Morgunblaðið - 27.02.1988, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988
63
KÖRFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN
Um helgina
HandboKi
1. deild karla
Stjarnan-Þór.lau. kl. 14.00
Valur-UBK....su. kl. 18.00
FVam-FH......su. kl. 20.00
KR-ÍR...............su.kl. 21.15
1. deild kvenna
Valur-Víkingur..lau. kl. 14.00
KR-Fram................lau. 15.15
Stjaman-FH....su. kl. 14.00
2. deild karla
HK-Selfoss..lau. kl. 15.15
ÍBV-UMFN.....lau.kl. 13.30
Körfubolti
Úrvalsdeiid
ÍR-ÍBK.............lau.kl. 14.00
KR-Þór.......su. kl. 14.00
Fimleikar
Meistaramót i fimleikastiga
Meistaramót FSÍ í fimleika-
stiga verður haldið í Laugar-
dalshöllinni á morgun og hefst
klukkan 15. Stúlkur keppa í
2., 3. og 4. þrepi, en piltar í
3. og 4. þrepi. Til að öðlast
þátttökurétt þurfa keppendur
að uppfylla skilyrði, sem
tækninefndir FSÍ hafa sett,
og keppa því aðeins fremstu
fimleikamenn landsins.
Glíma
Bændaglíma milli Sunn-
lendinga og Reykvíkinga
Héraðsþing Skarphéðins
verður haldið í Félagslundi,
Gaulveijabæjarhreppi, um
helgina. í kvöld verður kvöld-
vaka og helsta atriðið bænda-
glíma milli Sunnlendinga og
Reykvíkinga, sem. hefst
klukkan 21. Ólafur H. Jóns-
son er bóndi Reykvíkinga en
Már sigurðsson er heima-
bóndi. Á meðal keppenda
verða tveir glímukappar ís-
lands, fjórir skjaldarhafar Ár-
manns, tveir glímukappar
Suðurlands og þrír skjaldar-
hafar Skarphéðins.
Blak
Úrslitakeppni
fslandsmótsins
Þróttur-ÍS (ka)...lau. kl. 14.00
Þróttur-UBK (kv.)
...............lau.kl. 15.15
Víkingur-ÍS (kv.)
...............lau. kl. 16.30
Víkingur-ÍS (bikark. ka.)
..............má. kl. 19.30
Sund
Sundmót Ármanns fer fram í
Sundhöll Reykjavíkur á morg-
un. Upphitun hefst klukkan
13 en mótið klukkan 14. Auk
verðlauna fyrir fyrstu þrjú
sætin í hverri grein verður
veittur bikar fyrir 100 m
skriðsund karla og fyrir stiga-
hæsta einstakling samkvæmt
stigatöflu.
Ftjilsar
Álafosshlaupið
Álafosshlaup Aftureldingar
fer fram í dag og hefst við
Álafoss klukkan 14. Telpur,
stelpur, piltar og strákar
hlaupa 2,5 km; stúlkur, meyj-
ar, drengir og sveinar hlaupa
5 km; konur og karlar hlaupa
6,5 km.
Riöstefna
íþróttir og auglýsingar
í dag frá klukkan 9 til 17.20
verður haldin ráðstefna á veg-
um Mannamóta sf í samvinnu
við ÍSÍ um íþróttir og auglýs-
ingar. Ráðstefnan, sem verður
að Borgartúni 6, er ætluð for-
svarsmönnum íþróttafélaga
og samtaka þeirra, forsvars-
mönnum fyrirtækja, bæja- og
sveitafélaga, þeim sem starfa
að ferðamálum og öðrum, sem
áhuga hafa á efni ráðstefn-
unnar.
Morgunblaöið/Einar Falur
ísak Tómasson lék frábærlega i
gærkvöldi.
ísak óstöðvandi
og Njarðvík vann
Hauka örugglega
ÍSAK Tómasson var hreint
óstöðvandi í gærkvöldi gegn
Haukum — hann skoraði 36
stig, þar af 8 þriggja stiga körf-
ur. ísak gerði 27 stig í fyrri
hálfleik, þar á meðal 7 þriggja
stigd körfur.
Njarðvíkingar tóku strax foryst-
una, höfðu örugga forystu í
leikhléi og alveg fram í miðjan
síðari hálfleik.
Þá sofnuðu þeir illi-
FráBimi lega á verðinum,
Blöndal Haukar gerðu 15
iNjarövik stig gegn 2 á tíma-
bili og minnkuðu
muninn niður í 6 stig. Þá vöknuðu
heimamenn upp við vondan draum,
settu allt á fullt á nýjan leik og
juku forskot sitt aftur. Eftir það
var sigur þeirra aldrei í hættu.
ísak var bestur Njarðvíkinga — var
frábær, sérstaklega í fyrri hálfleik.
Helgi og Teitur, sem tróð nokkrum
sinnum með tilþrifum við mikinn
fögnuð áhorfenda voru einniggóðir.
Hjá Haukum var Henning bestur,
skoraði mikið úr hraðaupphlaupum,
og lék mjög vel að þessu sinni. Það
bar lítið á Pálmari — hana gerði
eina þriggja stiga körfu í fyrri háf-
leik og tíu 'Stig í seinni. Sama má
segja um Val Ingimundarson hjá
UMFN - Haukar
89 : 79
fþrótthúsið í Njarðvík, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, föstudaginn 26. febúrar
1988.
Gangur leiksins: 3:0, 9:8, 15:12,
23:18, 31:24, 39:27, 44:27, 52:37,
60:43, 63:50, 74:52, 74:58, 76:58,
78:72, 86:46, 89:79.
Stig UMFN: ísak Tómasson 36, Helgi
Rafnsson 15, Teitur Örlygsson 14,
Valur lngimundarson 12, Sturla Örl-
ygsson 6, Hreiðar Hreiðarsson 4, Ell-
ert Magnúðson 2.
Stig Hauka: Henning Henningsson 30,
ívar Ásgrímsson 14, Pálmar Sigurðs-
son 13, Ólafur Rafnsson 12, Tryggvi
Jónsson 6, Ingimar Jónsson 4.
Áhorfendur: 150.
Dómarar: Gunnar Valgeirsson og
Kristinn Albertsson og stóðu sig vel.
Stadan
Úrvalsdeildin í körfuknattleik
UMFN......14 12 2 1235:1021 24
ÍBK.......13 10 2 943: 782 20
Valur.....13 8 5 1022: 883 16
Haukar....13 7 6 962: 920 14
KR........12 7 5 957: 851 14
UMFG......14 7 7 1024:1016 14
ÍR........12 5 7 871: 902 10
Þór.......13 1 12 957:1250 2
UBK.......13 1 12 712:1058 2
Njarðvík, hann hafði sig lítið í
frammi.
BADMINTON / HM
Bæði liðin unnu
BÆÐI íslensku liðin sigruðu
andstæðinga sína á heims-
meistaramótinu í badminton í
Hollandi í gær.
K
arlaliðið sigraði Finna 3:2 og
konurnar unnu Wales með
sama mun.
Úrslit í A-riðli karlakeppninnar
urðu þau að Belgía sigraði Spán
5:0 og Danmörk lagði Wales_ 5:0. í
B-riðli var aðeins viðureign íslend-
inga og Finna en í C-riðli vann ír-
land Mósambik 5:0 og Holland sigr-
aði Vestur-Þýskalandi 4:1.
í D-riðli vann Sviss Frakkland 3:2.
Þá er það kvennakeppnin. Úrslit
urðu þessi:
í A-riðli sigraði Sviss Spán 5:0,
Noregur vann Austurríki 4:1 í B-
riðli og í C-riðli sigraði Frakkland
Belgíu 4:1 og Sviar lögðu Skota
með sama mun. í D-riðli voru tveir
leikir: ísland vann Wales 3:2, sem
fyrr segir, og Englendingar sigruðu
íra 5:0.
HASTÖKK INNANHUSS
Heimsmet: 2,42
VESTUR-Þjóðveijinn Carlo Tránhardt setti í gær-
kvöldi heimsmet í hástökki innahúss á móti í
Vestur Berlín. Hann stökk 2.42 metra. Svíinn
Patrik Sjöberg átti gamla metið, 2.41 m, en það
setti hann í Aþenu í febrúar á síðasta ári. Sjöberg
varð þriðji á mótinu í gær, stökk 2,34 m en ann-
ar varð Ditmar Mögenburg, V-Þýskalandi, sem
fór yfir 2.36 m.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Cotte fer hvergi
WEST Ham hafnaði í gær tilboði frá Eyerton í
Tony Cottee. Tilboðið hljóðaði upp á eina og hálfa
miljón punda. Colin Harvey, framkvæmdastjóri
Everton, vill fá Cottee til að leika við hlið Graeme
Sharp í sókninni en John Lyall, stjóri West Ham,
er ákveðínn í að sleppa honum ekki. Óvíst er ta-
lið að Everton bjóði enn betut en félagið hefur
nú þegar gert.
HANDBOLTI
Haukar
burstuðu
Aftur-
eldingu
Haukar sigruðu Aftureldingu
með tfu marka mun, 31:21, að
Varmá í gærkvöldi í 2. deildinni
í handknattleik.
Tveir aðrir leikir voru í deild-
inni. Gróttumenn héldu sínu,
strik í toppbaráttunni með því að
sigra Fylki í íþróttahúsi Seljaskóla
22:17 og Reynir sigraði Ármann í
Sandgerði með eins marks mun,
23:22.
GOLF
Fyrsta Islands-
mótið í golfhermi
FYRSTA íslandsmeistara-
mótið i golf hermi hefst laug-
ardaginn 12. mars og fer það
fram í Keilusalnum við
Öskjuhlíð, en þar er eini golf-
hermir landsins.
Leikinn verður 18 holu högg-
leikur með og án forgjafar,
en hæsta forgjöf, sem gefin verð-
ur er 24. Mótið með forgjöf er
jafnt fyrir konur sem karla. Konur
munu leika á framteigum og karl-
ar á klúbbteigum. Mótið án for-
gjafar miðast eingöngu við klúbb-
teiga. Sigurvegari án forgjafar
hlýtur titilinn íslandsmeistari í
golfhermi.
íslandsmeistarinn verður annar
af tveimur fulltrúum ísiands í
fyrsta heimsmeistaramótinu í
golfhermi, sem fram fer í Glen-
eagles í Skotlandi 8. - 10. apríl.
Hin keppandinn í liðinu verður
valinn af umboðsaðilum golf-
hermis á íslandi. Sigurvegari með
forgjöf hlýtur ferð á sama mót
sem áhorfandi. Verðlaunahafar í
hvorum flokki í 2. - 6. sæti fá
tíma í golfherminum í Keilusaln-
um við Oskjuhlfð frá einni klukku-
stund fyrir 6. sætið upp í 10
klukkustundir fyrir 2. sætið.
Skráning- í mótið fer fram í
Öskjuhltð og lýkur henni 10. mars.
Asgelr Elíasson.
Mm
FOLK
ÁSGEIR Elíasson, þjálfari
meistaraflokks Fram í knatt-
spymu, og Ólafur Magnússon,
þjálfari 2. flokks og markamanna-
þjálfari félagsins, fara á morgun til
Danmörkur. Þeir dveljast hjá hinu
þekkta félagi Bröndby í eina viku,
fylgjast með æfingum liðsins og
öðrum undirbúningi fyrir keppn-
istfmabilið. Dvöl Ásgeirs og Ólafs
lýkur með því að þeir fylgjast með
æfíngaleik Bröndby gegn 3. deild-
arliðinu B 1909, en með því leikur
einmitt Friðrik Friðriksson,
markvörður, sem áður var hjá
Fram.
I DAVID McKay fyrrum leik-
maður Tottenham er nú fram-
kvæmdastjóri Doncaster Rovers
sem leikur í 3. deild. Liðinu hefur
gengið mjög illa og er í næst neðsta
sæti deildarinnar. McKay er ekki
ánægður með árangur liðsins og í
gær setti hann allt byijunarliðið á
sölulista.
■ ARSENAL hefur grætt mikið
á bikarleikjum sínum gegn Man-
chester United og Everton. Að-
gangseyrir á leik Arsenal gegn
Everton nam 230.000 pundum, eða
um 15. miljónum ísl. kr. Tekjumar
af leik liðsins gegn Manchester
United voru svipaðar. Það em
reyndar aðeins tvö lið sem hafa
fengið fleiri en 50.000 áhorfendur
að meðaltali á leiki sfna i vetur, cn
það em Arsenal og Manchester
Unftod.
■ ALBERTO Tomba sigraði f
risastórsvigi á Ólympíuleikunum
í Calgary, í fyrrakvöld. í tilefni af
því sendi Francesco Cossiga, for-
seti Ítalíu, Tomba skeyti þar sem
hann óskaði honum til hamingju
og kallaði árangur Tomba „Há-
punktinn á frábæmm árangri ítal-
skra skíðamanna."
■ MaJcolm Allison enski þjálfari
Setubal í 1. deildinni ( Portúgal,
hefur verið bannað að koma nálægt
hliðarlinunni f næstu sjö vikur.
Hann móðgaði dómara f leik með
Setubal og var dæmdur í 7 vikna
bann, auk þess að þurfa að greiða
28.000 kr. í sekt. Allison verður
þvf að sætta sig við það að fylgjast
með leikjum úr áhorfendastúku, en
hann mun reyna að koma skilaboð-
um áleiðis handtalstöð.
■ RONNIE Whelan og Kevin
McDonald eru í 16-manna hópi
hjá Liverpool fyrir leikinn gegn
Portsmouth í dag. Kevin McDon-
ald hefur ekki leikið með Liverpo-
ol í rúmt ár vegna meiðsla, og
Whelan ekki leikið síðustu leiki
af sömu ástæðum.
■ DÚSSELDORF liðið 8em Páll
Ólafsson leikur með, á eftir að
leika fjóra útileiki f v-þýsku deild-
inni í handknattleik, en ekki þijá
eins og við sögðum frá í gær. Liðið
á eftir að leika gegn Grosswall-
stadt, Essen, Dormagen og
Schwabing.