Morgunblaðið - 27.02.1988, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988
Svanasöngvar Schuberts
Tónlist
JónÁsgeirsson
Nú hafa Andreas Schmidt og'
Thomas Palm lokið við að flytja
yflr sjötíu sönglög eftir Schubert á
þrennum tónleikum í Gamla bíói,
síðast á fimmtudaginn fyrir troð-
fullu húsi. Á fyrri hluta efnisskrár
voru tíu sérvaldir söngvar frá ýms-
um tímum, sá elsti frá 1817 en
yngsti frá 1826. Eftir hlé voru það
Svanasöngvamir sem Schubert
samdi alla í ágústmáuði 1728, sjö
við ljóð eftir Rellstab og sex við
ljóð eftir Heine. Taubenpost, sem
trúlega er. síðasta sönglag Schu-
berts, var í síðari útgáfum bætt við
en þeir félagar fluttu það sem auka-
lag.
Andreas Schmidt og Thomas
Palm eru snilldargóðir tónlistar-
menn, Schmidt meistari hins
flngerða og fágaða söngs og Palm
snillingur í fínlegu og undraná-
kvæmu tóntaki. Þessi fíngerða
söngfágun kom einkar vel fram í
Nacht und Tráume og Ihr Bild. í
leikrænum átökum eins og í Der
Zwerg og Der Atlas vantaði nokk-
um þunga og í Aufenthalt var hljóð-
fallið undarlega létt, næstum því
eins og í Das Fischermádchen, sem
á þar betur við, þó Fischermádchen
eigi frekar að vera glaðlegt, ekki
aðeins létt og leikandi.
Tónleikar sem þessir em stórvið-
burður. Að heyra á þremur tónleik-
um einn tíunda hlutann af sönglög-
um Schuberts, flutt af slíkum glæsi-
brag, er viðburður sem seint mun
fymast yflr og fá því meiri ljóma
sem frá líður, eins og allt sem mönn-
um er kært að muna. Andreas
Schmidt og Thomas Palm eiga
langa leið ófama og því rétt að
óska þessum ungu en snjöllu lista-
mönnum allra heilla um ókomna
framtíð og óska þess um leið, að
þeim auðnist að eiga sem oftast
leið hér um, til að flytja þakklátum
áheyrendum list sína.
Andreas Schmidt og Thomas Palm
II
Nýja Cuore-línan heillar og slær í gegn hjá fjöldanum:
5dyra, 5gíra. Verð frá kr. 319.900.-
Sjálfskiptur, ödyra. Verð frá kr. 349.400.-
3jadyra, 5gíra, 4x4.Verð frá kr. 366.100.-
Innifalið í verði: Verksmiðjuryðvörn og skráning
DAIHATSU VILDARKJOR
Við bjóðum 25% útborgun og
eftirstöðvar á 24 mánuðum
eða Eurokredit