Morgunblaðið - 27.02.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988
Skákmótið í Linares:
Jafntefli eftir 11
klukkustunda skák
JÓHANN Hjartarson og Spán-
veijinn Illescas gerðu gær jafn-
tefli í biðskák sinni úr annarri
umferð skákmótsins í Linares á
Spáni. Skákin stóð alls í 11
Lést af
slysförum
Maðurinn, sem lést þegar olíu-
geymir við Fiskimjölsverksmiðj-
una í Ólafsvík sprakk á fimmtu-
dag, hét Hjálmtýr Agústsson.
Hjálmtýr var verksmiðjustjóri
Fiskimjölsverksmiðjunnar og
slökkviliðsstjóri í Ólafsvík. Hann
var tæplega 45 ára gamall fjöl-
skyldufaðir, fæddur 11. maí 1943,
til'heimilis á Ólafsbraut 46 í Ól-
afsvík.
klukkustundir. Jóhann er nú með
1 vinning eftir þijár umferðir
og teflir í dag við Beljavskíj.
Leifur Jósteinsson, fréttaritari
Morgunblaðsins í Linares, segir að
biðleikur Jóhanns í skákinni hafi
verið mjög slakur og í raun gert
út um vinningsvonir hans nema
Spánveijanum hefðu orðið á mistök.
Svo varð ekki ogjafntefli varð stað-
rejmd. Ljúbojevic átti einnig bið-
skák við Illescas og átti að tefla
hana í gær. Af því varð ekki vegna
þess hve langan tíma skákin við
Jóhann tók. Öðrum biðskákum lauk
þannig að Timman vann Nunn og
Júsupov og Tsjiburdanidze sömdu
um jafntefli.
Efstir á mótinu eftir þijár um-
ferðir eru Timman og Beljavskíj
með 2,5 vinninga. í íjórðu umferð
í dag verður Jóhann með hvítt á
móti Beljavskíj.
Margeir og* Hannes
gerðujafntefli
Margeir Pétursson og Hannes
Hlífar Stefánsson gerðu jafntefli
í biðskák sinni úr 3. umferð
Reykjavíkurskákmótsins, og
Göran Dizdar vann Joel Lautier..
Biðskákirnar voru tefldar í gær.
með 2 vinninga. 4. umferð mótsins
verður tefld í dag og hefs
ferðin klukkan 13.00.
Valur Arnþórsson, stjórnarformaður SÍS:
„Kertaljósakvöld“ á Hótel
Sög'u vegna raf magnsley sis
RAFMAGNSLAUST varð í
stórum hluta Vesturbæjar um
klukkan níu í gærkvöldi vegna
bilunar í dreifistöð á Hótel
Sögu og var sumstaðar raf-
magnslaust í um einn og hálfan
klukkutíma, m.a. á Hótel Sögu.
Um eitt þúsund manns voru í
mat á hótelinu þegar raf-
magnið fór af, að sögn Wil-
helms Wessmans fram-
kvæmdastjóra Gildis hf.
Múffa á streng brann yfir í
dreifistöðinni og lagði nokkum
reyk frá henni en slökkviliðið var
komið að hótelinu um 3 mínútum
eftir að tilkynnt hafí verið um
atvikið, að sögn Wilhelms. „Borð-
haldið stóð sem hæst þegar raf-
magnið fór af en fólk tók raf-
magnsleysinu bara vel. Það var
kveikt á kertum og spilað á píanó,
þannig að það skapaðist ró-
mantísk stemning hjá okkur. Það
væri því athugandi að taka upp
„kertaljósakvöld" á hótelinu,"
sagði Wilhelm.
Wilhelm Wessman ræðir við slökkviliðsmenn í kjaUara Hótel Sögu í gærkvöldi Morpmblaðið/Jultua
Við sigurinn bættist Dizdar í hóp
efstu manna mótsins með 2'/2 vinn-
ing. Hannes og Margeir eru báðir
gRorjjunblnbiti
BLAO B
Eðlilegt að stjómarmenn vilji
skýrslu um ástæður uppsagna
VALUR Arnþórsson, stjómarformaður Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ekki væri
ákveðið hvort ákvörðun stjómar Iceland Seafood að víkja þeim
Eysteini Helgasyni og Geir Magnússyni úr starfi yrði tekin fyrir á
næsta fundi stjórnar SÍS. Hann sagði að stjórn Iceland Seafood
væri rétti valdaaðilinn í þessu máli, en engu að síður væri það mjög
óvenjulegt að forstjóra og aðstoðarforstjóra í samstarfsfyrirtæki
SÍS væri sagt upp með þessum hætti, og eðlilegt að stjórnarmenn í
SÍS vildu hlýða á skýrslu um ástæður uppsagnanna. Ekki er ákveð-
ið hvenær næsti stjórnarfundur verður haldinn, en venja er að halda
fund í lok febrúar eða einhvern tíma fyrstu þrjár vikurnar í mars.
Valur sagðist mundu fylgjast vel
með málinu og það byggðist þá á
sínu mati hvort það yrði tekið fyrir
á næsta stjómarfundi. Aðspurður
sagði Valur að uppsagnimar í Ice-
land Seafood væm ekki liður í
neinni valdabaráttu innan Sam-
bandsins, þetta hefði verið ágrein-
ingur á milli umræddra manna, eins
og fram hefði komið, og ekki vafa-
mál að skoðánir hefðu verið mjög
skiptar á því hvemig ætti að leysa
hann.
Bókun til stuðnings Eysteini
Gísli Jónatansson, kaupfélags-
stjóri á Fáskrúðsfírði, var annar
þeirra tveggja manna sem greiddi
atkvæði á móti brottvikningu Ey-
steins og Geirs. Hann lagði fram
bókun af þvf tilefni, sem var svo-
Eysteinn Helgason
Geir Magnússon
Eysteinn væntanlegur til landsins í dag:
Var meinaður aðgang-
ur að eigin skrifstofu
EYSTEINN Helgason fyrrverandi forstjóri Iceland Seafood i
Bandarikjunum er væntanlegur til landsins i dag með flugvél frá
New York. Eysteinn sagði i gær að hann myndi funda með lög-
fræðingi sínum og fleiri aðilum um helgina og yfirlýsingar væri
að vænta frá honum um eða eftir helgina.
Guðjón B. Ólafsscn stjómarfor-
maður Iceland Seafood og Sigurð-
ur Markússon framkvæmdastjóri
sjávarafurðadeildar SÍS eru
komnir til höfuðstöðva Iceland
Seafood í Bandaríkjunum. Þeir
hittu Eystein ekki að máli enda
mun hann hafa látið þau boð ber-
ast að lögfræðingur hans myndi
annast viðræður ef óskað væri
eftir þeim.
Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því að Eysteir.i Helgasyni
hafi verið meinaður aðgangur að
skrifstofu sinni þegar hann kom
( fyrirtækið á fímmtudagsmorg-
uninn. Öryggisvörður stöðvaði
Eystein í hliðinu og sagðist hafa
fyrirmæli um að hleypa honum
ekki inn. Eysteinn mun hafa látið
kalla á lögfræðing Iceland Seafo-
od og skýrt honum frá því að
hann hefði enga formlega upp-
sögn fengið og liti því enn á sig
sem forstjóra. Fór hann síðan til
skrifstofu sinnar og var þar að
störfum þar til skeyti barst
síðdegis um uppsögn, en hún var
tekin á stjómarfundi daginn áður,
eins og fram hefúr komið í frétt-
um. Yfirgaf Eysteinn þá fyrirtæk-
ið.
hljóðandi: „Ég undirritaður lýsi hér
með yfír fullum stuðningi við Ey-
stein Helgason, forstjóra Iceland
Seafood Corporation. Ég tel að
Eysteinn valdi mjög vel því starfí
sem honum var trúað fyrir, og ber
afkoma fyrirtækisins árið 1987 þar
glöggt vitni um. Hann hefur á stutt-
um tíma aflað sér trausts og virð-
ingar meðal framleiðenda fyrir störf
sín hjá Iceland Seafood. Brottrekst-
ur Eysteins er því að mínu mati
ekki byggður á haldbærum rökum,
heldur á einhveiju sem ekkert á
skylt við hæfni Eysteins í starfí."
Gísli sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann teldi að það væri
verið að brjóta á þessum mönnum
með því að segja þeim upp störfum
og að rökin í málinu væru að sínu
mati ákaflega léttvæg.
Annar varð að víkja
Ámi Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Félags Sambands
fískframleiðenda, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að á stjómar-
fundi ííélaginu á þriðjudaginn hefði
verið samþykkt yfirlýsing með öll-
um sjö atkvæðum fundarmanna,
að láta í ljós áhyggjur af því ástandi
sem væri orðið í Iceland Seafood
Corporation, sem væri farið að hafa
mjög alvarlegar afleiðingar á starf-
semi í fyrirtækinu og stjómin
kvaðst hafa fullt traust til núver-
andi stjómarformanns til að leysa
þessi vandamál strax. Þessi yfirlýs-
ing var síðan lesin upp á stjómar-
fundi Iceland Seafood sfðar um
daginn. „Þama var um það að ræða
að tveir menn í lykilstöðum gátu
ekki starfað saman og þá varð ann-
ar að víkja," sagði Ami. Hann sagði
einnig að samstarfserfíðleikarnir
hefðu komið fram í því að menn
litu ekki á það sömu augum hvert
ætti að stefna í rekstri fyrirtækisins
og að þótt að menn efuðust ekki
um þekkingu Eysteins þá hefði
Guðjón verið lengur ytra og hefði
yfírburðaþekkingu á markaðnum.