á milli þeirra þriggja og bömin bæði verið henni einkar eftir- lát, og það með glöðu geði, sem ekki er beint tímanna tákn í dag. Sonur hennar, Eyjólfur, er yfírlæknir á Heilsugæslustöð Kópavogs og dóttir- in, Kristín er röntgentæknir á Rönt- gendeildar Landspítalans. Eyjólfur er kvæntur Guðbjörgu Eddu Eg- gertsdóttur lyfjafræðingi og eiga þau tvö böm, Eggert 6 ára og Harald Svein, 2ja ára. Kristín er ekki gift og býr hjá móður sinni. Auk eigin bama hefur Sólveig alið upp fóstur- dóttur, Sveinbjörgu Helgadóttur, sem kom til hennar 7 ára. Hún er gift. Sólveig Eyjólfsdóttir er í hópi þess fólks sem vex, við nánari kynni. Hún kemur manni því meir á óvart sem maður kynnist henni betur. Ókunn- ugur gæti ætlað við fyrstu kynni, að hún væri nokkuð tilgerðarleg og yfirborðskennd en kemst á allt aðra skoðun við nánari kynni. Hann gerir sér þá grein fyrir því, að þar sem Sólveig er, fer kona sem er blátt áfram, einlæg og hjartahlý, — og eins og sagt var hér áður fyir: prýði- lega vel að sér til munns og handa, vel lesin, víða heima í hlutunum, hefur yndi af hvers konar list, — einkum tónlist sígildri og notar hvert tækifæri sem gefst til að hlýða á slíka tónlist og sækir þvf mikið söng- og tónleika. — Sjálfri er henni ýmis- legt til lista lagt, — og getur látið hlutina leika í höndum sér, þegar hún vill það við hafa. Gerir sér það stundum til dundurs að skreyta og gylla postulín og gerir það af miklum hagleik. Hefur oft gaman af því að senda nánum vinum sínum slíka handskreytta muni á jólum, — til skrauts á jólaborðið og jafnframt eitthvert heimatilbúið góðgæti með. — Hún er einnig ágætlega ritfær. Það sýna ýmsar greinar um gömul minni, sem birst hafa í jólablöðum Fjarðarfrétta og Hamars í Hafnar- firði. Sá, er þetta ritar og fjölskylda hans, á Sólveigu margt að þakka. Allt frá fyrstu kynnum, í rösk þijátíu ár, hefur hún verið mikill heimilisvin- ur. Við eigum henni mikla þökk að gjalda fyrir órofa.tryggð og vináttu og ámum henni heilla á hennar merka afmæli og vonum í einlægni, að hún eigi enn góða ævi og langa fyrir höndum. Þorgeir Ibsen Sólveig mun taka á móti gestum f dag á heimili sonar sfns og tengda- dóttur á Vallarbarði 13, Hafnarfirði milli kl. 15 og 19. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar | Vélritunarkennsla. Vélritunarskólinn s. 28040. □Gimli 59882257 = 6 I.O.O.F. 11 = 1692258'/í = 9. II. I.O.O.F. 5 = 1692258'/;= 9.III □ St.: St.: 59882257 VII \-.Vl ioorjcn Aðaldéild KFUM Fundur í kvöld á Anntmannsstig .2b, kl. 20.30. Verfti hver yftar fyrri til... Biblíulestur i umsjá Séra Guðna Gunnarssonar. Allir karlar velkomnir.. Orð lífsins Samkoma verður i kvöld kl. 20.30 á Smiðjuvegi 1, Kópavogi (sama hús og Útvegsbankinn). Allir velkomnir! Hvítasunnukirkjan Völvufelli Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Félag leiðsögumanna Munið aöalfundinn á Hótel Sögu á morgun fimmtudag kl. 20.30. Stjórnin. Hjálpræðisherinn, Kirkjustræti 2. f kvöld kl. 20.30 veröur almenn samkoma. Annað kvöld kl. 20.00 bæn og lofgjörö (i Blönduhlíð 3). Verið velkomin. Aglow kristileg samtök kvenna Fundur veröur nk. laugardag 27. febníar kl. 16.00 i Gerðubergi. Gestur fundarins verður Margrét Hróbjartsdóttir. Vinsamlegast til- kynnið þátttöku í dag fimmtudag í síma 38324 (Anna) eða 46423 (Björg). Allar konur velkomnar. BJSDí, | með htutverk fm li YWAM - fsland Almenn samkoma i Grensás- kirkju i kvöld, fimmtudaginn 25. febrúar, kl. 20.30. Fólk segir f rá trúarreynslu sinni. Allir velkomnir. Aðalfundur Bandalags íslenskra farfugla verður haldinn sunnudaginn 28. febrúar nk. kl. 20.00 á Sund- laugavegi 34 (nýja Farfuglaheim- ilið). Dagskrá: Venjuleg aðatfundarstörf. Lagabreytingar. Stjórnin. í kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma i Þribúðum, Hverfisgötu 42. Mikill almennur söngur. Vitn- isburðir Samhjálparvina. Kórinn tekur lagiö. Raeðumaöur Kristinn Ólafsson. Allir velkomnir. Samhjálp. AD-KFUK Kvöldverftur - Miðar Viö viljum minna á fundinn 1. mars sem hefst með kvöldverði kl. 19.00. Ath. að tryggja ykkur miða fyrir föstudaginn 26. febrúar. AD-nefndin. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19531 Helgarferð í Botnssúlur 27.-28. febrúar: Gönguferö og skiðaferð. Gist i Bratta (tæplega 800 m. hæð) skála Alpaklúbbsins. Brottför kl. 8.00 aö morgni laugardags. Far- miöasala og upplýsingar á skrif- stofu F.í. Ferðafélag fslands. ÚTIVISTARFERÐIR Helgarferðir 4.-6. mars. 1. Þórsmörk, góuferft. Góft glst- ing i Útivistarskálanum Básum. Gönguferðir. Stakkholtsgjá í klakaböndum. Sólarkaffi. 2. Tindofjöll ítunglskini. Göngu- og skiöaferð. Gist iTindfjallaseli. Árshátíð Útivistar veröur laugard. 12. mars i Skiða- skálanum í Hveradölum. Góð skemmtun. Rútuferð frá BSf. Þaö lætur enginn sig vanta. Pantið timanlega. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni 1, símar: 14606 og 23732. Þingvellir - Öxarárfoss ( klaka- böndum á sunnud. 28. febr. kl. 13.00. Sjáumst! Útivist. Ungt fólk á Akureyri Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akur- eyri, gengst fyrir opnum kynnlngarfundi um starf ungra sjálfstæðismanna, laugardaginn 27. febnir kl. 15.30 í Kaupangi. Dagskrá: 1. Kynning á fólagsstarfi Varðar. Guft- mundur Magnússon, formaður. 2. Sjálfstæðisstefnan, orð og efndir. Árni Sigfússon, formaður SUS. 3. Undirbúningur leshringja. - Kynning á málefnastarfi SUS. Allir ungir Akureyringar hvattir til að mæta. Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnaöarmannaráös og endurskoðenda i Verslunarmanna- félagi Hafnarfjarðar fyrir árið 1988. Framboðslistum skal skilað á skrifstofu félagsins, Strandgötu 33, 2. hæð, eigi síðar en kl. 12.00 laugardaginn 27. febrúar 1988. Stjómin. Svör óskast Nú hefur annað bréf verkefnistjórna SUS veriö sent út til áskrif- enda. Brýnt er að menn skili sem fyrst. Allra síðasti skiladagur er 1. mars en best væri að þeir sem gætu, komi bréfi sinu i póst fyrir helgi. Stjórn Varöar. Sjóm SUS. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík Fundur alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæöisflokkslns I Reykjavik með stjórnum sjálfstæðisfélaganna verður haldinn fimmtu- daginn 25. febrúar kl. 18.00 I Valhöll (neðri deild). Páll Gíslason mun ræða um útsýnis- og menningarmiðstöð i Öskjuhllð. Hlutaðeigendur eru hvattir til að mæta. Stjórn fuiltrúaráðs sjáifstæöisféiaganna i Reykjavik. F.U.S. Baldur Seltjarnarnesi Aðalfundur F.U.S. Baldurs á Seltjarnarnesi verður laugardaginn 27. febrúar n.k. kl. 14.00 i félagsheimili sjálfstæðisfélaganna, Austur- strönd 3. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. <t.. *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.