Morgunblaðið - 12.03.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1988
Vikan að kvennablaði
NOKKRAR breytingar hafa ver-
ið gerðar á timaritinu Vikunni.
Hún er nú orðin kvennablað auk
þess sem Bryndís Kristjánsdótt-
ir sest í annan ritstjórastólinn.
Þá hefur prentsmiðjan Oddi tek-
ið við prentverkinu og verður
Vikan eftirleiðis prentuð á vand-
aðan myndapappír og helming-
ur blaðsins í lit. Vikan mun
koma út aðra hveija viku á
meðan hún er að taka á sig end-
anlega mynd.
Breytingamar eru gerðar í kjöl-
far skoðanakönnunar sem Vikan
INNLENT
gerði meðal lesenda sinna. í frétt
frá Sam-útgáfunni segir að blaðið
sé nú sniðað að þörfum kvenna
þó að karlmenn muni eflaust finna
eitthvað við sitt hæfi. Meðal efnis
í nýjasta tölublaði Vikunnar má
nefna viðtöi við nokkra karlmenn
um hvemig konu þeir vilji, greinar
um popp, matargerð, gallabuxur
og framhjáhald kvenna, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Bryndís hefur gegnt starfi rit-
stjómarfulltrúa Vikunnar síðast-
liðið hálft ár og mun hún ritstýra
því ásamt Þórami Jóni Magnús-
syni. Þau ritstýra einnig tímaritinu
Hús og hýbýli. Magnús Guðmunds-
son hefur látið af starfí ritstjóra
Vikunnar.
í tilefni hálfrar aldar afmæli
Vikunnar efnir blaðið til sérstakrar
afmælisgetraunar þar sem aðal-
vinningurinn er bifreið af gerðinni
Peugeot 205.
íslenskir karlmenn
Guðfræðinemar:
Sólarhringsvaka í Dómkii-kjunni
til styrktar Rússlandsferð
Grindavíkursamkomulagið:
Orsakar verðbólgnnnar er
ekki að leita í Grindavík
Guðfræðinemar halda sólar-
hringslanga biblíulestrarvöku í
Dómkirkjunni á sunnudag, 13.
mars, og hefst hún á miðnætti
aðfararnótt sunnudagsins. Til-
gangurinn með vökunni er sá
að vekja athygli á Rússlands-
ferð guðfræðinema í júni í sum-
ar, en þá heldur rússneska
kirkjan upp á 1000 ára afmæli
sitt. Fjársöfnun er nú i gangi
til styrktar Rússlandsförinni,.
en guðfræðinemar áforma m.a.
að taka þátt í helgihaldi grísk-
kaþólsku kirkjunnar i Kiev, eða
Kænugarði, og að heimsækja
elstu starfandi kirkjudeild i
heimi í Armeníu.
Að sögn Þórhalls Heimisson,
guðfræðinema, fara fímmtán
nemar ásamt kennara til Rúss-
lands þann 1. júní og verða þeir
þrjár vikur í ferðinni. Tilganginn
með ferðinni sagði Þórhallur vera
þann, fyrir utan að taka þátt í
hátíðarhöldunum, að efla tengsl
íslendinga við kirkjudeildimar
eystra og sýna þeim stuðning.
Þórhallur sagði að fom tengsl
væru á milli kirkjunnar á islandi
og í Rússlandi, enda hefði verið
samgangur á milli landanna á
víkingatímanum. Jónas Gíslason
dósent mun flytja fyrirlestur um
tengsl íslensku og rússnesku
kirknanna í Kænugarði, en sam-
kvæmt íslendingabók voru hér
ermskir trúboðsbiskupar frá á
ferð á undan kaþólskum. Jónas
mun einnig flytja fyrirlestur sinn
í Dómkirkjunni klukkan 20 á
sunnudag.
Hópurinn dvelur fyrst í vik-
utíma í Kænugarði, þar sem aðal-
hátíðahöldin fara fram, en síðan
verður haldið til Jerevan, eða ein-
hverrar annarrar borgar í Arm-
eníu, ef leyfí fæst hjá sovéskum
yfírvöldum. Síðustu vikuna munu
islensku guðfræðinemamir svo
nota til að skoða kirkjur í Moskvu
og Leningrad. Að sögn Þórhalls
er þetta dýr og löng för fyrir stúd-
enta með lítil fjárráð og því vildu
guðfræðinemar biðja þá sem
styrkja vildu förina að leggja inn
fé á gíróreikning eða á biblíulestr-
arvökunni.
Biblíulestrarvakan hefst með
lestri úr Daviðssálmum á mið-
nætti í kvöld, laugardag, og stend-
ur hann fram undir klukkan átta
um sunnudagsmorguninn, með
söng og tónlist inn á milli. Þá
hefjast morguntíðir sem Adda
Steina Bjömsdóttir, guðfræði-
nemi, stjómar, en klukkan 11
Dómkirkjan i Reykjavík.
messar séra Hjalti Guðmundsson,
en Gunnbjörg Óladóttir, guð-
fræðinemi predikar. Klukkan 14
á sunnudag er aftur messa þar
sem séra Þórir Stephensen mess-
ar, en Þórhallur Heimisson, guð-
fræðinemi, predikar. Eftir síðari
messu hefst aftur biblíulestur með
stuttum fyrirlestrum um sögu og
stöðu kirkjunnar í Rússlandi og
Armeníu inn á milli, en klukkan
21 hefst kompletoríum sem Adda
Steina Bjömsdóttir stjómar.
Gregorsk messa í anda austur-
kirkjunnar hefst klukkan 23 á
sunnudagskvöldið, þar sem séra
, Heimir Steinsson messar, Kristin
Jens, guðfræðkiemi, predikar og
Jón Stefánsson, organisti, spilar
undir. Biblíulestrarvökunni lýkur
svo á miðnætti á sunnudaginn.
- segir Gunnar Tómassson, fiskverkandi
Grindavík.
„ÞAÐ kann að vera að sumum
finnist samfélagið hér í
Grindavík ekki stórt á landsvísu,
en svo mikið er víst að hér er
mikið unnið og héðan koma veru-
leg verðmæti til þjóðarbúsins,"
sagði Gunnar Tómasson, fisk-
verkandi í Grindavík er hann var
inntur álits á yfirlýsingum Þór-
arins V. Þórarinssonar, fram-
kvæmdastjóra VSÍ, í fjölmiðlum
vegna Grindavíkursamkomu-
lagsins.
„Satt að segja skyldi ég þá fram-
kvæmdastjómarmenn VSI þannig á
fundum okkar í fyrradag að það
skipti verulegu máli fyrir samtök
vinnuveitenda og reyndar heildar-
samningsgerðina að hafa okkur
vinnuveitendur í Grindavík þar inn-
anborðs. Sjálfsagt segja menn
meira en þeir ætla sér í hita leiks-
ins á tímum nútíma ijölmiðlunar.
Við Grindvíkingar tókum hins vegar
þá ákvörðun eftir viðræður við
framkvæmdastjóm VSÍ og stjóm
Sambands fiskvinnslustöðvanna að
taka þátt í endurbótum á kaupauka-
kerfi í saltfíski sem í raun var löngu
orðið tímabært," sagði Gunnar enn-
fremur.
„Okkur er einnig löngu orðið ljóst
að það er hagur sjávarútvegsins að
verðbólga fari ekki á fulla ferð í
þjóðfélaginu. Því þurfa menn að
endurskoða þá frelsisstefnu sem
hefur ríkt í landinu og er í rauninni
verðbólguhvatinn. Frelsið kemur
Sjónvarpstæki í
ljósum logum
Kleppjárnsreykjum.
ELDUR kom upp í sjónvarpstæki
á Kirkjubóli í Hvítársíðu snemma
á laugardagsmorguninn. Heimil-
isfólkinu tókst að slökkva eldinn
áður en slökkvilið Borgarfjarð-
ardala kom á staðinn.
Um kl. 8.40 á laugardagsmorgun-
inn vaknaði heimilisfólkið á Kirkju-
bóli í Hvítársíðu við að reykskynjar-
inn fór í gang og var þá kominn all
nokkur reykur í stofuna, því að lok-
að var úr stofu og fram á gang þar
sem reykskynjarinn er. Þegar Ragn-
ar bóndi Sigurðsson opnaði stofuna,
sá hann að sjónvarpstækið stóð í
Ijósum logum og eldtungurnar
teygðu sig til lofts. Hljóp hann þá
til og náði í handslökkvitæki, en það
var óvirkt svo hann náði í vatn og
slökkti eldinn.
Húsið, sem um ræðir, er eldra
húsið á Kirkjubóli en í því bjó áður
Guðmundur Böðvarsson, skáld og
bóndi. Húsið er timburhús svo illa
hefði getað farið ef reykskynjarinn
hefði ekki farið í gang. Rétt er að
benda fólki á að athuga slökkvitæk-
in sín. Það er of algengt að þau séu
ekki í lagi þegar á þeim þarf að
halda.
— Bernhard
Sjónvarpstækið eftir brunann. Morgunblaíið/Bemhard Jóhanneason
okkur þannig fyrir sjónir í sjávarút-
veginum að verslunar- og þjónustu-
greinamar hafa hafta- og eftirlits-
laust velt öllum kostnaðarhækkun-
um út í þjóðfélagið meðan sjávarút-
veginum hefur algjörlega verið
skammtaðar tekjur í formi fast-
gengisstefnu og „skattgreiðslna“ í
verðjöfnunarsjóði fískiðnaðarins.
Við stöðvum ekki þensluna og ijár-
festingaræðið í verslunar- og þjón-
ustugreinunum með því að neita
okkar verkafólki um leiðréttingar á
kaupi, sem verslunar- og þjónustu-
aðilar eru löngu búnir að færa sínu
fólki. Það er orðið alvarlegt mál
þegar reikningsmeistarar ríkis-
starfsmanna og annarra launþega
úr öðrum atvinnugreinum fínnst
það orðið sjálfsögð regla að taka
einfaldar krónutöluhækkanir af
kaupi fiskvinnslufólks og reikna það
yfír í prósentur. Fara síðan í grein-
ar í sínum samningum þar sem
kveðið er svo á um að þeir eigi að
fá allar hækkanir sem aðrir laun-
þegahópar semja um, en undir slíka
samninga hefur ríkisstjómin sjálf
skrifað fyrir sitt fólk og má því
segja að allrar ábyrgðar á verð-
bólgustefriu ríkisstjómarinnar sé
annars staðar að leita en í
Grindavík," sagði Gunnar að lokum.
Kr. Ben.
Richard Dreyfuss og Barbra Streisand í hlutverkum sínum í kvik-
myndinni „Nuts“ sem sýnd er í Bíóborginni.
Bíóborgin frumsýnir
kvikmyndina „Nuts“
Bíóborgin hefur tekið til sýn-
inga kvikmyndina „Nuts“. Leik-
stjóri myndarinnar er Martin
Ritt, handritshöfundur Tom Top-
or og með aðalhlutverk fara
Barbra Streisand, Richard
Dreyfus, Maureen Stapleton,
Karl Walden og Eli Wallach.
Kládía Draper, sem leikin er af
Barbra Streisand, er í vanda stödd
því hún hefur gert sig seka um
manndráp, sem getur kostað hana .
25 ára fangelsi ef engar ástæður
finnast til að milda dóminn. Hún
hefur engan áhuga á að hjálpa til
við vömina en geðlæknamir sem
eiga að dæma um sakhæfi hennar
hafa mikinn áhuga á að fá hana í
sína umsjá.
(Fréttatilkynning)
Tónleikar í
Lækjartungli
ROKKABILLY- og blústónleikar
verða haldnir í Lækjartungli
sunnudaginn 13. mars kl. 22—01.
Þar koma fram Rokkabillyband
Reykjavíkur auk Bobby Harri-
sons ásamt aðstoðarmönnum.
Rokkabillyband Reykjavíkur er
hljómsveit sem leikur rokkabillytón-
list tónlist frá ýmsum tímum. Með-
limir hljómsveitarinnar eiga allir
ættir og uppeldi að rekja til lands-
byggðarinnar. Rokkabillyband
Reykjavíkur skipa Ásmundur
Magnússon, söngur, Bjöm Vil-
hjálmsson á bassa, Tómas Tómas-
son á gítar og Sigfús Óttarsson á
trommur.
Bobby Harrison ásamt góðum
hóp manna mun leika lög af plöt-
unni „Solid Silver". Flutningsmenn
eru: Bobby Harrison, sem spilar á
trommur og syngur, Rúnar Júlíus-
son, sem spilar á bassa og syngur,
Micky Duff á gítar og Sigurður
Sigurðsson, sem syngur og spilar á
munnhörpu. (Fréttatiikynning)