Morgunblaðið - 27.02.1988, Side 41

Morgunblaðið - 27.02.1988, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988 41 SUMARFRIISUMARHUSI Danmörk, Þýskaland og England SUBUR- ENGIAND Bognor Regis er einn af skemmtilegu baðstrandarbœjunum á suðurströnd Englands. Þangað er um IV2 stundar akstur frá London. Southcoast World er sumarleyfisstaður í útjaðri Bognor Regis. Þar bjóðum við sumarhús í samvinnu við Butlin’s Holiday Worlds. Helga Lára Haraldsdóttir er fararstjóri okkar í Southcoast World. Dvöl í sumarhúsi í útlöndum er gott frí fyrir alla fjölskylduna, jafnt yngsta fólkið sem þá eldri. Við bendum sérstaklega á sumarhús í Ebeltoft á Jótlandi, Daun Eifel í Þýskalandi og Bognor Regis á suðurströnd Englands. í tengslum við beint flug til Billund á Jótlandi bjóðum við sumarhús við Ebeltoft á Austur-Jótlandi. í Billund er skemmtigarðurinn frægi, Legoland, þar sem ungir og aldnir skemmta sér konunglega. Til Ebeltoft er um tveggja stunda akstur frá Billund. Ebeltoft er gamalgróinn og notalegur bœr og þar er margt að una sér við. í nœsta nágrenni Ebeltoft er skemmtilegur 18 holu golfvöllur. Stutt er til Árhus frá Ebeltoft. Sumarhúsin, sem eru alveg ný, eru byggð út í vatn í fögru umhverfi og öll aðstaða fyrir dvalargesti þar er einstök. Húsin eru mjög vel búin, dœmi um danska hönnun og gœði eins og best gerist. íslenskur fararstjóri er í Ebeltoft. Verð í 2 vikur frá 24.350 kr. * *Verð á mann, miðað við að tveir fullorðnir og tvö börn, 2-11 ára, ferðist saman og að staðfestingar- gjald sé greitt eigi síðar en 28. apríl. fnnifalið: Flug, gisting, flutningur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. DAUN EIFEl Til Daun Eifel er auðvelt að komast (innan við tveggja stunda þœgilegur akstur frá Luxembourg) ogþar ergott að vera. Þar bjóðum við gistingu í nýlegum og vel búnum ibúðum og húsum. í Daun Eifel er sundlaug, tennisvellir, gufubað, krár og bjórgarður. Otœmandi gönguleiðir eru um fallegt skóglendið í kring. Fyrir börnin er krakkaklúbbur, minigolf, fótboltavöllur og spilasalur. íslensk barnapía er í Daun Eifel til að auðvelda börnum að taka þátt í barnastarfinu. Eins og undanfarin ár er Elísa Guðmunds- dóttir fararstjóri okkar í Daun Eifel. Notaleg tilhugsun er að eiga frátekið hús í Daun Eifel eftir að hafa ekið um meginlandið og njóta þar alls sem staðurinn hefur að bjóða áður en fríinu lýkur og haldið er heim á leið. Flug, bíll (Ford Sierra) og hús m/2 svefnherb. í 2 vikur: Verð frá 23.900 kr* *Verð á mann, miðað við að tveir fullorðnir og tvö börn,2-llára, ferðist saman. FLUG OG SUMARHÚS Á JÓTLANDI ■ÍRDASKRIFSTOFAN URVAL - m $c'fíl kunn illl tnu1 Póitlmslm!i Ih - hinti 'AiWi í Southcoast World þarf engum að leiðast því þar er fjölbreytt aðstaða til útiveru, leikja, íþrótta og skemmtunar. T. d. má nefna stórkostlega yfirbyggða sundlaug með rennibrautum og öðrum leiktœkjum, útisundlaug, útileiksvœði, diskótek, borðtennis, leikfimisal og tívolítœki. Allt þetta, og ótalmargt annað, nýta dvalargestir sér án aukakostnaðar! Barnaklúbbar, sem vanir leiðbeinendur hafa umsjón með, sjá börnum fyrir óþrjótandi viðfangsefnum á hverjum degi og leikskóli er fyrir minnstu börnin. Verð í 2 vikur frá 28.600 kr.* *Verð á mann, miðað við að tveir fullorðnir og tvö börn, 2-11 ára, ferðist saman og að staðfestingar- gjald sé greitt eigi síðar en 28. apríl. Innifalið er: Flug, gisting, flutningur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Að sjálfsögðu útvegum við sumarhús víða annars staðar í Evrópu, t. d. á hinum Norður- löndunum, Frakklandi, Austurríki, Sviss og vtða í Þýskalandi, t. d. í Svartaskógi. í tengslum við „flug og bíl“ er tilvalið að taka sumarhús á leigu, jafnvel á fleiri en einum stað og ferðast svo á milli þeirra. Hringdu til okkar og fáðu sumarbœklinginn sendan-. í honum finnurðu örugglega réttu sumar- húsin fyrir þig og þína. YDDA F12.20/S1A

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.