Morgunblaðið - 25.02.1988, Page 54
*54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988
félk f
fréttum
SIGBJORN KJARTANSSON
Islenskt safnhús
teiknað í Osló
Frá Guöbjörgu R. Guðmundsdóttur í Osló.
Homfírðingurinn Sigbjörn
Kjartansson er um þessar
mundir að ljúka námi í arkitektúr
við arkitektaháskólann í Osló.
Hann hélt sýningu ásamt sam-
nemendum á lokaverkefni sínu í
Gallerí Róm fyrr i þessum mán-
uði. Útsendari Morgunblaðsins í
Osló leit inn á sýninguna, heilsaði
upp á Sigbjöm og spurði hvaða
verkefni hann legði fram til loka-
prófs. Kom í ljós að arkitektinn
hafði teiknað safnhús fyrir Horn-
fírðinga. Og hvers vegna það?
„Ég er fæddur og uppalinn á
Höfn í Hornafirði og þess vegna
eðlilegt að ég velji verkefni tengt
uppeldisstöðvunum," segir Sig-
björn. „Annars var það skjala-
vörðurinn á staðnum, Gísli Sverrir
Amason, sem átti hugmyndina
að safnhúsinu," bætir hann við.
Blaðamaður skoðar teikningar
og líkön af glæsilegu safnhúsi sem
á að rúma undir einu þaki bóka-
safn, skjalasafn, byggðasafn, lítið
náttúru- og listasafn og auk þess
heilan tónlistarskóla. Safnhúsið
er teiknað í þrem álmum, bersýni-
lega með það I huga að húsið
megi byggja í einingum. En verð-
ur safnhúsið nokkum tíma byggt?
„Það er ekki mitt að ákveða
það,“ segir Sigbjörn og virðist
ekkert sérlega vongóður.
Engu að síður fer Sigbjörn
bráðlega heim til Hornafjarðar og
sýnir sveitungum sínum hvemig
safnhús þeir geta eignast.
Rokk-
amma
í
Asíu
TINA Tumer skart-
ar einum hinna
skjóllitlu leðurkjóla
sinna á meðfylgjandi
mynd, en Fólki í frétt-
um hefur borist til
eyrna að söngkonan
eigi allnokkra kjóla í
svipuðum stíl. Myndin
var tekin á tónleikum
Tumer í Jakarta fyrir
rúmri viku, þar sem hún
söng fyrir 4000 manns.
Tónleikamir voru hinir
fyrstu í Asíu-áfanga
leiðangurs hennar um
heiminn þveran og
endilangan.
COSPER
Karólína og Stefano með yngsta
soninn, Pierre, á skírnardaginn.
MÓNAKÓ
Karólína og ómegðin hennar heima hjá sér í
La Roche í Mónakó
Skemmd
*
1
efra
skolti
Síberíu-tígurinn
Míkoff, sem er í
dýragarðinum í Jó-
hannesarborg í Suð-
ur-Afríku, varð að fara
til tannlæknis í fyrra-
dag til að láta gera við
vígtennumar í efra
skolti. Astæða þess að
vígtennur Míkoffs eru
illa famar er sú að
hann hefur þann
ávana að brýna tenn-
umar á rimlum sem
loka búri hans í dýra-
garðinum, slíkt er ekki
gott fyrir tígra-tennur.
Morgunblaðið/GRG
Sigbjörn Kjartansson
bendir á staðsetningu
safnhússins í Hornafirði,
ef og þegar það verður
byggt.
í sófanum sitja Andrea, þriggja
ára, Charlotte, eins og hálfs árs
og Karólína með Pierre í fang-
inu. Að baki þeim stendur Stef-
ano ásamt foreldrum sinum,
Giancarlo og Femöndu Casirag-
hi, og lengst til hægri sést Rain-
er fursti.
Reuter
Skírnarkjóll
frá Dior
Pierre Rainer Stefano var hann skírður, yngsti meðlim-
ur furstaQölskyldunnar í Mónakó. Sonur þeirra Ka-
rólínu og Stefanos fæddist í september og þremur mánuð-
um síðar safnaðist furstafjölskyldan saman við skímina.
Stefanía, móðursystir snáðans, lét sig þó vanta á athöfn-
ina og hélt sig við hlið kærastans Marios í Ameríku.
Fjarvera hennar vakti nokkurt umtal og hneykslan í drau-
malandi hinna skattpíndu.
Skímarkjóll Pierre litla
er hannaður af Marc Bohan
hjá Dior tískuhúsinu í
París. Kjóllinn mun orðinn
allþvældur, enda er Pierre
þriðja bamið sem klæðist
honum. Áður vom eldri
bróðirinn Andrea og systir-
in Charlotte færð í kjólinn
þann ama á skímardaginn.
Líklegt þykir að grípa þurfi
til straujámsins í Mónakó
á næstunni, því að Karólína
segist vilja eignast fímm
böm og Dior kjóllinn gæti
komið í góðar þarfir enn á
ný.