Morgunblaðið - 12.03.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1988
VEÐUR
Afmælisleikur Samvinnuferða:
Fengu 200 þúsund króna ferð
fyrir fjölskylduna á 50 krónur
Selfossi.
„ÞETTA ER alveg æðislegt. Ég
trúi ykkur ekki,“ sögðu hjónin
Ingveldur Ragnarsdóttir og Guð-
mundur Theodórsson á Selfossi
þegar þau tóku á móti óvæntum
vinningi í afmælisleik Samvinnu-
ferða-Landsýnar. Þau voru með-
al þeirra fimm aðila sem fengu
vinning í gær í fyrri umferð af-
mælisleiksins og fengu ferðir
sínar á 10 krónur.
Guðmundur staðfesti ferð fjöl-
skyldunnar, þeirra hjóna og þriggja
sona, til Hollands klukkan kortér í
Ijögur í fyrradag, rétt fyrir lokun.
Hann hafði áður farið þtjár ferðir
til að leita að umboðinu á Selfossi
en ekki fundið það, en þau hjónin
eru nýflutt á Selfoss og Guðmundur
sagðist vera frekar ókunnugur þar
ennþá. Þegar hann svo hringdi til
að bóka í ferðina var umboðsmaður-
inn veikur. Þá hringdi hann í aðal-
skrifstofuna í Reykjavík.„Þá var ég
bara að hugsa um að hætta við og
ganga frá þessu á mánudaginn,“
sagði Guðmundur. „Eg var reyndar
búinn að hugsa um að hringja allan
daginn en komst ekki í símann.
Auðvitað hugsaði maður um lukku-
pottinn og það ýtti nú á að ég stað-
festi þetta á fimmtudaginn, svo
vorum við líka hrædd um að það
yrði uppselt á besta tímanum."
„Ég fæ þetta þá bara á fimmtíu-
kall,“ sagðist Guðmundur hafa sagt
við afgreiðslustúlkuna í símann
þegar hún var að reikna út verðið
á ferðinni. Og það gekk eftir. í stað
þess að borga um 200 þúsund fyrir
ferð til Hollands í sumarhús í Kemp-
ervennen kostar ferðin 50 krónur,
10 krónur á mann.
Auk fjölskyldunnar frá Selfossi
fengu tvær stúlkur úr Reykjavík
vinning, ferð til Rimini í þijár vik-
ur, tveir strákar frá Höfn í Homa-
firði fengu ferð til Rhodos í tvær
vikur, þriggja manna Qölskylda frá
Húsavík fékk ferð til Mallorca í
þrjár vikur og hjón úr Kópavogi
ferð til Rimini í þijár vikur.
Þann 10. maí verða aftur dregin
fimm númer úr öllum staðfestum
bókunum hjá Samvinnuferðum-
Landsýn. Sig. Jóns.
Fjölskyldan heima í stofu með
heldur á Stefáni Erni 5 ára tvíbura, Theodór 8 ára er á
anna og Guðmundur heldur á hinum tvíburanum, Gunnari Inga.
Að fylgja eftir leiðtogafundi:
Nefnd ráðheira hefur
enn ekki skilað áliti
STEINGRÍMUR Hermannsson,
utanríkisráðherra, skipaði nefnd
eftir leiðtogafundinn hér, 11. og
12. október 1986, til að koma með
tillögur um hveraig hægt væri að
fylgja fundinum eftir með ráð-
stefnuhaldi hérlendis. Helgi
Ágústsson, skrifstofustjóri i ut-
anríkisráðuneytinu og formaður
nefndarinnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann ætti von á
að niðurstöður nefndarinnar
lægju fljótlega fyrir. f grein, sem
birtist í Ferðablaði Lesbókar
Morgunblaðsins í dag og Oddný
Björgvinsdóttir skrifaði, segir
m.a. að aðrar þjóðir hafi orðið
fyrri til að nota þemað „ferðaþjón-
usta er leið til friðar“.
„Það er náttúrlega ekki nógu gott
að nefndin skuli ekki vera búin að
skila áliti," sagði Helgi. „Það hafa
hins vegar verið miklar annir hjá
mér sem hafa valdið því að þetta
verk hefur tafist. Við höfum þó unn-
ið að þessu máli og haldið nokkra
fundi og ég á von á að niðurstöður
nefndarinnar liggi fljótlega fyrir.
Auk mín eru í nefndinni Jón Hákon
Magnússon, Baldvin Jónsson, Birgir
Þorgilsson, og Þráinn Þorvaldsson,"
sagði Helgi.
I grein Oddnýjar Björgvinsdóttur
segir m.a. að vegna leiðtogafundar-
ins hafi íslendingar haft stærsta
tækifæri aldarinnar til að markaðs-
setja og flytja út ferðaþjónustu og
stuðla að öðrum útflutningi. Aðrar
þjóðir hafi hins vegar orðið fyrri til
að grípa tækifærið og nýta þemað
„ferðaþjónusta er leið til friðar".
írar hafi t.d. haldið alþjóðlega
ferðamálaráðstefnu í Shannon á írl-
andi í maí í fyrra og þeir hafi í
hyggju að byggja Shannon upp sem
alþjóðlegan ráðstefnustað. Megin-
þema fundarins hafi verið að al-
þjóðleg ferðaþjónusta væri ein
áhrifaríkasta leiðin til að stuðla að
betri skilningi milli þjóða. Þá ætli
Kanadamenn að halda alþjóðlega
ráðstefnu, helgaða sama þema, í
Vancouver í október næstkomandi.
Sjá nánar í Ferðablaði Les-
bókar.
Páll Þorsteinsson ráðinn
útvarpsstjóri Bylgjunnar
PÁLL Þorsteinsson hefur verið
ráðinn útvarpsstjóri á stöðvum
íslenska útvarpsfélagsins h.f.,
Bylgjunni og Ljósvakanum. Páll
tekur við starfinu af Einari Sig-
urðssyni, sem hefur gegnt starfi
útvarpsstjóra hjá íslenska út-
varpsfélaginu frá því Bylgjan tók
til starfa haustið 1986. Einar mun
taka við ýmsum sérverkefnum
fyrir stjóra íslenska útvarpsfé-
lagsins.
Páll Þorsteinsson hefur verið dag-
skrárstjóri Bylgjunnar og starfsmað-
ur hennar frá upphafi. Hann starfaði
áður við ríkisútvarpið og er tónlistar-
kennari að mennt. Hann er kvæntur
Rögnu Pálsdóttur og eiga þau eina
dóttur.
Páll Þorsteinsson.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hjónin Guðmundur Theodórsson og Ingveldur Ragnarsdóttir taka á
móti blómvendi og farseðlum hjá Kristinu Jónsdóttur og Auði Björas-
dóttur frá Samvinnuferðum-Landsýn, sem komu þeim hjónum að
óvörum með vinninginn í gær.
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 12.3. 1988
YFIRLIT í gær: Yfir Grænlandi er 1040 mb. hæfi. 995 mb. iægða-
svæfii yfir Skandinavíu sem þokast austur. Norðanlands verður
6—11 stiga frost en nokkru mildara sunnantil.
SPÁ: Norðaustanátt — smá él á norðaustur- og austurhluta lands-
ins, og annesjum norðan- og norðvestanlands. Annarsstaðar úr-
komulaust.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Á sunnanverðu landinu
verður all hvöss austanátt með snjókomu en norðaustanátt og él
um landiö norðan- og austanvert. Vestanlands verður víöast bjart-
viðri. Dregur úr frosti.
TAKN:
Heiðskírt
Lettskyjað
Hálfskýjað
Skyjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hftastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El-
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
. —j. Skafrenningur
[T Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma hltl voflur Akureyri +« alskýjað Reykjavík +3 skýjað
Björgvin 1 léttskýjað
Helsinki 0 snjókoma
Jan Mayen +11 snjóél
Kaupmannah. 4 léttskýjað
Narssarssuaq 3 skúrtr
Nuuk +4 alskýjað
Ósló 3 léttskýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Þórshöfn 1 snjóél
Algarve 17 helðskfrt
Amsterdam 6 rígning
Aþena vantar
Barcelona 14 mlstur
Berffn 5 hálfskýjað
Chicago 1 léttskýjað
Feneyjar 8 þokumóða
Frankfurt 6 skýjað
Glasgow 9 rígnlng
Hamborg 5 skúrír
Las Þalmas 24 heiðskirt
London 10 skýjað
Los Angeles 11 heiðskírt
Lúxemborg 4 skýjað
Madrfd 13 helðskirt
Malaga vantar
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal +9 léttskýjað
New Vork 1 heiðskfrt
Perís 8 alskýjað
Róm 13 heiðskfrt
Vín 6 hálfskýjað
Washington 2 léttskýjað
Winnipeg 4*6 snjókoma
Valencía 17 heiðskfrt